Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 32

Morgunblaðið - 22.01.1991, Síða 32
32 MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1991 Hastingsmótið: Yfírburðasigur Bareevs ___________Skák______________ Margeir Pétursson BAREEV frá Sovétríkjunum jók enn forystu sína í síðustu umferð- um alþjóðlega skákmótsins í Hast- ings. Hann sigraði með 10 'h vinn- ingi af 14 mögulegum, tveimur og hálfum vinningi á undan Eng- lendingnum Murray Chandler sem varð næstur. Helgi Olafsson vann enska stórmeistarann King í siðustu umferð og lenti í sjötta sæti með sex vinninga. Atta stór- meistarar kepptu á mótinu og tefldu þeir tvöfalda umferð. Hastingsmótið er elsta alþjóð- lega skákþing sem enn er háð reglulega. Það hefur verið haldið um hver áramót síðan 1920, nema hvað það féll niður stríðs- árin fimm. Þessi glæsilegi sigur Bareevs þýðir að hann hækkar enn á stig- um, en mótið var í 14. styrkleika- flokki FIDE með meðalstigin 2.576. Það kom mjög á óvart um áramót- in er hann reyndist vera í fimmta sæti á heimslistanum, hafði hækkað úr 2.605 í 2.650. Þar sem Hastings- mótið hófst fyrir áramótin miðast hækkun hans við gömlu stigin og verður því ennþá meiri en ella, eða 30 stig. Bareev, sem er 24 ára gamall, hefur um nokkurt árabil verið mjög öflugur skákmaður, en stórmeistari varð hann ekki fyrr en 1989. Hann vann sér rétt til þátttöku á ungling- amótum fyrir Sovétríkin en olli yfir- leitt vonbrigðum, nema hvað hann varð heimsmeistari í flokki 16 ára og yngri árið 1982. Hann hefur oft virst nokkuð óstyrkur á mótum utan Sovétríkj- anna, á móti í Næstved í Dan- mörku 1988, hafði hann t.d. unnið fimm skákir í röð, en tapaði þá illa fyrir Bent Larsen og virtist brotna niður við það, þurfti meira að segja að gefast upp eftip aðeins ijórtán leiki síðar á mótinu. Bareev hefur aðallega slegið í gegn á mótum stórmeistarasam- bandsins. í desember 1988 varð hann efstur á úrtökumótinu í Belgrad ásamt sjö öðrum, þótt taugarnar brygðust í mikilvægri skák gegn Mikhail Gurevich í lok- in. Á lokaúrtökumótinu í Moskvu í sumar tók hann snemma foryst- una og endaði í efsta sæti ásamt íjórum öðrum, en aftur tapaði hann fyrir Gurevich í næstsíðustu um- ferð. Haldi Bareev þeim stigum sem hann hefur nú áunnið sér er hann kominn í hóp fimm langstiga- hæstu skákmanna heims. Hinir eru landar hans Kasparov, Karpov, Gelfand og Ivanchuk. Eins og dæmin hafa sannað eru.þó slíkar ágiskanir áður en listar FIDE birt- ast mjög hæpnar. Eins og í Næstved forðum var Bent Larsen unga Rússanum skeinuhættur á mótinu, Daninn fékk einn og hálfan vinning úr tveimur skákum sínum gegn hon- um. Lokastaðan: af 14 1. Bareev, Sovétr. 10'A v. mögulegum 2. Chandler, Englandi 8 v. 3. Speelman, Englandi 7 'A v. 4-5. Larsen, Danmörku og Sax, Ung- verjalandi 7 v. 6. Helgi Ólafsson 6 v. 7. King, Englandi 5'A v. 8. Kosten, Englandi 4 'h v. Bareev vann alls níu skákir á mótinu sem er óvenjulega hátt hlutfall. Þar af voru fjórar með Leningrad-afbrigðinu gegn Nim- zoindverskri vörn, sem þó er allt annað en hátt skrifað í fræðunum. I síðustu umferðinni var Tony Kosten alveg ráðalaus gegn því: Hvítt: Evgeny Bareev Svart,: Tony Kosten Nimzoindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 - Bb4 4. Bg5 - c5 5. d5 - d6 6. e3 — Bxc3+ 7. bxc3 — De7 Þessi leikaðferð er nýlega orðin vinsæl, þó h6 og Bh4 sé venjulega skotið inn fyrst. Upphafsmaður •hennar er Romanishin, en Karpov hefur einnig notað hann. í Hast- ings beitti Sax gamla afbrigðinu, 7. — h6 8. Bh4 — e5 gegn Bare- ev, en eftir 9. f3 — g5 10. Bg3 — e4 11. h4 — g4 12. h5! náði Rúss- inn hættulegum færum á kóngs- vængnum. 