Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.01.1991, Blaðsíða 16
16 ieeí 3AUHAI .82 flUijACHmYGiM (JIG/.',iVAUíyAGlt MORGUNBLAÐIÐ MlDVlkuDAGL'K 23. JANÚAR 1991 Golden Globe-verðlaunin: Tvídrangar valin besta drani- atíska sjónvarpsþáttaröðin Góð kynning fyrir Propaganda Film, segir Sigurjón Sighvatsson SJONVARPSÞÁTTARÖÐIN Tvídrangar hlaut þrjár viðurkenn- ingar við afhendingu Golden Globe verðlaunanna í Los Angeles á laugardaginn. Twin Peaks var valin besta dramatíska sjónvarps- þáttaröðin. Kyle Mac Lachlin var valinn besti aðalleikarinn í þátta- röð af þessu tagi og Piper Laurie var valin besta leikkonan í auka- hlutverki. Sigurjón Sighvatsson hjá Propaganda Film sem átt hef- ur stóran þátt í gerð þáttaraðar- innar segist ánægður með verð- iaUnin, þau séu góð kynning fyrir fyrirtækið, en bendir jafnframt á að Tvídrangar hafi fallið í skugg- ann af hefðbundnari bandarískum Samningur sérfræðinga og ríkisins: Meiri hækkanir en lengri gildistími SAMNINGUR sá sem Tryggingastofnun gerði við sérfræðilækna utan sjukrahúsa 13. janúar um greiðslur stofnunarinnar fyrir læknisverk felur í sér meiri hækkanir á árinu en fyrra samkomulag sem gert var 24. desember og Tryggingaráð neitaði að staðfesta. Engu að síður segir Helgi V. Jónsson, formaður samninganefndar Tryggingastofn- unar, að síðara samkomulagið sé hugsanlega heldur hagstæðara fyr- ir ríkið þar sem samningstíminn hafi verið lengdur um eitt ár og í stað þess að hækkanir komi strax til framkvæmda sé hluta þeirra dreift- á yfirstandandi ár. í samkomulaginu frá 24. desemb- er var gert ráð fyrir að greiðslur fyrir viðtöl án annarra aðgerða hækki um 2 einingar að hámarki frá og með 1. janúar en hver eining er 116 krónur. í nýja samningnum er hækkunin 1/2 eining 1. janúar, 1 eining 1. maí og 1 1/2 eining 1. september eða samtals þijár eining- ar. Helgi sagði að þetta þýddi að í heildina hækki greiðslur ríkisins um 13 milljónir kr. til 1. september en hækkunin hefði orðið 32 milljónir á sama tímabili samkvæmt eldri samningi. „Heildarkostnaðaraukn- ing fyrir fyrstu tvö árin er um 90 milljónir eða 45 milljónir að meðal- tali á ári,“ sagði Helgi. „Útgjöld ríkisins eru svipúð hvort sem miðað er við eldra samkomulag eða þann samning sem gerður var 13. janúar. Gildistími síðari samn- ingsins er einu ári lengri eða til þriggja ára og því spuming hvemig samningar hefðu tekist eftir tvö ár miðað við uppsögn eldri samnings. Hækkanir samkvæmt báðum samn- ingunum á þessum tveimur ámm em svipaðar. Tryggingastofnun sparar eitthvað í vaxtakostnaði vegna þeirra hækkana sem frestað er í síðari samningnum," sagði Helgi. Hann sagði að óánægja fjármála- ráðuneytisins með fyrra samkomu- lag hafi snúist um að það kynni að bijóta þjóðarsáttina. „Við höfum farið ofan í saumana á kostnaði ákveðinna hópa sérfræðilækna og það er ljóst að þessar hækkanir eru eingöngu til greiðslu á kostnaðar- hækkunum þeirra. Nú eru allir sannfærðir um að síðari samningur- inn er ekki brot á þjóðarsáttinni," sagði Helgi. sjónvarpsþáttaröðum og nefnir sem dæmi Staupastein. „Þessi verðlaun eru fremur til þeirra David Lynch og Mark Frost sem unnið hafa að sköpun þáttanna en Propaganda Film sem er verktaki og sér um framkvæmdir," sagði Sig- uijón við Morgunblaðið í gær. „Við erum auðvitað ánægðir með að fá þessi verðlaun. Sérstaklega vegna þess að okkur hefur stundum fundist meiri áhersla lögð á hefð- bundnari sjónvarpsþætti, eins og til dæmis Staupastein, og margir eru þeirrar skoðunar að Tvídrangar hefðu átt að fá fleiri verðlaun, til dæmis Emmy verðiaun, en þættirnir hafa fengið. Verðlaunin sýna því líka að Foreign Press Association er víðsýnni