Morgunblaðið - 22.01.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1991
Honda * 91
Civic
3ja dyra
16 ventla
.
Verð frá 767 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
(0
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
'S'DEXION
JT
K r
IMPEX
hillukerfi
án
boltunar
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moeeans!
Hjálparsamtök kaþólsku kirkjunnar:
Caritas á Islandi
Nú um jólin hafa sennilega all-
margir íslendingar fengið kort með
jólamerki Caritas á umslaginu. En
hvað er Caritas?
Caritas er latneskt orð og þýðir
kærleikur en það er einnig heiti á
alþjóðlegum hjálparsamtökum
kaþólsku kirkjunnar. Þau voru sett
á laggirnar eftir síðari heimsstyij-
öld í því augnamiði að liðsinna
þeim þúsundum manna, -sem þá
áttu um sárt að binda. Síðan hefur
samtökunum vaxið fiskur um
hrygg og sinna þau nú hvers kon-
ar líknar- og þró’Unarstörfum um
víða veröld. Sjálfstæðar deildir
starfa í 140 löndum um allan heim
en hafa nána samvinnu sín á milli,
svo og við aðrar hjálparstofnanir.
Alþjóðasamtökin nefnast Caritas
Internationalis.
Til íslands
Þann 7. nóvember 1988 kom
forseti Caritas Internationalis,
Alexandre do Nascimento,
kardínáli, frá Ángóla, hingað til
lands, og hvatti til þess að stofnuð
yrði Caritas-deild á íslandi. Það
var gert þann 25. febrúar 1989.
íslandsdeildin er nú skráður aðili
að alþjóðasamtökum Caritas og
hefur hlotið viðurkenningu dóms-
málaráðuneytisins sem líknarfélag.
Reynt er að halda kostnaði við
starfsemina í lágmarki. Allt starf
Caritas á íslandi er unnið í sjálf-
boðavinnu.
Deildin tók þegar til starfa .og
gekkst fyrir fjársöfnun á löngu-
föstu 1989. Alls söfnuðust kr.
253.137. Því fé var varið til að
styrkja átak í menntun kvenna í
héraðinu Jalapa í Guatemala. Að
þessu verkefni var unnið í sam-
vinnu við Caritas í Danmörku og
Guatemala, sem hefur umsjón með
framkvæmdum.
Aðstoð við munaðarlausa
í Uganda
Síðastliðið haust barst Caritas
hjálparbeiðni frá msgr. Cyprian
Lwanga, fulltrúa biskupsins í
Kampala í Úganda, sem leitaði
eftir aðstoð fyrir alnæmissjúk börn
þar í landi. í Afríku er alnæmi
orðið að gífurlegri farsótt. Tölur
Alþjóðaheilbrigðisráðsins eru ein-
ungis tilgátur, sem byggja á athug-
unum heimamanna. I Austur- og
Suður-Afríku er reiknað með, að
um það bil 6% íbúa hafi smitast en
í Úganda mun fleiri. Þannig er
talið að í höfuðborginni Kampaia
séu 25% fullorðinna smitaðir en
5-15% á landsbyggðinni. Hvergi í
Afríku er vandinn meiri.
Florence Barlow starfar í Kamp-
ala fyrir kvennasamtökin
„UWESO“. Þau starfa nú fyrir
munaðarleysingja í 20 bæjarfélög-
um. Barlow telur að munaðarleys-
ingjar á aldrinum 5-10 ára í Úg-
anda séu ekki færri en 20.000.
Biskupsdæmið í Kampala hefur
fyrir þremur munaðarleysingja-
heimilum að sjá og ber ábyrgð á
meira en 1.000 börnum, sem sum
hver eru sýkt af alnæmi.
A síðastliðnu ári safnaði Caritas
á Islandi fé til hjálpar þessum börn-
um. Nú þegar hafa verið sendar
rúmlega 500.000 kr., sem var var-
ið til viðgerða á þaki barnaheimilis-
ins, til að kaupa nauðsynleg
kennslugögn og vistir.
Aðventusöfnun
Margir hafa nú þegar lagt Carit-
Vöruþróun
Lykill ad bættri
samkeppnisstödu fyrirtækja
Ráðstefna
Hagræðingarfélags íslands
Hótel Sögu, Skála
Þriðjudaginn 29.janúar 1991 kl. 08.00 • 12.00
Fjallað verður um aðferðir við árangursrlka vöruþróun
og nokkrum dæmum úr fyrirtækjum lýst.
Páll Kr. Pálsson. Iðntæknistofnun. Kristján Þorsteinsson. Eimskip hf.
Sigurður Bogason, Lifrarsamband Vestm. óskar Mariusson. Málning hf.
Kari Friðriksson, Iðntaeknistofnun. Þórður Valdimarsson, Iðnlánasjóður.
Sigurður Guömundsson, Ylelningar hf. Gair Gunnlaugsson. Marel hf.
Ráðstefnustjórl: Lýður Frlðjónsson. Vffllfell hf.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 68 7000
Skattframtöl
fyrir einstaklinga
Farið er yfir helstu atriði skattalaganna sem varða skatta-
mál einstaklinga, útreikning á tekju- og eignaskatti, rétt til
endurgreiðslna, svo sem vaxta- og barnabóta. Gerð eru
raunhæf skattaframtöl og kennt er að fylla út allar skýrslur
sem einstaklingum er gert að skila með framtali.
