Morgunblaðið - 12.01.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1991
ÚRSLIT
HM ísundi
Níundi dagur keppninnar í Ástralíu.
200 m bringusund karla. Úrslitasund.
1. Mike Barrowman (Bandaríkj.)...2:11.23
(HEIMSMET)
2. Norbert Rozsa (Ungveijal.).......2:12.03
3. Nick Gillingham (Bretlandi)....2:13.12
4. Joaquin Fernandez (Spáni)......2:13.42
5. Jozsef Szabo (Ungverjal.).."...2:13.93
6. Sergio Lopez (Spáni).............2:14.24
7. Philip Rogers (Astralíu).........2:15.00
8. Hiroshi Fujieda (Japan)..........2:15.28
400 m skriðsund karla. Úrslitasund.
mín
1. Jörg Hoffmann (Þýskalandi)....3:48.04
2. Stefan Pfeiffer (Þýskalandi)......3:48.86
—“3. Artur Wojdat (Póllandi).........3:49.67
4. Anders Holmertz (Svíþjóð)......3:49.72
5: Yevgeni Logvinov (Sovétríkj.)....3:50.89
6. Zoltan Szilagyi (Ungverjal.)...3:51.55
7. Ian Brown (Astralíu)...........3:51.75
8. Daniel Jorgensen (Bandaríkj.).....3:54.29
100 m bringusund kvenna. Úrslitasund.
1. Linley Frame (Ástralíu).......1:08.81
2. Jana Doerries (Þýskalandi)........1:09.35
3. Yelena Volkova (Sovétríkj.).......1:09.66
4. Manuela Dalla Valle (Ítalíu)...1:09.97
5. Keltie Duggan (Kanada)........1:10.01
6. Traeey McFarlane (Bandaríkj.) ....1:10.78
7. Tania Dangalakova (Búlgaríu)...1:10.82
8. Samantha Riley (Ástralíu)..v...1:11.15
4x100 m skriðsund karla. Úrslitasund.
1. Bandarikin.....................3:17.15
(T. Jager, Br. Lang, D. Gjertsen, M. Biondi)
2. Þýskaland....................... 3:18.88
(P. Sitt, D. Richter, St. Zesner, B. Zikarsky)
3. Sovétríkin.....................3:18.97
^fc-(Gennad Pígoda, Júrí Bashkatov, Veníamín
Trojanovítsj, Vladímír Tkatsjenko)
4. Svíþjóð...........................3:20.43
5. Ástralía..........................3:20.96
6. Kanada.........................3:22.42
7. Holland...........................3:26.97
Frakkland var dæmt úr leik.
100 m flugsund kvenna. Úrslitasund.
sek.
1. Qian Hong (Kína)...................59.68
2. Wang Xiaohong (Kína)............59.81
3. Catherine Plewinski (Frakklandi)....59.88
4. Crissy Ahmann-Leighton (Bandar...59.96
5. Julia Gorman (Bandan'kjunum) ....1:00.54
SusanO’Neill (Ástralíu).......1:00.54
7. YokoKando (Japan)................1:01.14
Inge De Bruijn (Holíandi)......1:01.64
Dýfingar af 3 m palli. Konur. stig
1. GaoMin (Kína)..................539.01
2. IrinaLashko (Sovétríkj.)...........524.70
3. Brita Baldus (Þýskalandi)..........503.73
4. Lu Haisong (Kina).................499.71
5. Daphne Jongejans (Hollandi).....492.99
6. Heidemarie Bartova (Tékkósl.)...467.52
Heimsbikarinn á skíðum
Stórsvig í kvennaflokki, sem fram fór i gær
í Kranjska Gora, Júgóslavíu.
min
1. Vreni Schneider (Sviss).....2:11.66
..................(1:04.27 ogl:07.39
2. NatasaBokal (Júgóslavíu)......2:12.77
..................(1:05.82/1:06.95)
3. Petra Kronberger (Austurríki).2:12.89
..................(1:05.48/1:07.41)
4. Eva Twardokens (Bandaríkj.).2:12.90
5. Sylvia Eder (Austurríki)....2:13.23
6. Monika Maierhofer (Austurr.)..2:13.26
i I. Ingrid Salvenmoser (Austurr.).2:13.28
• o. Anita Wachter (Austurríki)...2:13.34
9. Ulrike Maier (Austurríki)...2:13.48
10. PetraBemet(Sviss)..........2:13.68
■ Schneider er stigahæst í stórsvigskeppni
heimsbikarsins með 45 stig og Petra Kron-
berger hefur 40.
