Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991 Genscher veitir Israelum siðferðilegan stuðning Hans Dietrich-Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, átti í gær fund með Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, í Tel Aviv. Heim- sókn Genschers var fyrirvaralítil og er talið að með henni vilji þýsk stjórnvöld sýna siðferðilegan stuðning við ísraela sem ekki hafa svar- að ítrekuðum loftárásum íraka. Þjóðveijar hafa einnig ákveðið _að veita ísraelum fjárhagsaðstoð vegna tjóns sem hlaust af árásum Ir- aka. Þýsk fyrirtæki hafa sætt ámæli fyrir að hafa undanfarin ár séð írökum fyrir tækjabúnaði til að framleiða efnavopn og varð Gens- cher var við þetta viðhorf í heimsókn sinni. „Skammist ykkar Þjóð- veijar fyrir að hafa skapað þennan nýja Hitler!“ hrópaði Avi Weiss, herskár rabbíi, að Genscher þegar hann skoðaði verksummerki eld- flaugaárása á Tel Aviv. Saddam orðitin skot- mark bandamanna? Washington. Reuter. ÓNEFNDUR bandarískur emb- ættismaður segir að herflugvélar bandamanna hafi verið sendar af stað í síðustu viku til að reyna að fella Saddam Hussein Iraks- forseta en slæmt veður hafi liamlað aðgerðum. Kemur þetta fram í frétt bandaríska dagblaðs- ins Washington Post. Þykir þetta renna stoðum undir að Saddam sé sjálfur eitt af skotmörkum bandamanna. í frétt blaðsins segir að leynileg- ar upplýsingar hafi borist banda- mönnum um ferðir Saddams ein- hvers staðar í Mið-írak. En stormur hafi komið í veg fyrir að hægt væri að framkvæma árás. Sérfræð- inga í alþjóðarétti voru spurðir hvort þetta kynni að stangast á við fyrirmæli frá 1981 sem fram- kvæmdavaldið í Bandaríkjunum hefur um að ráðast ekki til atlögu gegn stjórnmálaleiðtogum. Þeir segja Saddam réttmætt skotmark vegna þess að hann hafi sjálfur tekið við stjórn heraflans og sé því æðsti yfirmaður íraska hersins. Leika Sovétmenn tveimur skjöldum? Heimildarmenn úr röðum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, í Washinglon saka Sovét- menn um að styðja Iraka á laun, að sögn danska blaðsins Jyl- landsposten. Saddam Hussein íraksforseti hafi eftir ýmsum krókaleiðum fengið varahluti og hátæknibúnað frá Sovétmönnum eftir að Sameinuðu þjóðirnar, þ.á m. Sovétríkin, samþykktu viðskiptabann á Irak. Auk þess stundi Sovétmenn umfangsmikl- ar njósnir á átakasvæðinu til að kynna sér búnað og frammistöðu herja Vesturveldanna. Breska útvarpið BBC hefur skýrt frá því að um 100 sovéskir tækni- menn séu enn í Irak og aðstoði íraska herinn en Moskvustjórnin hcfur vísað þessum ásökunum á bug. Þessum ásökunum um mold- vörpustarfsemi var komið á fram- færi við dagblaðið Washington Times. Bandarísku leyniþjónustu- mennirnir, sem _ ekki eru nafn- greindir í frásögn fréttaritara Jyl- landsposten, segja að um 150 sov- éskir tæknimenn séu í írak til að aðstoða við notkun flókinna, sov- éskra hátæknivopna. Einnig benda þeir á að Sovétmenn hafi síðustu vikurnar einbeitt sér að því að nota hinar máttugu njósnastofnanir sínar til að öðlast vitneskju um nýjustu tækni og aferðir Banda- ríkjamanna við stríðsreksturinn. Notast sé m.a. við njósnagervi- hnetti, einnig hlustunarstöðvar í soveskum sendiráðum á átaka- svæðinu og í grennd við það. Sovét- menn hafi komið varahlutum og vopnum til íraka um Austur-Evr- ópulönd, e.t.v. einnig Jemen og Líbýu. írakar voru einhvetjir bestú viðskiptavinir sovéska hergagna- iðnaðarins þar tii viðskiptabann SÞ tók gildi. Sagt er að Líbýumenn hafi fyrir skömmu fengið vörubíla með raf- eindatækjum sem hægt er að nota til að trufla fjarskipti og rafeinda- búnað andstæðinganna. Óttast er að búnaðurinn hafi verið sendur áfram með flugvél til Bagdad en Líbýumenn buðu írökum aðstoð áður en átökin hófust. Jemenar, er stutt hafa Saddam Hussein, njóta aðstoðar íraskra hernaðar- ráðgjafa og hafa fengið mikið af fallbyssum, brynvörðum bílum og varahlutum undanfarnar vikur. CIA-menn fylgdust með því er flug- vél í A-Evrópuríki var lilaðin sov- éskum SA-16 loftvarnaeldflaugum er sendar voru til Bagdad skömmu áður en stríðið braust út. Ekki fylgdi sögunni hvaða A-Evrópuríki hefði verið um að ræða. í byijun janúar var sovéskt fragtskip stöðv- að þar sem það var á leið til hafnar- borgarinnar Akaba í Jórdaníu. Full- trúar ijölþjóðahetjanna fundu vopn og varahluti í klefa skipstjórans ' og var varningsins hvergi getið í skipsskjölum. Talið er að þessir hlutir ltafi átt að fara til íraks. 