Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 9 ÍSUtHm mm- KEP onri/i THII Ufí DfíU “ „KUuH B KUKULL verður haldin íTónabæ á morgun, sunnudaginn 27. janúar, kl. 15.00. Þátttakendur á öllum aldri. HENTUDOS TIL HJÁLPAR! Á laugardögum söfnum við einnota umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum. ÞJÓÐÞRIF (SŒ) XfrJ LAHDSSAMBAND HJÁLPAnSVEITA SKÁTA BANDALAQ ISLENSKRA SKATA hjAlparstofnun KIRKJUNNAR Dósakúlur um allan bæ STYRKUR TIL NOREGSFARAR Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Nor- egsferða 1991. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auðvelda íslendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulegum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynn- isferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í sam- norrænum mótum, sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Ekki skal úthlutað ferðastyrkj- um til einstaklinga eða þeirra sem, eru styrkhæf- ir af öðrum aðilum." í skipulagsskránni segir einng að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til ferðakostnaðar, en umsækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðil- um, sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátt- takenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal til- greina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. mars 1991. Metsölublað á hverjum degi! Fimmtudagur 24. janúar 1991 Endurvarp gegn tungunni Svmr CotiMa n» IMI (Utr « nbter Herr. wrö fyrrtar Umútn rió- gSowpttHðw. Þ*5 hnr. ffl tfmm* WéintmkvUu ur »6 prtó. 0*U fyrir útotafaqÞr_ ánfcadu^dJ^rpLÞM.wrk Uct* þ*r «m útíc«Ur rtöóv- mxbkmum rxsnsssz ix'æszæi? atrrasi'ís sa-ararTSBS átrcm tð vtra utverNr ftfn turtta- b tffiðvumm tvtkcsr aft heb t_i-. WriMoB.tMiuUraðma«Up- taáanm&ata t óþýddu «Wo .... tri»fmandltB*«í»tWr»ri6k»- rfadlMM *4 Untað. mta úbxrp- íslenzkunni vikið til hliðar Dálkahöfundur Tímans, Garri, fjallar sl. fimmtudag um þá ákvörðun Svarars Gestssonar, menntamálaráðherra, að afnerha þýðingarskyldu á beinum sjón- varpssendingum á erlendu efni. Þar með hafi forgangsrétti íslenzkunnar verið vikið til hliðar. í þágii tveggja aðila Grein Garra, sem nefnist „Endurvarp gegn tungunni", fer hér á eft- ir: Svavar Gestsson menntamálaráðherra var fyrstur íslenskra ráð- herra til að afnema þýð- ingarskyldu á erlendu efni í sjónvarpi. Þetta verk vanu hami í þágu þeirra tveggja aðila, sem annst sjónvarpsrekstur í landinu. Þar með var for- gangsrétti íslenskunnar vikið til hliðar í stofnun- um, sem vonað var. að héldu áfram að vera út- verðir gegn hættulegri þróun, sem sækir að máli okkar í sívaxandi þröng erlendrar sóknai' inn í menningarsvæði okkar. Þeir sem láta sér annt um íslensku og þá löngu sögu sem henni fylgir frá upphafi vega, hafa mótmælt, en sjón- vörpin hafa eðlilega ekki gert mikið úr afstöðu málverndarmanna. Ekki hefur verið rokið upp til handa og fóta með löng- um samtalsþáttum, þar sem menn fá tækifæri til að skýra fyrir áhorfend- um að grunnþátturinn í vamarbai-áttu okkar er íslenska. A meðan það hentaði flokki memita- málaráðherra að teljast alþjóðlega shmaður vegna mikillar samvinnu í austurveg, voru íslens- kunnar menn taldir þjóð- rembingar og allt að því fasistar. Það var því létt verk fyrir menntamála- ráðherra að breyta reglugerð á þann veg, að nú er fijálst að endur- varpa erlendu éfni óþýddu í báðum sjón- varpsstöðvum landsins. Einkarétti lok- ið Þessi aðgerð þýðir í raun, að lokið er einka- rétti tíl sjónvarpreksturs í landinu. Úr því sem komið er verður óhjá- kvæmUegt annað en veita öUum sem vUja heimUd