Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 43
ItíG t HAUVtAl .í±áí MÖRGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR HtTTQKWk oi<3AjawuoaoM "MIÐTIKPDA-GUR JANÚAK 1991 43 SKIÐI / HEIMSMEISTARAKEPPNIN I ALPAGREINUM „Verd sennilega áfram hjá Asnieres" - segirJúlíusJónasson vegna fyrirspurna frá Grosswallstadt Júlíus Jónasson, landsliðsmaður í handknattleik, á ekki von á að heyra meira frá Þýskalandsmeisturum Gross- wallstadt. „Ég hef það mjög gott hjá franska liðinu Asnieres og fer ekki nema ég fái mun betra tilboð. Eftir því sem ég hef heyrt er grasið ekki grænna hjá Grosswailstadt og því verð ég sennilega áfram hjá Asnieres," sagði Júlíus við Morgunblaðið í gær. Júlíus hefur staðið sig vel með franska liðinu og var markahæstur með fímm mörk, þegar liðið tapaði 23:18 fyrir Cré- teil um helgina. Hann var kjörinn besti leikmaðurinn á Spánarmótinu á dögun- um og vakið athygli ýmissa liða. „Samningur minn rennur út í vor, en ég á von á viðræðum í næsta mánuði og þá kemur áhugi annarra liða mér væntanlega til góða.“ Ungverjar koma og leika landsleiki í Laugardalshöll 11. og 12. febrúar. Júlíus sagðist gera ráð fyrir að koma í leikina, en Asnieres væri samt ekki búið að gefa grænt ljós ennþá.- Marc Girardelli sem keppir fyrir Lúxemborg náði loks að sigra í svigi á HM. Loksins, loksins sigraði Girardelli Norðmenn sterkir, áttu fjóra af tíu fyrstu í sviginu „ÞAÐ er ánægjulegt að sigra, sérstaklega í svona erfiðri braut,“ sagði Marc Girardelli, Austurríkismaðurinn sem keppir fyrir Lúx- emborg, eftir sigurinn í svigi á Heimsmeistaramótinu í Saalbach í Austurríki í gær. Girardelli hafði aldrei áður unnið til gullverð- launa á HM, nema í alpatvíkeppni (bruni og svigi) og var aðeins 0,07 sek. frásigri ísvigiá HM 1985. Sigurinn var því kærkominn fyrir hann, enda hefur hann dreymt um að sigra í svigi á HM. Thomas Stangassinger, Austurríki, varð annar og Norðmaðurinn Ole Christian Furuseth þriðji. Girardelli, sem er 27 ára, hefur verið í miklum ham síðustu vikur og unnið þijú síðustu heims- bikarmótin. Hann missti næstum allt síðasta keppnistímabil úr vegna meiðsla í hné og fór í uppskurð í september. I sviginu í gær sýndi hann mikið öryggi, var með besta tímann í fyrri umferð og fylgdi honum eftir með góðri síðari ferð. Hann var rúmlega hálfri sekúndu á undan heimamanninum Thomasi Stangassinger, sem kom mjög á óvart með því að hafna í öðru sæti. Ole Christian Furuseth náði besta ÚRSLIT HM í Saalbach Úrslit i svigkeppni karla. (Innan sviga er árangur í fyrri og seinni ferð): 1. Marc Girardclli, Luxeraborg ...1:55.38 ( 57.96 - 57.42) 2. T. Stangassinger, Austurríki ..1:55.96 ( 58.64 - 57.32) 3.0. C. Furuseth, Noregi.......1:56.00 ( 58.92 - 57.08) 4. Albcrto Tomba, Ítalíu.......1:56.24 ( 58.17 - 58.07) 5. Tomas Fogdoe, Svíþjóð.......1:57.25 ( 59.20 - 58.05) 6. Armin Bittner, Þýskalandi....1:57.48 ( 58.49 - 58.99) 7. Patrice Biancbi, Frakklandi....l:57.49 ( 59.66 - 57.83) 8. Finn Christian Jagge, Noregi..l:57.83 (1:00.01 - 57.82) 9. Peter Roth, Þýskalandi.......1:58.25 ( 59.46 - 58.79) 10. Lasse Kjus, Noregur..........1:58.43 ( 59.57 - 58.86) 11. Paul Accla, Sviss............1:59.22 (1:00.06 - 59.16) 12. Kjetl Andre Aamodt, Noregi ..1:59.43 (1:00.64 - 58.79) brautartímanum í síðari umferð og skaust við það úr 7. sæti eftir fyrri ferð upp í það þriðja. „Að sigra hér í Austurríki er sama fyrir mig og sigra annarstað- ar. Ég hef aldrei reynt að skíða vel fyrir áhorfendur eða land - heldur aðeins fyrir sjálfan mig,“ sagði Gir- ardelli, sem komst ekki í aust- urríska landsliðið á sínum tíma og byijaði þá að keppa fyrir Lúxem- borg. Ég hef alltaf lagt áherslu á að vinna þá bestu í heimi og mér tókst það í dag. En fyrsti sigurinn á tímbilinu, í Kitzbúhel, var mér meira virði en HM-titilinn í svigi,“ sagði Girardelli. Stangassinger var mjög ánægður með annað sætið. „Þessi úrslit komu -mér mjög á óvart,“ sagði Stangass- inger, sem hafði áður sigrað einu sinni á heimsbikarmóti og náð níunda sæti i svigi á síðasta heims- meistaramóti í Vail. Furuseth var ánægður með bronsverðlaunin, sem eru fyrstu verðlaun Norðmanna á HM í alpa- greinum síðan Stein Eriksen vann silfur í svigi, stórsvigi og tvíkeppni 1954. „Þetta er besti árangur minn á ferlinum,“ sagði Furuseth. Norð- menn geta vel við unað því þeir áttu fjóra af fyrstu tíu. ítalinn Alberto Tomba náði sér ekki á strik í síðari umferð, eftir að hafa haft næst besta tímann eftir fyrri umferð. „Ég eyðilagði þetta fyrir mér í síðari umferðinni," sagði Tomba, sem hafnaði í 4. sæti. „Nú fer ég aftur til Ítalíu til að æfa fyrir stórsvigið hér í næstu viku.