Morgunblaðið - 23.01.1991, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANUAR 1991
Myrkir músíkdag'ar:
Ahersla á franska og
íslenska nútímatónlist
TÓN SKÁLD AFÉL AG íslands
gengst fyrir Myrkum músíkdög-
um í Reykjavík dagana 9,- 16. fe-
brúar. Níu tónleikar, innlendra og
erlendra tónlistarmanna, verða á
dagskrá hátíðarinnar sem haldin
er í samvinnu við franska menn-
ingarmálaráðuneytið, Symfóníu-
hljómsveit íslands og Kammer-
sveit Reykjavíkur. Sérstök áhersla
verður lögð á franska og íslenska
-*■ nútímatónlist en meðal flytjenda
eru Edda Erlendsdóttir, píanóleik-
ari, Manuela Wiesler, flautuleik-
ari, Roger Carlsson, slagverks-
leikari, og Elisíibeth Chojnacka,
semballeikari. Frumflutt verða
verk sjö íslenskra tónskálda.
steinsson, Kristinn Sigmundsson,
Hamrahlíðakórinn og Symfóníu-
hljómsveit íslands. Lokatónleikar
Myrkra músíkdaga verða í íslensku
óperunni laugardaginn 16. febrúr.
Þar leikur Elisabeth Chojnacka
sembalverk.
Að sögn Arnar Óskarssonar,
framkvæmdastjóra Myrkra músik-
daga, hefur dagskráin aldrei verið
jafn stór í sniðum og nú og benti
hann á að allir ættu að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi í dag-
skránni. Myrkir rhúsikdagar væru
kjörinn vettvangur til að kynnast
því nýjasta í tónlistarheiminum í
dag.
■
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lengst til vinstri á myndinni er Orn Óskarsson, framkvæmdasljóri Myrkra músíkdaga, næstur honum
situr Hjálmar H. Ragnarsson, formaður Tónskáldafélags íslands, þá Karólína Eiríksdóttir og Leifur
Þórarinsson úr stjórn félagsins.
Lágmarksverð á rækju lækkar um 5-11%:
Lækkun á lágmarksverði breyt-
ir í rauninni engu fyrir okkur
- segir Omar Karlsson skipsljóri á rækjubátnum Haferni HU
„ÞESSI lækkun á lágmarksverði rækju núna breytir í rauninni engu
fyrir okkur, þar sem þetta nýja lágmarksverð er það verð, sem við
höfum fengið á Hvammstanga í allan vetur," segir Ómár Karlsson,
skipstjóri á rækjubátnum Haferni HU, sem veiðir rækju í Húnaflóa
og landar henni hjá Meleyri hf. á Hvammstanga. Á fundi Verðlagsr-
áðs sjávarútvegsins á miðvikudag varð samkomulag milli fulltrúa
sjómanna, útgerðarmanna og kaupenda um 5-11% lækkun á lág-
marksverði rækju, að sögn Lárusar Jónssonar, framkvæmdastjóra
Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda. Nýja verðið gildir frá og
með 16. þessa mánaðar til 28. febrúar nk.
Hjálmar H. Ragnarsson, formað-
ur Tónskáldafélags íslands, sagði
á blaðamannafundi um Myrka
músíkdaga að tilgangur þeirra
hefði frá upphafi verið að veita
sólarljósi inn í líf fólks í svartasta
skammdeginu. Á því væri ekki síst
þörf á tímum styijalda og náttúru-
hamfara. Hann benti á að hátíðin
væri að þessu sinni haldin í sam-
vinnu við franska menningarmála-
ráðuneytið og sagði að áhersla yrði
lögð á að kynna ný tónverk og
færa hljóðfæraleikara.
Opnunartónleikar Myrkra
músikdaga verða í Áskirkju laugar-
daginn 9. febrúar klukkan 17.00
þar sem Reykjavíkurkvartettinn
leikur verk eftir Jón Leifs, Atla
Heimi Sveinsson, Þorkel Sigur-
björnsson og Karólínu Eiríksdóttur.
