Morgunblaðið - 12.01.1991, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1991
15
og svaraði 591 sjómaður spurning-
unum, sem er 65,7% svörun. Þar
af svöruðu 216 skuttogarasjómenn,
sem var 72% af 300 manna úrtaki
skuttogarasjómanna. Skuttogara-
sjómenn töldu samkvæmt þessari
könnun að 9,5% þess þorsks sem
veiddur var væri kastað fyrir borð.
Það svarar til þess að tæpum 17
þúsund tonnum af þorski hafi verið
fleygt af afla skuttogara á árinu
1989, eða um 18,5 milljónum smá-
fiska, miðað við 900 gramma með-
alþyngd, eins og gert er ráð fyrir
í niðurstöðum könnunarinnar.
I umsögnum einstakra frystitogara-
sjómanna komu fram staðhæfingar
um að miklu magni af þorski væri
hent, einkum á sumrin þegar mikið
fiskast.
„Menn geta rétt ímyndað sér
hvernig þetta er þegar verið er að
fiska í flottroll og stóru hölin koma.
Það heyrir til undantekninga að
stoppa veiðar. Það er stoppað í
smástund þangað til hægt er að
koma út trolli og ef mikið er í, þá
er gamla fisknum hent. Það er hent
nokkrum þúsundum tonna af þorski
hjá frystitogurum. Það veit ég,“
segir fyrrum frystitogarasjómaður
í könnuninni.
Annar segir: „Aflakvóti verður
alltaf til þess að smáfiski er fleygt
og því meiri skerðing því meira er
fleygt og því ofar fer meðalþyngd
þess sem fleygt er."
Þriðji segir: „Á frystitogurum er
oft hent miklu magni af smáfiski
sem er erfiður í vinnslu og verðlít-
ill, svo sem upp í einn þriðja af
þorskhali og helming af karfahali."
Viðbrögðin við þessari könnun
þegar hún var gerð opinber komu
ýmsum á óvart, eða öllu heldur við-
bragðaleysið. Sveinn Hjörtur Hjart-
arson, hagfræðingur_ LÍÚ, fullyrti
að þessi könnun SKÁÍS væri ekk-
ert annað en rakalaus rógur. Land-
samband íslenskra útvegsmanna
bað hins vegar aldrei um eintak af
könnuninni til þess að kynna sér
innihald hennar.
Ríkismat sjávarafurða tók á
tímabilinu desember 1988 til mars
1989 sýni úr þorskflakapakkning-
um frá 6 ísLenskum frystitogurum.
Sýnin voru meðal annars. skoðuð
með tilliti til yfirvigtar. Niðurstöður
þessarar könnunar sýndu að meðal-
yfirvigt á öskjum var 0,8%. Heildar-
fjöldi flaka í sýninu var um 7.200
eða 311 öskjur. Þetta nefnir Pétur
Björnsson forstjóri ísbergs Limited
„víðtæka athugun á vigtun um borð
í 6 frystitogurum" í athugasemd
sem birtist hér í blaðinu sl. fimmtu-
dag. Sveinn Hjörtur Hjartarson
nagfræðmgur LIU sem ritar grein
í blaðið í gær: Gróa á Leiti, segir
um þetta efni: „Þær kannanir sem
hingað til hafa verið gerðar af
ábyrgum opinberum aðilum eða
sölusamtökum benda ekki til neins
óeðlilegs innihalds í pakkningum
frystitogara.“
Þeir sem sannfærðir eru um að
til séu pakkningar frystitogara með
óeðlilega miklu innihaldi benda á
að ein svona vigtarprófun segi í
sjálfu sér enga sögu aðra en þá að
þessir 6 togarar hafi hver um sig
í einum ákveðnum veiðitúr ekki
verið með óeðlilega yfirvigt.
Benda þeir á að það sem Pétur
Björnsson nefni „víðtæka athugun
á vigtun“ sé vigtun á þremur tonn-
um eða svo, sem samsvari 0,026%
af þorskflakaframleiðslu íslenskra
frystitogara, miðað við 11.500
tonna framleiðslu þeirra árið 1988,
samkvæmt upplýsingum Fiskifé-
lags íslands. Slíkt prósentubrot
geti alls ekki talist marktækt sem
vísbending um að ekkert megi betur
fara í vigtunarmálum frystitogara.
„Halda menn að það hafi einhver
tilviljun ráðið því að sjávarútvegs-
ráðuneytið lét breyta vigtunarregl-
unum? Hafi þetta verið eins pott-
þétt og ýmsir vilja vera láta, hvers
vegna var þá verið að breyta þess-
um reglum? Auðvitað til þess að
koma í veg fyrir að svona vigtunar-
svindl gæti átt sér stað,“ segir fisk-
verkandi.
