Morgunblaðið - 12.01.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991
21
Bæjarfógeti:
Gjaldþrota-
beiðnum hef-
ur fjölgað
FLEIRI gjaldþrotabeiðnir komu
fram hjá embætti bæjarfógetans
á Akureyri á nýliðnu ár en árinu
þar á undan. Mun færri fyrirtæki
óskuðu eftir greiðslustððvun á
árinu miðað við hið fyrra, en
færri beiðnir um uppboð lausa-
fjármuna voru einnig teknar fyr-
ir hjá embættinu.
Eyþór Þorbergsson fulltrúi hjá
bæjarfógeta sagði að á síðasta ári
hefðu komið fram 114 beiðnir um
gjaldþrot, en þær voru 72 á árinu
1989. Hann sagði að ekki hefði
verið unnt að úrskurða í öllum
málum fyrir áramót þannig að hluti
gjaldþrotabeiðna síðasta árs muni
flytjast yfir á þetta ár.
Eitt fyrirtæki fékk greiðslustöðv-
un á liðnu ári, en þau voru átta á
árinu þar á undan.
Teknar voru fyrir 296 beiðnir um
uppboð lausafjármuna hjá embætt-
inu á árinu 1990, að sögn Eyþórs,
en sölur urðu 42. Á árinu þar á
undan voru beiðnirnar 342 og söl-
urnar 72.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ný gangbrautarljós
tekin í notkun í dag
Ný gangbrautarljós á gatnamótum Hörgarárbrautar og Stór-
holts verða tekin í notkun í dag, laugardag, kl. 14. Gang-
brautarljós þessi eru af svipaðri gerð og þau sem fyrir eru
í bænum, en fyrst um sinn heyrist ekki hljóðmerki samtímis
grænu ljósi fyrir gangandi vegfarendur. Myndin var tekin á
gatnamótunum í gær.
Slippstöðin:
Exjafjarðarsveit:
Hátíðarfundur sveit-
arstjómarinnar í dag
FYRSTI fundur nýrrar sveitar-
stjórnar í Eyjafjarðarsveit verður
haldinn í dag, laugardag, í
íþróttahúsinu á Hrafnagili og
hefst hann kl. 13.30. Þarna er um
að ræða hátíðarfund og til hans
boðið fjölda gesta. Fresta þurfti
fundinum síðastliðinn laugardag
vegna veðurs.
A fundinum verður kjörinn odd-
viti sveitarfélagsins sem og varaodd-
viti. Þá verða tekin fyrir nokkur mál
í tilefni af sameiningu hreppanna
þriggja í einn.
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra hefur verið boðið til
fundarins og mun hún væntanlega
flytja ávarp, en einnig hefur fjölda
gesta verið boðið að sitja þennan
fyrsta fund sveitarstjórar í Eyja-
fjarðarsveit og munu gestir einnig
ávarpa fundinn.
Þá verður á dagskránni söngur,
en m.a. verða frumflutt lög og ljóð
eftir heimafólk, lögin eru eftir Atla
Guðlaugsson skólastjóra Tónlistar-
skóla Eýjaíjarðar, en hann á einnig
sæti í sveitarstjórn, Sigríði Schiöth
og Eirík Bóasson, en textar eru eft-
ir Emilíu Baldursdóttur, Sigríði Schi-
öth og Bjartmar heitinn Kristjáns-
son. Að fundi loknum verður boðið
upp á kaffi og veitingar.
Aðstandendur
aldraðra:
Fjallað um
andlegt álag
SIGRÚN Sveinbjömsdóttir sál-
fræðingur fjallar um andlegt álag
á fyrsta fundi Stuðningshóps fyr-
ir aðstandendur aldraðra sem
haldinn verður á mánudaginn.
Fundurinn, sem er sá fyrsti á ár-
inu, verður haldinn á íjórðu hæð
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri * -
og hefst hann kl. 17.30 næstkom-
andi mánudag, 14. janúar.
Allir þeir sem annast aldraða
heima og hafa áhuga á þessu efni
eru velkomnir á fundinn, en þeir sem
erfítt eiga með að komast vegna
bílleysis geta hringt í heimahjúkrun
á Heilsugæslustöðinni og verða þeir
þá sóttir.