8. Rf3 - Rbd7 9. Rd2 - h6 10. Bh4 - Re5?! Þeir Helgi og Chandler hrókuðu báðir í þessari stöðu og máttu vel við una, þótt Bareev ynni skákirn- ar um síðir. Eftir 10. — 0-0 11. Be2 - Re5 12. Bxf6 - Dxf6! 13. f4 - Rg6 14. Re4 - De7 15. dxe6 - f5! 16. Rg3 - Bxe6 17. Dd3?! - Had8 fékk Chandler betri stöðu, en fórnaði síðan manni í tóma vit- leysu og tapaði. Bareev-endurbætti þetta gegn Helga með 12. dxe6!?, en eftir 12. - Dxe6! 13. 0-0 - He8 14. Bg3 - Bd7 15. Dc2 - Bc6 16. Hadl — Had8 virtíð, svarta staðan þó mjög heilbrigð. Nú verður Kosten að taka á sig tvípeð á f-línunni og þótt kóngstil- færsla hans til c7 í framhaldinu eigi oft vel við í lokaðri stöðu, nær Bareev að opna taflið í tæka tíð. 11. Bxf6 - gxf6 12. f4 - Rg6 13. Kf2 - f5? Svo sem framhaldið leiðir í ljós hefði munað miklu að spara tíma og leika 13. — Kd8!? strax. 14. g3 — Kd8 15. dxe6! — fxe6 16. Bg2 - Kc7 17. Hbl - Rf8 Svarta staðan er líklega orðin óteflandi, hann þarf að ljúka liðs- skipaninni með Bd7-c6, en 17. — Hb8 gengur ekki vegna 18. Da4 - a6 19. Da5+ - b6 20. Hxb6! - Hxb6 il. Hbl. 18. e4 — fxe4 19. Rxe4 — Rd7 20. De2 - Rb6 21. Rxd6! - Dxd6 22. Hhdl - Rd5 23. cxd5 - He8 24. Dh5 og svartur gafst upp, því eftir 24. — Bd7 25. dxe6 stendur peðið á b7 í uppnámi ofan á aðrar hörm- ungar. 24. — He7 25. dxe6 — Dxe6 26. Dxc5+ er einnig von- laust með öllu. Helgi Ólafsson er tæplega sáttur við árangurinn, en hann heldur nú til Wijk aan Zee í Hollandi þar sem hann teflir á öðru rótgrónu móti. Öruggur sigur í síðustu umferð er ávallt gott veganesti á næsta mót og eftir mistök hins 27 ára gamla enska stónneistara Daniel King í byijuninni vann Helgi auðveldlega: Hvítt: Daniel King Svart: Helgi Ólafsson Enski leikurinn 1. c4 — c5 2. g3 — g6 3. Bg2 — Bg7 4. Rc3 - Rc6 5. Rf3 - e6 6. 0-0 - Rge7 7. d3 - 0-0 8. Bf4 Þetta afbrigði hefur ekki þótt sérlega vænlegt á hvítt, eftir að Bobby Fischer vann Petrosjan með svörtu í keppninni Sovétríkin-heim- urinn 1970. Hvítur lék þá 8. Bd2, en forskrift Fischers reynist einnig vel gegn þessum leik. 8. - d5! 9. Hbl - b6 10. a3 - Bb7 11. Da4? - d4 12. Rb5 Hvítur er á algerum villigötum og varð hér að leika hinu ömurlega 12. Rdl til að forðast mannstap. Hann treystir á að geta svarað 12. — a6? með 13. Rd6 og 12. — e5 með 13. Rxe5!, en sér ekki geysi- öflugan millileik svarts. Eftir það kemst hann ekki hjá mannstapi: 12. — g5!! 13. Rxg5 — e5 14. Re4 - exf4 15. Rbd6 - Bc8 16. b4 - f5 17. Rxc8 — Hxc8 18. Rg5 — Dd6 19. bxc5 — bxc5 20. Hb5 — fxg3 21. hxg3 - Bh6 22. Rf3 - Kh8 23. Da6 - Hg8 24. Khl - f4 25. g4 - De6 26. Rh2 - f3 27. Bxf3 - Bf4 28. Hgl - Dh6 29. Hg2 - Bd6 30. Kgl - Re5 31. Db7 — Hcf8 og nú loksins gafst hvítur upp. ATVINNUA UGL YSINGAR Afgreiðslustörf Starfskraft vantar í kvenverslun hálfan eða allan daginn. Æskilegur aldur 25-55 ára. Umsækjendur sendi nafn og símanúmer og aðrar upplýsingar á auglýsingadeild Mbl. fyr- ir 24. jan., merktar: „Krefjandi - 6824“. Sunnuhlíð Hjúkrunarheimlli aldradra í Kópavogi Kópavogsbraut 1, sími 604100 Hjúkrunarfræðingar Lausar stöður, nætur- og kvöldvaktir. