Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 30

Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991, Harkalegar aðgerð- ir ræddar á Alþingi Utandagskrárumræða um ofbeldisaðgerðir sovésks herliðs Hvað ætla íslendingar að gera til að mótmæla og sporna við of- beldisaðgerðum sovéska hersins í Lettlandi, Litháen og Eistlandi? Fjölmargar tillögur voru reifaðar við utandagskrárumræður í Sam- einuðu þingi i gær. Það var Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) sem fór fram á þessa umræðu vegna atburðanna í Rigu í Lettlandi. Hjörleifur Guttormsson harm- aði að nú þyrfti enn að ræða voveif- . lega atburði í Eystrasaltsríkjunum, ' fyrir réttri viku hefði Alþingi ályktað vegna atburða í Litháen og m.a. hvatt til þess að ofbeldi yrði ekki beitt. Ákall Alþingis hefði enga áheyrn hlotið. Nú hefði „hrammur Moskvu" hitt Lettland fyrir. Valda- taka væri yfírvofandi og í Eistandi magnaðist spennan. Öll Eystrasalts- ríkin ættu augljóslega á hættu árás- ir sovéskra sveita og handbenda þeirra. Markmiðið væri að knésetja sjálfstæðisbaráttu þessara þjóða og koma þar upp auðsveipum lepp- stjórnum. Aðferðirnar væru gamal- kunnar; lygar og prettir, ofbeldi. Islendingar hlytu að rísa einróma gegn slíkum aðferðum. Hjörleifur beindi fyrirspurnum til ríkisstjórnar um til hvaða aðgerða hefði verið gripið og til hverra aðgerða myndi verða gripið. Þessi mál þyldu sannar- lega enga bið. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra greindi frá því að ut- anríkisráðuneytið hefði nú þegar mótmælt ofbeldinu harðlega í gegn- um sendiráðið í Moskvu. Island hefði beitt sér fyrir því að Norðurlöndin fengju málefni Eystrasaltsríkjanna rædd í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna en það erindi hefði enn ekki verið afgreitt þar. Steingrímur upp- lýsti að vænst væri utanríkisráð- herra, Jóns Baldvins Hannibalssonar í nótt og yrðu þessi mál rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. For- sætisráðherra lagði áherslu á að allt yrði gert sem talið væri að gæti orðið þessum löndum að liði. Jón Sigurðsson starfandi ut- anríkisráðherra sagði tíðindin að austan vekja ugg um að lýðræðis- öflin væru að verða undir. Jón taldi atburðina benda til að valdhafar eystra hefðu „enn ekki lært og enn ekki gleymt". Allar friðelskandi lýð- ræðisþjóðir yrðu að bregðast við. Jón Sigurðsson taldi tímasetningu „hinna skelfilegu ofbeldisaðgerða í Rigu“ vera athyglisverða. Þær hefðu átt sér stað aðeins nokkrum klukku- stundum eftir að opinber gestur, utanríkisráðherra íslands, hefði kvatt borgina. Jón greindi frá því að hann hefði kallað sendiherra Sovétríkjanna á sinn fund í morgun og lýst þungum áhyggjum vegna ástandsins og mót- mælt óréttmætum og hrottalegum aðgerðum í Rigu. Jón upplýsti enn- fremur að sendiherrar Norðurland- anna í Sovétríkjunum hefðu átt í gærmorgun fund með aðstoðarut- anríkisráðherra rússneska lýðveldis- ins og þar hefði komið fram mikill áhugi á upplýsingaskiptum milli lýð- veldisins og Norðurlandanna um málefni Eystrasaltsríkjanna. Fram kom að yfirvöld í Rússlandi teldu mikilvægt að önnur ríki létu ofbeldis- .. aðgerðir sovéska hersins ekki af- skiptalausar. Jón Sigurðsson minnti á för Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkis- ráðherra til Eystrasaltsríkjanna og vænti þess fastlega að hann myndi gera þinginu