Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 21,tbl. 79. árg._________________________LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 Prentsmiðja Morgunhlaðsins George Bush Bandaríkjaforseti fordæmir baráttuaðferðir Saddams Husseins: Irakar sakaðír um stofna lífríki Persaflóa í hættn með losun olíu Hörðustu árásir Iraka á ísrael til þessa - Tveimur Scud-flaugum skot- ið á Riyadh - Irakar segja Bahda- ríkjamenn valda að olíumenguninni Nikósíu. Washington. Tel Aviv. Kiyadh. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði á fréttamannafundi í gær- kvöldi að Saddam Hussein væri að ganga fram af heimsbyggðinni með því að ráðast á Israel, ríki sem ekki ætti aðild að stríðinu við Persaflóa, dæla olíu út í Persaflóa og sýna stríðsfanga í sjónvarpi. Irakar gerðu í gær eldflaugaárásir á Tel Aviv og Haifa í Israel og Riyadh í Saudi-Arabíu. Einn maður fórst í árásinni á ísrael og 66 særðust. Talið er að einn maður hafi farist i Riyadh. Reuter Björgunarmenn í Tel Aviv að störfum eftir að Scud-eldflaug íraka lenti í íbúðarhverfi þar í borg. Einn maður fórst og 66 slösuðust. Tugþúsundir Letta minn- ast fórnarlamba hersins Stjórnvöld boða herta löggæslu um öll Sovétríkin Reuter Lettneskir lögreglumenn bera kistu eins félaga sinna sem féll í árás sovéskra sérsveita. Árás íraka á ísrael er sú fimmta síðan bandamenn -réðust til atlögu við íraka aðfaranótt 17. janúar. Árásin í gær var hin harðasta til þessa. Sjö_ Scud-eldflaugum var beint gegn ísrael við upphaf hvíldar- dags gyðinga en fimm voru skotnar niður af Patriot-gagneldflaugum. ísraelsk stjórnvöld neita fréttamönn- um þar í Iandi að skýra frá því ná- kvæmlega hvar Scud-eldflaugin sem olli tjóninu í Tel Aviv hafi lent. Dan Shomron, yfirmaður í ísraelska hern- um, sagði í samtaii við ísraelska sjónvarpið í gær að árásarinnar yrði líklega ekki hefnt ef almenningur í landinu gæti áfram sýnt þolinmæði. A.m.k. tveimur Scud-eldflaugum var skotið á Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu, í gærkvöld. Önnur þeirra var skotin niður af Patriot- flaugum bandamanna. Talið er að írakar hafi gripið til þess ráðs að dæla olíu út í Persaflóa frá Kúvæt til að torvelda landgöngu fjölþjóðahersins. Pete Williams, tals- maður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sagði að aðgerðum Iraka væri best lýst sem umhverfis- hryðjuverki. Verið gæti að mengunin yrði miklu meiri en þegar olía lak úr olíuskipinu Exxon Valdez úti fyr- ir ströndum Alaska árið 1989. Þá fóru 240.000 tunnur af hráolíu í sjó- inn. Talsmaður hers Saudi-Arabíu segir að olíuflákinn nái 9 mílur út á haf; olíu hafi verið dælt út 1 _sjó í þijá daga. Hann dregur í efa að írak- ar geti kveikt í olíunni ef til innrás- ar komi. írakar sendu bréf til Sameinuðu þjóðanna í gær þar sem þeir saka Bandaríkjamenn um að hafa sökkt tveimur íröskum olíuskipum og það hafi valdið olíumenguninni. Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi baráttuaðferðir Iraka í gær og sagði þær örvæntingarfullar og sjúklegar. Hann sagði að markmið Saddams með árásunum á ísrael væri líklega að klúfa Samstöðu bandamanna en erfiðara væri að ráða í tilgang þess að dæla olíu í sjóinn og sýna stríðsfanga í sjónvarpi. Unnið væri að því að finna leiðir til að stöðva olíumengunina. Archie Hamilton, aðstoðarvarnar- málaráðherra Bretlands, sagði í gærkvöldi í samtali við breska út- varpið BBC að stríð landheija banda- manna og Íraka við Persaflóa gæti orðið langt og blóðugt ef íraskir hermenn stæðu með leiðtoga sínum. Sjá fréttir á bls. 18-21. Riga, Vilnius. Reuter. TUGÞÚSUNDIR Letta komu sam- an við sjálfstæðisstyttuna í lijarta Riga í gær til að minnast fórnar- lamba sovésku sérsveitanna sem réðust inn í lettneska innanríkis- ráðuneytið á sunnudagskvöld. Lit- háar krefjist þess að fjórum lönd- um þeirra sem teknir voru hönd- uin