Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991 Plastskriðdrekar og flug- vellir úr pappa og krossviði? Amman. Reuter. BANDARÍSKIR embættismenn og aðrir þeir sem sérfróðir mega teljast um vígvél Saddams Huss- eins íraksforseta telja að hann kunni á síðari stigum Persaflóa- styrjaldarinnar að grípa til ör- þrifaráða með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá herma óstaðfest- ar fréttir að írakar hafi beitt Hryðjuverkamanni í héim- sókn í Belgíu vísað úr landi Starfsmönnum utanríkisráðuneytis láðist að láta vita um manninn Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EINN af forsprökkum hryðjuverkasamtakanna, sem kennd eru við Abu Nidal, var handtekinn af belgísku lögreglunni á götu í Brussel fyrir síðustu helgi. Við eftirgrennslan kom í ljós að maðurinn, Valid Khaled, var í Belgíu í boði belgíska utanríkisráðuneytisins. Honum var þess vegna sleppt lausum og komið um borð í flugvél sem var á leið til Genfar. Hótanir Saddams Husseins íraksforseta um hefndaraðgerðir í Evrópu voru tilefni þess að innanríkis- og dómsmálaráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) samþykktu á fundi í Lúxemborg á þriðjudag að auka mjög alian viðbúnað og samvinnu til að koma í veg fyrir hryðju- verk í aðildarríkjunum. Vegfarandi sem bar kennsf á Khaled í nágrenni Grand Place, torgsins í miðborg Brussel, lét lög- reglu vita, sem brást skjótt við. Þegar Khaled var handtekinn krafðist hann þess að samband yrði haft við utanríkisráðuneytið sem staðfesti að hann ætti stefnumót við aðstoðarmann utanríkisráð- herra. Boð Khaled til Belgíu stóð í sambandi við viðkvæmar samninga- viðræður belgískra stjórnvalda ný- lega til að fá leysta úr haldi belgíska fjölskyldu sem haldið var í gíslingu. Utanríkisráðuneytinu hafði hins vegar láðst að gera öðrum ráðu- neytum viðvart um heimsóknina. Wilfred Martens forsætisráðherra sagði að heimboðið bæri vott um dómgreindarleysi og samkomulag varð um það innan ríkisstjórnarinn- ar að vísa hryðjuverkamanninum þegar úr landi. Þrír aðstoðarmenn Mark Eyskens utanríkisráðherra hafa sagt af sér í kjölfar heimsókn- arinnar. Innanríkis- og dómsmálaráðherr- ar EB sem komu saman til fundar Fulltrúar út- lægra Kúrda í London segja 10.000 íraka fallna London. Reuter. FULLTRÚAR útlægra Kúrda í London segja að allt að helmingi hernaðar- og iðnaðarskotmarka bandamanna í írak hafi verið eytt. Þeir segja ennfremur að tæplega 10.000 íraskir hermenn hafi fallið í árásunum. Fulltrúar Kúrdíska lýðræðis- flokksins (KDP) spá því að vænta megi uppreisna innan hersins gegn Saddam Hussein íraksforseta. Þeir segja að öryggissveitir Iraka hafí enn tögl og hagldir í landinu en vísbendingar séu um að hersveitir nærri landamærum Sýrlands og Tyrklands séu komnar á fremsta hlunn með að snúast gegn Sadd- am. í yfirlýsjngu frá KDP segir að manntjón íraka hafi orðið mest í hafnarborginni Básra og á landa- mærum Kúveits og Saudi-Arabíu. Þar segir ennfremur að fyrstu daga stríðsins hafí lík fallinna Kúrda verið send frá suðurhluta íraks heim til Kúrdistan. Því hafi nú verið hætt og séu líkin grafín í fjöldagröfum til þess að mannfallið spyijist ekki út- og veiki baráttu- þrek þjóðarinnar. í Lúxemborg á þriðjudag sam- þykktu að auka til muna samastarf sín á milli til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Eftirlit með tortryggi- legum einstaklingum verður hert í gegnum nánari samvinnu öryggis- stofnana aðildarríkjanna. Hert verður á landamæraeftirliti innan EB og sömuleiðis á eftirliti með hótelgestum innan