Morgunblaðið - 23.01.1991, Page 29
itifil HAtMAl ,8S HIJOAaUSIVQÉlM QIGAJf 1VI'JOHOM
“MORGUNBLAÐIÐ “MIÐVIKUD-AGUR-237-JAIWAR-1991'
Skattaþrældóm-
ur — fjölmiðlafár
eftirPál V.
Daníelsson
Mikið fjaðrafok hefur verið út
af því að fólk hefur lagt sparifé sitt
í kaup á hlutabréfum. Fár hefur
hlaupið í fjölmiðla, sem rekið hafa
svo einhæfa fréttamennsku að
stundum hefði nú verið sagt að
tómarúm væri á vissum stöðum.
Fyrir nokkrum árum rausnaðist
alþingi til að samþykkja lög þar sem
létta ætti einstaklingum að leggja
fé í atvinnurekstur með því að upp-
hæðir að vissu marki væru frádrátt-
arbærar til skatts. Var um þetta
talað sem mikinn stuðning við at-
vinnulífið, bæði að það styrkti eig-
infjárstöðu fýrirtækja og gæfi al-
menningi kost á að taka þátt í at-
vinnurekstrinum. Þetta var nú
góðra gjalda vert. En Adam var
ekki lengi í Paradís. Komst ekki inn
fyrir dyrnar því þegar að fram-
kvæmdinni kom voru sett svo þröng
skilyrði að það voru eingöngu örfá
stórfyrirtæki sem gátu fullnægt
þeim. Vaxtarbroddur atvinnulífsins,
sem liggur í smáfyrirtækjunum, var
settur út í kuldann.
Holskefla vaxtaokurs
Þegar holskefla vaxtaokurs og
verðtrygginga eftir vafasömum við-
miðunarreglum reið undirbúnings-
laust yfir fyrirtæki og einstaklinga
fór þjóðfélagið úr skorðum. Ekki
bætti úr skák þegar innleitt var og
lögverndað svokallað vaxtafrelsi til
handa bönkum og verðbréfamörk-
uðum og þeim gefin laus höndin
með að bjóða í fjármagnið hverjir
í kapp við aðra. Þannig var verð-
bólgunni hleypt upp. Atvinnurekst-
urinn neyddist til þess að taka lán
með þeim kjörum sem upp voru
sett, því skattareglur vernduðu fé
á fjármagnsmarkaðnum en lítið eða
ekki í atvinurekstrinum. Atvinnulíf-
ið, einstaklingarnir og opinberir
aðilar urðu því að sæta afarkostum,
sem leitt hafa af sér gjaldþrot í
stórum stfl svo og skattahækkanir
og erlendar lántökur. Afleiðingin
er sú að annars vegar hefur safn-
ast mikill auður á fáar hendur og
hins vegar atvinnuleysi og mikil
fátækt. Að sleppa fjármagninu
lausu boðar ekki almenna hagsæld
heldur grimmd og miskunnarleysi,
það þekkja þeir sem í höndum þess
lenda.
Þarf ekki að draga
úr atvinnuleysi?
Allt hefur þetta valdið miklum
átökum í þjóðfélaginu og ekki séð
fyrir hver endirinn verður. En
margur er þó að reyna að þrauka,
klóra í bakkann og reyna að aðlag-
ast því þjóðfélagi sem við byggjum
í dag. Þess vegna hafa æ fleiri
hlutafélög, eftir að rýmkað var um
skattareglur varðandi eigið fé og
öflun þess, farið út á þá braut að
gera þau að almenningshlutafélög-
um og hlutabréf í þeim verið boðin
til kaups.
Töluverð sala varð á hlutabréfum
á sl. ári. Og þá ætlar allt um koll
að keyra. Hvað veldur þetta miklu
skattatapi hjá ríkissjóði er spurt?
Og illu heilli eru komnar upp radd-
ir um að undir lekann verði að setja
og hefta það að hinn almenni mað-
ur geti keypt hlutabréf og fengið
skattafslátt. Alltaf skal ráðast á
þann sem minna má sín. En hvern-
ig væri að líta á það hvort aukin
hlutabréfasala hafí ekki styrkt at-
vinrtureksturinn. Þurfum við ekki á
fyrirtækjunum að halda til þess að
stöðva vaxandi atvinnuleysi og gera
þau færari um að bera hina sívax-
andi skattbyrði? Af hveiju líta
fréttamenn ekki á þessa hlið mál-
anna?
Páll V. Daníelsson
„Það er af hinu góða
að fólk kaupi hlutabréf.
Meginhluti fólks gerir
það sér til hagsbóta og
til eflingar atvinnulíf-
inu.“
Öllum best að
atvinnulífið blómgist?
Ég heid að fólk verði að hugsa
áður en það talar í þessu máli. Ef
engiíin er hvatinn til að byggja at-
Vinnulífið upp er hætt við að víða
verði þröngt fyrir dyrum, jafnvel
hjá íjölmiðlafólki. Og eigi að setja
fótinn fyrir þessa örlitlu glufu, sem
hinn almenni launþegi hefur fengið
til þess að hafa möguleika á að
taka þátt í atvinnurekstri svo og
að hindra fyrirtækin í því að auka
eigið fé sitt og komast þannig hjá
því að leita í miklum mæli á hinn
rándýra fjármagnsmarkað er illa
farið. Sannleikurinn er sá að þann-
ig þarf það opinbera að búa að at-
vinnurekstrinum að það eigidfé sem
í honum er bundið gefi að jafnaði
bestan arðinn. Það er sú leið sem
getur haldið fjármagnsmarkaðnum
og vaxtaokrinu í skefjum og bætt
hag einstaklinga, fyrirtækja og op-
inberra aðila.
