Morgunblaðið - 22.01.1991, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991_' " "
Verður Þýskaland fátækara!
eftir Eyjólf Konráð
Jónsson
Um helgina hitti ég kunningja
minn. Hann byijaði strax að tala
um pólitík. Eins og venjulega reyn-
ir hann að snúa á mig og Eykonsk-
una sem hann nefnir svo. Hvernig
ætlarðu að lækka skatta, bæta
kjörin og auka framkvæmdir allt
í senn — og hann glotti. Eg ætla
að bæta kjörin með því að auka
framkvæmdir og lækka skatta,
ekki síst neysluskatta. Hann þagði
og vorkenndi mér sýnilega. Eg
spurði hann lymskulega: Hvernig
ætlar þú að bæta kjörin og auka
framkvæmdir, hvort tveggja hljót-
um við að verða að gera á næstu
misserum og árum, varla .með því
að auka skattheimtu, flytja enn
meira af aflafé fólks og fyrirtækja
frá þeim til ríkisins til „eignar og
ábúðar“. Við vorum sammála og
fórum að rabba.
Talið barst að Þýskalandi og við
vorum á einu málu um að austur-
hlutinn yrði endurreistur á örfáum
árum með fullkomnustu verksmiðj-
um og fyrirtækjum sem heimurinn
hefði litið, allt saman tölvustýrt
og sjálfvirkt þannig að japönsku
verksmiðjurnar nokkurra áratuga
gamlar væru eins og hreint rusl.
En eiga þeir nóga peninga? sagði
vinurinn, ætli þeir séu nógu ríkir
til að byggja upp nýtt efnahags-
stórveldi á augabragði? Jú, líklega
geta þeir það, þeir byggðu Vestrið
upp á ótrúlega skönrmum tíma.
Þar var þó allt í rúst og nánast
engir peningar. Marshallfé jú, en
það var dropi í hafið. Einhvern
veginn bjuggu þeir bara til pen-
inga, varla hefur þó nægt að prenta
seðla, líklega hafa þeir búið til
verðmæti. Eru peningar þá bara
ávísanir á verðmæti þegar allt
kemur til alls? Eru peningarnir sem
Vestur-Þjóðveijar nú dæla í Au-
strið bara ávísanir á verksmiðjurn-
Á boðstólum verða fleiri titlar
en nokkru sinni fyrr og með
allt að 95% afslætti.
BÓKAPAKKAR:
Við vekjum sérstaka at-
hygli á girnilegum bóka-
pökkum fyrir unga
og aldna, á aldeilis
hlægilcgu verði.
RITVERKATILBOÐ:
Við bjóðum einnig
nokkur úrvalsritverk
á sérstöku kynningar-
verði.
NU ER TÆKIFÆRIÐ:
Byggðu upp heimilisbókasafn.
notaöu nýársbónusinn
okkar til þess.
siflmcnnini
PVSnW - .
17. janúar til 2. febrúar
Opið laugardaga kl. 10 til 18
mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18
og sunnudaga kl. 11 til 16
Úrvalið eykst með ári hverju
Nú er tækifærið til þess að leggja
grunn að góðu heimilisbókasafni.
Hinn árlegi bókamarkaður okkar hefst í
dag, Fimmtudag, í forlagsverslun okkar
að Síðumúla 11.
EITTHVAÐ ÓVÆNT Á
HVERJUM DEGI:
Til þess að hleypa auknu lífi í tilver-
una munum við, meðan á útsölunni
stendur, vera daglega með ein-
hverjar uppákomur, þar scm
t.d. verða boðin 10 ein-
tök af cinhverjum okkar
eftirsóknarverðustu
verka á mjög svo
góðu vcrði.
ÚTLITSGÖLLUÐ
ÖNDVEGISVERK:
Einnig bjóðum við
nokkur af öndvegis-
vdrkum okkar með
útlitsgöllum, á sérstökum
vildarkjörum.
ÖRN OG $ ÖRLYGUR
Síðumúla 11 - Sími 84K66
■S9A1CQ 00 UVNHV HDOVMUVMVMQ8 - SOATHQ 00 UVNUV UnaVMUVWVMflC • S0A1HQ 00 UVNHV UnOVMUVWVMQC
Eyjólfur Konráð Jónsson
ar, verkmenninguna og viðskipta-
máttinn í Vestrinu? Og ef svo er
þurfa þeir þá í rauninni nokkra
peninga til að skapa auðlegð í
austurhlutanum, byijar ekki auð-
legðin að verða þar til um leið og
þeir ryðja fyrstu kumböldunum til
hliðar til að byggja nútíma mann-
virki? Og svona lét hann dæluna
ganga.
Líklega er ómaksins vert að láta
hugann stundum reika svona því
að alveg er ljóst að sú ofstjórnar-
og ofsköttunarstefna sem rekin
hefur verið er gengin sér til húðar
og er gagnslaus til annars en við-
miðunar þegar ný stefna verður
mörkuð í vor þar sem flest verður
gert öfugt í efnahags-, peninga-
og atvinnumálum við það sem nú
er.
Varla leikur á því efi að mikið
er hægt að læra af Þjóðveijum í
þessu efni. Því er þetta rabb nú
sett á blað. Gjarnan má lika minna
á söguna sem Erhard faðir þýska
undursins segir sjálfur af því þegar
allir „ráðgjafar“ lögðust gegn því
að hann færi inn á nýjar og áður
óþekktar leiðir til fijálsræðis í
efnahags- og fjármálum. Hann fór
ekki að þeirra ráðum. Þó var hann
hagfræðingur.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykja víkurkjördæmi.
CB FORHITARAR
MIÐSTÖÐVARHITARAR
og
NEYSLUVATNSHITARAR
Mest seldu FORHITARAR
landsins
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680