■Petra Kronberger er stigahæst í saman-
lögðu stigakeppninni um heimsbikar
kvenna, með 195 stig. Sabine Ginther
(Austurríki) er næst með 78 og Chanal
Bournissen (Sviss) með 72.
Körfuknattleikur
NBA-DEILDIN
Fimmtudagur:
Charlotte Homets—Sacramento...101: 59
Indiana Pacers—New York Knicks.. 129:122
Washington Bullets—LA Clippers ...122:110
San Antonio Spurs—Orlando....117:111
Houston Rockets—Denver.......156:133
Golden State Warriors—Seattle.113:103
■ Sacramento Kings var nálægt því að
setja met er liðið gerði aðeins 59 stig gegn
Charlotte. Milwaukee gerði aðeins 57 stig
gegn Boston í febrúar 1955 og Boston gerði
aðeins 62 stig í sama leiknum. Sacramento
fær því þann vafasama heiður að ná 2.
sæti á listanum.
Golf
Staðan eftir annan dag á Palm Meádows-
mótinu sem fram fer í Ástraiíu. Keppendur
Ástralskir nema annað sé tekið fram:
135 Johan Rystrom (Svíþjóð)...64 71
136 GregTumer(N—Sjálandi).....74 62,
Curtis Strange (Bandar.)...70 66
GregNorman.................66 70
Russell Swanso............67 69
137 Ryoken Kawagishi (Japan)..67 70
J38 Chris Patton (Bandar.).....67 71
Ný-Sjálendingurinn Greg Tumer setti
vallarmet er hann lék á 62 höggum, tíu
undir pari. Ársgamalt met Peters Lonards
féll er Greg Tumar púttaði glæsilega af sex
metra færi á síðustu holunni og náði þar-
með tíunda fuglinum. Þrátt fyrir það náði
hann ekki efsta sætinu, enda byijunin slæm.
Knattspyrna
Alþjóðlegt mót í Indlandi:
-Zambía—Sovétríkin..................0:4
— Matveev 14., Kuríjakov 16. og 55.,
Popovítsj 82.
SUND / HEIMSMEISTARAMOTIÐ
Barrowman
bætli metið
í 200 m bringusundi, synti á 2:11,23
Bandaríkjamaðurinn Mike
Barrowman bætti eigið heims-
met í 200 metra bringusundi á
heimsmeistaramótinu í sundi sem
fram fer í Perth í Ástralíu. Hann
synti á 2:11,23 mín. og bætti metið
um 0,3 sek. Hann varð í fjórða sæti
í greininni á Ólympíuleikunum í
Seoul en þeir þrír, sem urðu í efstu
sætunum í Seoul, áttu enga mögu-
leika í gær.
„Þeir áttu þetta inni hjá mér,“
sagði Barrowman um þremenning-
ana, Jozsef Szabo frá Ungveija-
landi, Nick Gillingham frá Bretlandi
og Spánveijann Sergio Lopez.
Gamla metið setti Barrowman á
Friðarleikunum í sumar og strax
eftir hundrað metra var nær öruggt
að það félli. „Ég vissi að ég þyrfti
að ná forystunni í byijun og halda
hraðanum. Heimsmetið var ekki
markmiðið heldur að vinna,“ sagði
Barrowman.
Matti Biondi synti frábærlega
með bandarísku sveitinni í 4x100
metra skriðsundi og litlu munaði
að metið félli. Bandaríkjamenn
náðu þar níundu gullverðlaunum
sínum á mótinu og hafa forystu.
Linley Frame færði heimamönn-
um þriðju guilverðlaunin er hún
sigraði í 100 metra bringusundi og
Þjóðveijar fengu fyrstu verðlaun sín
í einstaklingsgrein er Jörg Hoff-
mann sigraði landa sinn Stefan
Pfeiffer. Þeir hafa lengi eldað grátt
silfur saman. Hoffmann er frá
Austur-Þýskalandi en Pfeiffer frá
Vestur-Þýskalandi og nú voru þeir
saman í liði í fyrsta sinn.
