Morgunblaðið - 12.01.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991
13
Minning:
Jóhannes Bogason
frá Brúarfossi
Fæddur 19. desember 1892
Dáinn 1. janúar 1991
Á fyrsta degi hins nýja árs lést
vinur minn og fyrrverandi ná-
granni, Jóhánnes Bogason, bóndi,
Brúarfossi. Andlát hans kom ekki
á óvart, hann var maður orðinn
háaldraður og heilsuveikur.
Jóhannes fæddist 19. des. 1892.
Foreldrar hans voru Bogi Helga-
son, bóndi, Brúarfossi, og kona
hans, Guðbjörg Jóhannesdóttir.
Jóhannes var næstyngstur fjög-
urra bama þeirra hjóna, en þau
vom Helgi, Teitur, Jóhannes og
Soffía. Öll em þau systkinin nú
látin.
Jóhannes ólst upp á Brúarfossi
og vandist snemma allri venjulegri
sveitavinnu. Hann var alla tíð sér-
staklega viljugur maður og ósér-
hlífinn. Þessir eiginleikar hans
komu ekki hvað síst fram þegar
hann, þá roskinn maður, missti
sjónina en vann þó flest verk sín
áfram og fór allra sinna ferða án
aðstoðar.
Ég átti því láni að fagna að al-
ast upp í nágrenni við Jóhannes
og systkini hans tvö, Teitog Soffíu.
Jóhannes og þau systkini voru allt-
af reiðubúin til að rétta foreldrum
mínum hjálparhönd og mér er
minnisstætt að Jóhannés sagði ein-
hveiju sinni að jafnt skyldi yfir
heimilin bæði ganga.
Árið 1928 tók Jóhannes við búi
á Brúarfossi ásamt Teiti og Soffíu.
Á Brúarfossi var símstöð og póst-
hús og var því oft gestkvæmt á
heimilinu af þeim sökum. Einnig
var svo áður en bílvegir komu og
bílar urðu algengir að Brúarfoss
var áfangastaður manna sem vom
á leið í kaupstað og úr. Mátti heita
að á þeim tímum væri á Brúar-
fossi rekinn gististaður. Ætíð var
gestum tekið vel á Brúarfossi, enda
systkinin glaðsinna og skemmtileg.
Þega Helgi, bróðir þeirra, missti
fyrri konu sína frá þremur ungum
bömum, tóku þau systkinin tvö
þeirra til sín, þau Guðbjörgu og
Boga, og reyndust þeim sem bestu
foreldrar. Einnig ólst upp hjá
systkinunum Jón Órn Gissurarson.
Jóhannes giftist 1960 Margréti
Þorvaldsdóttur. Margrét er látin
fyrir all mörgum ámm. Jóhannes
dvaldist síðustu árin á Dvalarheim-
ili aldraðra í Borgarnesi. Þar leið
honum vel og var þakklátur starfs-
mönnum heimilisins fyrir velvild í
sinn garð.
Nú eru þau öll látin systkinin á
Brúarfossi. Þau vom öll góðar og
heiðarlegar manneskjur sem gott
vár að þekkja og eiga að vinum.
Ég vil þakka þeim tryggð þeirra
og vináttu við foreldra mína, okkur
systkinin og fjölskyldur okkar.
Blessuð sé minning systkinanna
á Brúarfossi.
Hallbjörn Sigurðsson
í dag fer fram frá Ökrum útför
Jóhannesar Bogasonar fyrrverandi
bónda á Brúarfossi.
Ég má til með að minnast míns
elskulega vinar með nokkrum fá-
tæklegum orðum. Það var sumarið
1966 sem ég kynntist þessum heið-
ursmanni er ég fór sem ráðskona
að Hítará og var þar yfir tvo ára-
tugi á sumrin. Svo það er ekki að
undra þótt með okkur hafi haldist
vinátta öll þessi ár.