19 i—i_ Bretland: Rithöfundar reyna að koma 1 veg fyrir útgáfu bókar St. Andrews, frá Gudmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. NOKKRIR af þekktustu rithöf- undum Breta hafa krafist þess að hætt verði við útgáfu banda- rískrar skáldsögu. Þeir segja söguna vera ofbeldisfullt klám- rit. Bókaútgáfufyrirtækið Picador hyggst gefa út skáldsöguna Amer- icán Psycho eftir bandaríska höf- undinn Brett Easton Ellis í apríl nk. Bandaríska fyrirtækið Simon & Schuster hafði keypt útgáfuréttinn í Bandaríkjunum fyrir. ríflega 15 milljónir ,ÍSK. En það hætti við að gefa bókina út. Nú hefur Random House keypt útgáfuréttinn þar. Picador-fyrirtækið keypti breska útgáfuréttinn. Ástæðan til að Simon & Schuster hætti við útgáfuna var, að lýsingar bókarinnar vöktu almennan viðbjóð þeirra, sem lásu handritið. Aðalper- sóna bókarinnar er ijármálamaður í Wall Street í New York, sem sval- ar kvalalosta sínum í hjáverkum með því að kvelja og pynta konur til dauða. Til þess notar hann öll meðul: vélsagir, sýrur, rottur og hvaðeina. Sumir halda því fram, að herferð- in gegn bókinni veki upp svipaðar spurningar og herferðin gegn Söngvum Satans eftir Salman Rushdie. Þeir hinir sömu hafa harmað ákvörðun bandarísku út- gefendanna. Meðal andstæðinga bókarinnar í hópi brezkra rithöfunda eru skáld- konurnar Fay Weldon, Doris Less- ing og A.S. Byatt. Fay Weldon, sem þekktust er fyrir bókina Ævi og ástir kvendjöfuls, segir bókina harð- soðið klám og hefur áhyggjur af sambandinu á milli ofbeldis og kynlífs. A.S. Byatt, sem hlaut Book- er-verðlaunin á sl. ári, segir bókina hreinræktað klám og veröldin væri betur komin án hennar. Doris Lessing, en nokkrar bækur. hennar hafa verið þýddar á íslensku, segir bókina espa upp kvalalosta og hún niðurlægi bæði karla og konur. „Eg er á móti rit- skoðun, en ég fagna ákvörðun Sim- Áhyggjufullir borgarar þyrptust í banka á miðvikudag og fimmtudag eftir að Gorbatsjov gaf út tilskipun- ina um að taka ætti stóra seðla úr umferð. Nokkur gamalmenni dóu úr hjartaáföllum er þau biðu eftir því að skipta peningum sínum og örvænting greip jafnvel um sig meðal fanga. Þeir höfðu áhyggjur af peningum sem þeir áttu í felum fyrir utan fangelsin. Taugaspenna minnkaði í gær eftir að tilkynnt var um frestinn og ellilífeyrisþegar, sem staðið höfðu klukkustundum saman í biðröðum við banka og pósthús. fyrr í vikunni, gátu skipt peningum on & Schuster að hætta við að gefa bókina út,“ segir hún. . Martin Amis og Ian McEwan, sem eru í hópi bestu yngri rithöf- unda Breta, eru mótfallnir því að bókin verði bönnuð. Besta ráðið sé að gefa bókina út og láta hana sigla sinn sjó. Fólk sé fullfært um að ákveða sjálft, hvað það vilji. Bæði Martin Amis og Ian McEwan hafa beitt lýsingum á ofbeldi og kynlífi, án þess að þeir hafi verið sakaðir um klám. á 20 mínútum. Innköllunin var ákveðin í þeim tilgangi að halda verðbólgu í skefj- um og draga úr svartamarkaðs- braski en embættismenn segja að miklu magni 100 og 50 rúblna seðla hafi verið smyglað úr landi af sov- ésku mafíunni. Samkvæmt tilskip- uninni mátti fólk skipta sem svar- aði mánaðarlaunum í einu en þó aldrei meiru en 1.000 rúblum. Áður en tilkynnt var um frestinn gáfu svartamarkaðsbraskarar í Moskvu 10-80 rúblur fyrir hvern 100 rúblna seðil. Meðal„gengið“ var um 50 rúblur. Sovétríkin: Peningainnköllun frestað Moskvu. Reuter. IBUUM Moskvu og alls Rússlands var í gær gefinn vikufrestur til við- bótar til að skipta peningaseðlum sem taka á úr umferð samkvæmt tilskipun sem Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti gaf út á þriðjudag. Borg- arráð Moskvu og þing lýðveldisins Rússlands samþykktu að fram- lengja frest til að skipta 50 og 100 rúblna seðlum í minni seðla til 1. febrúar en hann átti að renna út í gær. HELGARFERÐIR í JANÚAR FEBRLJAR OG MARS Skemmtiskrepp um helgi, kostar ekki mikið... ...með Flugleiðum. Amsterdam iðar af mannlífi og skemmtun. Amsterdam er borg sælkera og listunnenda. Sigling á síkjunum eða rómantískur kvöldverður - Amsterdam er lifandi borg að nóttu sem degi. Hagstætt vöruverð og vöruval. Amsterdam er borg verslimar og glæsileika. FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐJUDAGS HÓTEL PULITZER TVEIR í HERB. KR. 34.105 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir f síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum FÍugíeiða. hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.