Mike Barrowman fagnaði sigri og heimsmeti í 200 metra bringusundi í gær.
ÍÞRÓmR
FOLK
■ GUÐJÓN Árnason, landsliðs-
maður og fyrirliði íslandsmeistara
FH í handknattleik, var á dögunum
kjörinn Iþróttamaður FH 1990.
■ STEFAN Edberg og Steffi
Graf eru í efstu sætunum á styrk-
leikalista fyrir opna ástralska mótið
í tennis sem hefst á mánudaginn.
Boris Becker, sem er í 2. sæti,
mætir Jeramy Bates frá Englandi
í fyrstu umferð og Monica Seles,
sem er í 2. sæti á kvennalistanum,
rnætir Sabine Hack frá Þýska-
landi. I fyrstu umferð mætast tveir
sterkir Bandarikjamenn, þeir
Brad Gilbert og David Wheaton,
en þeir hafa ekki talast við síðan
þeir rifust heiftarlega á sterku
móti í desember. Það þótti heidur
óþægilegt að úr 128 manna hópi
skyidu einmitt þessir tveir dragast
saman og er búist við áhugaverðum
leik.
■ ENSKA knattspyrnufélagið
Chelsea var dæmt til að greiða
Guðjón Árnason, íþróttamaður FH
1990. '
rúmlega tíu milljónir króna í sekt
fyrir að hafa borgað leikmönnum
sínum ólöglega. Nefnd innan enska
knattspyrnusambandsins komst að
því að liðið hafði borgað nokkrum
leikmönnum, þá.m. Graham Ro-
berts og Kerry Dixon, peninga
sem hvergi komu fram í bókhaldi
félagsins. Þetta er hæsta sekt sem
ensKt félag hefur þurft að greiða^
og í fyrra var Swindon dæmt úr
1. deild í þá 3. vegna samskonar
brots.
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
33. sigur
Schneider
VRENI Schneiderfrá Sviss
sigraði á stórsvigsmóti í Kranj-
ska Gora í Júgóslavíu í gær.
Mótið var liður f heimsbikar-
keppninni. Natasa Bokal, Júgó-
slavíu, varð önnur og Petra
Kronberger, Austurríki, þriðja.
Sigur Schneider var mjög sann-
færandi. Þetta var 33. sigur
hennar á heimSbikarmóti, oggrunn-
inn að honum lagði svissneska
stúlkan í fyrri umferðinni með frá-
bærri frammistöðu.
Júgóslavneska stúlkan Bokal
hafði aldrei fengið stig á heimsbik-
armóti og var í ellefta sæti eftir
fyrri umferð, en fékk næst besta
tímann í þeirri síðari. Og Kronber-
ger jók forystu sína í samanlagðri
stigakeppni heimsbikarsins með því
að ná þriðja sætinu.
Eftir fyrri ferðina virtist sænska
stúlkan Pernilla Wiberg sú eina sem
gæti ógnað sigri Schneiders. Hún
sigraði í svigi í Bad Kleinkirchheim
á mánudag, og var 0.25 sek. á eft-
Reuter
Vreni Schneider fagnar sigri í
Kranjska Gora í gær.
ir Schneider eftir fyrri ferðina nú.
Sænska stúlkan náði hins vegar
ekki að fylgja góðri frammistöðu í
fyrri ferðinni eftir, því hún datt
með tilþrifum í þeirri seinni. Kron-
berger sagði eftir keppnina í gær
að hún teldi sænsku stúlkuna mjög
erfiðan keppinaut. „Hún er frábær
bæði í svigi og stórsvigi. Það verður
erfitt að sigra hana á heimsmeist-
aramótinu í næstUi viku,“ sagði
Kronberger.
GETRAUNIR
UM HELGINA
Fyrsti vinningur 2-3 milljónir
Sprengivika er hjá íslenskum
getraunum að þessu sinni, og
reiknaði Hákon Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins að fyrsti
vinningur'yrði 2-3 milljónir króna í
dag.
Leikur Tottenham og Arsenal
verður í beinni utsendingu Ríkissjón-
varpsins í dag kl. 15.00.
