Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991 Minning: Eggert Gunnarsson Vestmannaeyjum Fæddur 4. september 1922 Dáinn 4. janúar 1991 Eggert Gunnarsson var afi minn. Ég mun aldrei gleyma honum. Hann var glaður og brosmildur og vildi gera allt fyrir mig. Alltaf þeg- ar ég kom til Eyja, mátti ég fara með honum niður í slipp, þar smíðaði ég margt og naut þá leið- sagnar hans og hjálpar. Oft fór ég með honum út á trill- unni hans, Enok VE 8, mér og honum til skemmtunar. Hann var . fastur punktur í lífinu, það var hægt að treysta honum fyrir öllu og sá hann alltaf einhveijar góðar hliðar á málunum. Einhvernveginn get ég varla hugsað mér Vestmannaeyjar án góða og elskulega afa, en hann verður þó alltaf í hjarta mínu og honum mun ég aldrei gleyma. Bið ég góðan Guð að vernda hann og geyma. Guðni Agnar Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þegar þau válegu tíðindi bárust að morgni föstudagsins 4. janúar sl. að Eggert Gunnarsson, skipa- smiður, væri látinn, fannst okkur ættingjum hans og vandamönnum að vonum erfitt að sætta okkur við að þetta væri raunveruleiki, svo snöggt vann að þessu sinni hinn óboðni gestur verk sitt. Eggert Gunnarsson var fæddur 4. september 1922. Hann var sonur þeirra þekktu ágætishjóna Gunnars Marels Jónssonar og konu hans/ Sigurlaugar Pálsdóttur. Þau dugn- aðar- og merkishjón bjuggu öll sín búskaparár í Vestmannaeyjum, lengst af á Vestmannabraut 1. Þau eignuðust 12 börn og var Eggert það sjöunda í röðinni. Allt frá því að Dráttarbraut Vestmannaeyja var stofnuð 1925 af samtökum margra dugmikilla útvegsmanna í Vest- mannaeyjum, var Gunnar Marel þar yfirsmiður og framkvæmdastjóri. Meðal margra góðra verka kom það í hlut Gunnars að hleypa af stokk- unum stærsta fiskiskipi sem til þess tíma hafði verið smíðað á íslandi, vélbátnum Helga. Má geta nærri að börn Gunnars fylgdust með vinnu föður síns og þarna átti eftir að koma fram hið fornkveðna „hvað ungur nemur sér gamall temur“. Eggert ólst frá barnæsku upp við hjartslátt Eyjanna, hafið, björg- in og fiskibátaflotann. Hann mun snemma hafa lært að meta þann sterka hlekk sem flotinn var og er í starfskeðju Eyjamanna. Hann taldi það því sjálfsagða skyldu sína að sinna kalli hvenær sem skip þarfnaðist viðgerðar. Þá breytti það engu á hvaða tíma sólarhringsins það var. Sonur hafði lært skyldu- rækni af föður. Frá öndverðu hefur það verið snar þáttur í lífi Eyjamanna að nýta ser það sem fuglabjörgin gefa til matar. Eggert mun snemma hafa orðið liðtækur við sókn í björg- in og sjaldan var hann með meiri gleðibrag en þegar bann tók þátt í umræðu um lundaveiði og eggja- töku. Eggert lærði skipasmíðar af föð- ur sínum og lauk sveinsprófi árið 1944. Þótt hann starfaði lengst af við smíðar stundaði hann alltaf sjó- mennsku öðrum þræði. Kunni hann vel þar til verka og handtökin voru röskleg við almenn störf á sjávar- slóð. Nokkru eftir að Eggert lauk námi sem skipasmiður varð hann þeirrar gæfu aðnjótandi að kvænast eftir- lifandi konu sinni, Jónu Guðrúnu Ólafsdóttur frá Víðivöllum í Vest- mannaeyjum. Foreldrar hennar voru Ólafur Ingileifsson, þekktur sjósóknari og aflamaður, og kona hans, GuðfinnaJónsdóttirfrá Ólafs- húsum, sómakært dugnaðarfólk. Eggert og Jóna sýndu fljótt í verki hve samstæð þau voru á lífsbraut- inni. Með dugnaði og ráðdeild komu þau-sér upp glæsilegu heimili og má fullyrða að húsmóðirin, sú prúða og hljóðláta kona, hefur þar staðið fyrir sínu. Það fór ekki á milli mála að hún taldi að sinn staður væri við hlið eiginmannsins og þar hefur hún verið honum styrk stoð í blíðu og stríðu alla tíð. Þegar heilsu Gunnars Marels fór