Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 37

Morgunblaðið - 22.01.1991, Side 37
37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991 Aldarminninff: Próf. Finnbogi Rútur Þorvaldsson í dag eru 100 ár síðan hann skaust úr hlýju umhverfi inn í þenn- an hryssingslega heim. Foreldrarnir sem hlut áttu að máli voru Magda- lena Jónasdóttir og Þorvaldur Jak- obsson prestur í Sauðlauksdal, en þar ólst Finnbogi upp. Hann var alla ævi barn sinnar sveitar. Þeir telja það vestur í Patreksfirðinum að þaðan hafi komið meira mann- val en annars staðar. Ekki veit ég hvort þessi staðhæfing á rétt á sér, en mér finnst viðkynning við Finn- boga Rút styðja hana eindregið. En eitt er víst að í föðurgarði lærði prestssonurinn í Sauðlauksdal fag- urt mál, laust við skrúðmælgi, magnþrungið og fágað svo af bar. Er þetta eitt ekki lítið veganesti fyrir ungan mann sem leggur út á námsbrautina. Að vestán lá leiðin suður og þaðan áfram til Kaup- mannahafnar til að stunda verk- fræðinám. Fyrir meir en sjö áratugum geis- aði hryllileg styijöld í Evrópu. Þeg- ar þeim ósköpum lauk tóku aðrar hörmungar við. Fór þá sem þytur um ungu kynslóðina, að þetta mætti ekki henda aftur; nú reið á að skapa betra og fegurra mannlíf. Um þess- ar mundir dvaldist héðan allstór hópur ungra menntamanna í Kaup- mannahöfn, námsmenn, skáld og aðrir andans menn. Þessi hópur var allsundurleitur, en margir glæsileg- ir hæfileikar voru þar á meðal. Sumir voru gefendur, aðrir þiggj- endur. Líklega hefur landið ekki fyrr eða síðar haft efnilegra liði á að skipa. Menn voru gagnteknir af þeim frelsishugsjónum sem fóru um löndin. Lífsþrótturinn braust út af fullu afli; nýir tímar voru í nánd. Fullveldið varð veruleiki. Skáldin ortu um frelsið, hamingjuna, ofs- ann, stjörnurnar og norðurljósin. Ljóðrænan var þar í hásæti. Þá fluttu menn kvæðin af krafti og sannfæringu. Hinni_aldagömlu lág- kúru var kastað fyrir borð en í stað hennar komu stórir framtíðar- draumar. Menn strengdu þess heit að duga fóstuijörðinni vel og drengilega. Einn þeirra sem bast þessum glaðværa og bjartsýna hópi vináttu var Finnbogi Rútur, en að loknu námi hélt hann heim en þá tók starf- ið við og verður sú langa runa við- fangsefna hans ekki rakin hér en lengi starfaði hann sem verkfræð- ingur á vegum hafnargerða lands- ins. Voru honum oft falin erfið verk- efni sem þurfti dirfsku og hæfni til að leysa en um þær mundir hvíldu allar ákvarðanir öllu þyngra á ein- staklingnum, sem fjallaði um þær, en nú á tímum. Hann vandaði sitt verk vel og það var mál manna að garðarnir hans stæðu heilir að morgni eftir æðisgengna brimnótt. Hans strengur slitnaði aldrei þótt hvessti. Þijátíu og fimm ára að aldri kvæntist Finnbogi konu sem var við hjúkrunarnám samtíða honum í Kaupmannahöfn, Sigríði Eiríks- dóttur frá Miðdal í Mosfellssveit. Sigríður var mikilhæf kona og starfaði mikið utan heimilisins. Var oddviti hjúkrunarkvenna um margra áratuga skeið, forniaður samtaka hjúkrunarkvenna á Norð- urlöndum, fulltrúi á alþjóðlegum ráðstefnum um líknar- og friðarmál og lengi má telja. Hlaut hún ýmis æðstu helðúrsmerki fyrir störf sín. Meðan hún var erlendis áð sinna þessum hugðarefnum sínum, var Finnbogi eins og miður sín, sat hann þá tíðum á • skrifstofu sinni og dundaði við fræðistörfin. Þegar æðsta staða á sviði hafnar- gerða losnaði þótti mörgum Finn- bogi eiga það starf skilið. En hér var tekið tillit til annarra strauma en hafstrauma, svo annar var val- inn. Urðu honuín þetta vonbrigði og sagði hann starfi sínu lausu. Svo gerðist það, að heimsstyrj- öldin síðari verður til þess að valda þáttaskilum. Fram til þess tíma höfðu allir íslenskir verkfræðingar sótt menntun sína til erlendra há- skóla en nú lokuðust þær leiðir að mestu. Varð þá að ráði að hefja kennslu í verkfræðigreinum við Háskóla íslands. Var Alexander Jóhannesson þáverandi rektor mjög fýsandi þess. Leitaði hann til Finn- boga um að taka að sér að verða forstöðumaður hinnar nýju deildar. Árið 1945 var hann svo skipaður prófessor í raunvísindum við Há- skólann. Það er trú mín, að síðár verði það talinn merkisatburður í sögu Háskólans og raunar þjóðarinnar allrar, er Finnbogi Rútur einn suddafenginn haustdag steig í kennarastólinn, því það voru -fyrstu skrefin sem tekin voru til að flytja æðri menntun á sviði raunvísinda (annarra en læknavísinda) inn í landið. Á þeim áratugum sem liðnir eru hefur hinn mjói vísir dafnað ótrúléga vel, en þar hafa fleiri kom- ið við sögu og á fleiri sviðum en nokkurn óraði fyrir. Finnbogi var lágvaxinn og þrek- inn, aflraunamaður á yngri árum, kenndi ungum mönnum sund þar vestra, hagmæltur og sagði frá manna best. Hann var virðulegur í fr-amgöngu og kunni vel að vera með tignum mönnum. Skapgerð hans var sem ofin úr tveim þáttum, hins vammlausa sveitamanns og heimsmannsins. Þegar hann talaði hlustuðu allir. Þegar ég minnist kennslustund- anna hans, kemur fram lítið atvik, sem raunar er afar ómerkilegt svo það hefði átt að gleymast á andar- takinu. Við syijaðir og þreyttir nem- endur hans sátum bognir yfír teikni- borðunum, rýnandi í einhver illleys- anleg verkefni. Við snerum andlit- um móti gluggum en að baki okkar var Finnbogi sem gekk teiknistof- una fram og aftur. Þar var dauða- kyrrð eins og er þegar djúpt er hugsað. Finnbogi gekk ákveðnum skrefum fram og aftur en við hvert stig heyrðist hljóð eins og tíst í öðrum skónum. Þótt við snerum baki að honum vissum við vel hvar hann var hveiju sinni. Allt í einu heyrðum við djúpa rödd sem sagði: „Ég er búinn að borga þá.“ Það var mál manna á þeim tímum að óborg- aðir skór létu í sér heyra, þetta er líklega gamalt tungutak frá þeim tíma er menn lögðu af sauðskinns- skóna eða steinbítsroðsskóna og keyptu sér danska skó, oft með afborgúnum eða upp á krit. Góður kennari var hann og gæddi kennsluna með lifandi ævintýrum. í augum okkar nemendanna var hann alltaf verkfræðingurinn en hinir kennararnir. Hann var mikill sjálfstæðismaður í einlægasta skilningi þess orðs og Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI 76677 tók sárt til þess þegar hann fann að frelsishugsjónir stúdentanna í Kaupmannahöfn höfðu dofnað í hugum ráðamanna þjóðarinnar. Hann barðist fyrir eflingu 'og við- gangi Háskólans og þó einkum á því sviði sem hugur hans stóð til og flutti mál sitt af reisn og var einlægur í sinni trú á gildi æðri menntunar hér, ekki aðeins hennar vegna, heldur í víðari merkingu sem eins þáttar í eilífri frelsisbaráttu þjóðarinnar. Hefi ég sterkan grun um að stóru draumarnir frá Hafnar- árunum hafi enst honum alla ævi. Þegar hann gat að lokum litið yfir ævistarf sitt, mátti hann sjá að það var harla gott. Þegar hann, sjötíu og tveggja ára gamall maðurinn, lét úr höfn yfir hafið í hinsta sinn, fórum við nem- endur hans niður að ströndinni til að veifa til hans, ekki aðeins af því að þar fór ógleymanlegur persónu- leiki, heldur vegná þess að þar fór góður drengur. Nú hefur hann setið um hríð i efri sölum þar sem vakið er á inorgnana með lúðraþyt og bjöllu- hljóm til tíða og göfugra hugsana. Nú á þessu aldarafmæli ætla ég að hann taki sér frí frá öllu sælu- þrefi og skundi til jarðarinnar. Þar kemur hann við á Aragötunni en þaðan er stutt leið yfir í hús verk- fræðideildarinnar, þar sem nú eru langir gangar og stórar kennslu- stofur með mörgum tugum nem- enda. Á veggjum þar eru teikningar af mannvirkjum sem urðu til á teikniborði Finnboga; að sjálfsögðu til prýði. Þá má ekki gleyma raun- vísindadeild Háskólans, sem er eins- konar framhald verkfræðideildar- innar, þar sem rnargir fást við að leysa ýmis tæknileg vandamál. Og Ijúf verður honum gangan á spegil- sléttum gólfum í sölum"Bessastaða. Ef nú á kyrrlátri vetrarnóttu heyr- ist þar taktfast fótatak og pínulítið tíst fylgir hverju skrefi, þá er víst að þar er Finnbogi Rútur á ferð. Olafur Pálsson MÝTT SÍMANÚbAEK AUGIÝSINGADEILDA^ csnn Hinn eini sanni tónn Félagsheimili - Útisamkomur Kirkjur - Kvikmyndahús Diskótek - Hljómsveitir Vinnustaðir Með BOSE magnara- og hátalarakerfinu eru möguleikarnir öendanlegir. Hafið samband við sölumenn í síma: 691500 - TÆKNIDEILD « Heimilistæki hf Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI 69 15 00 l/úð e/imtcSveáyaxÉegju í SamuHgjunc Duni dúkarúllur kalla fram réttu stemmninguna við veisluborðið. Fallegir litir sem fara vel við borðbúnaðinn geta skapað þetta litla sem þarf til að veislan verði fullkomin. Duni dúkarúllurnar eru 50m á lengd og l,25m á breidd og passa því á öll borð. Og þú þarft ekki að þvo dúkinn á eftir. Fannir hf. - Krókhálsi 3 Sími 672511 ISLENSUAUGIÝSINCASTOFA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.