Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991 21 Þrjár sprengingar íAþenu Reuter Þijár sprengjur sprungu samtímis í Aþenu í gærmorgun en enginn slasaðist. Sprengjurnar sprungu í útibú- um Citibank, sem er í eigu Bandaríkjamanna, og Barclays Bank, sem er breskur, og á heimili hermálafull- trúa Frakka (þar sem myndin er tekin). Hryðjuverkasamtökin 17. nóvember hafa lýst ábyrgð á sprengju- tilræðunum á hendur sér. Þau gáfu hins vegar ekki upp neina skýringu á verknaðinum. Neyðarhjálparstofnun SÞ við öllu búin: Býst við allt að fjórum nulljóniim fióttamanna Damaskus. The Daily Telegraph, Reuter. SVEITIR Neyðarhjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDRO) í Miðausturlöndum búa sig undir hildarleik sem gæti farið vel eða endað með ósköpum. Þær búast við að allt að fjórar milljónir manna flýi átakasvæðin við Persaflóa - en flóttamennirnir gætu allt eins orðið miklu færri. Höfuðstöðvar sveitanna í Dam- askus, höfuðborg Sýrlands, líkjast einna helst stjómstöð hershöfðingja. Kort eru á veggjunum, þar sem átakasvæðin eru merkt og sýndar eru hugsanlegar flóttaleiðir. And- rúmsloftið er þrungið spennu því mikið liggur við að hjálparstarfið gangi fljótt og vel fyrir sig. Sveitirnar eru tilbúnar til að heyja baráttuna í samvinnu við stjórnvöld í Sýrlandi. Landamæri landsins að írak, sem hafa verið lokuð í áratug, hafa verið opnuð til að hægt verði að taka á móti flóttamönnum. Yfirmenn sveitanna vita þó ekki hvað bíður þeirra. „Vandamálið ,er að flóttamennirnir gætu orðið allt frá engum til fjögurra milljóna, allt eftir því hvernig stríðið þróast,“ sagði Michael Schulenburg, hátt- settur embættismaður hjá hjálpar- stofnuninni. Um 800.000 erlendir borgarar flúðu írak til Jórdaníu í kjölfar inn- rásar íraka í Kúveit 2. ágúst og er það nokkur vísbending um hvernig ástandið gæti orðið í Sýrlandi, sem á einnig landamæri að írak. Emb- ættismenn Sameinuðu þjóðanna beina einkum sjónum sínum til fjög- urra nágrannaríkja Iraks - Sýr- lands, Jórdaníu, Tyrklands og Irans - og verða sendir birgðir handa 100.000 flóttamönnum til hvers þeirra. Ef Jórdanía dregst inn í stríðið, eða ef uppreisn brýst þar út, gæti svo farið að flóttamannastraumur- inn yrði einkum til Sýrlands. Engar alþjóðlegar hjálparsveitir hafa verið í landinu áður og kom það nokkuð á óvart hversu samvinnuþýð stjórn- völd landsins hafa verið, en þau hafa verið bendluð við ýmis grimmd- arverk. Forsætisráðherra landsins gaf út tilskipun á fimmtudag, þar sem öllum ráðuneytum landsins var íraskir útlagar treysta póli- tíska stöðu sína Lundúnum. The Daily Telegraph. Á meðan sprengjur bandamanna falla á Bagdad þar sem Saddam Hussein felur sig í byrgi sínu gera hópar íraskra útlaga allt hvað þeir geta til að styrkja pólitíska stöðu sína, fari svo, sem flestir gera ráð fyrir, að á endanum verði einræðisherranum komið frá völdum. Hér ræðir m.a. um hópa múhameðstrúarmanna, Kúrda, arabískra þjóðernissinna, og vinstrimanna, sem allir eiga það sameiginlegt að hafa mátt þola kúgun, ofríki og ofsóknir af hálfu stjórnar Saddams Hussein. fyrirskipað að leggja ríka áherslu á að auðvelda hjálparstarfið. Þegar hafa verið reistar flótta- mannabúðir á tveimur stöðum í landinu, sem eru báðir innan við tíu km frá landamærunum að Irak. Gert er ráð fyrir að hægt verði að taka við 100.000 flóttamönnum í búðunum og hjálpargögn komi frá Evrópu og Kýpur. Erfiðlega gekk í fyrstu að afla styrktarfjár, en vest- ræn ríki hafa nú gefið alls 56 millj- ónir dala (rúmlega þrjá milljarða ÍSK) og Japanir hafa lofað 38 millj- ónum dala. Talið er að kostnaðurinn verði miklu meiri og embættismenn SÞ hafa farið fram á 175 milljónir dala (9,6 milljarða ÍSK) í hjálpar- starfið. Frakkar, Japanir og Argentínu- menn hyggjast útvega flugvélar til að flytja flóttamenn frá hættusvæð- unum og hjálpargögn frá Evrópu til Miðausturlanda. í skýrslu UNDRO, sem gefin var út hjá Sameinuðu þjóðunum í gær, kemur fram að allt að 80.000 Irak- ar séu á leiðinni til írans á flótta undan loftárásum bandamanna. Fram til þessa hefur breska ut- anríkisráðuneytið að mestu hundsað hópa þessa en nú í vikunni viður- kenndu stjórnvöld í Bretlandi að and- stæðingar Saddams Hussein gætu átt eftir að gegna mikilvægu hlut- verki. Fulltrúar utanríkisráðuneytis- ins ræddu m.a. við Sami Abdulrah- man, leiðtoga útlægra Kúrda, og