Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991
_________________________________fc-----
35
Er Guðtil?
eftirsr. Jan Habets
Gyðingar trúa að Guð Abraham
sé til. Múhameðstrúarmenn trúa
líka, að Guð Abrahams, sem þeir
kalla Allah, sé til. Kristnir menn
trúa einnig að Guo Abrahams sé
til. Getur þá sá sem efast um það
að Guð sé til, ennþá kallað sig krist-
inn?
Hvað er þá fyrir okkur „undir-
staða“ (Grískt. „hupostasis") trúar
okkar? Er það heimspeki? Nei, það
er opinberun. Og er hún söguleg?
Jú, fyrir Gyðinga, Múhameðstrúar-
menn og kristna menn er hún það,
eins og fyrir okkur t.d. er sagan
um assýriska konunga o.s.frv. sé
sönn. Við trúum að guð hafi opin-
berað sig Abraham, á eftir öðrum
ættfeðrum, Móse líka. Við trúum
að Guð hafi frelsað þá frá þrældómi
í Egyptalandi; hafi hjálpað þeim í
eyðimörkinni til að komast til Isra-
els. Við trúum að Davíð hafi haft
sérstakt samband við Guð, sem
hann söng um í mörgum sálmum.
Við trúum að Guð hafi sent marga
spámenn til að snúa fólki aftur til
sín, þegar það hóf að tilbiðja skurð-
goð. Við trúum' líka, að það sé rétt
sem Jesús sagði við lærisveinana á
ferð sinni til Emmaús, að Móse,
spámenn og ritningar hafi spáð um
hann.'
Að lokum kom Jesús sjálfur.
Sannfærði Jesús postulana, læri-
sveinana, fólkið með heimspekileg-
um ræðum? Nei. Opinberaði hann
sig þá ekki sem Guð? Jú. Og skildu
Gyðingar að hann gerði það? Jú.
Þess vegna var hann einnig dæmd-
ur. Kaífas sagði: „Hann guðlastar,
hvað þurfum vér nú framar votta
við?“ Hann er dauðasekur. Hvernig
sannfærði Jesús þá? Hann gerði það
ekki aðeins með orðum heldur enn-
þá frekar með kraftaverkum. Hann
stillti t.d. storminn, kallaði Lasarus,
sem var þegar þijá daga í gröf-
inni, til lífs o.s.frv. Að lokum rís
hann sjálfur upp frá dauðurn. Er
það víst? Já.. Guð gerði alit til að
taka af allan efa um það. í dag las.
ég í Messunni Jh.1,1-4. I þessum
fjórum versum segir Johannes fjór-
um sinnum: „Vér höfum séð með
augum vorurn." Það var fyrir Jó-
hanneS, postulana og lærisveinana
„undirstaða" trúar og líka, eins og
sagt er í Guðspjallinu Jh.20,9, Ritn-
ingar Gamla testamentsins höfðu
spáð um Jesús.
Undirstaða trúarinnar er þess
vegna saga opinberunar Guðs í átj-
án aldir frá Abraham til Jesú sjálfs.
Gefur þessi opinberun Guðs okkur,
Gyðingum, Múhameðstrúarmönn-
um og kristnum vissu um tilveru
Guðs? Hefðu heimspekilegar ræður
sannfært okkur betur? Ég held, að
enginn muni lítilda því fram. Jó-
hannes stóð hjá krossinum þegar
Jesús dó og sá: einn af hermönnun-
um stakk spjóti í síðu Jesú og rann
jafnskjótt út blóð og vatn. A eftir
birtist Jesús oft og „hendur okkar
þreifuðu á honum,“ segir Jóhannes.
Við getum ályktað að þessi opin-
berun Guðs í átján aldir gefi okkur
trú. Og veitir þessi trú okkur vissu?
Hebreabréfið svarar okkur með
skilgreiningu um trú (Hb.11,1).
] > ) Jj Wm 1ɧÍS» r;~~1 f i 1
1 i §j§§ 1 f. / M- [ j mmSk it,- 1
■ NÝLEGA færði Sigurður
Jónsson apótekari hjarta- og
lungnaskurðdeild Landspítalans
hjartalínurits- og púlsoxymetertæki
að gjöf. Hér er um að ræða mjög
fullkomið tæki af nýjustu gerð.
