Morgunblaðið - 12.01.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1991
17
París:
Gestamet í
Eiffelturni
París. Reuter.
METFJÖLDI gesta heimsótti
Eiffelturninn á Marstorginu í
París í fyrra eða alls 5,7 milljón-
ir manna. Er það aukning um
100.000 manns frá árinu áður.
Að jafnaði fluttu lyftur hins 102
ára mannvirkis 15.000 manns á
dag upp í efsta útsýnissal turnsins •
sem er í 320 metra hæð yfir jörðu.
Enginn viðkomustaður ferða-
manna er jafn fjölsóttur í Frakk-
landi og Eiffelturninn sem franski
arkitektinn Alexandre Gustave
• Eiffel hannaði og fullgerður var
31. mars 1889, rétt fyrir heims-
sýninguna í Paris.
Pan Am
fer fram á
greiðslu-
stöðvun
New York. Reuter.
PAN American-flugfélagið fór
á þriðjudag fram á greiðslu-
stöðvun vegna rekstrarerfið-
leika en flugfélagið ruddi á
sínum tíma brautina í farþega-
flugi um heim allan.
Talsmenn flugfélagsins sögðu
að engin röskun yrði á starfsemi
flugfélagsins meðan á greiðslu-
stöðvuninni stæði. Á þriðjudag gaf
bandaríska samgönguráðuneytið
leyfi fyrir kaupum United Airli-
nes-flugfélagsins á flugleiðum Pan
Am til London og öðrum eignum
þess en kaupin munu gefa Pan
Am 400 milljónir dollara í aðra
hönd, jafnvirði 23 milljarða ÍSK,
og þannig laga stöðu þess.
Tilgangurinn með greiðslu-
stöðvuninni mun einnig sá að auð-
velda sameiningu Pan Am og
Trans World Airways. Carl Icahn,
eigandi TWA, hefur boðist til að
yfirtaka Pan Am og greiða eigend-
um félagsins fyrir það 375 milljón-
ir dollara, jafnvirði 21 milljarðs
ÍSK. Icahn hefur þó sett það sem
skilyrði fyrir kaupunum að Pan
Am óski eftir því að vera tekið til
gjaldþrotaskipta.
Auk Pan Am njóta tvö önnur
stór bandarísk flugfélög nú
greiðslustöðvunar; Eastern Airli-
nes og Continental Airlines.
Pan Am hefur átt við langvar-
andi rekstrarörðugleika að stríða.
Árið 1980 seldi félagið skýjakljúf
sinn á Manhattan í New York fyr-
ir 400 milljónir dollara og ári
seinna hina arðbæru Intercontin-
ental-hótelkeðju fyrir 500 milljónir
dollara. Árið 1985 ákvað félagið
að einbeita sér að flugi á leiðum
yfir Atlantshaf og seldi United
hinar ijölmörgu flugleiðir sínar til
Asíuríkja fyrir 750 milljónir doll-
ara. Þrátt fyrir þetta hefur tap-
reksturinn haldið áfram. Nam
hann rúmum þremur milljörðum
dollara á árunum 1980-89 og 278
milljónum dollara á fyrstu niu
mánuðum ársins 1990.
IRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna sem
unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur. Endurgreiðsl-
an nærtil virðisaukaskatts af:
• Vinnu manna við nýbyggingu íbúðar-
húsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa hérá landi.
• Vinnu manna við endurbætur og við-
hald á íbúðarhúsnæði í eigu umsækj-
anda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil er tveir mánuðir,
janúar og febrúar, mars og apríl, maí
og júní, júlí og ágúst, september og
október, nóvemberog desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Sérstakt uppgjörstímabil
vegna endurbóta og við-
halds á árinu 1990
Beiðni um endurgreiðslu vegna við-
halds og endurbóta íbúðarhúsnæðis
sem unnið var 1990 skal skilað í einu
lagi til skattstjóra í síðasta lagi 20.
janúar 1991. Athygli skal vakin á því að
frumrit sölureikninga skal fylgja um-
sókn um endurgreiðslu vegna vinnu
við endurbætur og viðhald.
Hvenær er endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma fer endur-
greiðslan fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
Launamiðar og
húsbyggingarskýrsla
Athygli skal vakin á því að þeir sem
sækja eða hafa sótt um endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði á árinu 1990 skulu fylla
út launamiða (RSK 2.01) fyrir 20. janúar
1991 vegna greiddra launa og verktaka-
greiðslna. Launamiðann skal senda til
skattstjóra.
Þeir sem sótt hafa um endurgreiðslu
vegna nýbyggingar skulu einnig senda
skattstjóra húsbyggingarskýrslu (RSK
3.03) með skattframtali sínu.