Betri verkefnastaða en
áður á þessum árstíma
ÚTLIT er fyrir að meira verði að gera hjá Slippstöðinni á Akureyri
nú yfir dauðasta tímann, frá febrúar fram í mars, en áður. Verkefna-
staðan er betri en verið hefur, en gamla vandamálið, nýsmíðaskipið
óselda, er enn til staðar og lítil hreyfing á sölumálum.
Sigurður Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar sagði að sá tími
sem framundan er væri að jafnaði
sá daufasti í skipasmíðaiðnaðinum,
en nú brygði svo við að verkefna-
staðan væri þokkaleg. Hann sagði
einkum þijár ástæður fyrir að svo
væri.
í fyrsta lagi væru starfsmenn
stöðvarinnar færri en verið hefur á
síðustu árum og þar af leiðandi
þarf færri verkefni, í öðru lagi hef-
ur því verið komið svo fyrir að
mest er að gera við smíði nýs skips
fyrir Ós hf. í Vestmannaeyjum á
þessum tíma og í þriðja lagi eru
ívið fleiri viðhaldsverkefni fyrirsjá-
anleg en áður á sama tíma. „Yfir-
leitt hefur staðan verið sú að það
eru allir á sjó á þessum tíma og
steindautt hér, en við eigum í við-
ræðum við nokkra aðila varðandi
væntanleg verkefni. Verkefnalega
er staðan því viðunandi," sagði Sig-
urður.
Fyrirtækið hefur auglýst eftir
málmiðnaðarmönnum til starfa, en
það kemur í framhaldi af betri verk-
efnastöðu. Sigurður sagði farsælla
að ná inn verkefnum og hafa næg-
an mannskap til að sinna þeim, en
að verða að láta verkefni frá sér
vegna skorts á starfsmönnum.
Nýsmíðaskipið óselda liggur enn
við bryggju Slippstöðvarinnar, en
viðræður eru í gangi við fjóra er-
lenda aðila. Sigurður sagði þær við-
ræður fara fram í gegnum umboðs-
skrifstofur, en um væri að ræða
aðila á Nýja-Sjálandi, Kanada,
Bretlandi og þá hefur skrifstofu í
Danmörku sýnt skipinu einhvern
áhuga, en talið er að þar sé aðili' í
Jemen að baki. „Það hefur ekkert
gerst í þessu máli, en á meðan
stækkar blaðran, hvort það síðan
endar með því að hún springur eða
hjaðnar, um það er ekki hægt að
fullyrða á þessari stundu,“ sagði
Sigurður.
Framleiöum snjóblásarann BARÐA
Sterkur 09 afkastemikill fyrir íslenskar aöstædur.
Einnig fúanlegar fleiri gerðir og stærðir.
Hringið og fáið nánarl upplýsingar.
mSMIÐJAH VÍK HF.,
610 Grenivík, símar 96-33178 og 96-33216.
FÉLAGSLÍF
D MÍMIR 599114017 - 1 AJK
FRL.
Heilsuverndarstöðln Máttur,
Faxafeni 14.
Byrjendanámskeið Hatha-jóga
hefst 15. janúar. Lögð verður
áhersla á djúpöndun, slökun og
teygjur. Upplýsingar f síma
689915.
íþróttafélag kvenna
Jæja, stelpur. Leikfimin er hafin
í Austurbæjarskóla.
Upplýsingar og innritun I síma
666736.
n
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænavika í Fíladelfíu. Bæna-
stund í kvöld kl. 20.30. „Eigi
leiö þú oss f freistni, heidur
frelsa oss frá illu, því að þitt
er ríkið, mátturinn og dýrðin
að ellffu".
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Safnaðarsam-
koma kl. 11. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Almenn samkoma
kl. 16.30. Gideonfélagar taka
þátt. Einsöngur Laufey Geir-
laugsdóttir. Sunnudagaskóli á
sama tíma.
Mánudagur: Bænastund kl.
20.30. Bæn fyrir friði.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30. Ræðumaður: Hafliöi
Kristinsson.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma kl. 20.30.