bandalagsins. Vaxandi ótta verður vart vegna hótana íraka um hryðjuverk í Evr- ópu. Samkvæmt sögusögnum um lista yfir helstu skotmörk hryðju- verkamanna er sagt að Brussel sé í öðru sæti á eftir Aþenu en á und- an Róm, Istanbúl og Vínarborg. Því hefur verið haldið fram að Irakar hafi sent yfír eitt hundrað hópa til hryðjuverka í Evrópu. Aukinn við- búnaður er við allar opinberar bygg- ingar, erlend sendiráð og flugvelli. blekkingum af miklu hugviti á fyrstu viku stríðsins og að flug- sveitir bandamanna hafi m.a. ráðist á plast-skriðdreka og skot- palla úr pappa og krossviði. Ónefrtdur erlendur stjórnarerind- reki í Amman, höfuðborg Jórdaníu, sagði í samtali við fréttamann Reut- ers að full ástæða væri til að taka alvarlega yfirlýsingar Saddams þess efnis að hann eigi eftir að koma bandamönnum á óvart er líða tekur á stríðið. Ekki liggur fyrir hvaða vígtól Saddam forseti átti við en sérfræðingar segja að írakar hafi þegar komið bandamönnum á óvart með ýmsum snjöllum blekk- ingum. Þannig liggur fyrir að írak- ar ráða enn yfir skotpöllum fyrir Scud-eldflaugar þrátt fyrir linnu- lausar loftárásir bandamanna og ákafa leit að pöllum þessum með aðstoð gervihnatta og annars há- tæknibúnaðar. Líkur eru á því að bandamenn hafi m.a. tortímt eft- irlíkingum af skotpöllum fyrir eld- flaugar þessar. Segja jórdanskir heimildamenn að komið hafí verið fyrir senditækjum á pöllum þessum sem gefí frá sér radíómerki líkt og um raunverulegar eldflaugar væri að ræða. Óstaðfestar fregnir herma einnig að írakar eigi mikinn fjölda plast-skriðdreka (til mun vera fyrir- tæki á Ítalíu sem sérhæfir sig í slíkri framleiðslu) og eftirlíkinga af flugvélum. Þá hefur því verið Reuter Varnaðarorð til vestrænna þjóða Nokkur hundruð Palestínumenn efndu til mótmæla í Baqa-flóttamannabúðunum í útjaðri Amman í Jórd- aníu. Þeir hrópuðu vígorð til stuðnings Saddam Hussein íraksforseta og báru vamaðarorð til vestrænna þjóða á skiltum: „Við flytjum vettvang hins heilaga stríðs (Jihad) til Washington!“, „Niður með Bandaríkja- menn!“ og „Frakkar, bjargið bömum ykkar frá dauða á Flóanum!" „Fjölmiðlar eru bestu banda- menn Saddams Husseins“ Florida. Frá Atia Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. HINN óhefti og látlausi frétta- flutningur bandarískra fjölmiðla af hernaðarátökunum við Persa- flóa sætir vaxandi gagnrýni í Bandaríkjunum. Hörðust er gagnrýnin á linnulausan frétta- flutning og túlkun pólitískra skoðana á atburðunum og einnig óttast margir að þetta óstöðvandi fréttaflóð komi mótherjum Bandaríkjanna að miklu gagni. Andúð vex einnig gegn 'birtingu fréttamynda af fómarlömbum átak- anna og hermönnum sem teknir hafa verið til fanga. í þröngri (647 áhorfendur) könnun sem þekkt ráð- gjafafyrirtæki sjónvarpsstöðva gerði, kom í ljós að 99,5% áhorf- enda hafa fylgst með sjónvarps- fréttum af átökunum við Persaflóa. 77% töldu sig hafa ávinning af því að sjá sem mest af slíkum fréttum. 54% töldu að fjölmiðlar hefðu nægilegt frelsi til fréttaflutnings en 24% töldu fjölmiðla hafa of frjálsar hendur í þeim efnum. 