Morgunblaðið - 23.01.1991, Side 21
MORGUNBLÁÍÆÐ MIOVIKUDAGUR 23. JANOAR 1991'
21
B-52G sprengjuflugvól
Bandaríkjaher hefur um 260 B-52G sprengju
flugvélar í þjónustu sinni. Flestar eru
hluti af kjarnorkuflugflotanum, en
um 70 eru búnar til hefóbund-
inna sprengjuórósa.
Framleiðandi: Boeing Co. (aðallega i Wichita i Konsos).
Fyrst flogið: 1952.
Ánöfn: 6 (flugstjóri, aðstoðarflugstjóri, siglingo-
fræðingur, ratsjórtæknor og skytto).
Lengd: 49 m
Vænghaf: 56 m
Hæð: 12,5 m
Hómarkshraði: 957 km/klst.
Vélar: 8 Prott & Whitney þotuhreyflor.
KKW—Heimildii: USHI Mililmy Dotabase, Wichita £'agle.
Sprengjufarmurinn
getur verió allt að
27 tonn.
.... *• Vélin getur borið 24
•••• ..
4UU kg sprengjur
undir vængjunum.
Vélin getur borið ollt oð 84
250 kg sprengjur i sprengju-
rýminu í skrokknum.
Urvalssveitir Saddams Iraksforseta við landamæri Kúveit og Iraks:
B-52 sprengjuvélar „teppaleggja^
stöðvar Lýðveldisvarðarins
FRAM til þessa hafa loftárásirnar í Persaflóastyrjöldinni verið fram-
kvæmdar með háþróuðum vopnum og tækjabúnaði. Fréttamenn sem
nýkomnir eru frá höfuðborg Iraks, Bagdad, hafa lýst því er þeir sáu
Tomahawk-stýriflaugar fara eftir götum borgarinnar og taka síðan
snögga beygju til hægri við götuljós áður en þær hæfðu skotmarkið.
Fréttastjóri breska útvarpsins BBC í höfuðborginni sá eina slíka fara
þrjá hringi umhverfis al-Rasheed-hótelið þar sem hann bjó áður en
hún hélt áfram leit sinni að skotmarkinu. Franskur blaðamaður sagði
í viðtali við komu sína til Amman í Jórdaníu að loftárásirnar á Bagdad
hefðu einna helst líkst „smásjáraðgerð", slík hefði nákvæmnin verið.
Loftárásirnar sem nú eru hafnar á Lýðveldisvörðinn, úrvalshersveit-
ir Saddams forseta við landamæri Kúveit og íraks, fara ekki fram
með þessu hætti; þær minna frekar á loftárásir þær sem menn kynnt-
ust á árum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Sprengjuflugvélum af gerðinni
B-52 er einkum beitt í því skyni að
uppræta stöðvar Lýðveldisvarðar-
ins. Sveitir þessar eru með réttu
nefndar úrvalssveitir Saddams ír-
aksforseta og það var þessi liðsafli
sem fór fyrir innrásarliðinu inn í
Kúveit 2. ágúst sl. Herliðið sem tel-
ur átta herdeildir, að öllum líkindum
um 150.000 menn, hefur komið sér
fyrir. við landamærin á mjög stóru
landsvæði. Bryndrekarnir eru
grafnir niður sem og stjórnstöðvar,
sem margar hveijar a.m.k. eru
sprengjuheldar. Hermennirnir haf-
ast við í skotgröfum og eru ávallt
búnir til bardaga.
Lýðveldisvörðurinn og stríðið
við Irani
Ljóst virðist að herstjórn banda-
manna hyggst fresta öllum aðgerð-
um á landi og innrás í Kúveit þar
til fyrir liggur að loftárásir þessar
hafi skilað tilætluðum árangri. Er
þetta til marks um þá virðingu sem
hersveitir þessar njóta í röðum óvin-
arins sökum frammistöðu þeirra í
stríðinu blóðuga við íran. Einkum
er mönnum minnistæð sókn þeirra
gegn sveitum Irana á Fao-skaga
árið 1988, sem talinn var sérlega
mikilvægur í hernaðarlegu tilliti í
stríðinu því. Iranir höfðu náð skag-
anum á sitt vald tveimur árum áður
og þótti hernaðarsérfræðingum sýnt
að erfitt yrði, ef ekki ómögulegt,
fyrir íraka að hrekja fylgismenn
Khomeinis erkiklerks þaðan, Þeir
hinir sömu ráku upp stór augu er
í ljós kom að Lýðveldisvörður Iraka
hafði náð þessu markmiði á aðeins
fáeinum klukkustundum. Hins veg-
ar gátu írakar vafalítið þakkað Sov-
étmönnum þennan sigur, að hluta
til, því skömmu áður hafði þeim
borist mikill fjöldi háþróaðra vopna
frá Moskvu-stjórninni. Þá vann Lýð-
veldisvörðurinn einnig auðvelda
sigra á „sjálfboðaliðasveitum“ Ir-
ana; þúsundum ungra drengja sem
æddu út í dauðann, berfættir og lítt
eða ekkert vopnaðir, með nafn Mú-
hameðs spámanns á vörum.
1.300 sovéskir skriðdrekar
Almennt er litið svo á að megin-
hluti vopnabúnaðar Lýðveldisvarð-
arins sé ekki sambærilegur við fuíl-
komnustu stríðstól hersveita banda-
manna. A hinn bóginn blasir við að
liðsafli þessi verður ekki auðsigrað-
ur í landorustum; talið er að Lýð-
veldisvörðurinn ráði yfir 500 sovésk-
um T-72 skriðdrekum, sem þykja
mjög öflugir, og um 800 eldri skrið-
drekum af gerðinni T-62. Má telja
líklegt að liðsafla þessum verði beitt
til snarprar gagnsóknar gegn her-
sveitum bandamanna þegar þeim
hefur tekist að bijþtast í gegnum
framvarðarstöðvar íraka í Kúveit.