hnignandi og vinnuþrekið brast tók Eggert við Dráttarbrautinni og var framkvæmdastjóri hennar allt til dauðadags. Þeir sem kynntust Eggerti vissu að hann var gæddur sterkri trú. Hann var fullviss um að ekki værie öllu lokið þótt við kveddum þetta jarðvistarh'f. Skammt var liðið á vinnudaginn hinn fjórða janúar sl. þegar síðasta kallið kom. Ef til vill er það mikilvægast fyrir atorku- mann að ganga þannig úr fullu starfi rakleitt á vit skapara síns, búinn til fullrar þjónustu um alla eilífð. Það má hveijum ljóst vera að ekki er hægt að segja mikið um æviferil Eggerts í einu stuttu kveðjuerindi. Ef til vill eru þau líka best orðin sem aldrei eru sögð. Þó ber að minnast hér á eitt í fari Eggerts sem hvað aðdáunarverðast var en það var hve honum var umhugað um heimili sitt, þar mátti aldrei neitt vanta. Það fór ekki framhjá neinum sem þekkti hann hve innilega hann elskaði konu sína, börnin og heimilið. Hans traustu og indælu eftiriif- andi konu, Jónu Guðrúnu Ólafsdótt- ur, sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur, einnig börnum þeirra, systkinum og frændliði. Aðeins Guð einn getur veitt mönnum styrk í sorginni. Við biðjum hann að stijúka burt tárin, blessa og varðveita ykkur öll. Hafsteinn Stefánsson í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju ástkær faðir okkar, Eggert Gunnarsson, skipasmíða- meistari. Hann var sonur hjónanna Sigurlaugar Pálsdóttur og Gunnars Marels Jonssqnar. Pabbi ólst upp í foreldrahúsum, einn af mörgum systkinum sem áttu heima á Horn- inu, eins og það var kallað, við Vestmannabraut. Fregnin um lát pabba kom svo óvænt og erfitt er að átta sig á því að hann sé ekki lengur hér á meðal okkar. Hann pabbi sem alltaf var svo heilsuhraustur og hann var okkar klettur í lífsins ólgusjó, vak- andi yfir velferð okkar. Minningamar fljúga í gegnum hugann. Heima á Víðivöllum var margt brallað hjá okkur krökkunum og oft tók pabbi þátt í því. Hann var alltaf tilbúinn að aðstoða okkur um það sem okkur vanhagaði um og það gerði hann af heilum hug. Hápunktur jólaundirbúningsins var tengdur pabba, en það var að fara með honum að versla niður á Tanga. Á Tanganum var margt til sem barnshugurinn girntist og það skildi pabbi vel og við komum oft með mikið meira heim úr verslunarferð- inni en akkúrat það sem við áttum að kaupa. En ekki voru öll jól haldin á Víði- völlum. Mamma og pabbi byggðu okkur fallegt heimili á Sóleyjargötu 12. Pabbi var mikill hagleiksmaður og ber heimili þeirra þess glöggt vitni. Heima á Sóló er allt gert eft- ir kúnstarinnar reglum og þar lagði hann sig fram úm að búa sem best um okkur öll og hafa allt sem vand- aðast og fallegt. Fyrir tveimur árum festu foreldr- ar okkar kaup á sumarbústað rétt fyrir utan Reykjavík. Þar sýndi hann okkur enn einu sinni hve annt honum var um að búa okkur öllum fallegan stað þar sem við gætum eytt okkar frítíma. Persóna pabba verður seint lýst en við vitum að hann var sterkur persónuleiki með mjög sérstakan og skemmtilegan frásagnaranda. Hann hafði gaman af góðum frá- sögnum og sagði sjálfur mjög vel frá, tók skemmtilega til orða þann- ig að sögurnar urðu ljóslifandi. Pabbi hafði sterka trú, var víðlesinn og fy+gdist vel með mönnum og málefnum. Faðir okkar var ungur að árum þegar hann hóf störf í slippnum, þar starfaði hann í yfir fimmtíu ár og þar var hann þegar kallið kom. Trú hans var sú að það væri æðra líf eftir dauðann og við erum þess fullviss að það hafi verið vel á móti honum tekið. Missirinn er mikill, ekki síst fyrir móður okkar og biðjum við algóðan Guð að styrkja hana og vernda. Okkur er efst í huga virðing og innilegt þakklæti