Menn sektaðir í kyrrþey
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
veitt aðilum viðvörun og látið þá
greiða fjársektir - mjög háar, eftir
því sem næst verður komið, þegar
upp um misferli hefur komist, svo
sem tegundasvindl, hvort sem er í
gámum eða pakkningum inni í
frystihúsum. Eins og gefur að skilja
vill ráðuneytið ekki að þetta kvisist
út, þvi hér er um svo alvarlegan
galla á núverandi kerfi að ræða.
Fyrir hefur komið að þorskur
hafi verið fluttur út í gámum í
meira mæli, 6n skýrslur gefa til
kynna, sömuleiðis grálúða og yfir-
leitt kvótategundir, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins. Sjón-
ir manna hafa einkum beinst að
Bretlandi í þessum efnum, þar sem
sannast hefur að umboðsmenn hafa
tekið þátt í slíkum skýrslufölsunum.
Þetta fékk Morgunblaðið staðfest í
sjávarútvegsráðuneytinu. Sjávarút-
vegsráðuneytið telur að eftirlit á
Bretlandsmarkaðnum hafi þó batn-
að til muna, frá því sem áður var,
og þá er átt við gámafísk og fersk-
an fisk. Svona sannleikshagræðing
í skýrsluformi mun á hinn bóginn
vera útilokuð í Þýskalandi, því þar
er þetta opinber markaður. í Bret-
landi starfa eftirlitsmennirnir á veg-
um umboðsaðilanúa.
„Það er náttúrlega auðvelt fyrir
ráðuneytið að staðsetja mann úti
sem hafi eftirlit með þessu, þannig
að það séu ekki umboðsmennirnir
sjálfir sem séu að framkvæma eftir-
litið. Það er borðleggjandi að þetta
hefur sannast í Bretlandi oftar en
einu sinni og oftar en tvisvar. Und-
ir slíkan leka skilst mér að standi
til að setja með því að hafa úti eftir-
litsaðila sem er óháður öllum sölu-
aðilum, auk þess sem senda eigi
mann út með reglubundnu millibili
til þess að gera stikkprufur á því
hvort menn séu að fara með rétt
eða rangt mál. Það er að sjálfsögðu
til bóta,“ segir útgerðarmaður
frystitogara.
Umfang þessa svindls telja við-
mælendur að sé einhvers staðar á
bilinu 5 til 10% af kvótategundun-
um. Menn séu að fara fram hjá
þeim og þykist flytja út aðrar teg-
undir, þar sem þeir séu kannski
búnir með kvótann í ákveðnum teg-
undum, séu að spara kvótann sinn,
eða hafi of lítið af öðrum. Þorskur-
inn fari því út í meira mæli, en
gefið sé upp.
Enginn vandi að svindla
„Fyrir okkur væri enginn vandi
að svindla á útflutningsskýrslunum
ef við vildum,“ segir útgerðarmað-
ur. „Við gætum tekið skýrslu fyrir
tollinn hérna og svo hringt í erlendu
markaðina í Bretlandi og sagt þeim
hvað stæði í skýrslunum og upplýst
þá um leið hvað við værum raun-
verulega að flytja út til þeirra.
Þannig væri hægt að láta skýrslurn-
ar frá mörkuðunum _ stemma við
skýrslurnar okkar.“ Útgerðarmað-
urinn sagði að með þessum orðum
sínum væri hann ekki að viður-
kenna þátttöku í svindli. Hann væri
einungis að upplýsa blaðamann
Morgunblaðsins um aðferð hvernig
fræðilega séð væri hægt að snúa á
kerfið!
Geysilegir hagsmunir í húfi
Augljóst er að geysilegir hags-
munir eru í húfi hér og því þarf
engan að undra að hagsmunaaðilar
bregðist harkalega við þegar um
þessi mál er fjallað. Við því var að
búast og við því verður að búast í
framtíðinni og er ekkert nema gott
eitt um það að segja.
Þetta er auðvitað „geysilega við-
kvæmt mál“ eins og það er gjarnan
orðað af viðmælendum Morgun-
blaðsins og komið hefur fram hér
í blaðinu áður. Hitt er einnig stað-
reynd að gallar núverandi kerfis
verða ekki sniðnir af með þögninni
einni eða með því að stinga höfðinu
í sandinn. Raunar telja þeir sem
vilja bæta það fyrirkomulag sem
hér er á við stjórnun fiskveiða, að
það sé ekki tilhneiging hagsmuna-
aðilanna til þess að fara í kringum
kerfið, sem sé vandamálið, heldur
að kerfið bjóði beinlínis upp á mögu-
leikann á svindli. Þessa galla á kerf-
inu verði að sníða af, og það verði
ekki gert nema með því að viður-
kenna að gallarnir séu fyrir hendi
og opinni umræðu- um hvernig megi
sníða þá af.