Þetta sumar var Margrét kona
hans þá enn við fulla heilsu, svo
það var talsvert líf í kringum þetta
fólk. Þar var Teitur bróðir hans
og Soffía systir hans og Bogi bróð-
ursonur þeirra systkina, sem mér
skilst að hafi alist þar upp frá
barnæsku. Allt var þetta heiðurs-
fólk og gott heim að sækja.
Ég fór oft á kvöldin upp í hús
til þeirra og þau komu niður í hús
til mín í kaffisopa, svo vináttan
ágerðíst með árunum.
Ég get þvf miður ekki rakið
ættir Jóhannesar, en í afmælis-
grein um hann níræðan minntist
ég þó foreldra hans og einnig hven-
ær Jóhannes kvæntist, en þessum
heimildum hefi ég glatað og ekki
gefíð mér tíma til að léita uppi,
enda veit ég að það gera mér fær-
ari menn að rifja upp.
Jóhannes var mjög ræðinn og
víða heima, fróður og minnugur
með afbrigðum. Það yrði ansi löng
grein ef ég leyfði mér að skrifa
allt það sem upp í huga minn kem-
ur, en ég ætla nú að hafa þetta
með styttra móti, en samt verð ég
að koma á framfæri í þessari grein
smá atriði sem ég veit að hann
vildi sjálfur að kæmi fram.
Það var fyrir allmörgum árum,
líklegast 1974 að mig minnir, að
meðal gesta við ána voru útlend
hjón, Christian og Sally Aall, sem
tóku miklu ástfóstri við þennan
gamla mann, og ég man að frú
Sally skildi eftir peninga hjá mér
til að gera eitthvað fyrir hann, hún
sem sagt lét mig um hvað gera
skyldi.
Ég sagði Jóhannesi frá þessu
og hann sagði að ég ætti að ráða
því — sig vantaði ekkert og hefði
allt til alls.
Hjá mér þetta sumar var stúlka
að nafni Hjördís og okkur kom
saman um að best væri að fá nýtt
rúm fyrir hann og eitthvað fieira.
Við keyptum svo notaðan ísskáp
og fórum að Brúarfossi með hann
ásamt rúminu og nýrri sæng. Einn-
ig keyptum við notað gólfteppi og
gardínur. Síðan umturnuðum við
húsinu ef svo má segja, gerðum
hreint, breyttum stofu og herbergj-
um að okkar vild og vorum svo
öll alsæl og ánægð með þetta að
verki loknu.
Síðan hefur frú Sally Aall sent
annað slagið eitthvað til Jóhannes-
ar og alltaf spurt mig í bréfinu
hvort hann vantaði ekki eitthvað.
Hann var þeim ákaflega þakk-
látur og ég veit að hann bað fyrir
þeim í bænum sínum og alltaf
spurði hann mig um þau þegar ég
sá hann.
Því miður hefi ég ekki verið
nógu dugleg að fara til hans vegna
vinnu minnar og anna, en ég hefi
þó rætt við hann í síma annað slag-
ið og ég talaði við hann rétt fyrir
jól og þá var enga breytingu að
heyra hjá honum.
Þegar ég var á ferðinni á sumr-
in með barnabörnin þá var alltaf
tilhlökkun að koma við hjá honum
á Dvalarheimilinu og alltaf átti
hann eitthvað gott í skápnum
sínum til að bjóða. Hann var sér-
deilis barngóður og gestrisinn,
mikill heiðursmaður.
Ég veit að hann hefur orðið
hvíldinni feginn, 98 ár er langur
tími. Hann var farinn að heilsu
fyrir allmörgum árum, búinn að
missa sjónina en kvartaði aldrei
og hafði alltaf orð á því hvað vel
væri hugsað um hann á heimilinu
og ætla ég að koma á framfæri
þakklæti til starfsfólks Dvalar-
heimilisins og lækna, því það vildi
hann að yrði gert.
Við ræddum oft um margt og
margt, og ég sagði honum að ég
myndi reyna að skrifa nokkur
kveðjuorð til hans, en það var
óþarfi í hans augum.
