Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991 27 Þórður Þórðarson tekur við heiðursskjali úr hendi Magnúsar Oddssonar formanns ÍA. Á myndinni er einnig eiginkona Þórð- ar, Ester Teitsdóttir. AKRANES Þórður heiðursfélagi ÍA órður Þórðarson knattspyrnu- kappi varð 60 ára 26. nóv ember s.l. Af því tilefni var hann gerður að heiðursfélaga Iþrótta- bandalags Akraness. Þórður var einn helsti marka- skorari landsins á gullaldarárum knattspyrnunnar á Akranesi og skoraði 103 mörk í 139 leikjum með ÍA. Þá lék hann alla leiki íslenzka landsliðsins frá 1951 til 1958, alls 18 leiki og skoraði í þeim 9 mörk. Flestir leikmanna gullaldarliðsins voru þjóðsagna- persónur á sínum tíma en fræg- astir voru án efa Þórður og Ríkharður Jónnsson. Ríkharður er einnig heiðursfélagi ÍA. Eftir að Þórður hætti sjálfur að iðka knattspyrnu hefuri hann stutt dyggilega við bakið á knatt- spyrnumönnum á Akranesi. Tveir synir Þórðar fetuðu í fótspor hans og hafa leikið með ÍA og landslið- inu, þeir Teitur og Ólafur. UPPGJÖF Rosselini og Lynch segja skilið David Lynch og Isabella Rosselini. Eittum talað asta par kvikmynda heimsins, David Lynch og Isabella Rosselini hafa slitið sambandi sínu, en það hefur staðið í fimm ár og áttu vinir og vandamenn fremur von á dagsetningu brúðkaups heldur en samvistar- slitum. Lynch er kunnur fyrir kvikmyndir þær sem hann hefur leikstýrt síðustu árin, en flestar eða allar hafa vakið verulega athygli fyrir óvenjuleg efnistök leikstjórans. Isabella hef- ur leikið stór hlutverk í tveimur þeirra, “Blue velvet“ og “Wild at heart“ sem er trúlega umtalaðasta kvikmynd Lynch. Ónafngreindur vinur þeirra Lynch og Rosselini segir að skiln- aðurinn hafi komið sér á óvart, en þó bæri að líta á það, að fimm ára samband væri all langur tími þegar annar aðilinn væri búsettur í Los Angeles (Lynch), en hinn í New York (Rosselini). Slíkur viðskilnaður hlyti að naga sambönd fólks og væri ekki til að byggja þau upp til langend- ingar. UPPLÝSINGAR: SIMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000 VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN m eb hann WfWffl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.