Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1991 Reglur staðfestar um greiðslu fyrir stundakennslu í HI Enginn vandi leystur segir Páll Halldórsson f ormaður BHMR „ÉG GET ekki séð að neinn vandi sé leystur með þessu. Þarna er ekkert sem bendir til þess að verið sé að gera kjör stundakenn- ara aðgengileg,“ segir Páll Halldórsson formaður BHMR um regl- ur sem menntamálaráðherra staðfesti í gær um greiðslu fyrir stundakennslu við Háskóla íslands. í fréttatilkynningu frá mennta- málaráðuneytinu kemur fram að við setningu þessara reglna hafi ráðuneytið ekki talið fært að víkja frá því gruridvallarsjónarmiði að miða við almenn ákvæði er gilda í kjarasamningum starfsmanna ríksins um tímavinnu. Meginbreytingin frá eldri regl- um felst í því, að mati menntamála- ráðuneytisins, að felld eru niður ákvæði um að byijunarlaun verði alltaf í lægsta launaflokki. Há- skólaráði er falið að setja nánari reglur um röðun í hvern flokk og framgang milli flokka. Við ráðn- ingu verður raðað í flokk eftir hæfni viðkomandi á því sviði sem VEÐUR námskeiðið fjallar um sem viðkom- andi kennir. Viðkomandi deild inn- an HÍ hefur úrskurðarvald um það hvort stundakennari sé færður milli flokka. „Með þessu er ekki verið að koma til móts við þær kröfur sem uppi hafa verið. Launamisrétti því sem hefur verið í stundakennslunni er ekki breytt í neinum grundvall- aratriðum,“ sagði Páll Halldórsson formaður BHMR. Hann sagði einnig að BHMR hefði alla tíð verið á móti því að launakjör væru ákveðin með ráð- herratilskipunum. „Það teljum við einfaldlega ekki heyra undir tutt- ugustu öldina,“ sagði Páll. „Lausn háskólayfírvalda, að §ölga yfírvinnutímum hjá háskóla- kennurum, er engin lausn. Hún breytir ekki þeim kj_örum sem stundakennarar hafa. Ég tel mjög mikilvægt, og skora á alla háskóla- menn, að ganga ekki inn í störf þeirra sem þama eru í deilu. Það dregur málið á langinn og gerir það erfiðara." Páll vildi vekja athygli á að í reglum ráðuneytisins væri fyrirvari um að enginn skuli lækka í launum miðað við haustmisseri 1990. „Þetta á við um þá sem eru að vinna en þeir sem koma nýir inn myndu mögulega lækka. Slíkur fyrirvari er ekki settur inn að ástæðulausu," sagði Páll. Deila þessi tekur ekki aðeins til Háskóla íslands, heldur til allra skóla á háskólastigi. VEÐURHORFUR IDAG, 12. JANÚAR Milli ísiands og Noregs er 985 mb lægð sem þokast norðaustur og grynnist og 1004ra mb smálægð ó Grænlandshafi þokast norðaustur í átt til landsins. Um 500 km austur af Nýfundna- landi er víðáttumikil 955 mb dj«ip lægð sem þokast austnorðaust- ur. SPÁ: Hæg breytileg átt, víðast þurrt og nokkuð kalt. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG:Suðaustanátt um allt land og hlýnandi veður. Snjókoma og siðar slydda eða rigning um sunnanvert landið en þurrt að mestu nyrðra. HORFUR Á MÁNUDAG: Suðaustlæg átt og hlýtt. Skúrir um sunn- an- og vestanvert landið en annars þurrt. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. f r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V El — Þoka — Þokumóða ’, ’ Súld OQ Mistur —Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hlti +8 +6 veóur skýjað léttskýjað Bergen 5 skýjað Helsinkl +6 alskýjað Kaupmannahöfn 6 hálfskýjað Narssarssuaq +12 léttskýjað Nuuk +12 hálfskýjað Osló +7 skýjað Stokkhólmur 2 skýjað Þórshöfn +1 snjóéi á s.klst. Algarve 17 skýjað Amsterdam 8 skýjað Barcelona 17 léttskýjað Berifn 8 skýjað Chicago -r1 snjókoma Feneyjar 9 þokumóða Frankfurt 9 rigning Glasgow 6 skúr á síð. klst. Hamborg 7 skýjað Las Palmas 21 heiðskírt London 7 þrumuv. á s.klst. Los Angeles 9 heiöskírt Lúxemborg 7 rigning Madríd 11 skýjað Malaga 17 léttskýjað Mallorca 16 hálfskýjað Montreal +19 skýjað NewYork +4 alskýjað Orlando vantar Parls 10 skýjað Róm 16 