Hjartalínuritstækið hefur inn-
byggða tölvu og les hún þegar í
stað úr hjartalínuritum, hitt tækið
mælir súrefnismettun blóðsins.
Hvorugt tækið hefur deildin átt
áður, en þau verða bæði staðsett
þar og auðveldar það starfsliði mjög
eftirlit sjúklinga sem gengist hafa
undir hjartaaðgerð. Myndin vartek-
in við afhendingu tækjanna og á
henni eru Sigurður Jónsson apó-
tekari, innkaupastjóri Ríkisspítal-
anna, hjúkrunardeildarstjóri og
læknar hjarta- og lungnaskurð-
deildar Landspítalans.
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði.
NámiÖ kemur aÖ góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
. V ersl unarreikningur
Verðið miðast við skuldabréf lil tvcggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
Sr. Jan Habets
„Sannfærði Jesú post-
ulana, lærisveinana,
fólkið með heimspeki-
legum ræðum? Nei.
Opinberaði hann sig þá
ekki sem Guð? Jú ...
Hann gerði það ekki
aðeins með orðum,
heldur ennþá frekar
með kraftaverkum.“
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
/rá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMl: 62 84 50
„Trúin er (grískt: hupostasis: undir-
staða / fundamentum / Abyrgð /
trygging / vissa / trúnaðartraust /
fullvissa / framkvæmd / fastur
grundvöllur: latnesk, þýsk, frönsk,
hollensk, portúgölsk þýðing) um
það, sem menn vona, og sannfæring
(grísk: elenchos / prófa / auðsæi /
rök / sönnun /áh efa: Lúther) um
þá hluti sem eigi er auðið að sjá“.
Við sjáum: í kristinni trú, eins og
Hb. brél’ kennir okkur, er ekki rúm
fyrir efa. Er þá ekki lengur mögu-
legt að efast?
Maðurinn er ftjáls opinberun og
auðvitað ekki. skýr eins og 2+2=4.
Við sjáum jafnvel víða vantrú, þótt
opinberunin gefi okkur í trúnni
fastan grundvöll, sem heimspekin
gefur okkur ekki.
Höfundur er kaþólskur prestur
við St. Fransiskusreglunn í
Stykkishólmi.
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Næstu námskeið í Reykjavík
hefjast fimmtudaginn 31. janúar og miðvikudaginn 6. febrúar.
Námskeiðin eru kvöldnámskeið og taka 6 vikur.
Námskeiðin henta öllum, sem vilja auðvelda sér lestur góðra
bóka eða auka afköst í námi og vinnu með margfóldun á lestr-
arhraða. Þátttakendur ná að jafnaði meir en þreíoldun á lestrar-
hraða á námskeiðunum.
Vegna þessa góða árangurs veitir Hraðlestrarskólinn nú ábyrgð
á árangri á námskeiðunum.
Einnig verða í vetur haldin námskeið úti á landi. Þeir sem
áhuga hafa, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við
Hraðlestrarskólann til að fá frekari upplýsingar.
Ath. að VR og fleiri verkalýðsfélög styrkja félaga sina til þátt-
töku á námskeiðunum.
Skráning alla daga í síma 641091.
HRAÐLESTRARSKOLINN
10 ARA
ORÐSENDING TIL
VIÐSKIPTAVINA SESS
og annarra sem fengu bréf frá Bíró-Steinari hf.
dagsett í Kópavogi 15. janúar 1991.
Eins og margir viðskiptavina SESS vita innihcldur bróf Rafns Bcn.
Rafnssonar, framkvæmdastjóra Bíró-Steinars, fullyrðingar sem eru
beinlínis rangar.
Um er að ræða fullyrðingar um Steinar Stálhúsgagnagerð og
viðskiptasambönd SESS.
Bréfi Rafns Bcn. Rafnssonar hefur vcrið svarað og þeim sem áhuga
hafa á því að kynna sér hið sanna í málinu cr bcnt á að hafa
sámband við SESS. Bréfið verður þá póstsent lil þeirra eða sent í
símabréfi.
FAXAFENI 9 SÍMI 679399 BRÉFASÍMI 679344