grein fyrir henni. Stjórnmálasamband Þorsteinn Pálsson (S- Sl) Minnti á nauðsyn samstöðu og stuðnings við baráttu Eystrasaltsríkjanna gegn aðgerðum „friðarverðlaunahafa Nóbels, Gorbastjovs". Þorsteinn rakti nokkrar hugmyndir um nauð- synlegar aðgerðir. Hæst bæri ósk Landsbergis forseta Litháens um að íslenska ríkisstjómin taki þetta mál upp á vettvangi öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna. Ræðumaður vildi að ríkisstjórnin gengi fram með öllu meiri snerpp en hún hefði gert fram til þessa. í öðru lagi hefðu verið ræddar hugmyndir um að hætta við- skiptaviðræðum. I þriðja lagi hefði verið minnt á að fyrirskipa mætti fækkun starfsmanna í sovéska sendiráðinu. í fjórða lagi hefði verið rætt um að kalla íslenska sendiher- rann í Moskvu heim „til skrafs og ráðagerða". Þorsteinn fagnaði heim- sókn utanríkisráðherra til Eystra- saltsríkjanna og þeirri yfirlýsingu sem borist hefði um að ríkisstjórnin íhugi nú að stofna til stjórnmálasam- bands við Eystrasaltsríkin. Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) hvatti til þess að ísland mótmælti harðlega og þau mótmæli sem frá hefði verið greint væru einungis „fyrsta litla skrefið". íslendingar yrðu að beita áhrifum sínum sér- staklega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Menningarsamningur Islands og Sovétríkjanna Svavar Gestsson menntamála- ráðherra taldi nú tíma- til að skoða nákvæmlega hvað við gætum gert til að sýna hug okkar — ekki aðeins í orði heldur líka í verki. Svavar taldi að öll atriði sem fyrr hefðu verið nefnd í umræðum ættu að skoðast mikið nánar og fleiri atriði ættu að koma inn í myndina. Svavar nefndi sérstaklega menningarsamn- ing íslands og Sovétríkjanna frá 1961. Óhjákvæmilegt væri að at- huga í Ijósi síðustu viðburða með hvaða hætti væri unnt að segja þess- um samningi upp. í slíkum efnum taldi hann nauðsynlegt að hafa sam- stöðu og samvinnu við hinar Norður- landaþjóðirnar. Svavar hvatti til þess að við stilltum saman strengi með öðrum þjóðum bæði á Norðurlöndum og hjá Sameinuðu'þjóðunum. Jíílíus Sólnes umhverfismálaráð- herra taldi að grípa yrði til harka- legra aðgerða og það hlytum við að gera í samvinnu við aðrar Norður- landaþjóðir. Júlíus taldi að ýmis norræn samvinnuverkefni hlytu að verða tekin til gagngerrar endur- skoðunar, en að sjálfsögðu mætti ekki grípa til aðgerða méð þeim hætti að það bitnaði á því fólki sem mest þörf væri á að hjálpa. En auð- vitað kæmi samvinna við einhverjar leppstjórnir' ekki til greina. Frekar yrði sjónum beint til útlagastjórna ef slíkar yrðu myndaðar. Stefán Valgeirsson (SFJ-NE) taldi að Rauði herinn hefði í raun og veru tekið völdin og auðsætt væri að ieppstjórnum yrði komið á fót. Stefán treysti ríkisstjórninni til að reyna eftir megni að ýta við Sam- einuðu þjóðunum og öryggisráðinu. Jóhann Einvarðsson (F-Rn) og formaður utanríkismálanefndar tók undir að heimsókn Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra væri hin gagnlegasta og boðaði að fundur yrði í utanríkismálanefnd jafnskjótt og utanríkisráðherra kæmi heim. Þar yrði rætt um þær tillögur sem fram hefðu komið, m.a. um formlegt stjórnmálasamband við Eystrasaltsríkin. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að samstaða héld- ist um aðgerðir. Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra sagði m.a. að Alþingi og íslendingar yrðu að vera tilbúnir til að taka að sér sérstakt forystu- hlutverk í mótmælum á alþjóðavett- vangi. Nauðsynlegt væri að nota tímann til að taka ákvarðanir um aðgerðir. Fjármálaráðherra reifaði nokkrar hugmyndir. Sendiherrar Norðurlanda hjá Sameinuðu þjóðun- um ættu strax að beita sér hjá full- trúum allra þjóða sem sætu ættu í öryggisráðinu fyrir því að málið yrði tekið til umfjöllunar. Utanríkisráð- herrar Norðurlanda ættu að óska eftir fundi með utanríkisráðherra Sovétríkjanna og mótmæla við hann ofbeldinu. íslendingar ættu að óska eftir því að þing Evrópuráðsins kæmi saman til aukafundar og þangað yrði fulltrúum þinga Eystrasaltsríkj- anna boðið. Ólafur Ragnar lagði einnig til að forsetar Alþingis ræddu það við kol- lega sína á Norðurlöndum að þing- mannahópar frá öllum Norðurlönd- um færu til allra Eystrasaltsríkjanna og yrðu þar gestir í þinghúsunum meðan þess þyrfti. Ræðumaður tók undir með flokksbróður sínum og samráðherra að rætt yrði um að slíta samningum og samskiptum við Sov- étríkin. Að endingu ítrekaði Ólafur Ragnar þá tillögu að Alþingi beini þeim tilmælum til þjóðarinnar að sýna samstöðu með nokkurrra mínútna þögn og allsheijar vinnu- stöðvun um allt Island. Hræsni Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf) taldi að umræðan hefði einkennst af nok- kurri hræsni þótt sjálfstæði þessara þjóða hefði verið viðurkennt, þá hefðu íslendingar sem færu til þess- ara landa — þar með talinn utanrík- isráðherra — sótt um vegabréfsárit- un til yfirvalda í Moskvu. Jón Sigurðsson starfandi ut- anríkisráðherra lagði áherslu á nauðsyn samstöðu um aðgerðir. Hann taldi ísland hafa gegnt ákveðnu foiystuhlutverki. Jón hvatti til þess að Islendingar beittu sér á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Evr- ópuráðsins, Ráðstefnunnar um ör- yggi og samstarf í Evrópu (RÖSE) og Atlantshafsbandalagsins (NATO). Einnig myndi utanríkis- ráðuneytið beita sér fyrir þessu máli í milliríkjasamskiptum. Hann reifaði einnig tillögur formanna sósí- al/demókratískra flokka á Norðurl- öndum, um að efnt yrði til alþjóða ráðstefnu um málefni Eystrasalts- ríkjanna. Þorsteinn Pálsson (S-Sl) vonaði að flestum þeirra tillagna sem rædd- ar hefðu verið yrði hrundið í fram- kvæmd, sérstaklega þeim að málið yrði tekið fyrir í öryggisráði Samein- uðu þjóðanna. — Og svo einnig að tekið yrði upp formlegt stjórnmála- samband við Eystrasaltsríkin. Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) hafði síðasta orðið. Hann hvatti m.a. til þess að strax yrði hafist handa, hver stund gæti reynst dýrmæt. ís- lendingar yrðu að grípa til aðgerða bæði í samvinnu við aðra og ein- hliða. Það yrði að vera ljóst að ís- lendingar væru reiðubúnir að leggja nokkuð á sig til að liðsinna Eystra- saltsríkjunum. Menn verða að vera reiðubúnir að fóma fjárhagslegum hagsmunum > ___ — segir Olafur Ragnar Grímsson ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra telur ekki tíma- bært að útfæra hugmyndir um viðurkenningu á ríkisstjórnum eða huganlegum útlagastjórnum Eystrasaltsríkjanna. Mestu máli skipti að safna liði til stuðnings Eystasaltsþjóðunum. í utandagskrárumræðum 14. janúar síðastliðinn setti Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra m.a. fram þá hugmynd að ísland yrði gististaður fyrir útlagastjórnir frá Eystrasaltsríkjunum ef þær