Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 25
til leiðréttingar vegna fyrri tíma á fasteignamatinu, hins vegar eru að- stöðugjöldin,“ sagði hann. „Á báðum þessum vígstöðvum er augljóslega um það að ræða áð ef álagningar- stuðlar haldast óbreyttir frá því sem verið hefur, þá aukast tekjur sveitar- félaganna all verulega af þessum lið- um báðum.“ Hann sagðist gera ráð fyrir að málið verði skoðað á vettvangi Sam- taka sveitarfélaga. „Ég tel ekki rétt að vera með nein stóryrði um málið á meðan þannig er verið að yfirfara það.“ Ásmundur sagði forystu ASÍ mundu að sjálfsögðu inna frekar eft- ir lyktum málsins. Gríðarleg hækkun Þessa árs raunhækkun er í stíl við þröun undanfarinna ára, ef marka má tölur frá Þjóðhagsstofnun, sem birtust í desemberhefti fréttabréfs VSÍ og eru til grundvallar línu- og súluritunum sem hér birtast. í frétta- bréfinu segir: „Undanfarinn áratug hafa umsvif sveitarfélaga aukist um 23% umfram vöxt landsframleiðslu, eða úr 6,7% af landsframleiðslu í 8,2%. Útlit er fyrir að umsvifin haldi áfram að aukast á næsta (þessu, innsk.) ári.“ Og: „Frá 1988 til 1990 er áætlað að aðstöðugjöld hækki um 7,8% að raungildi og fasteignaskatt- ar um rúm 11% á sama tíma og landsframleiðsla hefur dregist sam- an.“ Þá segir svo um þróunina undan- farinn áratug: „Gríðarleg hækkun aðstoðugjalda og fasteignaskatta vekur athygli. Frá 1980 til 1990 hækka aðstöðugjöldin um 107% að raungildi, en fasteignaskattar um 68%. Heildartekjur sveitarfélaga hafa hækkað um 46,5% á þessu tíma- bili, eða um 7,5 milljarða að raun- gildi.“ Gjaldstofninn hækkaður um 43,8 milljarða Ef litið er aftur á samanburð launaþróunar síðasta ár og hækkun fasteignaskatta einstaklinga til sveit- arfélaga má líta fyrst á heildargjald- stofninn. Heildarálagningarstofninn er 817.971 milljón króna eftir 12% hækkun matsins. Hefði matið verið hækkað í takt við launahækkanir, um 6%, þá væri stofninn um 774.150 milljónir króna. Sveitarfélögin, og ríkið, hafa því til álagningar gjald- stofn sem er 43.821 milljón króna vegna hækkunar umfram launa- hækkanir. Hér er ekki tiltækt jafnaðarálagn- ingarhlutfall sveitarfélaganna, en sé reiknað með 1% meðaltalshlutfalli er niðurstaðan liðlega 438 milljóna króna raunhækkun. Sé reiknað með 0,75% jafnaðarhlutfalli er raunhækk- unin samtals um 330 milljónir. En, ekki eru allar hækkanir taldar með fasteignagjöldum í hlutfalli við fasteignamat. Sum fasteignagjöld eru föst krónutala. Hæst hefur borið undanfarið nýupptekið sorpeyðingar- gjald sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu. Þar bættust við allt að 5.000 krónur á hverja íbúð. Reykjavík er helsta undantekningin þar var tunnugjaldið hækkað um 16,7% og er 700 krónur. Þessi sorp- gjöld eru vegna þátttöku sveitarfé- laganna í sorpeyðingu höfuðborgar- svæðisins. Þá eru sums staðar til dæmis lóða- gjöld föst krónutala og hækkuðu misjafnlega mikið milli ára, mest, af þeim stöðum sem hér eru spurnir af, um 40% í Garðabæ. Þar hækkaði leigan úr 5 krónum á fermetra í 7 krónur. 40% skattahækkun Þegar tillit hefur verið tekið til þessara gjalda sem eru föst krónu- tala, kemur í ijós að í þessum sveitar- félögum hækka fasteignagjöldin all nokkuð meira en um 12% á milli ára. Dæmi um það er frá íbúðareig- anda í Hafnarfirði. 1990 greiddi hann um 56.900 krónur í fasteignagjöld. Á þessu ári er honum gert að greiða 79.068 krónur af sömu eign, óbreyttri. Hækkunin er 22.168 krón- ur, eða 39%. í sex stærstu sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu eru þrenns kon- ar hlutföll fasteignaskatts. í Reykjavík er hann 0,421%, í Hafnar- firði, Mosfellsbæ, Garðabæ og á Selt- jarnarnesi 0,375% og í Kópavogi 0,5%. Ef þessi hlutföll eru lækkuð í takt við mismun á breytingu launa og fasteignamats, ættu þau að vera ....MORGÚNBLABmiAUtíÁkDÁGlÍÍ:26lÍÁÍsflARÍtí9Í; 25 0,398% í Reykjavík, 0,473 í Kópa- vogi og 0,355 á hinum stöðunum. Sambærileg lækkun yrði þá á hinum hlutfallslegu gjöldunum og ióðarieig- an í Garðabæ yrði 5,30 krónur í stað 7. Sveitarfélögin aðeins milliliður? Sveit'arfélögin eru ekki ein um að hækka skatta á gjaldendur. Ef marka má ályktun Samtaka sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu frá 7. desember síðastliðnum gengur ríkið líka fram og hækkar skatta á sveitar- félögin í landinu. í ályktuninni er mótmælt „harðlega þeim auknu skattaálögum sem sett voru á sveit- arfélög í landinu með upptöku virðis- aukaskatts um síðustu áramót (1989/1990, innsk.).