Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGÁRDAGUR ,26., JANÚAR 1991
‘ ' ■_í_--i—í-i-I-i If i ■ J .. ,-i * ■ . *... . i ■■ i . i ......... 1 i.t-
TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ
Lendl og Becker
leika til úrslita
| van Lendl, frá Tékkóslóvakíu,
mætir Þjóðvejjanum Boris Beck-
er í úrslitaleik opna ástralska meist-
aramótsins í tennis á sunnudaginn.
Lendl sigraði Stefan Edberg í mjög
jöfnum og spennandi leik, 6:4 5:7
3:6 7:6 6:4 en Bekcer sigraði Patick
McEnroe nokkuð örugglega, 6:7 6:4
6:1 6:4. .
Edberg virtist vera nokkuð ör-
uggur með sigurinn. í fjórðu lotunni
gegn Lendl. Hann hafði sigrað í
tveimur og þurfti aðeins eitt stig
til að tryggja sér sigur í fjórðu lot-
unni. Hann gerði hinsvegar slæm
mistök; bakhönd hans fór í netið
og tvær uppgjafir mistókust. Lendl
náði að jafna og sigra örugglega í
oddahrinunni, 7:3. I síðustu lotunni
náði hann svo að tryggja sér sæti
í úrslitum með öruggum leik, 6:4.
Það var mikill hiti í leiknum og
Lendl var aðvaraður fyrir að mót-
mæla dómi. Hann lék þó af miklum
krafti en Edberg virkaði afar
taugaóstyrkur. Ellefu sinnum mis-
tókust báðar uppgjafir hans og oft
þegar mikið iá við. „Það var mjög
sárt að komast svona langt en
klúðra því svo í lokin,“ sagði Ed-
berg. „Eg hef ekki náð réttum takti
alla vikuna en í lokin á þriðja lot-
unni fannst mér ég vera að ná mér
á strik,“ sagði Edberg. Hann gagn-
rýndi Lendl fyrir að taka langan
tíma milli uppgjafa og gera leikinn
hægan og leiðinlegan.
„Eg kom til að sigra og það er
mikið eftir,“ sagðí Lendl. „Ég fann
að ég var sterkari og hafði betra
úthald en það er ekki alltaf nóg.
Það er mikið í húfi í úrslitaleikn-
um á morgun og sigurvegarinn nær
án efa efsta sæti heimslistans. Það
hefur verið takmark Beckers und-
anfarin tvö ár en hann hefur líklega
aldrei átt betri möguleika. Hann
sigraði Patrick McEnore örugglega
þrátt fyrir að eiga í töluverðum
vandræðum í fyrstu lotunni. Það fór
í skapið á Becker og tímunum sam-
an gekk hann um völlinn og talaði
við sjálfan sig. McEroe, sem er sjö
árum yngri en John McEnroe, sigr-
aði í fyrstu lotunni en gerði slæm
mistök í þeirri næstu. Eftir það
átti hann enga möguleika.
Becker sagðist hafa talað við
sjálfan sig til að róa sig: „Ég var
óstyrkur og spenntur og þurfti að
slaka á,“ sagði Becker.
Lendl er talinn sigurstranglegri
á morgun enda ávallt átt góðu gengi
að fagna í Melbourne og leikið vel
að þessu sinni. Boris Becker hefur
hinsvegar ekki náð í undanúrslitin
síðustu fimm árin en segist ákveð-
inn í að nota tækifærið og ná efsta
sætinu á heimslistanum.
Aóalfundur
Aóalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka
verður haldinn í Félagsheimilinu í dag,.
laugardag, 26. janúar kl. 14. Venjuleg
aóalfundarstörf. Lagabreytingar.
r Stjórnin.
Hádegisverður á Hötel Holti ^
Á Hótel Holti verðuráfram tilboð í hádeginu, sem
samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver og einn velur af seðli dagsins.
HOLTSVA GNINN
Holtsvagninn er kominn aftur.
Úr honum bjóðum við heilsteiktan svínahrygg
með puru, ásamt forrétti og eftirrétti.
VerÖ kr. 995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
Ivan Lendl er talinn sigurstranglegri á morgun.
FRJALSIÞROTTIR
Þórdís Gísladóttir
keppir í Bretlandi
Þórdís Gísladóttir, íslandsmet-
hafi í hástökki, keppir á tveim-
ur mótum í Bretlandi á næstunni.
Hún tekur þátt í skoska innanhúss
meistaramótinu á
sunnudaginn og um
næstu helgi keppir
hún á breska meist-
aramótinu. Vikuna
á milli hyggst hún æfa í Bretlandi
enda æfingaaðstaða hérlendis bág-_
borin.
Þórdís hefur æft af kappi fyrir
GETRAUNIR
Frá Kára
Jónssyni
á Laugarvatni
heimsmeistaramótið sem fram fer
í Sevilla á Spáni. „Ég er í góðu
formi og hef æft mikið. En ég hef
ekkert getað æft á gaddaskóm og
verð að fara út til þess,“ sagði
Þórdís.
Hún á íslandsmet í hástökki inn-
an- og utanhúss, 1,88 m. Utanhúss-
metið setti hún í fyrra en innnahúss-
metið er nær átta ára gamalt, sett
í Pontiac 1983 og að sögn Þórdísar
kominn tími til að bæta það.
