Morgunblaðið - 26.01.1991, Blaðsíða 4
r<m x HUDAasAOUAj aiíiAJawuoflo:
MOIÍGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR'1991
Sölumenn reykskynj-
ara þykjast vera frá
Eldvamareftirlitinu
„ÞAÐ eru greinilega einhverjir á
ferli í borginni, sem þykjast vera
frá Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur.
Þeir skoða fyrirtæki og íbúðir og
benda fólki á að kaupa reykskynj-
Hross drep-
ast úr fóð-
ureitrun
ÞRETTÁN hross á bænum
Hamraendum í Stafholtstungum
hafa drepist undanfarna daga, og
er talið líklegt að það sé af völdum
eitrunar í rúllubaggaheyi sem
þeim hefur verið gefið.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Keldum, segir að hross hafi víðar
drepist af völdum eitrunar í rúllu-
baggaheyi, en hætta er á því að sý-
klar myndist í því ef það er of blautt
þegar það er verkað, eða þá að það
nær að blotna í böggunum.
ara og slökkvitæki frá ákveðnu
fyrirtæki. Ef þessu linnir ekki
verðum við að kæra þetta athæfi
til Rannsóknarlögreglu ríkisins,"
sagði .Hrólfur Jónsson, vara-
slökkviliðsstjóri, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hrólfur sagði að undanfarið hefðu
borist kvartanir frá fólki, sem teldi
óeðlilega að eldvarnareftirliti staðið.
„í ljós hefur komið að einhvetjir fara
á milli húsa í borginni og þykjast
vera frá Eldvarnareftirlitinu," sagði
Hrólfur. „Þessir menn draga upp ein-
hvers konar skýrslur, sem þeir út-
fylla eftir skoðun á húsnæðinu og
komast að þeirri niðurstöðu að fólk
verði að kaupa reykskynjara og
slökkvitæki frá ákveðnu fyrirtæki."
Hrólfur sagði að starfsmenn Eld-
varnaeftirlits . Reykjavíkur væru
ávallt einkennisklæddir við störf sín,
nema í einstaka tilfelli, en þá fram-
vísa þeir sérstökum skilríkjum með
einkennisskildi Slökkviliðs
Reykjavíkur, nafni, kennitölu og
mynd af viðkomandi.
Morgunblaðið/KGA
Forystusveitir ASÍ og VSÍ komu saman til að ræða ástand og horfur í efnahagsmálurti í húsnæði ASÍ í gær.
Fundur forystumaima ASÍ og VSÍ:
Hafa áhyggjur af horf-
um í efnahagsmálum
í GÆR var haldinn sameiginlegur fundur forystusveita Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitendasambandsins í húsakynnum ASÍ. Að
sögn Ara Skúlasonar, hagfræðings ASÍ, er þetta fyrsti fundur for-
ystumanna samtakanna til undirbúnings kjarasamninga í haust. „Það
vár farið almennt yfir stöðuna í atvinnumálum og rætt um efnahags-
horfur auk þess sem við kynntum þeim aðaláherslur ASÍ í næstu
samningum varðandi hækkun lægstu launa,“ segir Ari.
Þórarinn V. Þorarinsson sagði geiranum og loðnubrests. Það er
eðlilegt að taka snemma upp sam- því tímabært að ræða hvort hægt
töl um ástand og horfur í efnahags- sé að stuðla að því með einhveijum
málunum. „Við eigum það sam- hætti að þróunin verði jákvæðari
merkt að hafa áhyggjur af því en svartsýnar spár gefa tilefni til,“
vegna fyrirsjáanlegra tafa í orku- sagði hann.
Formaður sjómannasambandsins:
Er ekki sáttur við
svona hringlandahátt
„MARGIR þessara 15 þingmanna
stóðu að samþykkt kvótalaganna
og ég er alls ekki sáttur við svona
hringlandahátt," segir Óskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bands íslands, um þingsályktun-
artillögu 15 alþingismanna úr
stjórn og stjórnarandstöðu um að
kosin verði sjö manna milliþinga-
nefnd til að endurskoða fiskveiði-
stefnuna. Nefndin skal semja
frumvarp um stjórnun fiskveiða,
sem byggist á sóknarstýringu.