tíl sjónvarps- reksturs gegn ákveðnu gjaldi og tómt mál að tala um sérrekstur ríkis- sjónvarps. Það kerfí er hrunið. VUji ríkið á ann- að borð reka sjónvarp, verður það að gerast með sama hætti og gUdir um rekstur annarra sjón- varpsstöðva. Það verður að greiða gjald fyrir út- sendingar sínar, bæði þær sem útlendar stöðv- ar senda í gegnum það og innlenda dagskrá. Núverandi breyting á útvarpslögum, sem er í gUdi, byggðist á sérstöðu ríkisrekins sjónvarps. Um leið og ástæða þótti tU að heimila stöðvunum tveimur að hefja endur- sendingu á óþýddu er- lendu efni brást sú sér- staða sem útvarpslögin gerðu ráð fyrir. Hún mið- aði að því að skapa mögu- leika fyrir yfirstjórn þessara mála, og þá með tilliti ti þarfa isíensks máls. Þessu timabili er lokið fyrir tUverknað yfirstjónim'innar sjálfr- ar. Það liggur í augum uppi, að sérréttindi þeirra tveggja stöðva, sem nú eru í gangi verða ekki varin. Hver sem vill á héðan af að geta stofn- að sjónvarpsstöð, sem byggir á viðskiptum við erlendar stöðvar og end- ursendirigar frá þeim. Annað væri algjör ós- vinna. Hvorki ríkissjón- varp né Stöð 2 á mál- svara, sem vilja að þessar tvær stöðvar hafí einka- rétt á endurvarpi er- lendra stöðva hér á landi. Flotið á flóð- mælginni Rétturinn var svo ótv- íræður í höndum stjórn- valda, að þau gátu lokið fyrir útsendingar. Stöð 2 hefur alltaf borið tak- markaða virðingu fyrir lögum og reglugerð í þessu efni, enda miklir kallar. Nú hófu þeir í leyfísleysi útsendingar á erlendu og óþýddu fréttaefni. Hefði einhver heU hugsun verið á bak við þessa aðgerð hefði útsendingin aldrei farið af stað. En af nokkurri reynslu vissi Stöð 2 við hveija var að eiga. Sjálf- ur meimtamálaráðherra reið svo á vaðið eftir málamyndaathugun og heimUaði þessar erlendu útsendingar. Næst þegar hann gerist flóðmælskur um íslensk menningar- mál með allan komma- halann á eftir sér ættu menn að minnast þess að hann er sá maður sem mest óþurftarverk hefur unnið á íslenskri menn- ingu með því að heimila fréttasendingar á ensku klukkutímum saman á hveijum degi. Upphaf niður- iagsins Ríkissjónvarpið kom svo í kjölfarið og ákvað að leggja sjálft sig niður sem einkaréttarstofnun með sjálfvh'ki'i inn- heimtu afnotagjalda. Nú verður það að undirbúa að halda út í kuldami sem ríkissjónvarp en án sér- réttinda. Ríkissjónvarp sem telur að það geti haldið sérréttindum sínum eftir að það flytur óþýddar sendingar á ensku helftina úr sólar- hringnum reiknar ein- faldlega vitlaust. í framt- íðinni verður það að deila áhorfi Islendinga með öllum þeim litlu sjón- varpsstöðvum sem hér rísa og byggja m.a. á endurvarpi efnis frá er- lendum stöðvum. Ekki er hægt að hafa lög í gildi í landinu, sem leyfa að- eins tveimur sjónvarps- stöðvum að senda út á ensku. Til er fjöldi öflug- ra stöðva í heiminum, sem ýmist eru þegar í gangi eða um það bil að fara í gang, sem vilja leigja hingað endur- varpsrétt fyrir litiim pen- ing til þeirra, sem vi\ja senda út. Algjört siðleysi er, eftir það sem á undan að gengið að ætla að barnia innlendum aðilum að endurvarpa erlendu efni, þótt stjórnvöld vildu lýsa yfir að t.d. Stöð 2 sé á ríkisframfæri. En hvað islehska tungu snertir þá er niðurlagið hafíð. §umir bílar eru betrien aðrir WHONDA Honda Accord er búinn miklum góðum kostum. Kostagripir liggja ekki alltaf á lausu, en þessi er það og til- búinn til þinnar þjónustu. Bfll fyrir alla og við allra hæfi. Greiðsluskilmálar fyrir alla. Verð frá kr. 1.360.000,- staðgr. Phonda. HONDA A ISLANDl, VATNAGÖRÐUM 24, S-089900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.