Morgunblaðið - 23.01.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991
Afleiðingar Persaflóastríðsins:
Færri bóka sig í
flug hjá Flugleiðum
Ahrifin vöruðu í tvo daga, segir for-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar
ÁHRIFA stríðsins við Persaflóa er nú farið að gæta í farþegabókununt
hjá Flugleiðum. Að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flugleiða,
hafa bókanir frá áramótum reynst vera 30% fleiri en á sama tíma í
fyrra, en eftir að Persaflóastríðið braust út hefur nýjum bókunum
fækkað töluvert.
Það munu einkum vera erlendir
farþegar sem draga úr ferðalögum
sínum á þessum óvissutímum, en
þrátt fyrir hertar öryggisaðgerðir á
millilandaflugvöllum hefur það eng-
um töfum valdið á flugi Flugleiða.
Að sögn Helga Jóhannssonar, for-
stjóra Samvinnuferða-Landsýnar,
varð talsvert vart við afbókanir og
breytingar á ferðaáætlunum á ferða-
skrifstofunni fyrstu tvo daga
stríðsins við Persafióa, en í gær var
afgreiðslan aftur komin í eðlilegt
horf. „Það var mjög greinilegt að
áhrifin af stríðinu vöruðu aðeins í tvo
daga en nú er allt komið á fullt aft-
ur. Það kom okkur á óvart,“ sagði
Helgi.
Jónas Hvannberg, hótelstjóri á
Hótel Sögu, sagði nokkuð um að
herbergjapantanir hafi verið dregnar
til baka á síðustu dögum. „Þarna er
um erlenda menn í viðskiptaerindum
að ræða og teljum við að þessar af-
bókanir megi rekja til áhrifa af Pers-
aflóastríðinu," sagði Jónas.
Minni bjórsala en
við bjuggumst við
- segir forstjóri ÁTVR
BJÓRSALA Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins var 6,83% minni
Jarðgöng undir
Hvalfjörð:
Stofnfund-
ur hlutafé-
lagsins
STOFNFUNDUR hlutafélags-
ins, sem ætlar að annast undir-
búning, fjármögnu og fram-
kvæmdir við væntanleg jarð-
göng undir Hvalfjörð, verður
haldinn föstudaginn 25. janúar
og hefst kl. 14.
Fundurinn verður haldinn í
fundarsal á 3. hæð Kirkjubrautar
54 á Akranesi. Dagskrá fundar-
ins verður með þeim hætti að
fyrst er undirritun stofnsamn-
ings, þá verða staðfestar sam-
þykktir fyrir félagið og kosið í
stjórn, varastjórn svo og endur-
skoðendur. Því næst verður und-
irritaður samningur við sam-
gönguráðuneytið og í lokin verða
önnur mál rædd.
allt árið 1990 en þá tíu mánuði
ársins 1989, sem bjórsala var
leyfð. Höskuldur Jónsson, for-
stjóri ÁTVR, segir að þetta komi
á óvart, enda hafi verið gert ráð
fyrir að heildarsalan yrði svipuð
á síðasta ári og árið 1989.
Árið 1990 seldust 6.472.179 lítrar
af bjór hjá ÁTVR. Salan árið 1989
var hins vegar 6.946.657, en bjórsal-
an hófst ekki fyrr en 1. mars það
ár. Þannig seldist 6,83% meira af
bjór á 10 mánuðum ársins 1989 en
allt árið 1990.
Höskuldur Jónsson segir að
ÁTVR hafi gert ráð fyrir að salan
yrði svipuð þessi ár, þannig að salan
tvo fyrstu mánuði ársins 1990 kæmi
til móts við ,þá miklu sölu, sem varð
fyrst eftir að bjórinn var leyfður.
Það hafi ekki reynst rétt mat, enda
sé nú ljóst að bjórneysla hafi verið
gríðarlega mikil í mars og apríl
1989, auk þess sem veitingastaðir
og einstaklingar hafi þá vefið að
koma sér upp birgðum.
