Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991
'11
Mánaðarleiga o g greiðsl-
ur í kaupleiguíbúðum
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
í Morgunblaðinu 23. janúar er
frétt þar sem vitnað er í skýrslu
húsnæðisnefndar Reykjavíkur og
birtir útreikningar á greiðslubyrði
vegna félagslegra íbúða. í útreikn-
ingum sem lagðir voru fram í borg-
arráði frá skrifstofu Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur komu fram
rangar upplýsingar um lán og láns-
kjör kaupleiguíbúða. Framsetning
þessa yfirlits leiðir til þess að gerð-
ur er samanburður milli kaupleigu-
og eignaríbúða (verkamannabú-
staða) sem er bæði rangur og vill-
andi. Þetta felst m.a. í eftirfarandi:
Villandi og rangir
útreikningar
1. Útreikningar á greiðslubyrði
lána vegna kaupleiguíbúða eru mið-
aðir við lánshlutfall samkvæmt lög-
um Sem fallin eru úr gildi. I stað
90% lána til kaupleiguíbúða er mið-
að við 85% lán. Hins vegar eru all-
ir útreikningar á greiðslubyrði lána
til félagslega eignaríbúða (verka-
mannabústaða) miðaðir við nýju
lögin eða 90% lánshlutfall.
2. Engin skýring er gefin á því
að mánaðarleiga eða mánaðar-
greiðsla ef um kaup á kaupleiguíbúð
er qð ræða miðast við 100% fjár-
mögnun framkvæmdaaðila en 90%
þegar félagslegar eignaríbúðir
(verkamannabústaðir) eiga í hlut.
Jafnframt var í mánaðarleigu-
greiðslum skv. útreikningum hús-
næðisnefndar innifalinn mjög hár
rekstrarkostnaður svo sem álagn-
ing vegna meiri og minniháttar við-
halds, fasteignagjalda, trygginga
ög aðrar álögur t.d. vegna hugsan-
legs leigutaps og fleira. Hvergi í
útreikningunum er gerð grein fyrir
því.
3. Rangar forsendur eru notaðar
við útreikning á greiðslubyrði lána
vegna félagslegra kaupleiguíbúða.
Sem dæmi um rangan útreikning
má nefna að afborganir og vextir
af láni úr Byggingarsjóði verka-
manna til félagslegrar kaupleigu-
íbúðar sem kostar 7,7 m. kr. er
sögð vera 31.000 kr. á mánuði
fyrsta árið en er í raun 10.400 á
mánuði.
4. í útreikningum er greinilega
reynt að gera kaupleiguíbúðir tor-
tryggilegan valkost samanborið við
fyrri verkamannabústaði. Borin er
saman greiðslubyrði af lánum mið-
að við 100% fjármögnun kaupleigu-
íbúða og 90% þegar félagslegar
eignaríbúðir (verkamannabústaðir)
eiga í hlut. Þetta þýðir að litið er
framhjá því að kaupendur verka-
mannabústaða þurfa að leggja fram
10% af verði íbúðar sem er um 600
þúsund kr. miðað við 2ja-3ja her-
bergja íbúð. Ef kaupandi þarf að
taka þetta framlag að láni í banka
og endurgreiðir það á t.d. 6 árum
hækkar greiðslubyrðin í verka-
mannabústöðum um 14.000 á mán-
uði fyrstu árin. Eru þá mánaðar-
greiðslur í verkamannabústaði
orðnar verulega hærri en í kaup-
leiguíbúð.
5. Rekstrarkostnaður leiguíbúða
virðist mjög hátt reiknaður. Sem
dæmi má nefna að mánaðarleiga
sem áætluð er fyrir 4ra herbergja
félagslega kaupleiguíbúð er í grein-
argerðinni 42.000 á mánuði en
greiðslubyrði lána skv. útreikningi
Húsnæðisstofnunar er 15.000 kr. á
mánuði. Samkvæmt þessu virðist
mánaðarlegur rekstrarkosstnaður •
þessarar íbúðar vera 27.000 kr. I,
greinargerðinni er hvergi að fínna
forsendur fyrir áætlun leiguverðs.
