Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 Metsölublaó á hverjum degi! jL ÍSLENSKUR YEIÐIVANDI eftir Yngva Harðarson Mikið jafnvægisleysi hefur ríkt í íslenskum efnahagsmálum um ára- tugaskeið. Mikill en sveiflukenndur halli hefur einkennt utanríkisvið- skipti þjóðarinnar sem einnig hefur átt við að stríða stórar sveiflur í hagvexti og mikla verðbólgu. Flestar stærri hagsveiflur sem ganga yfir íslenskt efnahagslíf eru af sama toga. í fyrsta lagi er um að ræða sveiflur sem rót hafa átt í tímabundnum afturkipp eða upp- sveiflu í aflabrögðum. I öðru lagi eru erlendar verðsveiflur, einkum sveiflur í fiskverði en einnig í olíu- verði. Skaðsemi sveiflna Sveiflur í afkomu eru þjóðinni skaðlegar. Sveiflur í hagvexti og verðbólgu fela í sér óvissu, þær torvelda áætlanagerð og lengja end- urgreiðslutíma fjárfestinga í niður- sveiflu. Sveiflurnar leiða því til rangra og óhagkvæmra ákvarðana. Þetta á óumdeilanlega við um óvæntar sveiflur en er ekki aug- ljóst, þó oftast gilt, hvað varðar sveiflur sem eru þekktar að eðli, styrk og lengd. því viðbrögð við þeim eru oft óvænt. Þetta getur átt við viðbrögð neytenda, samkeppnis- aðila og stjórnvalda. Atvinnulíf og almenningur hefur goldið fyrir sveiflubúskapinn um langt árabil. Sveiflur í verðbólgu og hagvexti eru nátengdar og lengi hefur verið ljóst að verðbólguvand- inn á að stórum hluta rætur að rekja til breytilegra ytri skilyrða á miðunum umhverfis landið og á mörkuðum fyrir útfluttar fiskafurð- ir. Þótt eðli vandans hafi löngum verið þekkt hefur enn ekki tekist að vinna bug á verðbólgunni. Verðbólguvandi Áhrifum aukins afla eða verð- hækkunar á erlendum mörkuðum má lýsa þannig að launahækkun verður meðal sjómanna og fisk- vinnslufólks vegna framleiðslu- aukningar. Uppgangurinn í sjávar- útvegi eykur samkeppnina um vinnuafl og fjármagn og kostnaðar- hækkanir dreifast út um hagkerfið vegna tekjusamanburðar og eftir- spurnarþenslu. Þannig hækkar raungengi og samkeppnisstaða út- flutnings- og samkeppnisgreina rýrnar og innflutningur eykst.1 Verndaðar atvinnugreinar, þ.e. þær sem ekki keppa við erlent atvinnu- líf, hleypa hins vegar kostnaðar- hækkununum út í verðlag. Þegar afturkippur verður til sjós vegna aflasamdráttar eða verðfalls dregst kostnaður ekki saman á sama hátt og hann óx. Minnkandi tekjur gera nauðsynlegt að fella gengi til að koma í veg fyrir rekstr- arstöðvun sjávarútvegs, en gengi krónunnar hefur löngum tekið mið af afkomu hans. Gengislækkunin veldur því að sjávarútvegurinn fær fleiri krónur í kassann en jafnframt hækkar innflutningur í verði og samkeppnisstaða útflutnings- og samkeppnisgreina batnar. Vernd- aðar atvinnugreinar geta hækkað verð afurða sinna og komið þannig í veg fyrir samdrátt rauntekna. í kjölfar gengislækkunar og inn- lendra kostnaðarhækkana er verð- bólgan komin af stað og sé vísitölu- binding launa við lýði kemst verð- bólgan á fullan skrið vegna hraðari víxlgangs launa, gengis og verð- lags. Jöfnun sveiflna Langt er síðan sjónir beindust að því hvort ekki mætti breyta efna- hagsumgjörð atvinnulífs á þann veg að dregið yrði úr áhrifum tekju- sveiflna til sjós á annan atvinnu- rekstur en sjávarútveg sem og sjáv- arútveg- sjáifan.-Þarrrrig- var Verð- Yngvi Harðarson „Hagkvæmasta úthlut- un sölutekna af veiði- leyfum — arðs auðlind- arinnar — er að veita þeim beint til almenn- ings, með jöfnum reglu- bundnum greiðslum. Með því móti mun al- menningur velja verð- uga kapítalista til fram- þróunar atvinnulífs“ jöfnunarsjóður fiskiðnaðarins stofn- aður árið 1969 og Verðjöfnunar- sjóður sjávarútvegsins tók við af honum á síðasta ári. Hlutverk slíks verðjöfnunarsjóðs er að draga úr skaðlegum áhrifum verðsveiflna á sjávarafurðum á þjóðarbúskapinn. Ljóst er að verðjöfnunarsjóður einn og sér dugar ekki til að draga úr skaðlegum áhrifum tekjubreyt- inga til sjós á þjóðarbúskapinn því verðbreytingar eru einungis hluti tekjubreytinga. Eftir standa því skaðleg áhrif uppgripa í aflabrögð- um. Útgerðarkostnaður og gengi Gengi krónunnar hefur löngum tekið mið af afkomu sjávarútvegs. Sú mikla lækkun útgerðarkostnað- ar sem væntanleg er vegna hagræð- ingar í kjölfar nýrra laga um stjórn fiskveiða felur í sér stórbætta af- komu útgerðar. Miðað við óbreytt fyrirkomulag gengisskráningar mun því eiga sér stað mikil en tíma- bundin hækkun raungengis. Þannig mun eiga sér stað veruleg skerðing á samkeppnisstöðu annarra útflutn- ings- og samkeppnisgreina. Spurn- ingin um hversu tímabundin slík raungengishækkun er veltur á því hversu mikið af öðrum atvinnu- rekstri tórir þar til gengisákvörðun kemst á raunhæfara form. Aukin rekstrarleg hagkvæmni veiða sam- hliða óraunsærri þróun gengis hefur varanleg skaðleg áhrif á aðrar út- flutnings- og samkeppnisgreinar. Það er deginum ljósara að geng- isákvörðun krónunnar hlýtur að taka miklum breytingum. Þar sem margar atvinnugreinar starfa í samkeppni við erlent atvinnulíf er alls óeðlilegt að gengi taki mið af afkomu einungis einnar atvinnu- greinar. Einhvern tímann, þegar nánast ekkert annað var flutt út en sjávarafurðir og samgönguþjón- usta þeirra vegna og þegar flestar áðrar greinar voru verndaðar fyrir erlendri samkeppni með tollum og höl'tum, kann slíkt lýrirkomulag að liafa verið nærri eðlilegt. Þeir tímar enriiðrrir!---------------------

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.