til föður okkar. Minninguna um hann varðveitum við í hjörtum okkar og hana munum við hafa að leiðarljósi um ókomna tíð.. Guð blessi hann og varðveiti. Óli, Svava, Gunnar, Guðfinna, Silla og Óskar Það var um kvöld, föstudaginn 4. janúar síðastliðinn, að mér bár- ust þau tíðindi að föðurbróðir minn hefði látist þá um morguninn, 66 ára að aldri. Mig setti hljóðan við þá fregn, því í mínum huga var Eggert maður sem ekkert fékk beygt né bugað og alltaf til staðar þegar á þurfti að halda, að vísu er dauðinn leið okkar allra að lokum, en samt fannst mér sem það ætti ekki við Eggert og það verður erf- itt að sætta sig við að hitta hann ekki þegar ég fer til Eyja. Alltaf var hressandi að lenda í spjalli við Eggert, því hann hafði skoðanir á öllu sem um var talað og fór ekki í launkofa með álit sitt. Eg veit að í bernsku eftir að faðir minn fórst, þá gat ég gengið inn til hans og Karólína Friðriks- dóttir—Minning Fyrir rúmum fjórum árum, vor- um við svo heppin að fá leigða íbúð- ina við hiiðina á íbúð Köllu. Yndis- legri manneskju í sambýli er erfitt að hugsa sér. Þó Kalla hafi verið að komast á tíræðisaldurinn var hún ávallt ung í anda og oft var erfitt að muna að hún væri hartnær sjötíu árum eldri en við. Æðruleysi hean- ar verður okkur vonandi til eftir- breytni og ávallt verður okkur minnisstætt hversu auðvelt hún átti með að sjá spaugilegu hliðarnar, bæði hjá sjálfri sér og öðrum. Karólína var ekki tilbúin til að gefast baráttulaust upp fyrir elli kerlingu. Meðan hún dvaldi í Ból- staðarhlíð'mni hélt hún áfram að fara ein um stigana þrátt fyrir ráð- leggingar um annað. Ekki er hægt að neita því, að dft fór um okkur við að koma að henni í miðjum stig- anum, en eftir á getum við ekki annað en dáðst að þessum einbeitta vilja til að taka þátt í lífinu meðan það varði. Karólína var vel heilsu- hraust og ern fram undir það síðasta fyrir utan að heyrnarleysi var farið að há henni allnokkuð. Við þökkum fyrir þann tíma sem við áttum með Köllu og vottum Hönnu og Kidda ásamt öðrum að- standendum samúð okkar. Elísabet og Einar Látin er föðursystir mín, Ka- rólína Friðriksdóttir frá Litlu-Hól- um, tæplega 94 ára. Foreldrar hennar voru Halldóra Magnúsdóttir og Friðrik Björnsson bóndi á Litlu- Hólum. Tvo bræður átti Karólína, Þorstein og Nikulás, sem báðir eru látnir. Ung giftist Karólína Valdi- mar Jónssyni og hófu þau búskap á Litlu-Hólum. Þar bjuggu þau þar til hann lést 1939. Hélt hún áfram búskap til ársins 1946. Leiðir okkar Jágu oft saman gegnum tíðina. í æsku dvaldi ég jafnan sumarlangt á Litlu-Hólum í Mýrdal, hjá Köllu frænku, eins og hún var venjulega kölluð. Þar bjó hún ásamt ömmu minni Halldóru og tveim fósturbömum sínum, Jó- hönnu og Guðmundi. Ég á góðar minningar frá þessum tíma. Kalla hafði einstaklega gott Iag á börnum og átti auðvelt með að Iaða það besta fram í þeim. Enda var hún mjög skapgóð kona, en gat samt verið ákveðin ef með þurfti. Kalla hafði góða kímnigáfu sem entist henni ævina út, en heyrnardeyfð háði henni síðustu æviárin. Hún hafði mikið yndi af bókum og ekki má gleyma öllum fallegu vettling- unum sem hún pijónaði. Aldrei gleymi ég því, síðasta sumarið mitt í sveitinni, þegar hún bauð mér að fá vinkonu mína í heimsókn um mánaðartíma. Það var sannarlega skemmtilegur mánuður og ánægju- legustu stundirnar gjarnan við mat- arborðið í eldhúsinu, enda var mat- urinn hjá Köllu frábær. Þegar hún hætti búskap fluttist hún til Reykjavíkur ásamt ömmu á heimili foreldra minna, Rögnu og Nikulás- ar. Þar áttum við svo sannarlega margar góðar stundir. Eftir að ég giftist fór Kalla oft með okkur í ferðalög og var þá stundum