A sama tíma daginn eftir leikur
Edda Erlendsdóttir verk eftir inn-
_*enda og erlenda höfunda í íslensku
Óperunni og mánudaginn 11. fe-
brúar leikur sveit sem kallar sig
Caput tónlist eftir-Iannis Xenakis,
Jónas Tómasson, Lárus H. Gríms-
son og Kaiju Saariaho á sama stað.
Tónleikar Manuelu Wiesler verða í
íslensku Óperunni 12. febrúar
klukkan 20.00. Á tónleikunum leik-
ur Manuela meðal annars verk eft-
ir Kjartan Ólafsson, André Jolivet
og Kaiju Saariaho.
Næstir eru tónleikar franska
strengjasextettsins Le sextuor á
cordes de Lille. Tónleikarnir verða
haldnir í íslensku Óperunni 13.
febrúar klukkan 20.00. Þá leikur
Kammersveit Reykjavíkur verk eft-
__rír Jón Nordal í Langholtskirkju
fimmtudaginn 14. febrúar klukkan
20.00 en daginn eftir klukkan
17.00 í Norræna húsinu mun Atli
Heimir Sveinsson halda fyrirlestur
um óperu sína Víkivaki sem sýnd
var í sjónvarpinu um síðastliðna
páska. Föstudaginn 15. febrúar
klukkan 20.00 verða svo slagverks-
tónleikar Roger Carlsson á Kjarv-
alsstöðum. Leikin verða verk eftir
Iannis Xenakis, Per Norgárd og
frumflutt verk eftir Áskel Másson.
Stærstu tónleikarnir verða í
Háskólabíói laugardaginn 16. fe-
brúar klukkan 14.00 þar sem flutt
verða verk eftir Iannis Xenakis,
N’C. Thien Dao og Hróðmar Sigur-
björnsson. Flytjendur eru einsöngv-
ararnir Signý Sæmundsdóttir, Jó-
hanna Þórhallsdóttir, Jón Þor-
Ómar Karlsson segir að rækju-
verksmiðjur við vestanverðan
Húnaflóa hafi neitað að greiða Iág-
marksverð fyrir innfjarðarækjuna
í byrjun þessarar vertíðar.
„Við höfum nánast verið 1 með
þetta nýja lágmarksverð og höfðum
ekki efni á því að neita því, þar
sem við megum ekki selja rækjuna
þar sem við getum fengið hæsta
verðið fyrir hana,“ segir Ómar.
„Rækjuverksmiðjan á Hólmavík
neitaði í vertíðarbyrjun í nóvember
að greiða lágmarksverð fyrir rækj-
una en hún gerir það núna vegna
þess að sjómenn á Hólmavík neit-
uðu að róa fyrir lægra verð. Þá
greiddu verksmiðjurnar á Blöndu-
ósi og Skagaströnd enn lægra verð
fyrir rækjuna í nóvember síðast-
liðnum en verksmiðjan á Hvamm-
stanga.“
Ásgeir Blöndal, skipstjóri á
Húna HU, sem veiðir einnig rækju
í Húnaflóa en landar henni á
Blönduósi, segir að þar hafi verið
greitt lágmarksverð fyrir rækju
undanfarið. „Mér líst illa á þessa
verðlækkun á rækju núna,“ segir
Ásgeir.
Ömar Karlsson segir að rækju-
kvótinn í Húnaflóa sé 2 þúsund
tonn á þessari vertíð, eða 700 tonn-
um meiri en á síðustu vertíð, auk
þess sem rækjan sé stærri nú en
þá. Ómar segir að lágmarksverð
rækju hafi lækkað um 5% í haust.
„Við veiddum 75 tonn af rækju í
fyrra fyrir 6,4 milljónir en veiðum
90 tonn núna fyrir um 5,5 milljón-
ir. Við fengum tæplega 64 króna
meðalverð fyrir rækjuna fyrir þessi
áramót en menn fengu tvöfait
þorskverð fyrir rækjuna fyrir
nokkrum árum,“ upplýsir Ómar.