Á það hefur verið lögð áhersla
að sveitarstjórnir leitist við að
byggja ekki félagslegar íbúðir á
lóðum þar sem kvöð er um að
bílskýli fylgi íbúð vegna þess að það
hækkar greiðslubyrði og húsnæðis-
kostnað fólks verulega. Þannig
hækkar t.d. verð 4ra herbergja
íbúðar (128,5 m* 1 2) á vegum hús-
næðisnefndar Reykjavíkur (Veghús
31) úr kr. 7.760.000 í 8.910.000
eða um 16% þegar bílskýli og snjó-
bræðslu er bætt við verð til kaup-
anda. í útreikningum húsnæðis-
nefndar er kostnaður við bílskýli
og snjóbræðslu 1.210 þúsund krón-
ur sem er umfram þann kostnaðar-
grundvöll sem Húsnæðisstofnun
lánar til og er því lagt við útborgun
kaupanda íbúðar en það hækkar
kostnað og þar með greiðslubyrði
verulega. Það sem hér er lagt til
grundvallar í samanburði húsnæðis-
nefndar er því ekki marktækt dæmi.
í nýju lögunum er heimild til að
lána til bílskýlis ef það er nauðsyn-
legt af skipulagsástæðum að því
tilskildu að heildarkostnaður íbúð-
ar, bílskýlis og snjóbræðslu í gang-
stétt fari ekki fram úr þeim kostn-
aðargrundvelli sem húsnæðismála-
stjórn setur.
Félagslegar og almennar
kaupleiguíbúðir
Það er einnig athyglisvert að
Reykjavíkurborg hefur ekki sótt um
lán til Húsnæðisstofnunar vegna
félagslegra kaupleiguíbúða (vextir
1%) sem eru fyrir láglaunafólk sem
er innan ákveðinna tekjumarka en
mánaðargreiðslur leigjenda eða
kaupenda eru þar aðeins um 40%
af greiðslum í sambærilegum al-
mennum kaupleiguíbúðum. Þess í
Jóhanna Sigurðardóttir
„í útreikningum sem
lagðir voru fram í borg-
arráði frá skrifstofu
húsnæðisnefndar
Reykjavíkur komu
fram rangar upplýsing-
ar um lán og lánskjör
kaupleiguíbúða.“
stað var sótt um lán til almennra
kaupleiguíbúða sem bera mun hærri
vexti enda þarf fólk ekki að vera
innan tekjumarka til að eiga þar
rétt á íbúð.
Varðandi útreikninga húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur á kostnaði á
almennum kaupleiguíbúðum er rétt
að vekja sérstaka athygli á eftirfar-
andi:
1. Kaupandi fær allt kaupverð
íbúðar lánað. Því er ekki um að
ræða neina útborgun heldur
fastar mánaðargreiðslur.
2. Húsnæðisstofnun lánar 70% með
4,5% vöxtum til 43 ára og sér-
stakt viðbótarlán (20%) með
4,5% vöxtum sem endurgreiðist
á 5 árum auk þess sem fram-
kvæmdaaðili lánar 10% með 7%
vöxtum til allt að 15 ára.
3. Fyrstu 5 árin er greiðslubyrðin
því hærri vegna endurgreiðslu
20% lánsins. Þannig má nefnaað
miðað við almenna kaupleigu-
íbúð sem er 128 fermetrar og
kostar 7,2 m.kr. er greiðslubyrð-
in á mánuði um 56.000 í fjögur
ár en eftir fimm ár lækkar hún
í 29.000 krónur.
4. í útreikningum vegna kaupa á
kaupleiguíbúðum er aldrei reikn-
að með þeirri kostnaðarlækkun
sem vaxtabætumar fela í sér.
