Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 24

Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 24
 24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Lettar beittir ofbeldi Boris Pugo, harðlínumaður innan KGB og fyrrum leiðtogi kommúnistaflokksins í Lettlandi, var skipaður _ inn- anríkisráðherra Sovétríkjanna 2. desember síðastliðinn, þegar Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, rak Vadim Bak- atín úr ráðherraembættinu. Þá skipaði Gorbatsjov einnig Boris Gromov, einn frægasta hers- höfðingja Sovétríkjanna, sem var síðastur sovéskra herfor- .ingja til að yfirgefa Afganistan, áðstoðarráðherra í ínnanríkis- ráðuneytinu. Þessum tveimur mönnum fól Gorbatsjov síðan að beija á sjálfstæðissinnum í lýðveldum Sovétríkjanna. Sér- þjálfaðar sveitir þeirra, OMON eða „svörtu húfurnar", áttu í skotbardaga í Riga, höfuðborg Lettlands, á sunnudagskvöld, þar sem að minnsta kosti fjórir féllu og 10 særðust. Lettar ótt- ast að næsta skref sovéska inn- anríkisráðuneytisins og Rauða hersins verði að steypa stjórn- inni í Lettlandi og setja Moskvuholla fulltrúa í hennar stað. Hafi einhver efast eftir at- burðina í Litháen fyrir rúmri viku um að Gorbatsjov og fé- lagar hans í Kreml ætluðu markvisst að beita valdi gegn andstæðingum sínum í lýðveld- unum, hlýtur sá vafi að hafa rokið út í veður og vind, þegar fréttirnar bárust frá Lettlandi. Þar er hermönnum einnig beitt til að brjóta sjálfstæðisviljann á bak aftur. Fyrir Boris Pugo hlyti að vera persónulega erfitt að rökstyðja nauðsyn valdbeit- ingar almennt, ef hann léti ekki einnig fyrrum undirsáta sína í Lettlandi finna fyrir hramminum. Aðstæður eru hentugri fyrir hann þar en í öðrum Eystrasaltslöndum, af því að þar eru fleiri Rússar en í hinum löndunum tveimur. Hrifsi menn Gorbatsjovs völdin f Lettlandi yrði auðveldara að ógna Eistlendingum og Lit- háum. Á þingi Lettlands var í gær samþykkt að stofna sjálfsvarn- arsveitir lýðveldisins. Hlutverk þeirra er að verja og vernda líf, réttindi og frelsi íbúa Lett- lands, þjóðfélagið og ríkis- stjórnina í landinu. Verði staðið skipulega að því að fram- kvæma þessa samþykkt eru Lettar að stofna her til að halda uppi vörnum gegn Rauða hern- um og hermönnum KGB. And- spyrna af þessu tagi gegn Kremlveijum kynni að draga dilk á eftir sér um öll Sovétrík- in. Allir fijálshuga menn for- dæma þvingunaraðgerðir manna Gorbatsjovs í Eystra- saltsríkjunum og annars staðar í Sovétríkjunum. Nota verður öll tiltæk pólitísk og efnahags- leg ráð til að knýja Kremlveija frá valdbeitingu og kúgun á almennum borgurum. Mótmæli mágnast innan Sovétríkjanna sjálfra. Þúsundir manna söfn- uðust saman við Kremlarmúra á sunnudag. Færi Gorbatsjov, Pugo og Gromov sig meira upp á skaptið kann Moskva að verða næst í borgaröðinni: Austur-Berlín, Búdapest, Prag, Vilnius, Riga . . . Stjórnmála- samband Þegar Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra ræddi við Vytautas Landsberg- is, forseta Litháens, í Vilnius á laugardag ítrekaði Landsbergis enn óskina um að íslendingar tækju upp stjórnmálasamband við Litháa. Þessi ósk hefði ekki átt að koma utanríkisráðherra á óvart. Hér á landi hefur henni verið hreyft oftar en einu sinni og Sjálfstæðisflokkurinn flutti tillögu um málið á þingi. Ríkis- stjórnin hefur hins vegar ekki viljað stíga þetta sjálfsagða skref. För Jóns Baldvins Hanni- balssonar verður að bera ein- hvern áþreifanlegan árangur fyrir Eystrasaltsþjóðirnar. Þeg- ar utanríkisráðherra ræðst í leiðangur af