Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1991 —. :i i—i/.l .."ririi !ii " i—.1 i;,..I/ 21 s FYRI PERSAFLOA 9 Scud-flaugar skotnar níður í Saudi-Arabíu Riyadh, Dhahran. Reuter. ÍRAKAR skutu 10 Scud-eldflRugum á Riyadh, höfuðborg, Saudi- Arabíu, og Dhahran í fyrrinótt. Níu þeirra var grand- að af bandarískum Patriot-gagnflaugum áður en þær hæfðu skotmark sitt en sú tíunda var látin afskiptalaus þar sem hún stefndi fjarri skotmarki sínu og féll í hafið á Persaf- lóa. Hermt er að flaugunum 10 hafi verið skotið frá Kúveit. Engin meiðsl urðu á fólki í eld- flaugaárásinni að sögn fulltrúa ijölþjóðahersins í Saudi Arabíu. Oljóst var þó hvort einhveijir hefðu hlotið meiðsl er eldflaugabraki rigndi yfir Riyadh er Patriot-flug- skeytin grönduðu Seud-flaugun- um. Fréttamenn sáu hins vegar smágíg skammt frá flugvelli Riy- adh en talið var í gær að hann hefði myndast annað hvort er brak úr Scud-flaug hefði fallið til jarðar eða af Patriot-flaug sem hefði bilað og hrapað til jarðar. Sex flaugum var skotið á Riyadh og var þeim öllum grandað á flugi með Patriot-gagnflaugum. Sömu örlög hlutu þijár Scud-eldflaugar sem skotið var á Dhahran seint á sunnudagskvöld og árla í gær- morgun. Scud-flaugum var einnig skotið á borgina árla morguns sl. föstudag en þær voru sömuleiðis skotnar niður með Patriot-flug- skeytum sem reynst hafa full- komnlega í átökunum við Persaf- ióa. Fylgjast mátti með eldflauga- árásinni á Riyadh í beinni útsend- ingu nokkurra sjónvarpsstöðva sem voru með kvikmyndatökuvélar sínar á þökum hótela í borginni. Sást þegar Patriot-flugskeytunum var skotið upp og nokkrum sekúnd- um síðar kváðu miklar sprengingar við og eldhnettir mynduðust á himni er þær hæfðu Scud-flaug- arnar. Á laugardag skutu írakar fimm skammdrægum sovétsmíðuðum Frog-vígvallarflugskeytum að stöðvum landgöngusveita banda- ríska flotans í austanverðri Saudi- Arabíu en þær féllu til jarðar í eyðimörkinni fjarri skotmarkinu og sakaði því engan. Bandarískar A-6 og A-10 þotur eyðilögðu síðan Frog-skotpallana. Scud-B-eldflougin er upprunin í Sovéfríkiunum, en reynsla af henni hefur verið misiöfn. írakor hofo verið óónægðostir meö skammdrægni flougorinnar og hofa þeir fengist við ýmsar endurbætur til þess oð hún fljúgi lengra. Drægni nennor er nú um 650 km, en vor unphaflega um 280 km. hó hofa þeir gert tilraunir meo svipoða eldflaug, sem flogið getur 900 km. Scud-B tlýgur með um ‘ p nraðo og erflugtiminn fró skotpöllum írako í Suður- og Vestur-írak til Ryadh og Tel Aviv svipaður eða um 5 til 6 minútur. Sýrland Jórd ama Potriot-flugskeytin eru notuð við loftvornir, bæði gegn flugvélum og eldflaugum Hvert skeyti er um fjögurra metra langt, flughraðinn er þrefoldur hljóðhroði, en drægnin um 50 km. Hóþróað tölvukerfi stýrir vopnakerfinu og hefur ó sínum snærum tvær rotsjór og ótto skotpalla, en é hverjum skotpalli eru fjögur skeyti. 3 Sálfræðihemaður gegn Iraksstjórn New York. Reuter. AUK stríðsaðgerða bandamanna stunda Bandaríkjamenn mikinn sálfræðilegan hernað gegn stjórnvöldum í írak. Felst hann meðal annars í útvárpssendingum til Iraks og áætlunum um að smygla eða koma með öðrum hætti útvarpstækjum í hendur almennings í landinu. Yar sagt frá þessu í bandaríska blaðinu New York Times á laugardag. í fréttinni sagði, að CIA, banda- ríska leyniþjónustan, tæki þátt í þessum tilraunum en megintilgang- ur þeirra er að sýna Saddam Huss- ein í öðru ljósi en íraskur almenn- ingur á að venjast, draga úr bar- áttumóði hermanna og gefa villandi hugmyndir um hernaðaráætlanir bandamannahersins. Þá er einnig reynt að aðstoða andspyrnumenn í Kúveit og grafa undan ríkisstjórn Saddams. Auk útvarpssendinganna hefur hljóð- og myndsnældum verið dreift yfir írak en þar er lögð áhersla á hernaðarlega 'yfirburði banda- mannahersins og á grimmdarverk og spillingu Saddam-stjórnarinnar. Þá segir í New York Times, að áróð- urinn beinist ekki síst að íröskum hermönnum í Kúveit. Þar hefur verið dreift flugmiðum og skorað á þá að hlaupast undan merkjum eða gefast upp. MEÐ BLÖNDUÐU GRÆNMETI Fituinnihald a&eins 6% LETTOSTAR , þrír góðir á léttu nótunum MUNDU EFTIR OSTINUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.