Höskuldur segir það athyglisvert,
að sala á bjór mæld í alkóhóllítrum
hafi minnkað enn meir en salan
mæld í lítrum. Af því megi sjá, að
jafnframt því sem minna hafi verið
drukkið af bjór árið 1990 en 1989,
þá hafi verið drukkinn veikari bjór.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Upplýst skilti hafa verið sett upp á Olfusárbrú til að minna á
100 ára vígsluafmæli brúarinnar.
• *
Olfusárbrú:
Minntá 100
ára vígslu-
afmæli á
þessu ári
Selfossi.
SKILTI hafa verið sett upp á
Olfusárbrú til að minna á að á
þessu ári eru liðin 100 ár frá
vígslu fyrstu brúar yfir Ölfusá
við Selfoss. Fyrirhugað er að
minnast þessara tímamóta
næsta haust 1-8. september en
fyrsta brúin var vígð 8. sept-
ember 1891.
Skipuð hefur verið afmælisnefnd
til að skipuleggja hátíðarhöld af
þessu tilefni. Markmið hennar er
að skapa góða hátíð fyrir börn og
fullorðna, að kynna íbúum enn
betur bæinn sinn og vekja jafn-
framt athygli á bænum út á við.
Meðal þess sem stefnt er að er
opnun og vígsla Bæjar- og héraðs-
bókasafns og héraðsskjalasafns í
gamla kaupfélagshúsinu við Aust-
urveg. Þá er meðal annars fyrir-
hugað að hefjast handa við fram-
• kvæmd nýs miðbæjarskipulags.
Dagskráratriði vikuna 1.-8.
september eru enn í mótun. Fyrir-
hugað er að þá viku verði boðið
upp á atriði sem varpa ljósi á bygg-
ingu brúarinnar sem merks við-
burðar í samgöngumálum. Einnig
er stefnt að því að kynna þátt
brúarinnar í sögu Selfoss og upp-
byggingu þéttbýlis á Selfossi.
— Sig. Jóns.
íslensk samninganefnd enn í Moskvu:
Enn óvíst hvort Sovétmenn
kaupa saltsfld héðan í vetur
Ný viðskiptabókun ekki undirrituð fyrr en niðurstaða er fengin
ÓVÍST er enn hvort Sovétmenn
kaupi héðan 50 þúsund tunnur
af saltsíld, sem samið hafði ver-
ið um að þeir keyptu héðan á
þessari vertíð. Islenskir samn-
inganefndarmenn funduðu í
Moskvu á mánudag með J.A.
Borisov, sem er einn af varafor-
mönnum ríkisnefndar um mat-
væli og innkaup, svo og J.P.
Ledentsov, formanni sovésku
viðskiptanefndarinnar, sem se-
tið hefur að samningum við Is-
lendinga undanfarna daga.
Á þessum fundum var rætt um
uppgjör og efndir Sovétmanna
vegna kaupsamninga nýliðins árs
og væntanleg viðskipti íslendinga
og Sovétmanna árin 1991 og
1992. Einnig var rætt um hugsan-
Norskar verksmiðjur hætta að taka á móti loðnu úr Barentshafinu:
Efast ekki um að íslenskar verk-
smiðjur myndu þiggja þessa loðnu
- segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda
LOÐNUVEIÐAR Norðmanna í Barentshafi hófust um miðjan þennan
mánuð en norskar loðnuverksmiðjur sögðust ekki ætla að taka á
móti loðnu frá og með 22. þessa mánaðar ef norsk stjórnvöld halda
ekki áfram að styrkja verksmiðjurnar. „Eg efast ekki um að íslensku
loðnuverksmiðjurnar myndu þiggja þessa loðnu, ég tala nú ekki um
ef þær þyrftu ekki að greiða nema 3.500 krónur fyrir tonnið af
henni, eins og mér skilst að norsku verksmiðjurnar ætli sér að greiða,"
segir Jón Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskmjölsfram-
leiðenda.
íslensku loðnuverksmiðjurnar
greiddu 4.200 krónur fyrir loðnutön-
nið í haust.