Ef við íslendingar ættum marga
hans líka, þá væru landsmálin
örðuvísi í dag. Hann er sá heiðar-
legasti og samviskusamasti maður
sem ég hefí kynnst og geislaði frá
honum innri fegurð.
Ég sakna míns góða vinar, en
er samt þakklát fyrir að hann er
búinn að fá sína hvíld. Þetta er
leiðin okkar allra, en enginn veit
hvað tekur við, en framhald er á
þessu öllu, á því er enginn vafi.
Fyrir hönd barna minna og
bamabarna þakka ég honum þau
ár sem við áttum samleið. Við Frið-
rik sendum okkar bestu samúðar-
kveðjur til aðstandenda.
Hvíli okkar hjartans vinur í friði.
Sigríður Þorvaldsdóttir
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn
Agúst Friðfinnsson. Kirkjubíll fer
um hverfið fyrir og eftir guðs-
þjónustuna. Fer frá Ártúnsskóla
kl. 10.40 og Selásskóla kl. 10.55.
Guðsþjónusta kl. 14. Beðið fyrir
friði við Persaflóa. Vænst er þátt-
töku fermingarbarna og foreldra
þeirra í messunni. Fyrirbæna-
guðsþjónusta miðvikudag kl.
16.30.
ÁSPRESTAKALL: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kaffisala Safnaðarfélags Ás-
prestakalls eftir messu. Munið
kirkjubílinn. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl.
14. Altarisganga. Organisti Dan-
íel Jónasson. Þriðjudag: Bæna-
guðsþjónusta kl. 18.30. Gísli Jón-
asson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðrún Ebba
Ólafsdóttir, sr. Pálmi Matthías-
son. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Pálmi Matthíasson.
DIGRAIMESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheimil-
inu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14. Vænst er þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. 11. Messa.
Prestur sr. Þórír Stephensen.
Barnastarf í safnaðarheimilinu á
sama tíma. Kl. 17. Bænaguðs-
þjónusta. Beðið fyrir friði. Biskup
Islands herra Ólafur Skúlason
tekur þátt í guðsþjónustunni. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson. Org-
anleikari við báðar messurnar er
Kjartan Sigurjónsson. Miðviku-
dag: Hádegisbænir í kirkjunni kl.
12.15.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Magnús
Björnsson.
FELLA- og Hólakirkja: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Jó-
hanná Guðjónsdóttir. Guðsþjón-
usta kl. 14. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir. Þriðjudag: Fýrir-
bænir í Fella- og Hólakirkju kl.
.14. Miðvikudag: Guðsþjónusta
kl. 20.30. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Sönghópurinn „Án
skilyrða" annast tónlist. Fimmtu-
dag: Helgistund fyrir aldraða í
Gerðubergi kl. 10 f.h. Sóknar-
prestar.
GRAFARVOGSSÓKN: Messu-
heimili Grafarvogssóknar Félags-
miðstöðinni Fjörgyn. Barna-
messa kl. 11. Skólabíllinn fer frá
Húsahverfi kl. 10.30 í Foldir og
síðan í Hamrahverfi. Gpðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Sigríður
Jónsdóttir. Sóknarprestur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Eldri börnin uppi í
kirkjunni, yngri börnin niðri.
Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór
Guðspjall dagsins:
Lúk. 2.:
Þegar Jesús var
12 ára.
S. Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11. Sr. Ragn-
ar Fjalar Lárusson. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kirkja heyrnarlausra.
Sr. Myiako Þórðarson. Messa kl.
17. Altarisganga. Beðið fyrir friði.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðju-
dag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Kl. 10. Morg-
unmessa sr. Arngrímur Jónsson.
Kl. 11. Barnaguðsþjónusta.
Kirkjubíllinn fer um Suðurhlíðar
og Hlíðar fyrir og eftir guðsþjón-
ustuna. Kl. 14. Hámessa. Sr.
Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18.