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 604163 kl. 12.00-13.00 alla virka daga. Hjúkrunarforstjóri. RÍKISSPÍTALAR Starfsmannastjóri Staða starfsmannastjóra Ríkisspítala er laus til umsóknar. Starfsmannastjóri hefur með höndum stjórn starfsmannahalds og launadeildar Ríkisspítala. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af stjórnunarstörfum. Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf er nýtist í starfinu og reynslu af starfsmannamálum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra stjórnunarsviðs Ríkisspítala fyrir 12. febrúar 1991, sem gefur nánari upplýsingar. Reykjavík, 20. janúar 1991. Organistar Organista vantar í hið nýja Þorlákshafnar- prestakall. Upplýsingar gefur Gunnar Markússon í símum 98-33638 og 98-33990. Sóknarnefndir. FJÓRPUNOSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Læknaritarar Framreiðslumaður Hótel Valaskjálf óskar að ráða yfirþjón. Umsækjandi verður að vera duglegur, geta unnið sjálfstætt og á óreglulegum tíma. Starfið felst í innkaupum fyrir bari, skipu- lagningu, stjórnun starfsmanna og venju- bundinni afgreiðslu. Æskilegt er að viðkomandi hafi meistararéttindi. Áhersla er lögð á frumkvæði, létta lund, þjónustulipurð, snyrtimennsku og fágaða framkomu. Krefjandi, en lærdómsríkt og gef- andi starf í vaxandi fyrirtæki. Umsóknum skal skilað fyrir 1. febrúar nk. til framkvæmdastjóra sem jafnframt gefur allar frekari upplýsingar. Lausar eru stöður læknaritara, læknafulltrúa I og læknafulltrúa II frá 1. febrúar nk. Upplýsingar veita Ingi Björnsson, fram- kvæmdastjóri, og Vignir Sveinsson, skrif- stofustjóri. Skriflegar umsóknir sendist Inga Björnssyni fyrir 26. janúar nk. Staða varðstjóra í lögregluliði Snæfellsness- og Hnappadals- sýslu og Ólafsvíkurkaupstaðar, með aðsetur í Grundarfirði, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs- manna. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 1991. Starfið veitist frá 1. mars 1991. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist undirrituðum. Sýslumaður Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, bæjarfógetinn í Ólafsvík. Stykkishólmi, 15. janúar 1991. Jón Magnússon. HótelValaskjálf, Egilsstöðum, s. 97-11500. Félagsmálastjóri Staða félagsmálastjóra á Höfn í Hornarfirði er auglýst laus til umsóknar. Félagsmálastjóra er ætlað að hafa umsjón með félagsmálum bæjarfélagsins, þ.m.t. húsnæðismálum. Félagsmálastjóri mun taka við störfum félagsmálafulltrúa, sem hingað til hefur verið 1/2 staða, en ætlunin er að hið nýja starf verði heil staða. Umsókn ásamt greinargóðum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituð- um sem gefur frekari upplýsingar í síma 97-81222. Umsóknarfrestur rennur út 31. jan. 1991. Bæjarstjóri Hafnar, Sturlaugur Þorsteinsson. . i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.