Um helgina
HANDBOLTI
1. deild karla (laugardagur):
Garðabær, Stjarnan-Valur.16:30
Höll, Víkingur-KA........16:30
Seljaskóli, IR-FH........16:30
Sunnudagur:
Strandg., Haukar-Selfoss.20:30
1. deild kvenna (laugardagur):
Höll, Víkingur-Selfoss......15
Garðabær, Stjarnan-FH.......15
Vestm., ÍBV-Grótta.......13:30
Sunnudagur:
Valsh., Valur-Fram..........14
2. deild karla (laugardagur):
Húsavík, Völsungur-UMFN....,16
Sunnudagur:
Digranes, HK-UBK............20
Mosfellsbær, UMFA-ÍS........18
KÖRFUBOLTI
Úrvalsdeild (sunnudagur):
Valsh., Valur-Haukar........20
Höll, KR-Þór................20
Njarðvík, UMFN-UMFG.........16
Seljaskóli, ÍR-UMFT.........20
Stykkish., Snæfell-ÍBK......16
BLAK
íslandsmót karla, laugardagur:
Akureyri, KA-HK..........13:30
Hagaskóli, ÍS-ÞrótturN...14:45
Konur:
Akureyri, KA-HK..........14:45.
Hagaskóli, ÍS-Þróttur N..16:45
Sunnudagur (Bikar kvenna):
Akureyri, KA-HK..........15:20
KNATTSPYRNA
Vígsluleikurinn á nýja sandgras-
velli Breiðabliks í Kópavogi verður
í dag. Þá leika UBK og íslands-
meistarar Fram kl. 13:15. Um kl.
15:30 leika kvennalandsliðið og
meistaraflokkur Breiðabliks.
VEGGTENNIS
Veggtennismót (Hi-Tec squash
mótið) fer fram hjá Veggsporti
næstu fjórar helgar. Mótið hefst í
dag, laugardag, kl. 11:30 með
keppni í opnum C-flokki.
KARATE
Unglingameistaramót íslands í
karate verður haldið í íþróttahúsi
Hagaskóla á morgun, sunnudag.
Keppt verður í kata og kumite barna
og unglinga. Keppni hefst kl. 10,
en úrslit fara fram milli kl. 14 og
15. Þetta verður stærsta mót sem
Karatesambandið hefur haldið —
keppendur verða tæplega 200, frá
níu félögum.
BORÐTENNIS
Panktamót borðtennisdeildar
Víkings fer fram í TBR-húsinu á
morgun, sunnudag. Képpt verður í
riðlum og í fjölmennari flokkum
fara sigurvegarar úr riðlum og
keppa ! einföldum úrslætti. Dregið
verðu rí herbergi BTÍ í dag kl. 11,
en kl. 11 á morgun hefst keppni í
mfl. karla og kvenna, kl. 13 í 2.
flokki karla, kl. 15 í 1. fl. karla og
kvenna.
FRJÁLSAR
Meistaramót íslands í atrennu-
lausum stökkum hefst í Laugarnes-
skóla kl. 14 í dag.
Enn tvöfaldur pottur
Potturinn gekk ekki út um
síðustu helgi og því verður
hann tvöfaldur að þessu sinni. Til
stóð að sjónvarpsleikurinn yrði við-
ureign Tottenham og Oxford, en
svo verður ekki, heldur fá áhorfend-
ur að sjá Coventry og Southampton.
■Coventry hefur unnið sjö af
síðustu 10 leikjum gegn Southamp-
ton á Highfield Road, tveimur við-
ureignum hefur lokið með jafntefli
og Southampton sigrað einu sinni.
Markatalan er Coventry í hag,
17:10.
■Liverpool og Brighton hafa spilað
þtjá leiki á Anfield síðustu 10 árin.
Heimamenn hafa tvisvar sigrað en
tapað einu sinni og markatalan er
7:3.
■Millwall og Sheffield Wednesday
hafa tvisvar mæst síðan 1980. Mill-
wall hefur sigrað í bæði skiptin, 1:0
og 2:0.
■ Oldham hefur gengið vel á
heimavelli Notts County, þar sem
liðin hafa leikið tvisvar síðasta ára-
tug. Markalaust jafntefli varð í öðr-
um leiknum, en Oldham vann hinn
2:0.
■Portsmouth hefur sigrað í tveim-
ur leikjum og tapað einum gegn
Bournemouth síðan 1980 og marka-
talan er 4:4 í þessum leikjum.
■Wimbledon hefur tvisvar sótt
Shrewsbury heim síðan 1980. Ann-
ar leikurinn vannst en hinum lauk
með jafntefli. Markatalan 3:2
Wimbledon í hag.
■Totenham hefur þrisvar tekið á
móti Oxford síðan 1980 og sýnt litla
gestrisni inni á vellinum — unnið
alla leikina og markatalan 11:2.
Oxford hefur aðeins gengið betur
á heimavelli sínum, Manor Ground;
gert tvö jafntefli og tapað einum.
■Derby leikur nú öðru sinni síðan
1980 á Bramall Lane í Sheffield, í
fyrri ieik liðanna þar vann Derby
Sheffield United 1:0.
> &
CHATHAUX.
Cambridge : Middlesbro
Coventry City : Southampton
Liverpool : Brighton
Manchester Utd. : Bolton
Milwall : Sheffield Wed.
Notts County : Oldham
Port Vale : Manchester City
Portsmouth : Bournemouth
Shrewsbury : Wimbledon
Tottenham : Oxford
Sheffield Utd. : Derby County
Preston : Southend
Staðan á ýmsum tímum
Hálfleikur
Urslit
Mín spá
1 x 2
12
réttir
I sjón-
varpi
□