Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991 * A Arásir Iraka á Tel Aviv og Haifa: Skorti Israela tæknileg’ar upplýsingar til að hefna? FYRIR BQTNI PERSAFLOA Los Angeles. Reuter. EIN af ástæðunum fyrir því að Israelar svöruðu ekki eldflauga- árásum íraka í sömu mynt kynni að vera sú að þeir fengu ekki Sex Scud-flaugum skotíð á Saudi-Arabíu Engin hæfði í mark Dhahran. Reuter. ÍRAKAR skutu sex Scud-eld- flaugum á skotmörk í Saudi- Arabíu aðfaranótt þriðjudags en engin flauganna olli skemmdum. Talsmaður Bandarikjahers sagði að um þijár árásir hefði verið að ræða og öllum flaugunum hefði verið skotið frá suðurhluta íraks. Patriot-gagnflaug eyddi a.m.k. einni flaug sem beint var að höfuðborginni Riyadh. Þrem flaugum var skotið að hernaðar- lega mikilvægum skotmörkum í austurhluta landsins, þar af einni rétt eftir sólarupprás, en engin hæfði i mark. Greg Pepin, talsmaður banda- mannahersins, sagði að ein flaug hefði failið í hafið skammt frá bæn- um Juhail. Tveim hefði verið miðað á Riyadh og þrem að skotmörkum í austurhlutanum. Loftvarnaflautur ýlfruðu i Dha- hran í austurhlutanum, þar sem mestu olíumannvirki landsins eru, stundarfjórðung yfir sjö að morgni að þarlendum tíma en áður hafa írakar eingöngu gert eldflauga- árásir á landið að næturlagi. Tveim mínútum síðar kvað við mikil sprenging svo að gluggarúður nötruðu. Sjónarvottar sáu Patriot- gagnflaug, sem skotið var upp frá herstöð í grenndinni, geysast upp í loftið og springa er hún var komin að skotmarkinu. Viðvörun var gefin á ný stundarfjórðungi síðar en eng- ar sprengingar heyrðust. Fulltrúar heryfirvalda á staðnum sögðu að - Ekkert tjón á fólki eða mannvirkjum nauðsynlegar upplýsingar frá Bandaríkjamönnum um boð- merki þau sem flugvélar banda- manna gefa frá sér til þess að þær skjóti ekki hver á aðra. Þetta kemur fram í frétt bandaríska dagblaðsins Los Angeles Times í gær. Dagblaðið segir að ísraelskar flugvélar hafi verið komnar á fremsta hlunn með að fara í loftið til að hefna eldflaugaárásanna sem byrjuðu á fimmtudagskvöld í síðustu viku. Hins vegar skorti ísra- ela nauðsynlegar upplýsingar um það hvernig merki flugvélar þeirra ættu að gefa frá sér til þess að flug- menn bandamanna þekktu þær úr og skytu ekki á þær sem væru þær íraskar. Los Angeles Times segir að það geti því verið að George Bush Bandaríkjaforseti hafi ekki einungis beitt fortölum og loforðum um aukinn tækjabúnað til þess að halda aftur af Israelum. Blaðið segir að samkomulag sé um það milli Bandaríkjamanna og Israela að ef írakar haldi upptekn- um hætti og ráðist áfram á Israel, einkum ef afleiðingarnar yrðu al- varlegri en hingað til, þá fái ísrael- ar nauðsynlegar upplýsingar til þess að svara fyrir sig. Flugmanni bjargað úr eyðimörkinni á ævintýralegan hátt Reuter Hermaður með gasgrímu á verði við flak Scud-flaugar af endur- bættri gerð er nefnist al-Husseini. Flaugin hrapaði í Riyadh, höfuð- borg Saudi-Arabíu, aðfaranótt þriðjudags án þess að springa og olli engu tjóni. aðrar Scud-flaugar, sem skotið var að Dhahran, hefðu fallið til jarðar í nokkurri fjarlægð frá borginni. Pepin sagði að gerðar hefðu ver- ið þrjár atlögur að Riyadh en ekk- ert tjón virtist hafa orðið. Ein flaug- anna kom þó niður á götu í borg- inni en án þess að springa. Það rauk úr flakinu en fjöldi forvitinna borgarbúa virti það fyrir sér og hermenn með gasgrímur voru á verði. Heimildarmenn í Dhahran sögðu að ein flaugin hefði hrapað nálægt olíulind við borgina Hofuf, suður af Dhahran. Önnur hefði komið niður í eyðimörkinni vestur af Dhahran. Flaugarnar voru allar búnar hefðbundnu sprengiefni. Yfirvöld í Saudi-Arabíu segja að 12 manns hafi þurft að leita læknis- aðstoðar vegna meiðsla af völdum braks úr sundurtættri Scud-flaug sem lenti á Riyadh aðfaranótt mánudags. Aðeins tveir þurftu að leggjast inn. Saudi-Arabíu. Reuter. Bandaríkjamönnum tókst á ævintýralegan hátt að bjarga flugmanni úr eyðimörkinni í írak í fyrradag. Flugvél flugmannsins sem ekki hefur verið nafngreindur var skotin niður yfir írak. Honum