Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 15

Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1991 15 andi skil. Reifar Jón S. rök sín fyr- ir því að bráðabirgðalögin hafi brot- ið í bága við eignarréttarákvæði 67. gr. stjórnarskrár. Þykir mér meiri veigur í þeim röksemdum Jóns S. en þeirri sem rætt er um hér á undan því vissulega kann að orka tvímælis að samningsbundin laun séu tekin af fólki með lagasetningu. Ég tel í sjálfu sér ekki efni til á þessum vettvangi að auka við um- ræðuna að þessu leyti enda and- stæðum sjónarmiðum gerð ágæt skil í grein Jóns Sveinssonar. Agreiningur um þetta er og til meðferðar í bæjarþingi Reykjavíkur og verður úr honum skorið á þeim vettvangi. íslenskir dómstólar hafa hinsveg- ar verið tregir til þess að fallast á að lög bijóti í bága við stjórnar- skrána. Ágreiningur hefur einkum risið út af 67. gr. og hafa dómstól- ar yfirleitt túlkað það ákvæði frjáls- lega. Er einkum athyglisvert að skoða sjónarmið dómstóla þegar deilt hefur verið um lögmæti skatt- lagningar. Þegar virtar eru þessar úrlausnir dómstóla og áralög notk- un bráðabirgðalaga á framkvæmd kjarasamninga (sem of langt mál er að rekja hér í smáatriðum) er tæpast hægt með lögfræðilegri sannfæringu að fullyrða óhikað um að bráðabirgðalögin bijóti gegn 67. gr. stjórnarskrárinnar. Með öðrum orðum að fullyrða að forseti, ríkis- stjórn og nú Álþingi hafi staðið að stjórnarskrárbroti. Það er a.m.k. fullkomlega óvíst hvort lögin stang- ast á við 67. gr. stjórnarskrár. Af- dráttarlausar fullyrðingar um stjórnarskrárbrot að þessu leyti, í pólitísku umróti síðustu vikna og mánaða, sem ekki styðjast við ótví- ræðar úrlaúsnir dómstóla, bera með sér, að mínu áliti, að þær séu sett- ar fram í pólitísku skyni, öðru frem- ur. Hlutlaus umfjöllun eða pólitísk Jón S. Gunnlaugsson telur að rök sín gegn gildi bráðabirgðalaganna séu einvörðungu lögfræðileg en eigi pólitísk. Mér virðast þau hinsvegar öðrum þræði pólitísk enda vert að minnast þess að hliðstæð rök hafa einkum heyrst hjá forráðamönnum Sjálfstæðisflokksins í hinni pólitísku umræðú undanfarnar vik- ur. Jón S. Gunnlaugsson telur hlut- RAFSTODVAR í stærðunum 2,0 kw, 6,0 kwog 35 kw fyrirliggjandi Höfum einnig fyrirliggjandi: Steypuhrærivélar. Rafmagnstalíur. Flísasagir. Loftþjöppur. Verkstæðiskrana. SALA-SALA-SALA-SALA LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIG’A Fallar hf. DALVEG116, FÍFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SÍM AR 641020 OG 42322 lausa umfjöllun mína yfirlætislega enda sé hlutleysi mitt í raun „ . . . að telja misgjörðir stjórnmálamanna ávallt standast án tillits til laga, að því er virðist af þeirri ástæðu einni að þeim hafi verið fengið ríkisvald í hendur. . .“ Þá fullyrðir Jón S. Gunnlaugsson að „ ... hlutleysið felst í því að ekki skuli beita al- mennum lagareglum um stjórnar- framkvæmdina". Hér eru stór orð sögð. Jón S. Gunnlaugsson fullyrðir hér að undirritaður sé vísvitandi að veija misgerðir stjórnmálamanna. Þannig gefur hann í skyn að þar sem ljóst sé að bráðabirgðalögin bijóti í bága við stjórnarskrána (að hans áliti) sé hlutlaus umfjöllun undirritaðs um lögin í raun blessun yfir lögbrot stjórnmálamanna og þjónkun við ráðandi valdhafa. Slíkir leigupennar séu lítilsigldir og ekki á vetur setjandi. Röksemdarfærsla sem þessi er ekki lögfræðileg, heldur meira í ætt við ábyrgðarlausa pólitíska umræðu eins og hún er, því miður, í alltof Höfundurer ríkum mæli hér á 'landi. Fagleg hæstaréttarlögmaður. 50% afsldttur af gjafavörum til mdnaðamóta Bankastræti 4 - Símar 25656 og 16690 Laugavegi 53 - Símar 20266 skoðanaskipti um lögfræðileg álita- efni eiga að vera láus við þvílíkan málflutning enda dæmir hann sig sjálfur. Fijáls skoðanaskipti eiga að fara þannig fram að mönnum sé fijálst að skiptast á andstæðum skoðunum án þess að fá bágt fyrir enda er málfrelsið talið til_ hinna dýrmætustu mannréttinda. í þessu felst m.a. að.Jón S. Gunnlaugsson hefur fullan rétt á að láta skoðanir sínar í ljós. En hann verður einnig að láta sér lynda að ég hafi aðrar skoðanir en hann á því hvort lög- fræðileg umijöllun um bráðabirgða- lögin hafi um of verið böðuð pólitísku ljósi og án þess að bera mér á brýn að mér hafi gengið annað og verra til • en heiðarleg skoðanaskipti með skrifum mínum. Ég vænti þess sannarlega að ákvæði stjórnarskrárinnar um mál- frelsi sé honum ekki síður kapps- mál en ákvæði stjórnarskrárinnar um verndun eignaréttinda. V ' NAT HREIN OG TÆR ÚRA LANDSINS Ein helsta auölind |Djóöarinnar um alla framtíð. Til að nýta þessa auðlindþarf umhverfi okkar allt að vera óspillt og ýtrasta hreinlætis að vera gœtt ói vinnustöðum. Við eigum mikið í húfi íslendingar, hvernig þessi mál þróast, þar sem afkoma okkar byggist á gæðum lands og sjávar. Engum blandast hugur um að hrein og tœr náttúra landsins og fyrirtœki búin samkvœmt ýtrustu hreinlœtis- og mengunarvarnakröfum eru bestu vopnin, þegar att er kappi við aðra framleiðendur á heimsmörkuðum Á þessu sviði eru mörg verkefni og stór sem bíða úrlausnar sveitarstjórna og atvinnurekenda, en efalaust hafa fáir gert sér grein fyrir því, að unnt er að leysa þau með langtíma fjármögnun. í lögum Iðnlánasjóðs eru ákvœði, sem heimila honum að lána íþessa mikilvœgu uppbyggingu. GÆTUM LANDSINS - GERUM HREINT. IÐNLÁNASJÓÐUR ÁRMÚLA 13a, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 04 00 .1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.