en ýmsir aðrir. Annars er hér ekki um beinan áþreifanlegan árangur að ræða. Þó verðlaunin séu að vísu áframhaldandi viðurkenning á góðri vinnu og geti okkur góðs orðs eins og fleiri viðurkenningar sem við höfum verið að fá. Til dæm- is var Propaganda Film að fá verð- laun fyrir bestu kapalmyndina á síðasta ári. Sú mynd fékk reyndar fern verðlaun. Tveir aðalleikararnir fengu verðlaun og myndin fékk tæknileg verðlaun. Siguijón segir að verðlaunin hafi komið á óvart og bendir á að hvorki David Lynch né Mark Frost hafi verið viðstaddir afhendingu viður- kenninganna. í samtalinu kom fram að verið væri að undirbúa tvo sjón- varpsþætti hjá Propaganda Film, Hotelroom sem David Mamet leik- stýrir og annan sem fjallar um krakka en sá þáttur hefur ekki hlot- ið endanlegt heiti. Borðfáni með skjaldarmerki Skarðsættarinnar. Skjaldarmerki Skarðs- ættarinnar í fimm aldir Miðhúsum, Reykhólasveit. SKARÐSÆTTIN á skjaldarmerki sem verið hefur táknmerki ættarinnar frá því á 15. öld, á dögum Björns hirðstjóra á Skarði á Skarðsströnd. Merkið hefur nú hefur verið málað eftir uppruna- lega skjaldarmerkinu og prentað á borðfána. Sama ættin hefur búið á Skarði óslitið frá landnámsöld og eru það núverandi ábú- endur á Skarði, Ingibjörg Kristinsdóttir og Jón G. Jónsson sem gefa út merkið. Ætlunin er að mála það á stóran fána sem geyma á í Skarðskirkju og draga að hún við hátíðleg tækifæri. Einn ríkasti Islendur á 15. öld arinnar. var Bjöm ríki Þorleifsson, hirð- stjóri á Skarði á Skarðsströnd í Dalasýslu (1408-1467). Bjöm var kvæntur Olöfu ríku Loftsdóttur ríka á Möðruvöllum í Eyjafirði (1400-1479). Danakonungur sló Björn hirðstjóra til riddara og lét hann hafa skjaldarmerki það sem síðan hefur verið táknmerki ætt- Bjöm féll á Rifi árið 1467 í þardaga við Englendinga sem þar voru að versla í banni konungs. Englendingar létu höggva líkama Björns í stykki og sendu Ólöfu konu hans. Hún mælti þau fleygu orð: „Ekki skal gráta Bjöm bónda heldur safna liði.“ Sveinn Félagslegar íbúðir: Greiðslubyrði 6 til 59 þúsund á mánuði eftir fiokkun íbúðanna GREIÐSLUBYRÐI íbúa í þriggja herbergja félagslegri íbúð getur verið allt frá 5.000 krónum á mánuði upp í 56.000 krónur, eft- ir því hvort íbúðin er almenn kaupleiguíbúð, félagsleg kaup- Morgunblaðið/KGA Rúnar Guðmundsson yfirkokkur og Matthildur Kristjánsdóttir nemi með fullt trog af þorramat. Þorramatur í Naustinu ÞORRINN hefst á föstudaginn og að venju mun veitingahúsið Naus- tið bjóða upp á þorramat. Reyndar var þaö Naustið sem endurvakti þorramatinn fljótlega eftir stofnun 1953. Matreiðslumenn Naustsins eru þegar byrjaðir að bjóða upp á þorra- matinn. A boðstólum em 19 teg- undir af mat auk meðlætis. Má þar nefna hefðbudnar tegundir eins og lundabagga, bringukolla, hrúts- punga, blóðmör, lifrarpylsu, hákarl, svið, hangikjöt og fleira. Súran hval er ekki lengur hægt að fá en boðið er upp á síldarrétti í staðinn. Maturinn er borinn fram í trogum leiguíbúð eða félagsleg eignar- íbúð. Greiðslubyrðin í fjögurra herbergja íbúð er 6.000 til 59.000 krónur á mánuði, eftir flokkun íbúðarinnar. Þetta kemur fram i skýrslu húsnæðisnefndar Reykjavíkur til borgarráðs sem rædd var á fundi borgarstjórnar á fimmtudag. Fram kom að fé- lagsmálaráðherra gerði athuga- semdir við útreikningana og fór húsnæðisnefnd til fundar við ráð- herra þar sem sæst var á að í sameiningu yrði staðið að út- reikningum á greiðslubyrði í fé- lagslega íbúðakerfinu. Reykjavíkurborg fékk heimild til að kaupa 40 almennar kaupleigu- íbúðir á síðasta ári. íbúðirnar hafa verið auglýstar til sölu og auglýst hefur verið eftir umsóknum með kaupleigukjömm. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í umræðum um þetta mál í borgarstjórn á fimmtu- dag, að að nauðsynlegt hafi þótt að kanna greiðslubyrði vegna þess- ara íbúða, þar sem fyrirsjáanlega gæti svo háttað til, að íbúar í tveim- ur nákvæmlega eins íbúðum bæm af þeim mjög mismunandi kostnað. Borgarstjóri kvað ekki óeðlilegt að telja að íbúar sem bæm saman þannig mismunandi greiðslubyrði teldu sér mismunað. Þessi athugun hefði verið gerð í þeim tilgangi að greina þetta vandamál svo að hægt væri að bregðast við því fyrirfram í stað þess að standa frammi fyrir orðnum hlut síðar. Í skýrslu húsnæðisnefndar eru meðal annars tekin dæmi af þrenns konar íbúðum í Veghúsum 31. Allar íbúðirnar eru með bílskýlum og snjóbræðslukerfi. Fjögurra her- bergja íbúð kostar 8,9 milljónir króna, þriggja herbergja 8,4 millj- ónir og tveggja herbergja 6,8 millj- ónir. í niðurstöðunum kemur fram að mánaðarleg greiðslubyrði þriggja herbergja íbúðarinnar er minnst ef hún er félagsleg eignaríbúð, eða 5.000 krónur 1. árið, síðan 16.000 krónur. Sé hún félagsleg kaupleigu- íbúð era þrír möguleikar. Fyrst er kaup, án undangenginnar leigu. Mánaðarleg greiðsla 1. árið er 11.000 krónur, 2.-15. ár 19.000 og 16.-43. ár 12.000 krónur. Annar möguleikinn er leiga með kauprétti og er leigan 39.000 krónur á mán- uði. Sé kaupréttur nýttur er mánað- arleg greiðsla 1. árið 29.000 krón- ur, 2.-5. ár 37.000 krónur, 6.-15. ár 19.000 krónur og 16.-43. ár 12.000 krónur. Loks er kaup á leigurétti, mánaðarleiga 33.000 krónur. Sé íbúðin lmenn kaupleiguíbúð eru einnig þrír möguleikar. Kaup án undangenginnar leigu, mánaðar- greiðsla 1. árið 27.000 krónur, 2.-15. ár 31.000 krónur og 16.-43. ár 22.000 krónur. Leiga með kaup- rétti kostar 56.000 krónur á mán- uði og sé kaupréttur nýttur er mán- aðargreiðsla 1. árið 48.000 krónur, 2.-5. ár 51.000 krónur, 6.-15. ár 31.000 og 16.-43 ár 22.000 krón- ur. Loks er kaup á leigurétti, mán- aðarleiga 42.000 krónur. Sé íbúðin búsetaíbúð er mánaðar- leiga frá 32.000 krónum upp í 47.000. Á sama hátt er mismunandi greiðslubyrði fyrir tveggja og fjög- urra herbergja íbúðirnar. Fyrir fjög- urra h'erbergja íbúð þarf að greiða frá 6.000 krónum á mánuði, 1. árið, sé hún félagsleg eignaríbúð upp í 59.000 krónur í mánaðarleigu, sé hún leigð sem kaupleiguíbúð. Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfull- trúi Nýs vettvangs gagnrýndi þessa skýrslu og frásagnir fjölmiðla af henni og taldi villandi. Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalags sagði ljóst, að ef þessaar tölur væru réttar, þá væri ekki um að ræða þann okurleigumarkað sem rætt hefur verið um, heldur væri um að ræða að þetta búsnæðiskerfi sprengdi upp leiguverð og bæri þá að afnema það strax. Hann sagði brýnt að vita hið sanna um þessi mál, og vísaði til athugasemda fé- lagsmálaráðherra um útreikning- ana. Hilmar Guðlaugsson borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokks og formaður húsnæðisnefndar greindi frá for- sendum útreikninganna og jafn- framt frá fundi með félagsmálaráð- herra þar sem fram kom í hveiju ráðuneytið og húsnæðisnefnd not- uðu mismunandi forsendur. Hilmar sagði þann mun ekki vera mikinii, reyndar mismunandi hvort mánað- arleg greiðslubyrði hækkaði eða lækkaði eftir því hvor aðferðin væri notuð. Hann sagði meðal ann- ars að með reikningsaðférð ráðu- neytisins hækkaði mánaðarleiga fyrír fjögurra herbergja kaupleigu- íbúð og væri ekki 59.000 krónur, heldur 64.000. Hilmar greindi frá því að sam- komulag varð um að félagsmála- ráðuneyti og húsnæðisnefnd reyndu að komast að sameiginlegri niður- stöðu um greiðslubyrðina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.