í fyrrinótt verði sleppt. I gær var tilkynnt að löggæsla yrði hert um öll Sovétríkin óg yrðu her- menn á götum úti í stærstu borg- um landsins lögreglumönnum til fulltingis. Edgar Savisaar, forsæt- isráðherra Eistlands, sagði í gær að ráðstöfun þessi væri ískyggileg og í anda hernaðareinræðis. Ivars Godmanis, forsætisráðherra Lettlands, sagði í ræðu við sjálfstæð- isstyttuna að leiðtogar lýðveldisins hygðust hvergi hvika frá sjálfstæðis- baráttu sinni þrátt fyrir ofbeldisverk Rauða hersins. „Við erum að reyna að sýna að hægt er að skapa þjóðfé- lag, sem einkennist af mannúð og lýðræði. Ríkisvald, sem hefur af hvorugu að státa, reynir svo að stöðva okkur,“ sagði hann við syrgj- endur, sem gátu margir hverjir ekki tára bundist við minningarathöfnina. Kvikmyndaleikstjórinn Andris Siapanis, tveir lögregluþjónar og l8- ára námsmaður biðu bana í áhlaupi sovésku sérsveitarinnar á innanríkis- ráðuneytið. Þrír þeirra voru jarðsett- ir í gær en annar lögreglumannanna var frá Hvíta-Rússlandi og verður jarðaður þar. Sovéski herinn í Litháen handtók í fyrrinótt sex Litháa, þar á meðal nokkra starfsmenn þings lýðveldis- ins, sem sendir liöfðu verið til að rannsaka skotárás sovéskra her- manna á ríkisbifreið skammt frá Vilnius. Tveimur hefur verið sleppt en Vytautas Landsbergis forseti krefst þess að hinir verði látnir iaus- ir þegar í stað, þeir séu í raun stríðsfangar. Tveir blaðamenn frá bresku dag- blöðunum The Daily Telégraph og The Thnes og fréttamaður Reuters voru handteknir með Litháunum og fluttir í herstöð í grenndinni, Þeim var haldið þar í þijár klukkustundir og urðu þeir vitni að því að hermenn misþyrmdu Litháunum, spörkuðu i þá og börðu. Janis Jurkans, utanríkisráðherra Lettlands, sagði í samtali við Sky- sjónvarpsstöðina í gær að Vesturlönd ættu að hætta efnahagsaðstoð við Sovétríkin. Ekki væri hægt að full- yrða neitt um hvort Míkhaíl Gor- batsjov Sovétforseti væri sammála aðgerðum hersins í Eystrasaltsríkj- unum. Væri hann það þá breytti efnahagsaðstoðin engu til eða frá. Væri Gorbatsjov það ekki þá gætu harkaleg viðbrögð frá Vésturlöndum auðveldað honum að kljást við valda- klíku hersins og hérgagnaiðnaðarins. Samdráttur í rekstri SAS-flugfélagsins Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Skandinavíska flugfélagið SAS hefur orðið fyrir verulegu rekstr- artapi að undanförnu og hefur nú kynnt áætlun um mikinn niður- skurð á útgjöldum auk þess sem dregin verða saman seglin í flug- rekstrinum. Starfsmenn eru nú um 21.000 en verður fækkað um 3.500, ýmist með því að segja upp fólki eða ráða ekki í stöður sem losna. Orsakir vandans eru sagðar margvíslegar en einkum er það sjálfur flugreksturinn sem gekk verr en búist var við. Ovissuástand og síðar stríð fyrir botni Persaflóa olli því að farþegum fækkaði, verð- hækkun á eldsneyti vegna deilunn- ar hefur aukið rekstrarkostnað og gestum á hótelum sem SAS ltefur fjárfest í hefur fækkað. Flugferð- um á Evrópuleiðum hefur þegar verið fækkað um 15%. Talsmenn flugfélagsins segja þó að fyrirtæk- ið í heild hafi skilað hagnaði á síðasta ári en ársuppgjör verður birt í mars nk. SAS-mun hafa tap- að sem svárar nær átta milprðum ÍSK á bókunarkerfunum Therese og Amadeus, að sögn dagblaðsins Berlingske Tidende en félagið hef- ur ekki staðfest frásögn blaðsins. Stéttarfélög starfsmanna viður- kenna að ástandið sé slæmt en segja að það sé fyrst og frémst stjórnendum fyrirtækisins að kenna. Þeir hafi fjárfest í alþjóð- legum hótelkeðjum og sú ráðstöfun hafi kostað mikið fé. Ráðamenn segja að fjárfestingaráætlanir verði endurskoðaðai' en Jan Carl- zon, forstjóri SAS, segist ekki hafa ' hyggjú að segja af sér. Jón Gunnar Bergs, fjármála- stjóri SAS á Islandi, segist ekki búast við því að þessar fyrirætlan- ir hafi áhrif á reksturinn hérlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.