tókst að skjóta sér út úr vélinni í fallhlíf og lenti í eyðimörkinni fyrir neðan á írösku landsvæði. Eins og allir flug- menn bandamanna hafði hann með- ferðis litla talstöð, reyksprengjur og veifur til að vekja á sér athygli. Snemma á mánudagsmorgun barst hjálparbeiðni til herstöðvar banda- manna í Saudi-Arabíu. Tveir flug- menn lögðu af stað í leit að félaga sínum. Þeir fundu hann eftir fjóra tíma og sendu þá eftir þyrlu til að ná í manninn þar sem hann hafðist við í eyðimörkinni. En nokkrum mínútum áður en þyrlan kom á áfangastað og flugmaðurinn ætlaði að koma úr fylgsni sínu á jörðu niðri sáu félagar hans úr lofti hvar íraskur herbíll nálgaðist. „Því miður var bílinn þarna á röngum stað á röngum tíma,“ sagði annar flug- mannanna síðar. „Við gátum ekki leyft okkur að láta hann óáreittan." Þeir gerðu þegar árás á herbílinn en á meðan sótti þyrlan hermanninn á jörðu niðri. Almenningur í Bretlandi: Vaxandi stuðn- ingnr við stríðið St. Andrews. Fra Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. STUÐNINGUR bresks almennings við hernaðaraðgerðirnar við Pers- aflóa hefur aukist samkvæmt skoðanakönnunum auk þess sem lítil þátttaka í friðargöngum um helgina,j>ykir til marks um það. Um 80% bresks almennings styð- Annars vegar hafa loftárásir fjöl- ur hernaðaraðgerðir fjölþjóðahers- þjóðaliðsins einkum beinst gegn ins við Persaflóa, að því er kom fram í þremur skoðanakönnunum, sem birtust um helgina. Um 60% studdu hernaðaraðgerðir fjölþjóða- hersins, jafnvel þótt það kostaði líf breskra hermanna. Þetta eru hærri tölur en fengust í sams konar könn- unum viku fyrr. Um og innan við 20% lýsa sig andsnúna aðgerðun- um. Um helgina voru mótmælagöng- ur vegna hernaðaraðgerðanna í nokkrum breskum borgum. I Hyde Park í Lundúnum gengu fínmm þúsund manns, um tvö þúsund manns tóku þátt í mótmælum í Glasgovy og Leeds. Þetta er aðeins brot af þeim fjölda, sem tók þátt í sams konar göngum viku fyrr. í fjölmiðlum er þessi minnkandi andstaða við hemaðaraðgerðirnar skýrð með tvennu. hernaðarmannvirkjum og mannfall í röðum íraskra borgara hefur verið lítið, ef marka má opinberar upplýs- ingar og fréttir. Sömuleiðis hafa fáir flugmenn fjölþjóðaliðsins verið skotnir niður yfír írak, enn sem komið er. Hins vegar þykir hinn nýi forsæt- isráðherra Bretlands, John Major, hafa staðið sig sérstaklega vel við að koma sjónarmiðum yfirvalda til skila við almenning með alvöru án þess að hlakka yfír hlutskipti íraka. Sömuleiðis hefur honum tekist að skapa samstöðu meðal ailra helstu stjórnmálaleiðtoga landsins um markmið hernaðaraðgerðanna. Hann hefur varað sig sérstaklega á því að að gera þessar aðgerðir að flokksmáli og ekki reynt að nýta sér klofning í Verkamannaflokkn- um um þær. Reuter Saddam hylltur í Jórdaníu Stórar myndir af Saddam Hussein íraksforseta hafa verið festar á ljósastaura í Amman, höfuðborg Jórdaníu, ásamt íröskum og jórd- önskum fánum. Mikill stuðningur virðist vera við Saddam í Jórd- aníu. Einnig hafa farið fram fjölmennar göngur til stuðnings honum í arabaríkjum Norður-Afríku að Egyptalandi undanskildu. Reuter Irösku bræðurnir tveir sem handteknir voru á Filippseyjum ræða við rannsóknarlögreglu- mann. Tveir menn handteknir vegna hermd- arverks á Filippseyjum Manila. Reuter. YFIRVÖLD á Filippseyjum hafa handtekið tvo syni sendiherra Iraks í Sómaliu grunaða um hlut- deild í sprengjuárás á bandaríska menningarmiðstöð í Manila á laugardag. Sprengjuárásin mistókst og fórst einn íraki og annar slasaðist er sprengjan sprakk of snemma í bif- reið sem þeir voru í. Stjórnvöld á Filippeyjum vísuðu á mánudag úr landi Muwafak al-Ani sendiráðsrit- ara í íraska sendiráðinu í Manila. Er talið að hann hafi átt bifreiðina sem sprakk og að hann hafi skipu- lagt sprengjutilræðið. Bræðurnir, Husham og Hisham Abdul-Sattar, eru námsmenn í Manila. Þeir eru synir Hikmads Abdul-Sattars sendiherra íraks í Sómalíu. Lögregla segir að við hús- Ieit hjá þeim hafi fundist efni til . -Þ.e.s. ?ð. þúa til sprengjur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.