yrðu settar á laggirnar. Morgun- blaðið innti fjármálaráðherra í gær eftir því hvort hann vildi ekki ljá því stuðning að taka upp stjórn- málasamband og viðurkenna form- lega þær ríkisstjórnir sem við hugs- anlega myndum skjóta skjólshúsi yfir í framtíðinni. Ólafur Ragnar Grímsson taldi ekki rétt á þeirri stundu vetja kröftum og tíma til að útfæra slíkar hugmyndir. í þeim hugleiðíngum fælist ákveðin upp- gjöf gagnvart því ógnarvaldi sem væri að btjóta lýðræðið á bak aftur í Eystrasaltsríkjunum. Því hefði hann sett fram ýmsar aðrar hug- myndir til að koma í veg fyrir þá þróun að til þess kæmi að það þyrfti að setja á fót útlagastjórnir. Kjarninn í þeim tillögum væri sá að mynda breiða alþjóðlega sam- stöðu til að sporna gegn þessari þróun. Þótt nauðsynlegt væri að Islendingar gengju vasklega fram, þá megnuðu þeir ekki mikið einir. Því væri nú brýnt að við hefðum samvinnu við hin Norðurlöndin um að þessi mál yrðu tekin til meðferð- ar m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og Evrópuráðsins. Nú yrði að safna liði til stuðings þessum þjóð- um. En vangaveltur um útlaga- stjórnir væru ekki tímabærar, aðrar en þær að segja að við værum til- búnir að bjóða ísland sem gististað slíkra stjórna. Ólafur Ragnar og fleiri hafa haft á orði að íslendingar yrðu að vera reiðubúnir til að sýna í verki að þeir væru reiðubúnir að kosta nokkru til í stuðningi sínum við Eystrasaltsríkin. Aðspurður sagði fjármálaráðherra að enn sem komið væri hefði ekki verið reynt að meta hvað slíkar fórnir kostuðu í pening- um talið. Aðalatriðið væri að ná fram samstöðu allra um að fram- kvæma ákveðnar hugmyndir og ekki væri rétt að fara út í ýtarlega umræðu um hvetja fyrir sig. Fját'- málaráðherra ítrekaði þó að menn yrðu að vera tilbúnir að fórna ein- hvetjum fjárhagslegum hagsmun- urn eða leggja fram einhveija fjár- muni málstað Eystrasaltsríkjanna til stuðnings. Virkjun sjávarfalla verði rannsökuð Þing-menn Vesturlands einhuga v PEVSUDEHJHN er f lutt á Laugaveg 84, sími 10756. IITSALA FRIÐJÓN Þórðarson (S-Vl) mælti í gær í sameinuðu þingi fyrir þingsályktunartillögu um: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta rannsaka á hvern hátt hagnýta megi orku sjávarfalla til styrktar þjóðarbú- inu í framtíðinni." Allir þingmenn Vesturlandskjör- dæmis eru meðflutningsmenn með Friðjóni, Alexander Stefánsson (F-Vl), Eiður Guðnason (A-VI), Ingi Björn Albertsson (S-Vl), Skúli Alex- andersson (Ab-Vl) og Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK-Vl). Friðjón sagði m.a. að þótt íslendingar eigi enn langt í land með að fullvirkja orku fallvatna ogjarðvarma, sé það deginum ljósara að þeir verði að hafa augun opin fyrir nýjum leiðum ef þeim eigi að takast að halda þeim lífskjörum sem þeir nú njóti. Flutningsmenn þingsályktunar- tillögunnar beina sjónum sínum að þeirri „orkulind sem lítill gaumur hefur verið gefinn, en, þar er firna- orka sú er býr í straumum og sjáv- arföllum við strendur landsins." Danfríður Skarphéðinsdóttir (SK-Vl) tók undir málflutning Frið- jóns og rakti einnig tilögur þing- manna Kvennalistans um vænlega framtíðarkosti í orku- og atvinnu- málum. Hún minnti sérstaklega á tillögur um vinnslu á vetni. Að tillögu framsögumanns var málinu vísað til atvinnumálanefnd- ar og síðari umræðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.