farið á fornar slóðir í Mýrdalinn. Eftir að Kalla fluttist til Reykjavíkur bjó hún lengst af í Bólstaðarhlíð 37, í sama húsi og Jóhanna dóttir hennar og Kristinn tengdasonur, sem ávallt reyndust henni vel, ekki síst þegar halla tók undan fæti. Síðustu æviár- in var hún á dvalarheimilinu Felli og naut hún þar góðrar umönnunar starfsfólks. Ég og fjölskylda mín þökkum kærri frænku margar góð- ar stundir. Hvíli hún í friði. Halla Nikulásdóttir hinna föðursystkirta minna sem ég ætti heima þar, leikið mér við börn- in hans, Guðfinnu, Gunnar og Svövu, sem voru á svipuðum aldri og ég og gerðu þá hvorki Eggert né Jóna upp á milli mín og sinna barna. Og enn þann dag í dag man ég hve erfitt og þungt mér fannst að kveðja þau öll er ég á tíunda ári varð að flytja burt úr Vest- mannaeyjum. Oft fann ég það seinna hversu mikinn styrk og stuðning þau höfðu veitt mér. Allt frá því ég man fyrst eftir Eggert þá vann hann í Slippnum í fyrirtæki föður síns og tók svo við rekstrinum eftir að afi hætti og rak siðan til dauðadags. Þar var hann líka þegar kallið kom. Af augljósum ástæðum gat hann ekki starfað þar í gosinu, en þó gerði hann út vöru- bíl og vann ótrauður við uppbygg- ingu Vestmannaeyja og fræg er sú mynd sem tekin var af honum er hann var að sópa tröppurnar við húsið sitt og askan lá yfir öllu í kring. Aldrei hvarflaði það að hon- um að fara þaðan og hann var meðal þeirra fyrstu sem fluttu bú- ferlum til Eyja aftur eftir gos, og hóf rekstur Slippsins að nýju ásamt því að vinna á vörubílnum f hjáverk- um. En eitt setti Eggert þó ofar öllu, það var ijölskylda hans, kon- an, börnin og heimilið. Oft fann ég hvers ég sjálfur hafði farið á mis er ég sá og fann þann samhug og hlýju sem ríkti milli hans og barna hans. Og ég held að samhentari hjón séu vart fundin og hlýja sú og"virðing sem þau báru hvort til annars var alveg sérstök og heimili þeirra bar þess vott með þeim hlýja blæ sem andaði móti-manni er kom- ið var þar inn. I dag er mér efst í huga þakk- læti fyrir þann tíma sem ég fékk að njóta samvista við hann. Eggert Gunnarsson var sonur hjónanna Gunnars Marels Jónsson- ar skipasmíðameistara og Sigur- laugar Pálsdóttur húsmóður á Vest- mannabraut 1 í Vestmannaeyjum. Þau eru nú bæði látin. Eggert var giftur Jónu Ólafsdóttur frá Olafshúsum í Vestmanriaeyjum. Þau áttu sex börn: Ólaf, Svövu, Guðfinnu, Gunnar, Sigurlaugu og Óskar og eru þau öll á lífi. Á stundum sem þessum þegar dauðinn heggur miskunnarlaust og án fyrirvara skarð í jafn samheldna fjölskyldu og hans þá ríkir sorg og sársauki í hugum aðstandenda og falleg orð hjálpa lítið til að lina þann harm sem inni býr. Ég bið Guð að hugga ykkur öll og styrkja í þessari raun og megi Eggert Gunnarsson lifa sterkur í minningu ykkar og okkar allra sem áttum hann að. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigurlaugur Þorsteinsson Yestmannaeyjar; íbúum fjölg- aði um 100 Vestmannaeyjum. Ibúar í Vestmannaeyjum voru 4.913 1. desember sl., sam- kvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofunnar. Hafði íbúum í Eyjum þá fjölgað um 100 frá 1. desemb- er 1989 eða um 2,2%, sem er með því mesta á landinu. Á síðasta ári fluttu 332 til Eyja en 299 fluttu á brott. 93 börn fæddust á sama tíma en 26 manns létust og gerir þetta fjölgun um 100 ibúa. Konur í Eyjum eru mun færri en karlar. 2.567 karlar búa þar en 2.346 konur þannig að á þriðja hundrað karlmenn ættu að vera þar til skiptanna. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar var íbúafjölgun á landinu mést á höfuðborgarsvæð- inu en næstar komu Vestmanna- eyjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.