Lækkun byggingarkostnaðar
Almennt um kostnaðarverð fé-
lagslegra íbúða vil ég segja það að
alltof algengt er að íbúðir séu of
dýrar. Samkvæmt upplýsingum frá
Húsnæðisstofnun ríkisins var með-
alverð á fermetra kr. 66.668 miðað
við uppgjör á árinu 1990. Sumstað-
ar fór byggingarkostnaður upp í
rúmlega 80.000 krónur á fermetra
en einstök sveitarfélög hafa einnig
náð að byggja íbúðir sem em ódýr-
ari en meðalíbúðin samkvæmt upp-
gjörinu í fyrra.
Ástæða er til að hafa áhyggjur
af því að byggðar séu of dýrar íbúð-
ir í félagslega kerfinu. Það er mín
skoðun að hægt sé að lækka veru-
lega íbúðarverð félagslegra íbúða
og eru ýmsar tillögur á döfrnni í
því sambandi sem ræddar verða við
forráðamenn Húsnæðisstofnunar á
næstunni.
Útreikningar Húsnæðis-
stofnunar ríkisins
í lokin vil ég síðan greina frá
útreikningum - Húsnæðisstofnunar
ríkisins á greiðslubyrði vegna fé-
lagslegrar kaupleiguíbúðar miðað
við að íbúðin sé keypt eða leigð.
Á veg^um Húsnæðisstofnunar
ríkisins og félagsmálaráðuneytisins
er nú unnið að gerð sérstakra leið-
beininga til húsnæðisnefnda sveit-
arfélaga varðandi útreikning á
greiðslubyrði lána og ákvörðun
leigugjalds.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Innsæi sálma-
skáldsins góða
eftirKristin
Pétursson
í fjölmiðlum síðustu daga hefur
verið mikið um fréttir af hörmuleg-
um atburðum við Persaflóa og i
Eystrasaltslöndunum. Öll vonum
við að endi verði bundinn sem fyrst
á þessar hörmungar. Lýðræðis-
skipulagið virðist eiga erfitt upp-
dráttár á þessum slóðum. Bænir
okkar í hinum vestræna heimi hljóta
því að beinast í þá veru að vegsemd •
lýðræðisskipulagsins megi vaxa og
dafna alls staðar á jörðinni þar sem
það hefur enn ekki náð fótfestu.
Ekkert alfullkomið er til, en vest-
rænar lýðræðisþjóðir mynda banda-
lög mestu mannréttinda og bestu
lífskjara á jörðinni, ásamt sífelldri
leitun að gera gott betra. Fyrir-
komulag lýðræðis innifelur trú,
traust, kærleik og umburðarlyndi í
garð náungans og skoðun hans,
með ákvæðum um trúfrelsi tjáning-
arfrelsi, athafnafrelsi, friðhelgi
heimilisins og eignarréttarins.
Matthías Jochumsson, sálma-
skáldið góða, var gæddur miklu
innsæi. Skaldið góða upplifði þá
tíma sem ísland var undir stjórn
Danakonungs. Þá urðu íslendingar
að gera sér að góðu það sem kóng-
ur og einokunarlögin fyrirmæltu —
sætta sig við kúgun og harðræði.
Fólk sem upplifir hörmungatíma og
kúgun fær aðra tilfinningu fyrir því
hvílíkur hryllingur slíkt er, þegar
mannréttindi eru fótum troðin.
Þetta ættum við að hugleiða sem
búum við allsnægtir í dag og kunn-
um ekki alltaf að meta hve við höf-
um það gott.
I sálminum „Faðir andanna"
kemur fram næmleiki og innsæi
skáldsins góða. Biðjum þess öll að
lýðræðið megi vaxa og dafna í
framtíðinni alls staðar þar sem
meinsemdir einræðisins hrjá mann-
kynið í dag. Bænir okkar endur-
Leiðréttingar við Opið bréf
frú Agústu Agústsdóttur
- frá Rut Magnússon
Varðandi bréf þitt til mín dags.
14. des. 1990 sem birtist hér í blað-
inu 22. jan. sl. vil ég leiðrétta eftir-
farandi.
Samkeppni ungra norrænna
listamanna var ekki keppni ungra
söngvara heldur ungra tónlistar-
! manna, bæði söngvara og hljóð-
færaleikara. Ég var ein af þriggja
manna dómnefnd.