„Ég er alveg sannfærður um að
þessi þingsályktunartillaga komi
ekki til með að bæta okkar hag hvað
sjávarútveg varðar," segir Óskar
Vigfússon. „Ég tel að þessir menn
megi vita að búið er að reyna alls
konar aðferðir til að ná því sem allir
stefna að, það er að segja vemdun
fiskstofna og að ekki sé sótt meira
í þessa auðlind en hún gefur af sér.
Það hefur verið reynt með skrap-
dagakerfi og sóknarmarki og sumir
þessara þingmanna, sem að þessari
þingsályktunartillögu standa, vöruðu
á sínum tíma mjög við sóknarmark-
inu með tilliti til ofveiði," fullyrðir
Óskar.
„Mér sýnist að þessir menn stefni
nú að sóknarmarkskerfi og að kapp-
hlaup hefjist í þennan sameiginlega
pott. Ég er hræddur um að margir
yrðu undir í þeim slag og slíkt er
allra síst til þess fallið að mönnum
sé gert nokkurn veginn jafn hátt
undir höfði.“
Óskar segir að auðvitað séu gallar
á núverandi kvótakerfi. „Til dæmis
tel ég að framsalsréttur á aflakvótum
hafi ekki átt að vera í þessum kvóta-
lögum. Menn verða á hinn bóginn
að hafa þolinmæði til að láta tímann
skera úr um hvort þetta kerfi er
það, sem við leitum að. Þau ár, sem
liðin eru frá því að þetta kerfí var
sett á laggirnar, nægja ekki til að
dæma um það,“ segir hann.
Leiguflug Sam-
vinnuferða:
Farið yfir
tilboðin
umhelgina
STJÓRNENDUR Samvinnuferða-
Landsýnar munu um helgina fara
yfir tilboð Flugleiða og Atlants-
flugs í leiguflug fyrir fyrirtækið
næsta sumar. Helgi Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Samvinnu-
ferða, segir að á mánudagsmorg-
un muni liggja fyrir við hvort flug-
félagið verði samið um flugið.
Forsvarsmenn ' Samvinnuferða-
Landsýnar og Atlantsflugs höfðu
skrifáð undir viljayfirlýsingu um
leiguflug til Spánar, með fyrirvara
um samþykki stjómar Samvinnu-
ferða, eftir að slitnað hafði upp úr
viðræðum ferðaskrifstofunnar og
Flugleiða. Í vikunni gerðu Flugleiðir
hins vegar nýtt tilboð í leiguflugið
og voru tilboð beggja flugfélaganna
til umræðu á fundi stjómar Sam-
vinnuferða í gær.
VEÐURHORFUR l DAG, 26. JANUAR
YFIRLIT f GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er 975 mb lægð á
hreyfingu norðaustur en 1.038 mb hæð yfir Norðursjó. Vaxandi
990 mb lægð yfir Labrador þokast austur og síðan norðaustur.
SPÁ: Allhvöss eða hvöss sunnanátt víða um land, bjart veður á
Norður- og Norðausturlandi, rigning eða súld sunnanlands en skúr-
ir vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG:Hvöss suðaustanátt með rigningu og
súld einkum sunnan og vestanlands og fremur hlýtt í veðri. Snýst
til suðvestlægrar áttar og kólnar undir kvöld.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suðvestan strekkingur, með éljagangi um
vestanvert landíð en þurru og víða björtu veðri Austanlands. Kóln-
andi veður.
TAKN:
Heiðskírt
Lettskyjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
V Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* /. *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hltl veður Akureyri 8 hálfskýjað Reykjavík 7 rígning
Bergen 4 súld
Helsinki S skýjað
Kaupmannahöfn 5 alskýjað
Narssarssuaq 4-14 alskýjað
Nuuk 414 hálfskýjað
Osló +S þoka í grennd
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 14 heiðskirt
Amsterdám 2 þokumóða
Barcelona 10 rignlng
Berlín 3 súld
Chicago vantar
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 3 léttskýjað
Glasgow 4 mistur
Hamborg 4 þokumóða
Las Palmas 19 alskýjað
London 2 mlstur
LosAngeles 9 þokumóða
Lúxemborg 2 heiðskirt
Madrfd 7 hálfskýjað
Malaga 14 léttskýjað
Mallorca 11 rlgning
Montreal vantar
NewYork +7 léttskýjað
Orlando 16 rígning á s. klst.
Parfs 0 skýjað
Róm 11 þokumóða
Vín 3 léttskýjað
Washíngton vantar
Winnipeg vantar
VEÐUR