Innritun stendur yfir.
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-687590
Caritas á íslandi hefur safnað fé til munaðarlausra barna í Úganda.
gs á íslandi lið. Konur í Kvenfélagi
Kristskirkju komu saman vikulega
frá því síðastliðið haust og unnu
muni, sem seldir voru á basar til
ágóða fyrir hjálparstarfið. Þá voru
einnig seld jólamerki. Ákveðið er,
að allt það fé sem kann að safnast
fram til 1. febrúar 1991, gangi til
alnæmissjúkra munaðarleysingja í
Úganda. Kostnaður við hjúkrun
þeirra er um kr. 1.800 á mánuði
. fyrir hvert barn.
Caritas þakkar öll þau framlög
sem þegar hafa borist og þá ómef-
anlegu vinnu sem innt hefur verið
af höndum.
Caritas á íslandi býður þér að
leggja þitt af mörkum til að veita
munaðarlausum börnum í Úganda
aðstoð.
Styrktarfélagar
Caritas á íslandi leitar eftir
styrktarfélögum, sem reiðubúnir
væru til að aðstoða hjálparstarfið
með árlegu framlagi. Árgjald fyrir
skráða styrktarfélaga er kr. 1.000
og má greiða með gíróseðli til
Caritas, Holtsbúð 87, 210
Garðabæ, á reikning nr. 19 600-2.
(Úr fréttatilkynningu)
Opið bréf til Rut-
ar Magnússon
eftir Ágústu
Agústsdóttur
Kæra Rut.
Ég frétti í dag, að þú hafir tek-
ið að þér að dæma um frammi-
stöðu ungra söngvara í samkeppni
norrænna listamanna af yngri kyn-
slóð. Ekki undraði mig það í sjálfu
sér, svo áhrifamikil sem þú ert í
tónlistarlífinu hér.
En ég gat ekki að því gert, að
mér kom í hug eftirfarandi:
Fyrir margt löngu sótti ég til
þín nokkra söngtíma. Það voru
ánægjuleg kynnn En ég man hvað
ég varð hissa, þegar þú sagðir
mér, að þú mætir það svo að ég
kynni þegar öll undirstöðuatriði
sönglistarinnar. Undir niðri vissi
ég, að það var langur vegur frá
að svo væri. Ég tók mig því upp
og hélt til Þýskalands að læra söng
hjá prófessor Hanne-Lore Kuhse
frá Berlín. Sú mæta kennslukona
sagði mér réttilega, að ég kynni
lítið að syngja, þótt nóg væri rödd-
in. Alltaf verð ég þakklát þessari
merku listakonu fyrir hreinskilnina
og fyrir það, hvað hún hefur kennt
mér margt síðan þetta var. Eftir
að frú Kuhse lauk glæsilegum ferli
sem aðalsópran Ríkisóperunnar í
Berlín hefur hún kennt efnilegum
neméndum hvaðanæva úr heimin-
um, verið tónlistarráðgjafi
Wagner-óperuhússins í Bayreuth
og, síðast en ekki síst, setið í dóm-
nefndum fjölmargra söngvakeppna
víða um heim.
Næst bar fundum okkar saman,
Rut, þegar þú varst eitt sinn próf-
dómari í Nýja tónlistarskólanum,
þar sem ég kenndi þá nokkrum
söngnemendum. Þá varð ég hlessa,
er þú felldir Guðbjörn Guðbjörns-
son tenórsöngvara á svokölluðu
sjöundastigs prófi, að ég taldi mjög
ómaklega. Hann hafði hins vegar
að sínu leyti vit á að flýta sér í
söngnám hjá frú Kuhse og syngur
nú sem kunnugt er við óperuna í
Kiel. Ég leyfi mér einnig að rilja
það upp, að við samá tækifæri tjáð-
ir þú mér mikla hrifningu þvína á
öðrum nemanda, ónafngreindum,
og hældir honum á hvert reipi. Var
ég þér í því efni mjög ósammála
Ágústa Ágústsdóttir
„En ég man hvað ég
varð hissa, þegar þú
sagðir mér, að þú mæt-
ir það svo að ég kynni
þegar öll undirstöðu-
atriði sönglistarinnar.“
og mun hafa viðrað þá skoðun
mína við þig, ,að héldi þessi nem-
andi áfram í sama fari yrði rödd
hans líklega hljóðnuð áður en langt
um liði. Því miður hafði ég á réttu
að standa.
Mikið vatn er til sjávar runnið,
síðan allt þeta var. Ég vona, kæra
Rut, að þú finnir til ríkrar ábyrgð-
ar, er því fylgir að leiðbeina hinum
ungu og fella yfir þeim dóma, sem
kunna að hafa áhrif á feril þeirra
og hversu þeim tekst að vinna úr
hæfileikum sínum. Þess vegna
treysti ég því, að þú aflir þér stöð-
ugt aukinnar þekkingar á söng,
svo að þér fari fram í mati þínu á
söng og söngvurum og getir lært
að dæma um söngtækni og túlkun
af skynsamlegu viti.
Með bestu kveðjum.
Holti, 14. desember 1990.
JiöCundiirer.söjigkQna■