Laugardagur: Bænastund kl.
20.30.
Hvitasunnukirkjan Völvufelli
Sunnudagur: Sunnudagaskóli
kl. 11.
Mánudagur: Biblíuskólinn. IMýr
áfangi hefst kl. 20. Kennslu-
efni: Grundvöllur trúarinnar.
Þriðjudagur: Biblíuskóli.
Kennsla hefst kl. 20. Kennslu-
efni: Rómverjabréfið og Galata-
bréfið.
Nánari upplýsingar i sima
671839 eða 21111.
Fimmtudagur: Vitinisburða-
samkoma kl. 20.30.
HÚTIVIST
'ÓFINHI 1 • REYKIAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14601
Póstgangan
Ný og spennandi raðgangá í
samvinnu við Póst og síma.
Fyrsti áfanginn verður genginn
núna á sunnudaginn 13/1. Ár-
degisgangan leggur af stað kl.
10.30 frá skrifstofu Útivistar,
Vesturgötu 4. Þaðan verður
gengið um Miðbæinn með við-
komu á pósthúsinu en þar verða
göngukortin stimpluð. Þá verður
haldið suður Skildinganesmela
að Skildinganesi og niður í Aust-
urvör þar sem göngufólk fær
tækifæri til þess að láta ferja sig
yfir Skerjafjörð með aðstoð
Björgunarsveitarinnar Ingólfs.
Þeim sem ekki láta ferja sig verð-
ur boðið i rútuferö suður á
Bessastaðanes. Frá Bessastöð-
um iiggur svo leiðin að Görðum
og þaðan að' Póst- og sima-
minjasafninu í Hafnarfirði þar
sem göngunni lýkur eftir að
göngukortin hafa verið stimpluð.
Eftir hádegi verður boðið upp á
styttri ferð og er brottför kl.
13.00 frá BSÍ-bensínsölu. Ekið
að Bessastöðum þar sem slegist
verður i för með árdegishópn-
um. Að göngu lokinni verðurfólki
ekiö til baka á brottfararstaði.
Ekkert þátttökugjald verður í
þessum fyrsta áfanga póst-
göngunnar.
Vikan 14.-20. janúar
18/1 kl. 20.00:
Stjörnuskoðunarferð. Athugið
breytta dagsetningu.
20/1 kl. 10.30: Reykjavíkur-
gangan: Gengið frá Þjórsárós-
um meðfram ströndinni aö
Stokkseyri.
Kl. 13.00 "Dagsferð: Hraun i
Ölfusi - Óseyrarbrú.
Pantið timanlega í hina vinsælu
þorrablótsferð sem farin verð-
ur helgina 25.-27. janúar. Að
þessu sinni er ferðinni heitið i
Þjórsárdal. Tilvalið að taka
gönguskiðin meö. Fararstjóri
verður Lovísa Christiansen.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Sunnudagur 13. jan. kl. 11.00
Þingvellir að vetri
Fyrsta ferð af fjórum árstíðar-
ferðum til Þingvalla. Gengið
verður með strönd Þingvalla-
vatns frá Veliankötlu um Vatns-
kot og Lambhaga aö Þingvalla-
kirkju. Gönguferð við allra hæfi.
í Þingvallakirkju mun Heimir
Steinsson, þjóðgarðsvörður
taka á móti hópnum og flytja
stutta helgistund og segja frá
sögu staðarins.
Skíðaganga á Mosfellsheiði
Önnur skíðaganga ársins er um
austurhluta Mosfellsheiðar.
Gengið í um 3 klst. og síðan
ekið til Þingvalla og þar hittast
hóparnir og hlýða á helgistund
í Þingvailakirkju.
Brottför í ferðirnar er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin.
Heimkoma um kl. 16.30. Verð kr.
1.100,- frítt f. börn m/fullorðnum.
Ferðirnar eru bæði líkamleg og
andleg uppörvun fyrir alla og
raunar góð undirstaða fyrir ferð-
ir komandi árs.
Byrjið nýtt ár og nýjan áratug í
ferð með Ferðafélaginu.
Velkomin í hópinn.
Ath. brottför kl. 11.00.
Ferðafélag Islands.