Hann segir að innfjarðarækjan
sé smærri en úthafsrækjan og
rækjuverksmiðjurnar yfirborgi allt-
af úthafsrækjuna. „Verksmiðjurn-
ar hafa álltaf greitt sama verð fyr-
ir djúprækjuna, sama hve smá hún
er og ég hef heyrt að greiddar
hafi verið allt að 120 l<rónur fyrir
kílóið af henni,“ segir Ómar Karls-
son.
„Við höfum gert samning um
kaup á rækjuverksmiðju, sem var
starfrækt í eitt sumar fyrir nokkr-
um árum á Patreksfirði. Þessi verk-
smiðja hefur vinnsluleyfi en hún
verður ekki starfrækt hér á þess-
ari vertíð,“ segir Jakob Kristinsson,
framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar
hf. á Bíldudal, en þar hefur einung-
is verið starfrækt ein rækjuverk-
smiðja, Rækjuver hf.
Tólf bátar hafa veitt rækju í
Afnarfirði en þrír þeirra hafa selt
aflann til ísafjarðar, til dæmis
Ýmir BA. Sindri Björnsson, skip-
stjóri á Ými, segist ekki hafa viljað
gera samning við Rækjuver um að
landa öllum rækjuafla Ýmis hjá
Rækjuveri á þessari vertíð fyrir
lágmarksverð Verðlagsráðs.
„Rækjuver bjó til löndunarsamn-
ing, sem við áttum að skrifa undir
þegjandi og hljóðalaust í haust.
Þrír rækjubátar hér mótmæltu því
hins vegar og þá var þessari einok-
un aflétt, þannig að við gátum flutt
rækjuna burtu,“ segir Sindri. Hann
segist fá lágmarksverð Verðlags-
ráðs fyrir rækjuna, sem hann selur
til Isafjarðar og því lítist honum
illa á þessa lækkun á lágmarks-
verðinu núna.
„Við róum áfram á —y
gamla rækjuverðinu“
„Við róum áfram á gamla rækju-
verðinu,“ segir Gunnar Karl Garð-
arsson, skipstjóri á Jörundi Bjarna-
syni BA, sem veiðir rækju í Árnar-
firði og selur hana Rækjuveri. „Ég
veit hins vegar ekki hve lengi við
fáum þetta verð greitt," segir
Gunnar Karl. Hann segir að
rækjukýótinn í Arnarfirði sé 700
tonn á þessari vertíð, eða 100 tonn-
um meiri en á síðustu vertíð. Rækj-
an í Arnarfirðinum sé aftur á móti
miklu stærri en rækjan í ísafjarðar-
djúpi.
Markaðsverð á rækju hefur
lækkað síðustu 6 mánuði um 20%
að minnsta kosti og er afurðaverð-
ið nú, einkum á smæstu rækjunni,
í engu samræmi við verð á rækju
upp úr sjó, að sögn Lárusar Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda.
Hann segir að tekjur framleiðenda
hafi einnig minnkað vegna þess að
greiðslum af innstæðum þeirra úr
Verðjöfnunarsjóði hafi verið hætt,
þar sem innstæðurnar séu tæmdar.
Lárus upplýsir að samkvæmt
mati Þjóðhagsstofnunar hafi tap
rækjuvinnslunnar verið 18% í októ-
ber og hún verði áfram rekin með
tapi, þrátt fyrir þessa lækkun á
Verðlagsráðsverðinu. „Þetta sam-
komulag var af hálfu fulltrúa Fé-
lags rækju- og hörpudiskframleið-
enda gert til skamms tíma, fyrst
og fremst með það að markmiði
að staða vinnslunnar verði tekin
út á næstu vikum og leitað leiða
til að koma í veg fyrir rekstrar-
stöðvun hennar,“ segir Lárus.
Hann segir að framleiðsluverð-
mæti pillaðrar rækju sé talið verða
4 til 5 milljarðar á þessu ári, en
framleiðsluverðmæti pillaðrar
rækju hafi verið um 3,7 milljarðar
í fyrra. Úthafsrækjukvótinn verði
um 28 þúsund tonn í ár, eða um 5
þúsund tonnum meiri en í fyrra.
