Morgunblaðið - 23.01.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1991
19
Loftárásir Bai)damanna
og loftvarnir Iraka
5.400 m
O
O Sprengjuvélin sleppir klasa-
sprengjunni 800-1.300 m
frá skotmarkinu.
©Sprengjuhylkið opnast yfir flug
vellinum, en úr því fellur stór
sprengja, sem eyðileggur flug-
brautina.
@ Fjöldi lítilla sprengia siglir í kjölfar
þeirrar stóru. Þær dreirast í kring um
sprengigíginn og mynda e.k. jarð-
sprengiusvæði á flugbrautinni, en
fyrir vikið er óhægt að gera við brautina.
4.300 m
m
v,
3.000 m
1.500 m
\ Flugvélnr veriur vort
Fyrsta loftvarnaskothrið
Fyrsti möguleiki á
að koma skoti á vélina
Siðasti möguleikí
Fluavélin nálgast
á 300 Km/sek hraða
....(1.072 km/klst).
ZSU-23-4
23 tnm fallbyssa er eitt árangurs-
ríkasta loftvarnavoon i neimi
ásamt loftvarnaflugskeytum á
borð við SA-6, en.at þeim eiga
írakar gnótt.
Heimild: Modem Lond Combot eftir David Miller og Christopher F. Foss. Reuter.
Genfarsáttmálinn:
írökum er skylt að vemda
stríðsfang'a sína skílyrðislaust
Lundúiium. Daily Telecnraph,
BANDARÍSK stjórnvold hafa ít-
rekað sagt að stríðið fyrir botni
Persaflóa verði ekki annað Víet-
namstríð. Hingað til hefur flest
bent til þess að þetta reynist rétt.
A sunnudag gerðist hins vegar
atburður sem minnir mjög á
stríðið í Víetnam — flugmenn
bandamanna, sem írakar höfðu
tekið til fanga, voru látnir koma
fram í sjónvarpinu í Bagdad, þar
sem þeir hvöttu til þess að endi
yrði bundinn á striðið.
Það er tilgangslaust að velta því
fyrir sér hvernig stríðsfangarnir
voru fengnir til að tala á þennan
hátt. Þeir kynnu einfaldlega að
hafa sætt pyntingum. Ef til vill létu
þeir undan til að geta fullvissað
ættingja sína um að þeir. væru enn
á lífi og vera kann að yfirmenn
þeirra í hernum hafi sagt þeim að
bregðast þannig við.
Það sem skiptir hins vegar meira
máli er að sýningin á flugmönnun-
um gefur vísbendingar um hvernig
írakar hyggjast koma fram við
stríðsfanga sína. Þeir hafa undirrit-
að Genfarsáttmálann um meðferð
stríðsfanga. Þar er kveðið á um að
koma verður fram við þá á mannúð-
legan hátt, flytja þá til öruggra
staða utan átakasvæða, sjá þeim
fyrir sómasamlegu húsnæði og
fæði. Einnig kemur þar skýrt fram
að ekki má beita þeim sem gíslum.
Skýra verður frá handtöku
stríðsfanga opinberlega og fulltrúar
hlutlausrar stofnunar eða ríkis
verða að geta fylgst með því að
farið sé eftir sáttmálanum. Alþjóða-
ráð Rauða krossins hefur einkum
gegnt þessu hlutverki á undanförn-
um áratugum.
Mismunandi viðhorf eftir
heimshlutum
Genfarsáttmálinn á rætur að
rekja til siðareglna vestrænna
herja, sem byggja síðan á kristnum
siðalögmálum. Kjarni þessara
reglna er að hermaður sem leggur
niður vopn glatar þar með mögu-
leikanum til sjálfsvarnar. Óvininum
sem fellst á uppgjöf hans ber þá
skylda til að vernda líf hans. Ekki
er hægt að víkjast undan þessari
skyldu, samkvæmt sáttmálunum.
Sá sem ber ábyrgð á föngunum
verður, ef nauðsyn krefur, að fórna
eigin lífi til að vernda þá.