þessu tagi má hann ekki verða til þess að vekja falskar vonir hjá við- mælendum sínum. I, nmæli utanríkisráðherra í Litháen verða tæplega túlkuð á annan veg en þann að hann hafi skipt um skoðun og vilji taka upp stjórnmálasamband við Landsbergis og félaga hans. Því verður ekki trúað fyrr en á það reynir, að innan ríkis- stjórnarinnar og stuðnings- flokka hennar á Alþingi sé ekki stuðningur við að viðurkenna Litháen og síðan önnur Eystra- saltsríki með þessum hætti. OFBELDIS VERK RAUÐA HERSINSIEYSTRAS ALTSRIKJ r,,. Lettneskir lögreglumenn á verði við innanríkisráðuneytið í Rigu. Myndin er tekin af tröppum Ridzene-b; Hannibalsson og föruneyti á sunnudag tveimur klukkustundum áður en skothríðin hófst. Um kvöldið sáust varpsmyndum verjast svarthúfusveitunum. í Skothríð hófst skömmu brottför Jóns Baldvins fi ornað sér við götuelda. Hótel ráðherrans næsta hús við inn- anríkisráðuneytið Tallinn, Eistlandi, frá Pétri Gunnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. VIÐ íslenskir blaðamenn á ferð um Eystrasaltsríkin með Joni Baldvin Hannibalssyni utanríkis- ráðherra vorum rétt búnir að matast og koma okkur fyrir á hóteli í Tallinn eftir um þriggja tíma akstur frá Rigu þegar eistn- eska sjónvarpið tók að sýna myndir af árás svarthúfusveit- anna á hús innanríkisráðuneytis Lettlands í Rigu. Innanríkisráðu- neytið blasir við þegar gengið er út af Ridzene-hótelinu sem ráðherrann og föruneyti hans, þar á meðal við Morgunblaðs- menn, höfðum gist meðan á dvöl okkar stóð í Rigu og þegið máls- verð í boði stjórnvalda síðdegis þennan sama dag. A sjónvarps- skjánum sáum við lögreglumenn- ina, sem við höfðurn myndað á verði fyrir framan ráðuneytið, munda byssur sinar og leita skjóls fyrir skothríðinni sem buldi á húsinu. Fyrstu viðbrögð við þessum myndum voru að hugsa til þess hvort einnig hefði verið ráðist til atlögu gegn óvopnuðum mannfjöld- anum innan vígirðinganna sem slegið hefur verið upp umhverfis hjarta Rigu, en auðvitað fannst okkur það súrt, komnir á staðinn til að flytja fréttir af atburðum og ástandi í landinu, að vera ekki í Rigu, 'a. Ridzene-hótelinu, innan við 100 metra frá þeim stað þar sem þessir atburðir voru að gerast. Síðar kom í ljós að á hótelinu hafði Gorb- anov Lettlandsforseti verið þegar skothnðin hófst og meðan hún stóð yfir. Óráðlegt þótti þó að fara strax aftur til Rigu, enda höfðu borist fregnir af því að svarthúfusveitirnar hefðu jafnframt lokað leiðum að borginni. Fljótlega komu fréttir af mannfallinu, lettneskur kvik- myndatökumaður drepinn með tveimur dum-dum kúlum úr byssum svarthúfanna, þrír aðrir fréttamenn særðir, tveir lögreglumenn fallnir og ungur Letti. Sagt var að her- menn færu um götur og misþyrmdu fólki. Enda þótt baltneskir stjórnar- erindrekar virtust álíta að ekki yrði látið til skarar skríða meðan á heim- sókn Jóns Baldvins stæði hafði Arnór Hannibalsson prófessor, bróðir Jóns Baldvins og fylgdar- maður á ferðinni hér, skömmu áður fullyrt við mig að annaðhvort yrði látið til skarar skríða á sunnudag eða mánudag og er það ekki í fyrsta skipti sem hann hefur reynst öðrum sannspárri um þróun mála í Sov- étríkjunum enda á hann einkavini í hópi þeirra manna sem staðið hafa hvað fremst í frelsisbaráttu Eystrasaltsþjóða. Úr lettneska utanríkisráðuneyt- inu fengust þær upplýsingar að skorað væri á alla lögreglumenn landsins að stefna til borgarinnar til að beijast við árásarliðið en síðar datt á logn. Eistneska útvarpið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.