Hvaða skoðun sem menn hafa á
þessum málum virðast viðmælendur
blaðsins sammála um að engum sé
greiði gerður með því að gera frysti-
togaraútgerðir og sjómenn þeirra
tortryggilega við þau nauðsynlegu
störf sem þeir vinna. Frystitogara-
menn og fleiri segja að það. sé stað-
reynd að frystitogaraútgerð hafí
gengið vel, þar sé mikill vaxtar-
broddur og þar af leiðandi sé land-
læg öfund út í frystitogaraútgerð á
íslandi.
Aðalatriðið telja menn vera að
sníða beri þá vankanta af kvóta-.
kerfmu, sem bjóði heim freistingum
og gefi sjálfsbjargamðleitni sjó-
manna og útgerðarmanna slíkan
byr undir báða vængi, að hagsmun-
ir heildarinnar geti liðið fyrir, þegar
horft er til framtíðar. Þar sé ekki
fyrst og fremst við sjómennina að
sakast, heldur kerfið sem slíkt, og
þá sem ættu að vera ábyrgir fyrir
því að kerfið virki eins og því var
ætlað. Slíkt markmið geti ekki
náðst nema með stórauknu og stöð-
ugu eftirliti.
Skólinn í París væri að stofninum til
bandarískur og færi öll kennsla fram á
ensku. Andrúmsloftið væri samt mjög al-
þjóðlegt og einungis 30% nemenda frá
Bandaríkjunum. Hinir kæmu frá öllum
hornum veraldar og það sama ætti við um
kennarana. „Við erum heldur ekki kennarar
í fullu starfi heldur störfum að list okkar
samhliða kennslunni, höldum sýningar og
annað þess háttar. Kennslan er einungis
hlutastarf hjá okkur. Þetta er mjög gott
því þannig verða kennararnir ekki þreyttir
á að kenna og eru líka áfram skapandi lista-
menn.“
Parsons býður upp á ákveðinn hreyfan-
leika og geta nemendur við skólann t.d.
hafið námið í París og haldið því áfram í
New York eða öfugt. „Þetta er mjög heppi-
leg blanda. Skólinn okkar í New York er
mjög stór, þar eru um 3000 nemendur,
Ian Paterson. Morgunblaðið/Júiíus
samkeppnin er hörð og harka mikil. Parísar-
skólinn er minni, þar eru einungis 220 nem-
endur, og því mun einstaklingsbundnari
kennsla.“
Frábær reynsla af íslenskum
nemendum
Paterson sagði að hann ferðaðist töluvert
til að kynna skólann og útskýra hvað við
væri átt með „list og hönnun“. Hann væri
ekki að stunda mikla sölustarfsemi heldur
einungis að kynna Parsons sem valkost
fyrir þá sem hefðu áhuga á námi af þessu
tagi. Frekar erfitt væri að komast inn í
skólann og einungis þriðji til fjórði hvér
nemandi sem legði inn umsókn væri tekinn
inn. Við val á nemendum væri auk ein-
kunna byggt á skyggnum af verkum þeirra
sem yrðu að fylgja umsókninni.
Hann sagðist vera kominn til íslands þar
sem á síðustu tveimur árum hefði hann
haft frábæra reynslu af tveimur íslenskum
nemendum við skólann. „Eftir reynslu mína
af þeim hefði ég hug á að fá fleiri íslenska
nemendur til skólans,11 sagði hann.'
Auk þess að kynna Parsons-skólann,
m.a. með heimsóknum í ijölmarga fram-
haldsskóla hér á landi, segist Paterson vilja
gera þeim ljóst sem áhuga hafa á hönnun
að það sé framtíð á þessu sviði. Mjög marg-
ir fari í lögfræði eða viðskiptafræði einung-
is til að tryggja sér ákveðið efnahagslegt
öryggi í lífinu en það séu líka mjög margir
möguleikar sem bjóðast á sviði mynd- og
formsköpunar ’til að hafa góðar tekjur. „Ég
held að meirihluti þeirra atvinnumöguleika
sem við búum nemendur okkar undir gefi
kost á mjög góðum lífsstíl," sagði Ian Pater-
son.