111 meðferð óréttlætanleg
Þeir sem aldir hafa verið upp við
Þannig kom breski stríðsfanginn John Peters fyr-
ir sjónir í íraska sjónvarpinu á sunnudag.
Bandaríski flugmaðurinn Jeffrey Norton Zaun var
illa útleikinn þegar hann var sýndur í sjónvarpinu
i Bagdad.
kristindóm ættu að skilja þessar
siðareglur, þótt kristnir menn hafi
oft verið staðnir að því að bijóta
þær. Þjóðir í öðrum menningar-
heimum hafa ekki alltaf haft sömu
viðhorf til stríðsfanga. Rómverjar
drápu oft skrælingja, sem þeir tóku
til fanga, þegar þeim þóttu þeir
gagnslausir. Fyrr á tímum hnepptu
múslimar oft trúbræður sína í þræl-
dóm, oft til að gera þá að hermönn-
um, þar sem Kóraninn bannar þeim
að beijast við þá. Þijár milljónir
rússneskra fanga dóu í fangabúðum
nasista í síðari heimsstyijöldinni af
vosbúð, hungri og þrælkun. Japanir
höfðu ekki undirritað Genfarsátt-
málann í heimsstyijöldinni síðari
og samkvæmt siðareglum japanska
hersins bar hermönnum hans að
fórna sér fyrir keisarann. Hann
hafði aðeins sæmd af því að fara
af vígvellinum sem lík eða sigurveg-
ari. Vestrænir hermenn, sem gáfust
upp, höfðu því í augum Japana
kosið að verða sér til skammar
fremur en að deyja. Því veigruðu
þeir sér ekki við að misþyrma stríðs-
föngum sínum, svelta þá og koma
þeim jafnvel fyrir við hugsanleg
skotmörk bandarískra sprengju-
þotna.
111 meðferð er óréttlætanleg
Svo virðist sem Irakar hyggist
beita álíka aðferðum og Japanar.
íraski sendiherrann í Lundúnum
hefur sagt að Irakar ætli að beita
stríðsföngunum sem „skjöldum af
holdi og blóði“ þar til þotur fjöl-
þjóðahersins við Persaflóa hætti að
gera árásir á íbúðarhverfi í írak.
Genfarsáttmálinn gefur hins vegar
ekki færi á neinum fyrirvöi-um. Slík
meðferð á stríðsföngum brýtur
einnig í bága við þær greinar í sátt-
málanum sem banna gíslatöku og
kveða á um að þeim skuli fluttir á
örugga staði.
Grein 3 í sáttmálanum, eftir end-
urskoðun hans árið 1949, bannar
að stríðsfangar séu „svívirtir, auð-
mýktir og niðurlægðir". í grein 13
segir að „stríðsfanga verður ávaltt
að vernda, einkum gegn . . .forvitni
almennings". í grein 14 kemur fram
að stríðsfangar eiga undir öllum
kringumstæðum rétt til að virðing
sé borin fyrir þeim sem einstakling-
um og ekki megi lítillækka þá.
Ráðherrar í ríkisstjórn íraks,
einkum þeir sem fara með utanrík-
is- og dómsmál, vita að með því
að sýna stríðfanga sína í sjónvarpi
gerðust írakar brotlegir við allar
þessar greinar. Þeir geta ekki rétt-
lætt illa meðferð á fÖngunum með
því að saka óvinina um að gera
árásir á óbreytta borgara þar sem
i Genfarsáttmálanum er ekki gefið
færi á neinum fyrirvörum. (Auk
þess bendir ekkert til að staðhæf-
ingar íraka séu á rökum reistar.)
Irösk stjórnvöld hafa því brotið
alþjóðalög. Einnig er hægt að draga
einstaka íraka til ábyrgðar því í
Genfarsáttmálanum segir að þeir
sem bijóta gegn honum eigi réttar-
höld yfir höfði sér.