Þá sé útlitið gott varðandi veiðar
á innfjarðarækju, en hún sé smá
og því fáist lágt verð fyrir hana.
Lárus segir að stærðarflokkum
á rækju hafi verið breytt til að
hvetja menn til að veiða stóra
rækju. Lágmarksverð á óskelflettri
rækju í vinnsluhæfu ástandi, er nú
77 krónur fyrir 200 stykki og færri
í kílói en sá flokkur er nýr. Lág-
marksverð fyrir 201-230 stykki í
kílói er nú 73 krónur en 64 krónur
fyrir 231-290 stykki í kílói, 58
krónur fyrir 291-350 stykki í kílói
og 28 krónur fyrir undirmálsrækju,
351 stykki og fleiri í kílói. Afhend-
ingarákvæði eru hins vegar
óbreytt.
--------------
Stykkishólmur:
Góðir gestir
í heimsókn
Verslunarráð Islands varar sveitarstjórnir við hækkun álagna:
HÓLMARAR fengu góða gesti
úr Húnavatnssýslu í heimsókn
sl. sunnudag.
Atvinnureksturimi þolir ekki hærri gjöld
VERSLUNARRÁÐ íslands hefur ritað sveitarstjórnum stærri sveitar-
félaga bréf, þar sem varað er eindregið við að hækka álögur á fyrir-
tæki við gerð fjárhagsáætlana fyrir yfirstandandi ár. „Atvinnurekst-
urinn þolir ekki hærri gjöld,“ segir í bréfinu.
Verslunarráð vekur í bréfinu sér-
staka athygli á að fasteignagjöld
fyrirtækja utan Reykjavíkur hækk-
uðu almennt á síðasta ári, þar sem
þá var tekin upp viðmiðun við fast-
eignaverð í Reykjavík við ákvörðun
gjaldstofns. Ennfremur er bent á
að 12% hækkun fasteignamats milli
ára sé „tæpast í samræmi við al-
menna verðþróun á atvinnuhús-
næði, alla vega ekki þeim eignum
sem keyptar hafa verið á nauðung-
aruppboðum í kjölfar gjaldþrota
fyrirtækja."
Þá er rætt um nýtt gjald, sorp-
eyðingargjald, sem hafi komið inn
í fjárhagsáætlanir ýmissa sveitarfé-
laga við gerð þeirra nú. „Verslunar-
ráð telur óeðlilegt að leggja slíkt
gjald á fyrirtæki án þess að fast-
eign'askattur lækki á móti. Má
benda á að Reykjavíkurborg hefur
þann hátt á,“ segii1 í bréfinu.
Bent er á að nú sé þriðja sam-
dráttarárið í röð í atvinnulífinu.
„Fasteignagjöld og önnur gjöld á
atvinnuhúsnæði eru því sérstaklega
íþyngjandi fyrir atvinnureksturinn
eins og nú er ástatt og hefur Versl-
unarráð þegar farið fram á það við
Reykjavíkurborg að hún lækki þau
ef nokkur kostur er.
Verslunarráð hveturöll sveitarfé-
lög til þess að lækka fasteignagjöld
og þá ekki síst þau sem hafa hækk-
að álögur á fyrirtæki á núverandi
samdráttartíma í atvinnulífinu og
mótmælir sérstaklega áformum um
að nota sorpeyðingargjald til þess
að íþyngja atvinnurekstrinum,"
segir í bréfinu til sveitarfélaganna.
Það var sóknarpresturinn, séra
Kristján Björsson úr Breiðaból-
staðarsókn og kirkjukórinn á
Hvammstanga ásamt söngstjóra
sínum og stjórnanda, Helga Ólafs-
syni. Flutti Kristján stólræðu en
guðþjónustuana önnuðust þeir
báðir, sóknarprestarnir, Kristján
og séra Gísli Kolbeins.
Á eftir bauð kirkjukórinn í
Stykkishólmi komumönnum öllum
til kaffisamsætis. Veður var eitt
hið fegursta sem komið hefur hér
frá áramótum og viðraði því vel
til ferðalaga.