Morgunblaðið - 23.01.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 23.01.1991, Síða 4
-MoMÍÍnMjLÓÍÐ MÍDVlíá’DAÍdÓÍÍ ik: JÍÍíStAá' íoáí'1 ’ s H- Island og Litháen: Möguleikar skoðaðir á form- legn stjómmálasambandi -segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra VERIÐ að er skoða möguleika á að koma á formlegu stjórnmálasam- bandi við Litháen með því að skiptast á sendimönnum. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir þó að ýmis tormerki séu á þessu, vegna þess að Litháar séu hemumin þjóð, sem hafi ekki yfirr- áð yfír utanríkisþjónustu eða vegabréfaáritunum, og geti ekki tryggt réttindi sendiráðsstarfsmanna. Á blaðamannafundi, sem-utanrík- isráðherra hélt í gær, ræddi þann mögulegar aðgerðir Isiendinga til frekari stuðnings við Eystrasalt- slöndin. í fyrsta lagi gæti Alþingi sent sendinefnd til þjóðþinga land- anna, og benti ráðherrann m.a. á að sænska og norska þingið hefðu þegar gert slíkt. Þá benti hann einn- ig á að Pólland, Ungverjaland og Tékkóslóvakía hefðu komið á bein- um tengslum við þjóðþing Eystra- saltsríkjanna með því að skiptast á fastafuiltníum við þau. í öðru lagi sagði Jón Baldvin að íslendingar ættu að taka mann- réttndabrot Sovétmanna í Eystra- saltslöndunum upp innan Ráðstefn- unnar um öiyggi og samvinnu íf Evrópu og fara fram á að sett verði á stofn rannsóknarnefnd um málið. í þriðja lagi ættu íslendingar ásamt öðrum Norðurlöndum að leggja það . til á allsheijarþingi Sameinuðu þjóð- anna að sett verði á stofn alþjóðleg ráðstefna um máleihi Eystrasalts- ríkjanna. í fjórða lagi ættu Islend- ingar að ítreka tilboð sitt um að bjóða Reykjavík sem fundarstað um þessi mál og í fímmta lagi að reyna að skapa samstöðu hjá vestrænum þjóðum um að fyrirhuguð efnahags- aðstoð ýmissa ríkja bandalaga og stofíiana við Sovétríkin verði endur- skoðuð í ljósi atburðanna í Litháen og Lettlandi. Jón Baldvin sagði að þjóðréttarleg staða Eystrasaltsríkjarina þriggja væri nokkuð ólík. Litháen hefði end- urreist lýðveldi sitt og leitaði eftir viðurkenningu á ríki sínu, m.a. með því að skiptast á sendifulltrúum við önnur ríki. Hin löndin tvö hefðu ekki gengið eins langt í sjálfstæðis- yfirlýsingum. Utanríkisráðherra sagði aðgerðir Borís Jeltsíns forseta Rússlands skiptu miklu máli í þróun mála, og það væri mikið fagnarðarefni að rússnesk yfirvöld vilji hafa samráða við Norðurlöndin um máleírii Eystr- asaltsríkjanna. Jón Baldvin lýsti ástandinu í Eystrasaltslöndunum, eins og það kom honum fyrir sjónir, og sagði ferð sína þangað hafa verið ómet- anlega reynslu fyrir stjórnmála- Morgunblaðið/Ragnar Axelsson. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra leggur blóm á minnis- varða um þá sem sovéski hersinn felldi í Vilnius í Litháen 13. þessa mánaðar. mann. Hann sagði meðal annars frá því, að sérsveitir sovéska innanríkis- ráðuneytisins, sem hann líkti við Svartstakka Hitlers, réðust inn á heimili ráðamanna í Eystrasaltsríkj- unum og legðu þar aJlt í rúst. Hátt- settur embættismaður í Litháen hefði fengið taugaáfall af þessum sökum, og einn af varaforsetum landsins hefði verið tekinn upp í bíl og honum misþyrmt. Utanríkisráð- herra sagði það óhugsandi, að ráða- menn í Kreml gætu þvegið hendur sínar af þessum aðgerðum, þar sem sérsveitimar heyrðu beint undir inn- anríkisráðherrann, Borís Pugo. VEÐURHORFUR í DAG, 23. JANÚAR YFIRLIT í GÆR: Skammt norðan af Jan Mayen er minnkandi 995 mb lægðardrag og 1.012 mb smálægð skammt sunnan af Vest- mannaeyjum hreyfist austnorðaustur. Milli Suður-Grænlands og Nýfundnalands er allmikil 968 mb djúp lægð sem hreyfist norð- norð-austur. SPÁ: Vaxandi suðaustan- og sunnar.átt með rigníngu eða súld um sunnan- og vestanvert landið en þurrt og víða léttskýjað norðaust- antil. Hlýnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestan strekkingur með skúrum eða slydduóljum um vestanvert landið en bjart veður austantíl. Hiti 2-6 stig. HORFUR Á FÖSTUDAU: Hvöss suðaustan- og sunnanátt og rign- ing víða um land, einkum á sunnan- og vestanverðu landinu. Hlýn- andi veður. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * # Snjókoma # * # ■j o Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða 5, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur JT Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma Akureyri Reykjavík hiti 7 3 veftur skýjaö rigning Bergen 2 súld Helsinki 0 skýjaft Kaupmannahöfn 3 léttskýjað Narssarssuaq 4-8 alskýjaft Nuuk +11 snjókoma Ósló 3 skýjað Stokkhólmur 0 skýjaft Þórshöfn 8 súld Algarve 14 helðskfrt Amsterdam 4 þokumóða Barcelona 8 místur Berlfn 3 þokumóða Chicago vantar Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt 4 skýjaft Glasgow 6 súldás. klst. Hamborg 3 súld Las Palmas vantar London 5 skýjaft Los Angeles 9 heiftskírt Lúxemborg 2 skýjað Madrfd 8 hálfskýjað Malaga 11 súld Mallorca 13 léttskýjaft Montreal +22 léttskýjað NewYork 12 skýjað Orlando vantar París 4 skýjað Róm 9 þokumóða Vín +2 þokumóða Washington vantar Winnipeg +4 snjókoma Morgunblaðið/Þorkell Emil Sæmundsson pípulagningamaður og Örn Jensson, deildarstjóri hjá Hitaveitu Reykjavíkur, skoða það sem eftir var af rörinu. Á minni myndinni sést vel hversu morkið rörið var orðið. Heitavatnsleiðsla gaf sig 1 Kópavogi: Ibúar stóðu í vatns- austri alla nóttina Vatnið olli skemmdum á sex íbúðum ÍBÚUM við Þverbrekku 4 í Kópavogi varð ekki svefnsamt í fyrrinótt. Heitavatnsrör gaf sig í íbúð á 7. hæð og rann vatnið alveg niður í kjallara og var nóg að gera hjá fólkinu fram undir morgun, við að , þurrka upp vatnið og forða innbúi Skemmdirnar urðu mestar í íbúð á annari hæð hjá Huldu Ásgeirsdótt- ur. Hún sagðist hafa vaknað upp úr klukkan tvö um nóttina. „Ég hélt að þetta væri lítið og fór að þurrka upp volgt vatnið. Þá fór allt í einu allt á flot og vatnið flóði út á stiga- ganginn," sagði Hulda. Hún sagði að slökkviliðið hefði komið með dæll- ur til að dæla vatninu út. Heitavatnsleiðslan gaf sig í útvegg vesturhliðar hússins, á sjöundu hæð. Vatnið rann niður vegginn og kom út úr honum á öllum neðri hæðum hússins. Kristinn Möller býr í íbúð- inni þar sem rörið bilaði. „Ég vakn- aði við mikinn hvin um hálf þijú og hélt að þetta væri úti. Síðan uppgöt- vaði ég að hávaðinn var í veggnum hjá mér. Það kom ekki mikið vatn inn hjá mér, en ég náði þó upp einum fimm fötum af vatni,“ sagði Kristinn. Hann sagði það lán í óláni að leiðslan skyldi gefa sig að nóttu til því það hefði getað orðið mun meira tjón ef þetta hefði gerst að degi til þegar fáir íbúar eru heimavið. Þegar Morgunblaðið skoðaði að- stæður í gær var Emil Sæmudsson pípulagningamaður að gera við sprungna rörið á 7. hæð. Gatið á rörinu var ekki stórt, en tæring í rörinu var mjög mikil. Rörið var á frá skemmdum. kafla eins og gamalt gatasikti og sagði Emil þetta óeðlilega endingu á vatnslögnum því húsið væri ekki það gamalt. Húsið var byggt á árunum 1972 og 1973. Skemmdir urðu tölverðar en ekki var búið að meta það í gær enda erfitt að gera það strax. Víða er parket á gólfum og skemmdir koma ekki strax fram á þvf. Hreinn Frímannsson, yfirverk- fræðingur Hitaveitu Reykjavíkur, segir að ekki hafi verið venju fremur mikið að gera hjá Hitaveitunni. Hann sagði að fjórar bilanir hefðu orðið í Kópavogi í fyrrinótt. Tvívegis hefði verið um vatnsinntök að ræða, en litlar skemmdir hefðu orðið. Ofn hefði gefíð sig í Þverbrekku 2 en þar hefði ekki verið um þrýstisprengingu að ræða. „Þrýstingur hefur verið heldur hærri en venja er, en í öllum húsum eiga að vera þrýstiminnkarar, sem minnka þrýstinginn, og öryggislokar sem taka við ef þrýstiminnkarinn bilar,“ sagði Hreinn og bætti því við að rörið sem gaf sig f Þverbrekku 4 hefði verið mjög ryðgað. Samkvæmt upplýsingum frá tryggingafélögunum bætir heimils- og húseigendatrygging skaða af yöldum vatnsleka sem þessum.____»

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.