B-52-flugsveitunum hefur verið
falið að gera stórfelldar og svæðis-
bundnar loftárásir á stöðvar úr-
valssveitanna. Þessari árásaraðferð
hefur verið líkt við „teppalagningu"
og nefnist raunar á ensku „Carpet
Bombing". Hver B-52-þota ber allt
að 108, 250 kílóa sprengjur. Þær
lúta ekki sjónvarps- og leysistýringu
líkt og mörg þau vopn sem banda-
menn hafa einkum treyst á til þessa;
þær hafa aðeins að geyma sprengi-
efni. Þijár flugvélar gera yfirleitt
árásir samtímis úr mikilli hæð til
að forðast loftvarnarskothríð íraka.
Orustuþotur fylgja jafnan sprengju-
flugvélum til að veija þær gegn
hugsanlegum árásum þotna íraka.
Hver þota getur „teppalagt" á að
giska 2.000 fermetra svæði. Hæfi
sprengja skriðdreka er sá úr sög-
unni og sprengja sem hafnar nærri
skotgröf gerir það að verkum að
hún hrynur og hermennirnir kafna
í eyðimerkursandinum.
Birgðaflutningar hindraðir
Hins vegar beinast árásir B-52-
sprengjuvélanna_ ekki sérstaklega
að bryndrekum íraka. í Falklands-
eyjastríðinu komust Bretar að því
að sprengju- og stórskotaliðsárásir
duga ekki til að bijóta baráttuþrek
hermanna óvinarins á bak aftur og
Lýðveldisvörðurinn er ýmsu vanur
eftir að hafa barist við írani í átta
ár á vígstöðvum Persaflóastríðsins.
Tilgangurinn með sprengjuárásun-
um er einkum sá að hindra birgða-
flutinga til úrvalssveitanna. Herafli
sem þessi þarf á gífurlegum birgð-
um matar og skotfæra að halda.
Talið er að fjórar milljónir lítra af
vatni renni um kælikerfi skriðdreka
Lýðveldisvarðarins í hverri viku.
Hermennirnir þurfa enn meira.
Eldsneyti og matur bókstaflega
brennur upp. Það er erfitt að fela
birgðastöðvar og það eru einkum
þær sem áhafnir sprengjuvélanna
eru að leita að. Eldsneytis- og
vatnstankar hafa trúlega verið
grafnir niður en sprengiradíus
hverrar 250 kílóa sprengju er á að
giska 200 metrar.
Norman Schwarzkopf, yfirmaður
herstjórnar bandamanna í Saudi-
Arabíu, hefur sagt að hugsanlega
verði unnt að vinna sigur á vígvél
Saddams Hussein án þess að til
landbardaga komi. Það á eftir að
koma í ljós á næstu vikum.
Byggt á The Daily Telegraph o.fl.
HELGARFERÐIR I JANÚAR FEBRÚAR OG MARS
Skemmiiskrepp um helgi,
kostar ekki uiiloð***
»»mJ0flLeÍ3 Flugleiöum.
Skotpallar Scud-eldflaug-a:
_
Bjuggu Irakar
til eftirlíking-
ar úr pappa?
London. Reuter.
ÞAÐ er talið hugsanlegt að írakar hafi komið fyrir eftirlíkingum
af skotpöllum Scud-eldflauga víðs vegar um landið. Archie Hamil-
ton, aðstoðarvarnamálaráðherra Breta, sagði í samtali við Sky-
sjónvarpsstöðina að það gæti verið að fjölþjóðaliðið hefði að hluta
til verið að eltast við pappaeftirlíkingar.
„Það er mögulegt að þegar við
höfum talið okkur vera að eyða
skotpalli Scud-eldflaugar þá höf-
um við í raun verið að skjóta á
.aftirlíkingu úr pappa og kros-
sviði,“ sagði Hamilton. Hann var
spurður hvort skýringin á því að
írökum hefði tekist að blekkja fjöl-
þjóðaherinn gæti verið gloppur í
hernaðarnjósnum bandamanna.
Svaraði hann þvi til að eftirlíking-
arnar væru mjög vel gerðar og
erfitt að greina þær frá ekta skot-
pöllum.
Heimildarmenn Reuters-frétta-
stofunnar í Amman í Jórdaníu
segja að írakar hafi komið pla-
steldflaugum fyrir nærri Habaniy-
ah-stíflunni í vesturhluta íraks.
Við plasteldflaugamar væru tæki
sem gæfu frá sér sömu rafeinda-
boðin og ekta Scud-eldflaugar.
Talað er að eldflaugum hafi verið
skotið á ísrael úr tveimur her-
stöðvum í nágrenni stíflunnar sem
kallaðar eru H2 og H3.
s
o
5
Fyrir þá sem vilja sameina fallegt umhverfi, þægilega stemmningu og góða
veitingastaði er Osló rétta borgin. Heilbrigt mannlíf og falleg útivistarsvæði setjs
svip sinn á borgina og hver árstíð hefur sína töfra og aðdráttarafl.
Helgarferð til Osló... ósvikin skemmtiferð.
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
HÓTEL MUNCH
TVEIR í HERB. KR. 34.270 Á MANN
FLUGLEIÐÍR
Þjónusta alla leið
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjarqötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söfuskrifstofum Flugíeiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
■zga