Hér eru nokkrir athyglisverðir
punktar um liðin sem eru á seðli
dagsins:
■Síðustu fimm leikir Aston Villa og
Liverpool á Villa Park hafa endað
jafntefli.
■QPR hefur aðeins unnið einn úti-
leik af átta gegn Chelsea síðan 1980.
■Southampton hefur ekki unnið leik
á útivelli gegn Luton síðustu tíu ár-
in. Luton héfur unnið fjóra og jafn-
mörgum hefur lyktað með jafntefli.
■Man. Utd. og Sunderland hafa
ekki spilað síðan keppnistímabilið
1984/85, en þá varð jafntefli 2:2 á
Old Trafford en Sunderland vann á
Roker Park, 3:2.
■Norwich og Leeds hafa ekki spilað
síðan tímabilið 1985/86. Þá vann
Norwich báða leikina.
■Coventry vann Nott. Forest í fyrra
á útivelli, 4:2, en það er eini útisigur
liðsins á Forest síðan 1980.
■Tveir af síðustu þremur heima-
leikjum Sheffield United gegn Cryst-
al Palace hafa endað jafntefli.
■ Arsenal hefur unnið þijá af síðustu
fjónim útileikjum gegn Tottenham.
■Báðir leikit’ Wimbledon og Derby
á síðasta keppnistímabili fóru 1:1.
■Portsmouth hefur ekki tapað
heima á móti Oldham síðan 1985.
■West Ilam hefur ekki tapað gegn
Watford, hvorki heima né úti, síðustu
átta árin. Aðeins einn af þeim leikjum
hefur endað með jafntefli.
lefkv. (^J==/-0*= Staðan á ýmsum tímum Hálfleikur Úrslit Mín spá 1 x 2 12 réttir
Aston Villa : Liverpool Chelsea :Q.P.R. Luton Town : Southampton Manchester Utd. : Sunderland
Norwich City : Leeds United
Notth. Forest : Coventry City Sheffield Utd. : Crystal Palace
0 Tottenham : Arsenal Wimbledon : Derby County Hull City : Sheffield Wed. Portsmouth : Oldham Watford : West Ham ' : ' :
KNATTSPYRNA
Islandsmótið í innanhússknattspyrnu
hófst í Laugardalshöll í gær. Nánar er
greint frá því annars staðar hér í opnunni.
BLAK
Laugardagur:
Mfl. karla, Hagaskóli.Þróttur - KA kl. 14
Mfl. kvenna, Digranes.HK - ÍS kl. 14.45
Mfl. kvenna, Digranes ...UBK - KA kl. 16.00
Sunnudagur:
Mfl. karla, Hagaskóli.ÍS - KA kl. 13.30
Mfl. kvenna, Hagaskóli
................Yíkingur-KAkl. 14.45
■Leikjum Þróttar og HK í meistaraflokki
karla og kvenna, sem fara áttu fram á
Neskaupstað um helgina, hefur verið fre-
stað. Það verður leikið í 3. flokki pilta og
stúlkna á íslandsmótinu um helgina.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sunnudagur - úrvalsdeild:
íþr.h. Strandg. ..Haukar - Njarðvík kl. 14.00
Stykkish.............Snæfell - KR kl. 16.00
Höll Akureyri...........Þór - ÍBK kl. 20.00
Sauðárkr.......Tindastóll - UMFG kl. 20.00
BADMINTON
Meistaramót TBR verður haldið í húsi
félagsins við Gnoðavog. Mðtið hefst kl.
15.30 í dag og verður fram haldið kl. 10.00
í fyrramálið. Keppt verður í einliða-, tvíliða-
og tvenndarleik, í meistaraflokki, A-flokki
og B-flokki.
HANDKNATTLEIKUR
Mánudagur.
1. deild karla:
Vestm.eyjar......ÍBV - Haukar kl. 20.00
1. deild kvenna:
Laugardalshöll ...Víkingur - Grótta kl. 19.00
2. deild karla:
Laugardalshöll.......ÍS - iBK kl. 20.15
KEILA
Unglingamót verður í Keilusalnum í
Öskjuhlíð í dag kl. 16.00 og í kvöld kl.
20.00 hefst Öskjuhlíðarmótið.