“ Jonas Nilsson frá Svíþjóð, sem varð heimsmeistari í svigi 1985, var með fjórða besta tímann eftir fyrri ferð en féll út úr brautinni og varð úr leik. Það sama gerði Austurríkis- maðurinn, Rudolf Nierlich, heims- meistari frá 1989. En hann varð aðeins með 12. besta tímann í fyrri umferð. Svigbrautin var mjög erfið og fóru margir skíðamenn flatt í henni. Hún var hörð og lögð í miklum bratta, en veðrið var mjög gott þar sem sólin skein í heiði. Bandaríkja- menn voru fjarri góðu gamni og sendu ekki keppendur til mótsins af ótta við hryðjuverk vegna Persa- flóastríðsins. Miklar öryggisráð- stafanir hafa verið gerðar í Saal- bach og Ilinterglemm þar sem mótið fer fram. í dag verður keppt í risasvigi karla og á morgun, fimmtudag, er gefið frí til æfinga. ÍÞRÓmR FOLX ■ IVAN Varlanov, Sovétmaður- inn sem hefur þjálfað 3. deildarlið Völsungs á Húsavík í knattspyrnu undanfarin tvö ár, verður ekki þjálf- ari liðsins næsta sumar. Vöslungar hafa ekki gengi frá ráðningu þjá- fara, en búist er við að gengið verði frá því næstu daga. ■ STEFÁN Gunnlaugsson er formaður U-21 landsliðsnefndar KSÍ, en skipað var í nefndir fyrir skömmu. Með honum eru Eyjólfur Bergþórsson og Tómas Kristins- son. ■ A-LANDSLIÐSNEFND er skipuð sömu mönnum og í fyrra. Guðmundur Pétursson er formað- ur, en Jón Gunnlaugsson og Viðar Halldórsson eru einnig í nefndinni. ■ HELGI Þorvaldsson er for- maður U-18 landsliðsnefndar. í henni eru að auki Gylfi Orrason, Steinn Halldórsson og Asgeir Armannsson. ■ SVEINN Sveinsson er formað- ur U-16 landsliðsnefndar. Með hon- um eru Sigmundur Stefánsson, Snorri Finnlaugsson og Jóhannes Sveinbjörnsson. ■ JON Gunnlaugsson er formað- ur aganefndar. Gunnar Guð- mundsson og Asgeir Armannsson eni líka í nefndinni ■ GUÐMUNDUR Haraldsson er formaður dómaranefndar, en með honum sitja Friðjón Edvarðsson og Róbert Jónsson. ■ EGGERT Magnússon er for- maður samninga- og félagaskipta- nefndar, sem er ný. Með honum eru Halldór B. Jónsson og Þorgrímur Þráinsson HANDKNATTLEIKUR Héðinn með gegn Ungverjum Héðinn Gilsson leikur með íslenska landsliðinu Dússeldorf gegn Hameln í þýsku 2. deildinni 10. í síðari ieiknum gegn Ungveijum í Laugar- febrúar og kemst því ekki til landsins fyrr en 1T. dalshöll 12. febrúar. Að sögn Þorbergs Adalsteins- febrúar. sonar, landslidsþjálfara, á Héðinn áð leika með HANDBOLTI toóm FOLX B SIGMAR Gunnarsson, UMSB og Már Hermannsson, UMFK tóku þátt í miklu innanhússmóti í fijálsum íþróttum í Gautaborg um sl. helgi. Þeir kepptu í 1500 m hlaupði. Sigmar hljóp á 4.02m20 mín. og Már á 4.07,32 mín. B LARRY Bird er meiddur í baki og hefur misst af síðustu sjö leikjum Boston í NBA-deildinni. Liðinu hefur enda ekki gengið vel að und- anförnu eftir góða Frá byijun, tapað Gunnari síðustu fjórum leikj- Valgeirssyni gíðast 101;90 ; i tíandarikjunum p)elrojj- ■ DETROIT vann 11 leiki í röð, en tapaði 103:102 fyrir Phoenix í fyrrakvöld. Detroit er í þriðja sæti í austurdeildinni með 28 sigra og 12 töp. Chicago er með 28 sigra og 11 töp, en Boston er með 29 sigra og níu töp. M PORTLAND er með bestu stöðuna í vesturdeildinni, 34 sigra og sjö töp. San Antonio, sem er eina liðið, sem hefur ekki tapað tveimur eða fleiri leikjum í röð, er með 26 sigra og 10 töp, en Los Angeles Lakers, sem hefur sigrað í síðustu sjö leikjum, er með 26 sigra og 11 tög. ■ JÚGÓSLA VINN Vlade Divac, sem leikur með Los Angeles La- kers sagði í gær að hann myndi halda heima á leið á næsta ári og byija að leika á ný með Partizan Belgrad. TENNIS Sabatini og Graf úr leik Steffi Graf, besta tenniskona heims og Argentfnustúlkan Gabriela Sabatini voru óvænt slegn- ar út í átta manna úrslitum á opna ástralska meistaramótinu í tennis. Graf mátti þola tap í gær fyrir Jana Novotna frá Tékkóslóvakíu, 7:5, 4:6, 6:8. Sabatini tapaði fyrir Arantxa Sanchez Vicario frá Spáni, 1:6, 3:6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.