þokumóða Vln 6 þokumóða Washington 0 þokumóða Winnipeg +19 skýjað Skíðalyftumar í Bláfjöllum verða gangsettar í dag. Bláfjöll: Skíðasvæðið opnað í dag ^KÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum verður opnað í dag. Opið verður frá klukkan 11.00 til 17.00 laugardag og sunnudag. Fjórar lyftur, stólalyftan í Kóngsgili, borgarlyftan, gillyftan og barnalyftan við Biáfjallaskálann verða í gangi. Búið er að ryðja 4,5 kílómetra langa gönguskíðabraut á svæðinu. Ekki liður á löngu þar til hægt verður að opna skíðasvæðið í Skálafelli. „Við höfum verið að ýta snjónum til að undanfömu og ætlum að opna á laugardag þótt snjórinn sé í algjöru iágmarki," sagði Þorsteinn Hjaltason, forstöðumaður Bláfjalla, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann bað fólk um að fara að öllu með gát vegna snjóleysisins en kvaðst búast við að bætti á snjóinn á næstunni svo hægt yrði að lengja opnunartímann og hafar opið frá klukkan 10.00 til 18.00 á daginn og á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum til 22.00 eins og verið hefði. Sætaferðir verða frá BSÍ, Kópavogi og Hafnarfirði í Bláfjöll klukkan 10.00 og 13.30 um helgina og heim aftur klukkan 17.00. Upplýsingar um veður og færð má fá í símsvara Bláfjalla í. síma 80111. Bláfjallanefndin rekur skíða- svæðið í Skálafelli í vetur og sagði Þorsteinn að ekki liði á löngu þar til hægt yrði að opna það. í Skála- felli eru þijár lyftur, tvær toglyftur og ein stólalyfta. Skíðaleiga og veitingasala verð- ur í Bláfjöllum eins og undanfarna vetur. Niðurstöður loðnu- leitar eftir helgina HJÁLMAR Vilhjálmsson leiðang- ursstjóri í loðnuleitarleiðangri Hafrannsóknastofnunar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ekkert væri enn hægt að segja um loðnugengd fyrr en eftir helgi, þegar niðurstöður rann- sókna leiðangursins hafa verið metnar. Bræla var austur af landinu þar sem Hjálmar var staddur um borð í rannsókna- skipinu Bjarna Sæmundssyni og slæm leitarskilyrði. Hjálmar var spurður hvort verið gæti að loðnan sé til- staðar þótt hún fínnist ef til vill ekki við leit og styngi skyndilega upp kollinum síðar. „Þetta er nú kannski tal sem kemur upp af og til þegar að þreng- ir og menn sjá ekki þær tölur sem þeir vilja sjá,“ sagði hann. „Það koma auðvitað svona til- felli, en þau eru nú yfirleitt miklu frekar bundin við sumarið heldur en haustið og veturinn þegar við mælum. Það er ástæðan fyrir því að þeir tímar ársins hafa verið vald- ir. Það er auðvitað líka alltaf þann- ig, að maður þarf að reyna að sjá þegar verið er að þessu hvort að- stæður eru brúklegar eða ekki. Ýmislegt getur valdið því að manni mistekst, veður, ís og fleira, og við dæmum þessar mælingar alltaf gildar eða ógildar meðan við erum á slóðinni. Ef litið er á þær mæling- ar sem við höfum dæmt gildar og þær bomar saman við aðrar mæl- ingar á sömu stofnhlutum, þá fæ ég nú ekki annað séð en að í lang- flestum tilfellum séu niðurstöðurnar samkvæmar sjálfum sér,“ sagði hann. Hjálmar sagði ótímabært að ræða í hvaða mæli loðnu hefði orð- ið vart, fyrr en eftir helgina. Víkingbrugg: Lokun hefur ekki enn áhrif hjáÁTVR LOKUN Víkingbruggs á Ak- ureyri hefur ekki enn haft áhrif hjá ÁTVR, en mun gera það innan tíðar ef verksmiðj- an verður lokuð áfram. Fyrir- tækið hefur verið innsiglað vegna vangoldinna opinberra gjalda síðan á þriðjudag. Að sögn Svövu Bemhöft, inn- kaupastjóra ÁTVR, hefur Lö- 'venbrau-bjórinn fengist í útsöl- um til þessa. „Við þurfum að panta bjór að utan og erum alltaf með mikið í pöntun. Það þarf að sérpakka fyrir okkur og setja sérstaka miða á flöskumar þannig að þetta tekur allt sinn tíma. En áhrifa lokunar Víkingbruggs er ekki farið að gæta hjá okkur,“ sagði Svava.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.