Það er af hinu góða að fólk kaupi
hlutabréf. Meginhluti fólks gerir
það sér til hagsbóta og til eflingar
atvinnulífinu. Þótt einhver hafi orð-
ið bráð einhæfra skattalegra gylli-
auglýsinga þeirra er önnuðust
hlutabréfasölu og keypt hlutabréf
með það eitt í huga að njóta skatt-
fríðinda en ætli að selja bréfín fljótt
aftur þá sjá núgildandi lög fyrir að
erfitt er um vik að leika slíkan leik.
Misnotkun þeirra fáu í þessum efn-
um má hvorki láta bitna á öllum
almenningi né atvinnulífinu. Það
væri þjóðarslys.
Höfundur er viðskiptafræðingur■
AUGLYSINGAR
KENNSLA
Saumanámskeið
Ný saumanámskeið að hefjast.
Uppiýsingar í símum 679440 og 611614 eft-
ir kl. 14.00.
Björg ísaksdóttir,
sníðameistari.
Þýskunámskeið
Germaníu
hefjast á ný mánudaginn 28. janúar 1991.
Kennsla verður sem hér segir:
Byrjendur(nýir).. mánud. 20.15-21.45
Byrjendur (frá fyrra ári þriðjud. 20.15-21.45
Framhald I ...... þriðjud. 18.45-20.15
Framhaldlll ..... mánud. 18.45-20.15
Framhald IV...... þriðjud. 18.45-20.15
FramhaldV........ fimmtud. 18.45-20.15
FramhaldVI ...... mánud. 18.45-20.15
Kennt verður í Lögbergi, Háskóla íslands,
annarri hæð.
Upplýsingar eru gefnar í síma 10705.
Nýir þátttakendur velkomnir í alla hópa.
HEIMILISIÐN AÐ ARSKÓLINN
Sími 17800
Námskeið sem byrja
ífebrúar:
Vefnaður
Spjaldvefnaður
Fatasaumur
Baldýring
Bútasaumur
Tauþrykk
Leðursmíði
Útskurður
Prjóntækni,
framhaldsnámsk.
4. febrúar- 7.
6. febrúar-27.
5. febrúar- 2.
5. febrúar-12.
4. febrúar-11.
4. febrúar-11.
7. febrúar-28.
5. febrúar-26.
7. febrúar-28.
mars.
febrúar.
mars.
mars.
mars.
mars.
febrúar.
mars.
febrúar.
Námskeið skólans eru opin öllum án inntöku-
skilyrða. Skráning er á skrifstofu skólans,
Laufásvegi 2, í síma 17800.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
Félag háskólakennara
Áríðandi fundur í Félagi háskólakennara
verður haldinn í Odda fimmtudaginn 24. janú-
ar kl. 17.00.
Fundarefni: Kjarasamningur.
Stjórn F.H.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Framboðsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Bíóborg (áður
Austurbæjarbíó) miðvikudaginn 23. janúar
1991 kl. 17.00. ,
Dagskrá:
Komandi stjórnarkosningar í Dagsbrún.
Dagsbrúnarmenn eru beðnir um að koma
beint úr vinnu.
Atvinnurekendur eru beðnir um að hindra
ekki að menn komist á fundinn.
Félagar fjölmennið.
Stjórn Dagsbrúnar.
: ÝMISLEGT
Innflytjendur athugið!
Önnumst markaðssetningu og sölu á ýmsum
tæknibúnaði ásamt öðrum vöruflokkum.
Margt kemur til greina.
Vinsamlegast sendið inn upplýsingar á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 25. janúar merktar:
„I - 8817“.
Málverkauppboð
Höfum hafið móttöku á myndum fyrir uppboð
sem haldið verður 3. febrúar nk. Myndir
þurfa að hafa borist fyrir 30. janúar.
BORG
Pósthússtræti 9
Austurstræti
sími 24211.
TIIKYNNINGAR
Símaþjónusta fyrir
heyrnarskerta
Upplýsingadeild Tryggingastofnunar hefur
tekið í notkun textasfma.
Símanúmerið er 91-60 45 47:
TRYGGINGASTOFNUN
TILKYNNINGAR
Tilkynning frá
Skíðaféiagi Reykjavíkur
Mullersmótið í skíðagöngu
1991 fer fram í Bláfjöllum næst-
komandi laugardag 26. janúar
kl. 14.00. Skráning kl. 13.00 i
kaffiteríukjallaranum í Bláfjalla-
skálanum. Karlaganga 10 km,
konur, börn og öldungar 5 km.
Ef veður verður óhagstætt mun
það tilkynnt í Ríkisútvarpinu
keppnisdaginn kl. 10.00.
Upplýsingar í síma 12371.
Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur.
FEIAGSIIF
□ GLITNIR 59912317 - 1 Atkv.
□ HELGAFELL59911237 VI 2
I.O.O.F. 9 = 1721238'* =
I.O.O.F. 7 = 1721238'* =
□ MI'MIR 599125027 - 1
REGLA MUSTERISRIDDARA
RMHekla
23.1. VS. MT.
Flóamarkaður
Flóamarkaður hjá Hjálpræðis-
hernum, Kirkjustræti 2 í dag,
miðvikudag, frá kl. 10.00-17.00.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
SAMBAND iSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 i kvöld kl. 20.30.
Raeðumaður: Baldvin Steindórs-
son. Allir velkomnir.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Sönghópurinn Án skilyrða, Þor-
valdur Halldórsson stjórnar.
Prédikun og fyrirbænir.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Breski miðillinn Zena Davies
heldur skyggnilýsingafund
fimmtudaginn 24.01. kl. 20.30 á
Sogavegi 69.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
félagsins, Garðastræti 8, 2. hæð
- sími 18130.
Stjórnin.