Þar sem írakar hafa undirritað
Genfarsáttmálann verða þeir að
fara eftir honum og ekki er hægt
að réttlæta stríðsglæpi þeirra með
því að vísa til þess að siðareglur
araba og Vesturlandabúa séu
ólíkar.
Mikíll ör-
yggisvið-
búnaður
á Italíu
Telja að allt að
300 hermdar-
verkamenn
séu í Evrópu
Flórens. Frá Bergijótu Leifsdóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins. Róm, Re-
uter.
Á Italíu er talið að allt að
300 hermdarverkamenn séu
í Evrópu, reiðubúnir til að
fremja óhæfuverk í samræmi
við fyrirskipun _ Saddams
Husseins, forseta Iraks. Líkt
og víðar í Evrópu hefur ferð-
amannaiðnaðurinn á Ítalíu
orðið fyrir þungum áföllum
vegna styijaldarinnar fyrir
botni Persaflóa.
Stríðsóttinn skilaði sér inn á
heimili manna hér í Flórens í
gegnum fjölmiðla og sérstak-
lega urðu margir hræddir eftir
að ríkissjónvarpsstöðin RA-
IUNO hafði sýnt viðtal við
Saddam Hussein, sem frétta-
stjóri stöðvarinnar í Bagdad
hafði tekið. Flórensbúar flykkt-
ust í verslanir og stórmarkaði
til að birgja sig upp af mat og
létu yfirlýsingar stjórnvalda
þess efnis að nóg væri af birgð-
um í landinu sem vind um eyru
þjóta. Þá þóttu það ekki gleði-
tíðindi er yfirvöld boðuðu að
þeir sem gegnt hefðu herþjón-
ustu á árunum 1983-1989 yrðu
hugsanlega kallaðir út.
A méginlandi Evrópu óttast
menn mjög að palestínskir
hryðjuverkamenn muni láta- til
sín taka. Þann 18. þessa mán-
aðar var íraki einn, Khalid
Dunham al-Jawary, handtek-
inn á aðalflugvelli Rómar.
Hann hefur verið eftirlýstur
undanfarin 18 ár fyrir að hafa
reynt að standa fyrir sprengju-
tilræði í New York þegar Golda
Meir, Jiáverandi forsætisráð-
herra Israels, var þar í opin-
berri heimsókn. Öflugri gæslu
er haldið uppi við ríkisfýrirtæki
hér í Flórens af ótta við hryðju-
verk líkt og í öðrum ítölskum
borgum. Hið sama gildir um
flugvöllinn og bænahús gyð-
inga hér í borg. Á fyrsta degi
styijaldarinnar við Persaflóa
var bensínsprengju varpað inn
um hlið útibús Harward-
háskóla í Flórens og eftir þann
atburð var námsmönnum við
útibú allra bandarískra háskóla
í borginni ráðlagt að snúa heim
til Bandaríkjanna. Flestir stúd-
entanna hafa hins vegar hunds-
að þessi tilmæli enn sem komið
er.
Reiknað er með að hótel-
pantanir á Ítalíu í ár dragist
saman um heil 70 til 80% og
lítil aðsókn hefur verið að
PITTI-vörusýningunum sem
fram fara á ári hveiju. Þess
má geta að um síðustu helgi
var aðeins einn gestur á fimm
stjarna hóteli í miðborg Flórens
en þar eru 110 herbergi.
Flugfélög og ferðaskrifstof-
ur hafa einnig orðið hart útí.
Almenningur er tekinn að af-
panta ferðir til fjarlægra landa
og áætlunarflug hefur gengið
illa.
• Tíu starfsmenn íraska
sendiráðsins í Róm voru reknir
úr landi í gær í mótmælaskyni
við þá ákvörðun íraka að flytja
stríðsfanga sína til hugsanlegra
skotmarka herþotna fjölþjóða-
hersins við Persaflóa. ítalskur
flugmaður var á meðal stríðs-
fanganna, sem sýndir voru í
íraska sjónvarpinu á sunnudag.