„Það tæki 3-4 sólarhringa að sigla
með loðnuna hingað frá Barentshaf-
inu, þannig að sú afurð, sem úr
henni kæmi, yrði aldrei öndvegisvara
en allt er hey í harðindum," segir
Jón Olafsson. „Færeyingar fengu
loðnu úr Barentshafinu hér á árum
áður en ég á eftir að sjá norsku
loðnuverksmiðjurnar horfa á eftir
þessari loðnu til okkar. Við höfum
orðið að þreyja hér þorrann og gó-
una og ekki fengið nokkurn skapað-
an hlut á meðan norsku verksmiðj-
urnar eru orðnar slæptar af ríkis-
styrkjum."
Heildarloðnukvótinn í Barentshafi
er 850 þúsund tonn í vetur og veið-
arnar hafa gengið ágætlega. Norð-
menn mega veiða 60% af kvótanum,
eða 510 þúsund tonn, en Sovétmenn
40%, 340 þúsund tonn.
„Okkur finnst mjög ólíklegt að
tengsl séu á milli loðnustofnanna í
Barentshafi og við ísland," segir
Jakob Jakobsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. Hann segir að eng-
in loðna hafi fundist í námunda við
hugsanlega leið loðnunnar til Bar-
entshafsins en rannsóknaskip hafi
verið mikið á því svæði undanfarið.
Slæmt veður hefur verið við Aust-
firði undanfarið og því erfitt að rann-
saka loðnustöfninn. Fjögur loðnu-
skip eru ekki búin að veiða þá tvo
loðnufarma, sem þau áttu að fá sem
greiðslu fyrir loðnuleit í þessum
mánuði en 6 loðnuskip tóku þátt í
henni. „Þegar þessi skip eru farin
af miðunum reiknum við með að
þijú önnur loðnuskip taki þátt i leit-
inni, það er að segja Guðmundur,
Bjarni Olafsson og Grindvíkingur,“
segir Jakob Jakobsson.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
hefur legið inni á Reyðarfirði undan-
farið, þar sem áhöfnin hefur verið í
fríi, en skipið fer aftur í loðnurann-
sóknir um miðja þessa viku. Rann-
- sóknaskipið Bjarni Sæmundsson lá
hins vegar í mynni Seyðisfjarðar á
mánudag vegna brælu. Ekki hefur
verið ákveðið hvenær loðnuleiðangri
rannsóknaskipanna lýkur en Árni
Friðriksson verður í leiðangrinum
fram í miðjan næsta mánuð að
minnsta kosti.
lega lánafyrirgreiðslu til Sovét-
manna til að auðvelda þeim að
efna kaupsamninga fyrir árið
1990. Fundurinn með Borisov stóð
í eina klukkustund en álitið er að
hann sé einna helst í aðstöðu til
að koma fram lausn þessaramála.
Þegar niðurstöður af athugun-
um Borisovs liggja fyrir verður
íslenska sendiráðið í Moskvu látið
vita en ekki er gert ráð fyrir að
formlega verði undirrituð ný við-
skiptabókun íslendinga og Sovét-
manna fyrr en fengin er niður-
staða varðandi þau viðskipti, sem
óútkljáð eru.
Fulltrúar íslenskra útflytjenda
ræddu einnig í Moskvu á mánudag
og þriðjudag við forstjóra og að-
stoðarforstjóra Sovrybflot, sem
verið hefur aðalkaupandi íslenskra
sjávarafurða í Sovétríkjunum en
Soviybflot hefur heyrt undir so-
véska sjávarútvegsráðuneytið.
Gylfi Þór Magnússon, fram-
kvæmda.stjóri hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna,_ Sæmundur
Guðmundsson hjá Islenskum sjáv-
arafurðum hf. (áður sjávarafurða-
deild Sambandsins) og Garðar
Sverrisson, framkvæmdastjóri
Sölusamtaka iagmetis, fóru frá
Moskvu á þriðjudag en Einar
Benediktsson, framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar,, verður
áfram í Moskvu til að fylgjast með
gangi mála.
IkU LíiiMín