Það er ekki rétt að ég hafí fellt
Guðbjörn Guðbjörnsson tenór-
söngvara á prófi í Nýja tónlistar-
skólanum. Hið rétta er að ekki var
lagt fram prófefni samkvæmt söng-
námskrá. Prófið var því ógilt en
endurtekið nokkrum dögum seinna.
Aldrei var neitt álitamál að Guð-
bjöm næði prófinu.
Kristinn Pétursson
speglast í sálminum góða nr. 523
í sálmabókinni.
Faðir andanna,
frelsi landanna,
ljós í lýðanna stríði,
send þú oss frelsi,
sundur slít helsi,
likna striðanda lýði.
Lýstu heimana,
lífga geimana,
þerrðu treganda tárin.
Leys oss frá illu,
leið oss úr villu,
lækna lifenda sárin.
Sælu njótandi,
sverðin bijótandi,
faðmist fjarlægir lýðir.
Guðsriki drottni,
dauðans vald þrotni,
komi kærleikans tíðir.
Faðir ljósanna,
lífsins rósanna,
lýstu landinu kalda.
Vertu oss fáum,
fátækum smáum,
líkn í lífsstríði alda.
Höfundur er alþingismaður.
Forsendur: Kaupverð 7,2 milljónir króna
1. árið 2. árið Eftir 15 ár
gr./á mán. gr./á mán. gr./á mán.
1. Leiga m/kauprétti 16.477 16.347
2. Kaup á félagslegri 11.988* 22.397 15.809
kaupleiguíbúð
* Afborgunarlaust fyrsta árið.
Ekki er í þessum útreikningum reiknað með reksturskostnaði.
911 Rfl 91 97fl LÁRUS Þ' VALDIMARSS°N framkvæmdastjori
L I I I 0 I U KRISTINNSIGURJÓNSS0N,HRL.löggilturfasteignasali
Nýkomið til sýnis og sölu m.a. annarra eigna:
Stór og góð í lyftuhúsi
4ra herb. íbúð 107,6 fm á 5. hæð í lyftuhúsi við Hrafnhóla. 3 svefn-
herb. og rúmg. tvöf. stofa. Ágæt sameign. Frábært útsýni. Laus 1.
apríl nk.
Skammt frá Miklatúni
Efri hæð 4ra herb. með tvennum svölum. Nýl. gler. Nýir ofnar. Nýl.
eldhúsinnr. Sérinng. Sérhiti. Rúmgott geymsluris fylgir. Verð aðeins
7,7 millj.
Góðar 3ja herb. kjíbúðir við:
Miklubraut 90 fm. Sérinng. Sérhiti. Nýl. gler o.fl.
Karfavog um 80 fm rúmg. herb. Tvíbýli. Lítið niðurgr. Laus strax.
Rauðalæk 85 fm. Sérinng. Sérhiti. Nýtt gler. Lítið niðurgr.
Á vinsælum stað á góðu verði
Séribúð 4ra herb. 106 fm i þribhúsi við Melabraut. Sérþvottah. Sér-
hiti. Sérinng. Ný vistgata. Eignaskipti möguleg.
Glæsileg íbúð f lyftuhúsi
Nýleg og rúmgóð 2ja herb. íbúð á 8. hæð við Engihjalla. Stórar sval-
ir. Ágæt sajoeign. Þvottahús á hæð. Skuldlaus. Laus 1. maí.
Ennfremur góðar 2ja herb. íbúðir við Einarsnes, Nýbýlaveg, Stelks-
hóla og Ránargötu. Nokkrar með bílskúrum.
4ra-5 herb. íbúð
óskast í borginni með rúmgóðu vinnuherb. Skipti möguleg á 2ja herb.
góðri ib. við Hofsvallagötu.
í miðborginni eða nágrenni
Þurfum að útvega gott húsn. fyrir læknastofu, tannlækningastofu, lög-
fræðiskrifstofu, húsnæði fyrir félagssamtök o.m.fl. Nánari upplýsingar
trúnaðarmál.
• • •
Opið í dag kl. 10.00-16.00.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SflWAR 21150-21370
]