HJALLAPRESTAKALL: Messu-
salur Hjallasóknar Digranes-
skóla. Barnamessur kl. 11. Húsið
opnað kl. 10.30. Almenn guðs-
þjónusta kl. 14. Fermingarbörn
aðstoða. Organisti Elías Davíðs-
son. Sr. Kristján Einar Þorvarðar-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Skólakór Kársness
syngur ásamt kirkjukórnum.
Léttir söngvar. Organisti Guð-
mundur Gilsson. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Óskastund
barnanna söngur, sögur, leikir.
Þór Hauksson og Jón Stefánsson
sjá um stundina. Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kór Langholtskirkju.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Bjarni Karlsson.
Barnastarf á sama tíma. Heitt á
könnunni eftir guðsþjónustuná'
Fimmtudag: Kyrrðarstund í há-
deginu. Orgelleikur, fyrirbænir,
altarisganga. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. í umsjón Sigríðar Óladóttur.
Sr. Frank M. Halldórsson. Guðs-
þjónusta kl. 14. Orgel- og kór-
stjórn Reynír Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Mið-
vikudag: Bænamessa kl. 18.20.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 11. Athugið breyttan
tíma. Sérstaklega verður beðið
fyrir friði þegar tveir dagar eru
eftir af lokafresti í Austurlöndum
nær. Ræðumaður Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra.
Miðvikudag 16. janúar kl. 7.30.
Morgunandakt. Órgelleikari Viol-
eta Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30, stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Rúm-
helga daga lágmessa kl. 18,
nema á laugardögum, þá kl. 14.
Á laugardögum er ensk messa
kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11, rúmhelga daga lág-
messa kl. 18 nema á fimmtudög-
um kl. 19.30 og laugardögum kl.
14.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila-
delfía: Safnaðarsamkoma kl. 11.
Ræðumaður Sam Glad. Barna-
gæsla. Almenn samkoma kl.
16.30. Sunnudagaskóli á sama
tíma.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
.dagaskóli kl. 14. Almenn sam-
koma kl. 20.30. Sigmund Daler-
haug frá Noregi talar.
NÝJA POSTULAKIRKJAN:
Messa kl. 11. Hákon Jóhannes-
son safnaðarprestur.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Lágafellskirkju kl. 14.
Organisti Guðmundur Ómar
Óskarsson. Barnastarf í safnað-
arheimilinu kl. 11. Sr. Jón Þor-
steinsson.
GARÐA- og Bessastaðasóknir:
Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju
kl. 14. Samkoma, kaffiveitingar í
Kirkjuhvoli I Garðabæ að athöfn-
inni lokinni. Eldri borgarar sér-
staklega velkomnir. Sóknar-
prestar.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐIST AÐAKIRKJ A: Guðsþjón-
usta kl. 14. Samvera fyrir eldri
borgara eftir guðsþjónustuna í
Kirkjuhvoli í Garðabæ. Ferð frá
kirkjunni og til baka að sam-
verunni lokinni. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Þórhildur Ólafs.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Barnasamkoman fellur niður.
Verður að viku liðinni. Sr. Einar
Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Barnastarf og guðsþjónusta kl.
11. Kirkjukórinn syngur. Organ-
isti Gróa Hreinsdóttir. Sr. Þor-
valdur Karl Helgason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Helgi-
stund í sjúkrahúsinu kl. 10.30.
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Messa. Altarisganga
kl. 14. Guðmundur Ólafsson
syngur „Friðarins Guð". Organ-
isti Einar Örn Einarsson. Bifreið
fer að búðum eldri borgara við
Suðurgötu kl. 13.30, þaðan að
Hlévangi við Faxabraut og sömu
leið til baka að messu lokinni.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Tómas Guð-
mundsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá
Kristínar Sigfúsdóttur.
AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag kl. 13 I
safnaðarhéimilinu. Barnaguðs-
þjónusta sunnudag kl. 11 í kirkj-
unni og messa kl. 14. Fyrirbæna-
guðsþjónusta fimmtudag kl.
18.30, beðið fyrir sjúkum.