“ í greinargerð segir: „Með upptöku virðisaukaskatts um síðustu áramót og setningu reglugerðar þar um var skattheimta á sveitarfélög aukin um u.þ.b. einn milljarð á ársgrundvelli. Miðað er við þær reglur sem áður giltu um greiðslur sveitarfélaga á söluskattii Sveitarfélögin og Sam- band íslenskra sveitarfélaga fengu nokkra leiðréttingu á þessari auknu skattheimtu með breytingum á reglugerðum um virðisaukaskatt sem gefnar voru út í desember 1989 og júní 1990. Eftir stendur um 500 Mkr aukin skattheimta ríkis af sveitarfé- lögum.“ Lækkandi verðbólga nýtist ríki og sveitarfélögum til hækkunar skatta með þeirri aðferð að halda álagning- arhlutfalli óbreyttu um leið og fast- eignamat hækkar umfram verð- bólgu. Kannski er það tilviljun að þegar sveitarfélögin sjá fram á að ríkið leggur á þau um 500 milljónir króna í virðisaukaskatti umfram það sem var í söluskatti, þá leggja sveit- arfélögin svipaða upphæð á íbúa s(na með raunhækkun fasteigna- og að- stöðugjalda? Norræna húsið: Lj ósmyndasýningum Islandsheimsókn Olafs V. Noregskonungs í BÓKASAFNI Norræna hússins hefur verið sett upp sýning á ljós- myndum, sem teknar voru þegar Ólafur V Noregskonungur heim- sótti ísland. Myndirnar eru frá 1947, þegar Snorrahátíð var haldin í Reykholti. Árið 1961 þegar Ásgeir Ásgeirsson var forseti. Arið 1974 í forsetatíð Kristjáns Eldjárns og nú síðast 1988, þegar hann kom hingað til lands og heimsótti Vigdísi Finnbogadóttur •forseta og færði Snorrastofu í Reyk- holti peninga að gjöf. Vigfús héitinn Sigurgeirsson ljós- myndari og sonur hans Gunnar G. Vigfússon tóku myndirnar, en auk þess eru myndir teknar af ljósmynd- ara Aftenposten í Ósló. { fundarsal verða sýndar af mynd- bandi fréttaþættir sém íslenska sjón- varpið gerði um konungsheimsókn- ina 1988, en einnig verður sýnt myndþand frá norska sjónvarpinu með þætti um Ólaf konung sem heit- ir „Kohg Olov í vásterled“. Sýningarnar verða i dag, laugar- daginn 26. janúar, kl. 12,- 13, 16, 17 og 18 og síðar í næstu viku, eft- ir því sem tækifæri gefst til. ALLT AÐ 60% AFSLATTUR TEPPI - DUKAR - FLISAR - MOTTUR - PARKET GÓLFTEPPI - 15-35% AFSLÁTTUR Dæmi: Saxony kanadísk stofuteppi, Aður kr. 3.0209- _____100% polyester, blettvarin, __________Núkr. 1.9639»_____ PARKET 15% AFSLÁTTUR BOEN norskt gæðaparket, uppáhaldsparket allra fagmanna. Dæmi: Eik, Dallas B. Áður kr. 3.2869» _________________________________________ Nú kr. 2.793,-___ GÓLFDÚKAR - 15-20% AFSLÁTTUR Allir Armstrong-dúkar lækka um 15% á útsölunni. Armstrong þarf ekki að líma. Dæmi: Boutique. Áður kr. 1.231,» _____________________________________________Nu kr. 0849» FLÉSAR - ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR AF AFGAN GSFLÍ SUM ítalskar og spænskar flísar í miklu úrvali. Öll hjálparefni og fagleg ráðgjöf. Dæmi: Galaxy gólfflísar. Áður kr. 2.3029» Núkr. 1.726,- Tilboð á Höganás veggfltsum 15x15 cm. Áður kr. 2.640,- ___________________________________________Nú kr. 1,395,-____ STÖK TEPPI, MOTTUR OG DREGLAR MED 15-50% AFSLÆTTI DÚKAR OG TEPPI: Afgangar og bútar á heil herbergi og minni fleti með 35-60% afslætti. Hafið málin með ykkur. Það sparar ykkur tíma og fyrirhöfn. Þíð getið Sparað þúsundir á útsölunni hjá okkur. KHfcDITKORT Lego-kubbar fyrir yngrf bömín K IEURO —m 0 iSESSSl EuflocABoj KREDIT j íHrj Samkort ‘ ■'vll&ICljjjSSlú • VELKOMIN vfJT1 TEPPABUÐIN GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.