Morgunblaðið - 23.01.1991, Side 1

Morgunblaðið - 23.01.1991, Side 1
56 SIÐUR B 18. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Irakar skjóta a.m.k. 15 Scud-flaugum á Israel og Saudi-Arabíu: Þrír óbreyttir borgarar lét- ust og 70 særðust í Tel Aviv Herflugvélar bandamanna hafa flogið rúmlega 10.000 árásarferðir - Fullyrt að írakar hafi kveikt í olíuturnum í Kúveit - Tundurduflaleggjara íraka sökkt fyrir botni Persaflóa Washington, London, Jerúsalem, Riyadh, Dhahran. Reuter. ÞRIR óbreyttir borgarar hið minnsta biðu bana og a.m.k. 70 særðust er írösk Scud-eldflaug sem skotið var frá vesturhluta Iraks hæfði ibúðablokk í Tel Aviv í gærkvöldi í þriðju eldflauga- árás Iraka á skotmörk í ísrael á fimm dögum, að sögn talsmanns ísraelska hersins. Mikið tjón varð á blokkinni og nálægum bygg- ingum. Talið var að margar klukkustundir tæki að grafa fólk úr rústum húsa og afleiðingar árásarinnar voru því ekki að fullu kunnar þegar blaðið fór í prentun. Þatriot-gagnflaugar sem bandaríski herinn flutti til Israels um helgina voru sagðar hafa grandað tveimur Scud-flaugum er þær nálguðust skotmörk sín.' Irakar skutu a.m.k. 15 Scud-eldflaugum á ísrael og Saudi-Arabíu í gær og hafa ekki skotið jafn mörgum á einum degi frá byrjun Persaflóastríðsins. Ehud Olmert heilbrigðisráðherra ísraels sagði að það væri ekki spurning um hvort, heldur hvernig ísraelar myndu hefna eldflaugaárásarinnar. Eldflaugaárásin á ísrael var gerð klukkan 20.37 að staðartíma, eða 18.37 að íslenskum tíma, en hættu- ástandi var aflétt hálfri stundu síðar. Flaugin kom niður í úthverfi borgar- innar og olli verulegu tjóni á fjolda bygginga. I dögun í gærmorgun skutu írakar sex Scud-flaugum á Riyadh og Dha- hran í Saudi-Arabíu en Patriot-flug- skeyti grönduðu nokkrum á flugi, aðrar féllu í Persaflóa eða fjarri mannabyggð. Patriot-skeytunum er ekki sk'otið þegar stefna Scud-flaug- anna bendir til að þær muni ekki valda tjóni, að sögn talsmanns fjöl- þjóðahersins. Að minnsta kosti fjór- um flaugum var síðan skotið á Dhahran, þar sem meginstjórnstöðv- ar bandamanna er að finna, klukkan 14.45 en þeim var eytt á flugi. Nokkrum Scud-flaugum til viðbótar var skotið kl. 17.40 en þeim var sömuleiðis eytt. Flugsveitir fjölþjóðahersins héldu uppi linnulausum loftárásum á skot- mörk í Irak í gær, einkum þó Basra þar sem er að finna höfuðstöðvar úrvalshersveita_ Saddams Husseins Iraksforseta. í gærmorgun höfðu fiugvélarnar farið rúmlega 10.000 árásarferðir á írösk skotmörk frá upphafi stríðsins. Talsmaður bandaríska heraflans í Saudi-Arabíu sagði í _gær að loft- myndir sýndu að Irakar hefðu sprengt olíuvinnslustöðvar og geyma í loft upp á Wafra-vinnslusvæðinu í suðurhluta Kúveit og hefði mikill kolsvartur reykjarmökkur stigið upp af svæðinu. íröskum tundurduflaleggjara sökkt fyrir botni Pérsaflóa Flugvélar bandaríska sjóhersins sökktu á mánudag írösku skipi sem var við tundurduflalagnir fyrir botni Persaflóa og síðar sama dag var gerð árás á þijú minni skip sem lauk með því að eitt þeirra sökk en hin hurfu til lands, að sögn talsmanns bandaríska flotans á Persaflóasvæð- inu. Óháða sovéska fréttastofan Inter- fax hafði eftir ónafngreindum sov- éslcum herforingja að herflugvélar bandamanna hefðu ekki hæft nein Blóðbaðið í Lettlandi og Litháen: Gorbatsjov skellir skuldinni á íbúa Eystrasaltsríkjanna Forsetinn lofar rannsókn á hlutdeild hers og lögreg'lu í valdbeitingunni Moskvu. Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. MIKHAIL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði í gær að íbúar Eystrasaltsríkjanna ættu sjálfir sök á blóðbaðinu þar undanfarið en hét því jafnframt að rannsakað yrði hvernig stóð á því að lögregla og her gripu til vopna í Vilnius og Riga. Anatolijs Gorbunovs, forseti Lettlands, sem hitti Gorbatsjov að máli í gær sagði að ekki væri hætta á beinni forsetastjórn í Eystrasaltsríkjunum á næstunni. Gorbatsjov flutti ræðu á frétta- mannafundi í gær í Moskvu tveimur dögum eftir að svarthúfusveitirnar svokölluðu tóku innanríkisráðuneytið í Riga með valdi. „Upptök harmleiks- ins liggja í því að sovéska stjórnar- skráin og borgaraleg réttindi hafa verið fótum troðin með því að mis- muna fólki af ólíku þjóðerni," sagði Gorbatsjov. Hann sagði að einnig væri um að kenna óábyrgri hegðun gagnvart hermönnum og fjölskyidum þeirra. Gorbatsjov sagði að fram myndi fara rannsókn á valdbeiting- unni í Vilnius og Riga og hlutdeild hers og lögreglu í henni. Hann vísaði gagnrýni erlendis frá á bug og hafn- aði því að hann hefði snúið við blað- inu. Rúmlega liundrað sovéskir menntamenn birtu í gær yfirlýsingu þar sem þeir sökuðu forsetann um að hafa snúið þróuninni í landinu við og væri nú stefnt í átt til „vinnu- búða, hreinsana, ógnar, hungurs og eyðileggingar". Anatolijs Gorbunovs, forseti Lett- iands, sagði að Gorbatsjov hefði ekki kotnið með neinar uppbyggilegar lausnir á vandanum í Eystrasaltsríkj- unum heidur staðið á því fastar en fótunum að sovéska stjórnarskráin væri grundvöllurinn sem byggja ætti á. Arnold Ruutel, forseti Eistlands, sem hitti Gorbatsjov á mánudag sagði í gær að Gorbatsjov hefði heit- ið því að valdi yrði ekki beitt í Eist- landi. Tilkynnt var í Moskvu í gær að fimmtíu- og hundraðrúblu seðlar yrðu teknir úr umferð til að vinna bug á „smygli, spillingu og spákaup- mennsku" í landinu. Valentín Pavlov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, kynnti aðgerðirnar í sjónvarpi og fullvissaði áhorfendur um að ekki væri meiningin að gera fé almenn- ings upptækt með þessum hætti en sagði að margir notuðu áðurnefnda seðla til að smygla fé úr landi. Hægt verður að skipta seðlunum í bönkum fram á laugardag. Þingmenn á þingi Evrópubanda- lagsins í Strassborg samþykklu í gær að fresta uniræðu um neyðaraðstoð við Sovétríkin vegna ofbeldisverka sovéska liersins. Einnig samþykkti ráðherraráð EB að hægja á fyrirhug- aðri neyðaraðstoð. Um er að ræða mögulega frestun eða niðurfellingu á 30 mitljarða íslenskra króna tækni- aðstoð og rúmlega 30 milljarða tryggingar vegna matarkaupa á Vesturlöndum. Sovétríkin munu hins vegar fá tæplega tuttugu milljarða neyðaraðstoð sem samþykkt var á leiðtogafundi EB í Róm í desember. Talsmaður utanríkisráðuneytis Lúx- emborgar sagði í Brussel í gær að allar langtímaáætlanir um aðstoð við Sovétríkin yrðu lagðar á hilluna um tíma. Sovésk stjórnvöld höfnuðu fyrir lielgi beiðni sjö aðildarríkja RÖSE- yfirlýsingarinnar um sérstakan fund innan ROSE um ástandið í Eystra- saltsríkjunum. skotmörk í 90% árásarferðanna tii íraks og Kúveits. Þrátt fyrir gífur- legt sprengjuregn væru flestir her- flugvellir Iraka óskemmdir og flug- floti þeirra væri nánast ósnortinn. Sömuleiðis væru 30 loftvarnarkerfi íraka ólöskuð. Þau eru nær öll smíðuð af Sovétmönnum og að sögn Interfax hafa fregnir um árang- ursríkar árásir á þær valdið ráða- mönnum í Moskvu áhyggjum. Evrópubandalagið (EB) fordæmdi í gær meðferð íraka á stríðsföngum, sagði hana jafngilda stríðsglæp og yrðu einstakir stjórnendur landsins gerðir persónulega ábyrgir fyrir þeim. Sjá einnig fréttir af Persa- flóastríðinu á bls. 18 - 21. Reuter Liðsmenn björgunarsveita flytja konu sem særðist alvarlega þegar sovétsmíðuð Scud-eldflaug hæfði íbúðablokk í Tel Aviv í gærkvöldi. Eldflaugin var ein þriggja sem skotið var frá herstöð íraka við jórd- önsku landamærin en hinum tveimur grönduðu bandarísk Patriot-Ioftvarnaskeyti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.