Abdul-Aziz al-Hakim, fulltrúa þekkt- ustu ættar shíta í írak, sem dvelst í útlegð í íran. Andstaða við loftárásir bandamanna Útlagahóparnir fagna þeirri at- hygli sem þeir nú njóta og allir eru þeir sannfærðir um að lýðræði verði ekki komið á í írak án þátttöku þeirra, fari svo að bundinn verði endi á 22 ára ógnarstjórn Ba’ath- flokksins og Saddams forseta. Á hinn bóginn er útlögunum nokkur vandi á höndum. Allir styðja þeir aðgerðir bandamanna til að frelsa Kúveit en á hinn bóginn óttast margir að það muni skaða stöðu þeirra í írak eigi þeir of náin samskipti við ríki þau sem nú standa fyrir gríðarlegum loft- árásum á heimaland þeirra. „Við munum ekki eiga nein samskipti við Vesturlönd á meðan sprengjum er látið rigna yfir írak,“ sagði Mowaff- ak al-Rubai, talsmaður Da’wa- flokksins, samtaka shíta sem sætt hafa skipulegum ofsóknum í írak. Hann er þeirrar skoðunar að banda- menn vilji að nýr einræðisherra, eitt- hvað mildari en Saddam, komist til valda í landinu og að þeir hafi alvar- legar efasemir um ágæti þess að innleiða lýðræði þar, Rökin eru ein- föld: „Vesturlönd studdu Saddam í tíu ár, þvert á vilja írösku þjóðarinn- ar. Nú eru þessi sömu ríki að tortíma skrímslinu sem þau sköpuðu og leiða enn og aftur hjá sér óskir írösku þjóðarinnar". Kosningar og ný stjórnarskrá Til að styrkja áróðursstöðu sína hafa 16 hópar andstæðinga Saddams nú sameinast um stofnun nefndar sem ætlað er að hafa áhrif á stjórn- völd á Vesturlöndum. Fram til þessa hafa vestrænar ríkistjórnir einmitt sagt að ógerlegt sé að eiga nokkur samskipti við útlagahópana vegna klofnings og sundrungar _í röðum andstæðinga íraksforseta. í sameig- inlegri yfirlýsingu sem hópar þessir birtu í Lundúnum er hvatt til þess að komið verði á fót bráðabirgða- stjórn í írak eftir að Saddam hefur verið komið frá. Ríkisstjórn þessi gangist fyrír fijálsum og lýðræðis- legum kosningum og tryggi kúrdíska minnihlutanum sjálfsstjórn. Þá segir og í yfirlýsingunni að semja beri nýja lýðræðislega stjórnarskrá og að tryggja beri að útlögum verði gert kleift að snúa aftur til írak. Sérstak- lega er tekið fram að tryggja þurfi öryggi shíta-múslima í landinu. Talið er að um 500.000 Kúrdar og shítar hafi verið reknir úr landi í Irak áður en Saddam Hussein hóf stríðið við nágranna sína í íran. Þá er talið að um ein og hálf milljón Kúrda hafi verið hrakin frá heim- kynnum sínum til að bijóta á bak aftur sjálfstæðisbaráttu þeirra. Þjóðernishyggja og framtíð Iraks Auk klofningsins sem fram tii þessa hefur einkennt alla starfsemi írösku útlagahópanna hafa ráða- menn og sérfræðingar á Vestur- löndum efasemdir um að þeir geti orðið til þess að koma Saddam frá völdum. Sú skoðun er almenn að ein- ungis háttsettir herforingjar og yfir- menn öryggislögreglunnar geti kom- ið honum fyrir kattarnef. Að auki óttast vestræn ríki að of náið samráð við útlagahópana, einkum Kúrda og shíta, geti orðið til þess að írak klofni upp í mörg smáríki. Leiðtogar Kúrda, sem búa í írak, Íran, Tyrk- landi, Sýrlandi og Sovétríkjunum, hafa jafnan lagt áherslu á að þeir krefjist einungis sjálfsstjórnar en enginn efi er á því að markmið þeirra og draumur er stofnun sjálfstæðs ríkis. Stjórnvöld í íran hafa þegar lýst yfir því að þau muni ekki sætta sig við að írak hverfi af landakortinu og Tyrkir hafa þráfaldlega hafnað öllum kröfum Kúrda. Breytingar á landamærum í Mið-Austurlöndum yrðu tæpast til þess að tryggja frið- inn í þessum stríðshijáða heimshluta. TEPPAÞURRHREINSUN SKÚFUR notar þurrhreinsikertið HOST, sem yfir 100 teppaframleiðendur mæla sérstaklega með. HOST leysir upp, dregur og þerrar öll óhreinindi, alveg niður í botn teppisins. ÞAÐ RAUNVERULEGA DJÚPHREINSAR! Engin bleyta, teppið er tilbúið til notkunar strax að lokinni hreinsun. HOST-kerfið er sérlega hentugt þegar vandmeðfarin ullarteppi skulu hreinsuö, þ.a.m. austurlenskar mottur. SKUFUR Sími: 678812 REYNIÐ VIÐSKIPTIN SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL... ARMM Söluskrifstofur Flugleiða: _ Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir I síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugfelða, hjá ur 1 ’ .... i umboðsmönnum og ferðaskrifstofum HELGARFERÐ FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐ JUDAGS HÓTEL PUXJTZER TVEIR í HERB. KR. 34.105 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.