17% töldu aðgang fjölmiðla að upplýs- ingum varðandi átökin takmörkuð um of. Gagnrýni fólks á fjölmiðla kemur m.a. fram í símhringingum til þeirra. Talsmenn sjónvarpsstöðva segjast verða varir við vaxandi . gagnrýni og USA Today segir að hundruð lesenda hafí hringt og gagnrýnt of mikinn fréttaflutning af átökunum. Talsmaður C-Span sjónvarpsrásarinnar segir að „átta af hverjum tíu sem hringja lýsi stuðningi við hernaðarátök gegn írökum". Haft er eftir lesendum m.a. að „fjölmiðlar séu bestu bandamenn Saddams Husseins" og.......sérhver frétt af loftvarnaflautuvæli og Scud-eldflaug kitli og gleðji eyru Saddams". Margir láta í ljós efa- semdir um hlutverk fjölmiðla í þess- um átökum. Dan Quayle varaforseti Banda- ríkjanna hefur gagnrýnt fjölmiðla fyrir að láta undan þiýstingi til að veita mótmælum gegn hernaðar- átökum miklu meira rými en þau eigi skilið. Forsetafrúin, Barbara Bush, hefur hvatt foreldra til að takmarka sjónvarpsgláp barna sinna. „Börnin þurfa að skilja að það er ekkert stríð í þeirra hús- garði,“ segir hún. haldið fram að írakar hafí byggt heila flugvelli og flugstöðvar úr pappa, plasti og krossvið. Colin Powell, forseti herráðs Bandaríkjanna, sagði á dögunum að írakar hefðu sýnt og sannað að þeir væru úrræðagóðir og snjallir herstjórnendur. Sérfræðingar segja að írakar hafi þróað fjölmargar óvenjulegar bardagaaðferðir í stríðinu mannskæða við nágranna sína í íran. Hugsanlegt er talið að þeir hafí lagt út olíuleiðslur undan strönd Kúveit og hyggist kveikja í þeim geri sveitir bandamanna inn- rás frá hafi. Hermt er einnig að þeir hafi grafið stjórnstöðvar sínar djúpt í jörðu í Kúveit og að þær séu tengdar með göngum þar sem finna megi ýmsar hugvitsamlegar vítis- vélar sem erfitt verði að veijast. Það er samdóma álit sérfræðinga að íraski flugherinn sé á engan hátt samanburðarhæfur við flug- sveitir bandamanna. Hins vegar óttast menn mjög að íraski flugher- inn hefji sjálfsmorðsárásir á síðari stigum styijaldarinnar. Er þá eink- um vísað til ummæla Muzahem Sáab Hassan, yfirmanns íraska flughersins, sem sagði að lokið væri þjálfun „sveita skæruliða“ inn- an flughersins sem tilbúnir væru til árása á skotmörk á landi, legi og í lofti. „Þessir flugmenn vilja gjarn- an fóma lífi sínu fyrir þjóðina og í nafni heilags stríðs," sagði Hassan. Herstjórn Iraka hafði aldrei áður minnst á slíkar sveitir í yfirlýsingum sínum og þótti enginn vafi leika á því við hvað væri átt. Rafsanjani íransforseti: Utþenslu- stefna Sadd- ams ógriar Irönum Teheran. Reuter. ALI Akbar Hashemi Rafsanjani, forseti írans, fór í gær hörðum orðum um róttæka þingmenn landsins sém krafist hafa þess að Iranir styðji Iraka í stríðinu fyrir botni Persaflóa. Hann sagði að það kæmi verst niður á írön- um sjálfum ef þeir aðstoðuðu íraka við að halda Kúveit, því þeim stafaði hætta af útþenslu- stefnu Saddams Husseins íraks- forseta. Rafsanjani lét þessi orð falla er hann varði hlutleysi írana á ijöl- mennum bænafundi í Teheran. Hann sagði að hvorki írakar né bandamenn í stríðinu fyrir botni Persaflóa væru verðugir stuðnings írana. Hann sagði að Saddam Huss- ein hefði sent sér bréf í fyrra, þar sem hann hefði sagt að mörk ríkjanna yrðu „meira en 1.000 km á landi og 800 km á sjó“. „Þetta merkir að ef við hjálpum írökum halda þeir Kúveit og mörk ríkjanna ná næstum alla leið til Hormuz- sunds. Persaflói verður þá að Ara,bíuflóa,“ sagði hann í ávarpi sem útvarpið í Teheran sendi út. „Má ekki líkja slíkri aðstoð við sjálfsmorð?" bætti hann við. Rafsanjani sagði það af og frá að Irakar væru að heyja réttlátt stríð gegn fjölþjóðahernum við Persaflóa. Jafnvel þótt svo væri , kæmi ekki til greina að senda her- sveitir írana í dauðann til að tryggja yfirráð íraka yfir Persaflóa. Nokkrir róttækir þingmenn, þar á meðal Ali Akbar Mohtashemi, fyrrum innanríkisráðherra landsins, höfðu sagt að íranir ættu að gleyma stríði þeirra við íraka 1980-88 og ganga til liðs við þá í heilögu striði gegn Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.