Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991 13 Heimsmet í stærð höfuð- borgarsvæðis eftir Guðlaug Gíslason Mjög hafa verið til umræðu í fjöl- miðlum að undanförnu staða lands- byggðar og hinir miklu fólksflutning- ar þaðan til höfuðborgarsvæðisins. Mun þetta vandamál þekkt víðar en hér á landi a.m.k. hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum. En þróun þessara mála virðist hafa verið mun örari á Islandi en í nokkru landi öðru og er nú svo komið, samkvæmt upp- lýsingum í „Travelers World Atlas and Guide“, sem greinir frá stöðu þessara mála hjá öllum þjóðum heims, að Islendingar eiga þegar orðið heimsmet í fólksfjölda á sínu höfuðborgarsvæði sem hlutfall af heildaríbúatölu landsins og kemst ekkert ríki annað í námunda við ís- lendinga hvað þetta áhrærir. Ástæður fyrir því að fólk skiptir um búsetu geta verið margvíslegar og í tilfellum einstaklingsbundnar. En höfuðástæðan fyrir hinum öru fólksflutningum hér á landi frá lands- byggðinni til höfuðborgarsvæðisins er án efa af fjárhagsástæðum. Fólk telur hreinlega afkomu sinni betur borgið þar en úti á landsbyggðinni, enda liggur fyrir að útgjöld heimila á höfuðborgarsvæðinu eru í sumum tilfellum mun lægri en úti á lands- byggðinni, og munar þar mestu að því er orkumálin varðar samkvæmt gjaldskrám hita- og rafmagnsveitna frá 1. maí sl. eru útgjöld heimila úti á landsbyggðinni, sem nota 1.500 kW af rafmagni og 800 tenmtr. af heitu vatni til upphitunar á ári (Akur- eyrartaxtar), 56.906 krónum meiri en heimila á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, með samskonar orkunotkun. Og fleira kemur til. Könnun verðlags- stofnunar fyrir nokkru sýndi að vöru- verð var um 4,5% hærra að meðal- tali úti á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. Auk þess er vitað að t.d. símakostnaður er mun hærri hjá landsbyggðarfólki en í þéttbýlinu við Faxaflóa, þannig að varlega áætlað munu útgjöld meðalheimilis á landsbyggðinni vera um 90 til 100 þúsund krónum meiri á ári en sam- bærilegrar fjölskyldu á höfuðborgar- svæðinu. Og þegar þess er gætt að sama kaupgjald gildir um land allt, er hér um hreina tekjuskerðingu að ræða hjá íbúum dreifbýlisins. Að þessu athuguðu þarf engan að undra þó ofvöxtur hafi hlaupið í uppbygg- ingu höfuðborgarsvæðisins. Stjóm- völd hafa fram að þessu látið sig þessa þróun - mála litlu varða. En undanfarið hafa þó heyrst raddir í sölum Alþingis hjá einstaka ráðherr- um og alþingismönnum, að þörf myndi vera á einhverri fjárhagslegri jöfnun milli fólks á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu, og hefur þá aðallega verið talað um jöfnun orku- kostnaðar með verðjöfnunar- eða millifærslukerfi, sem örugglega myndi reynast tæknilega illfram- kvæmanlegt, enda mun almennt talið að nóg sé komið af slíkum aðgerðum. Einfaldasta leiðin til jöfnunar í þessu sambandi hlýtur að vera í gegnum skattkerfið, t.d. með hækkuðum per- sónufrádrætti hjá launþegum utan höfuðborgarsvæðisins og hlutfalls- legri uppbót hjá ellilífeyrisþegum og öryrkjum í gegnum almannatrygg- ingakerfið. Stjórnvöld hafa því i hendi sér að koma þama við leiðrétt- ingum, ef þeim sýnist svo. Hvers konar þjóðfélag? Samkvæmt áætlun opinberra aðila mun talið að fljótlega upp úr næstu aldamótum verði um 200 þúsund landsmanna búsettir á Stór-Reykja- víkursvæðinu, eins og það er skil- greint af Hagstofu Islands, og þá aðeins um 100 þúsund manns úti á landsbyggðinni, og að öU aukning mannafla verði í þjónustugreinunum og að jafnvel fækki í hinum hefð- bundnu atvinnugreinum, landbúnaði og fiskveiðum. Alipennt mun talið Guðlaugur Gíslason „Alveg tímabært fyrir landsbyggðarfólk að at- huga vel sinn gang áður en það ákveður að taka sig upp og flytja búferlum á höfuðborgarsvæðið. “ að hér sé um sérstakt vandamál landsbyggðarinnar að ræða, ef þróun þessara mála verður eins og áætlan- ir gera ráð fyrir. En ég held að þar gæti nokkurs misskilnings. Landbún- aður, sjávarútvegur og fiskvinnsla munu enn á þeim tíma verða undir- stöðuatvinnugreinar landsmanna og enn reknar að mestu leyti úti á lands- byggðinni eins og nú er, þannig að það fólk sem enn býr þar þarf vart að kvíða atvinnuleysi og atvinna þess ætti að vera nokkuð trygg, ef ekki koma til stjórnvaldsaðgerðir, sem skerða enn frekar rekstrargrundvöll þessara atvinnugreina. Hinsvegar getur landsbyggðarfólk orðið fyrir eignatjóni vegna lækkaðs fasteigna- verðs. Hitt er annað mál, sem lands- byggðarfólk ekki síður en aðrir hljóta að leiða hugann að, en það er í hvers konar þjóðfélagi koma Islendingar til með að búa þegar tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru orðnir búsett- ir á Stór-Reykjavíkursvæðinu og ekki verður þar um nema mjög tak- markaðar gjaldeyrisskapandi atvinn- ugreinar að ræða frekar en nú er miðað við fólksfjölda. Og hverjir verða afkomumöguleikar þess fólks, sem þá verður þar búsett? Spuming- in er hvort hægt verður að þenja „kerfið“ (þjónustugreinarnar) svo út að mestur hluti fólks þar geti haft viðunandi fjárhagsafkomu við fyrir- greiðslu og þjónustu við sjálft sig og þann hluta þjóðarinnar, sem enn verður búsettur úti á landsbyggðinni við öflun gjaldeyris og framleiðslu landbúnaðarafurða. Þessari spumingu er erfitt að svara, þar sem ekkert fordæmi er fyrir því hjá nokkurri annarri þjóð að slíkir fólksflutningar hafi átt sér stað til höfuðborgarsvæðis þeirra og að jafn stór hluti þeirra sé þar búsett- ur og nú er hér á landi. En veiga- mesta spumingin er að sjálfsögðu sú hvort það velferðarríki, sem ís- lendingar hafa byggt upp fái staðist, ef áætlanir um áframhaldandi fólks- flutninga til höfuðborgarsvæðisins ganga eftir, og væri illa farið ef þar yrði einhver breyting á til hins verra, því svo sannarlega eiga íslendingar nægileg auðæfi í fiskimiðunupi kringum landið og orkunni í fallvötn- um þess og iðrum jarðar, til þess að landsmenn allir ættu að geta lifað hér góðu lífi ef rétt er á haldið. Og að öllu athuguðu, og þrátt fyrir allt, er alveg tímabært fyrir landsbyggð- arfólk að athuga vel sinn gang áður en það ákveður að taka sig upp og flytja búferlum á höfuðborgarsvæðið. Höfundur er fyrrverandi alþingismadur. UPPLÝSINGAR: Sl'MSVARI: 681511 LUKKUUNA: 991000 VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.