Morgunblaðið - 26.01.1991, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er draumlyndur í
dag og verður lítið úr verki.
Samt tekur hann framförum
á listrænum vettvangi þar
sem hann hefur haslað sér
/tfÖll.
DÝRAGLENS
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið nýtur góðs af því sem
er að gerast á bak við tjöldin
í viðskiptalífínu um þessar
mundir. Ferðaáætlun sem það
var búið að ganga frá fer út
um þúfur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn verður að hugsa sig
um tvisvar áður en hann tekur
mikilvæga ákvörðun núna.
Annaðhvort eru brögð í tafii
eðá eitthvað sem varðar málið
er hulið sjónum hans.
Krabbi
(21. júní - 22. júií)
Krabbinn ætti að vera opinn
og heiðarlegur við maka sinn
í dag. Sé hann það ekki getur
alvarlegur misskilningur
skyggt á hjónabandið þegar
frá líður.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið verður upptekið við
ákveðið verkefni í dag svo að
það hefur ekki mikinn tíma
aflögu til að skemmta sér.
- Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Meyjan er innblásin í starfi
sínu núna, en skilyrði hennar
til sköpunar eru ekki að sama
skapi heppileg.
Vog ^
(23. sept. - 22. október)
Ættingi vogarinnar þarf mik-
ið á skilningi hennar og að-
stoð að halda núna. Hún ætti
því að láta vera að gagnrýna
og fella dóma.
Sporódreki
(23. okt. -21. nóvember) ^jjj^
Sporðdrekinn á áð snúa sér
að listinni núna, en verður að
vera á verði gagnvart þeim
sem fara frjálslega með sann-
leikann.
Bogmaóur
(22. nóv. -21. desember)
Bogmaðurinn getur ekki verið
eins lengi með nánum ætt-
ingja eða vini eins og hann
kysi helst þar sem margir
gera kröfu til tíma hans.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin ætti að forðast
streitu eftir mætti j dag til
að ofþreytast ekki. Asetning-
ur hennar er góður, en það
er ekki hægt að fara eins og
köttur í kringum heitan graut
þegar taka þarf á ákveðnum
vandamálum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vatnsberinn er hikandi við að
taka að sér ákveðið félagslegt
verkefni í dag þar sem hann
er upptekinn við tímafreka
rannsóknarvinnu í starfi sínu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fiskurinn ætti að vara sig á
tungulipru sölufólki í dag. Það
gæti verið að selja honum
köttinn í sekknum.
Stjórnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
— Tniwii\/ii nn ipiviivii
1 vJIVIIVII UU JEIImIVI
LJOSKA
SMÁFÓLK
/ \'hs ( ujhat dip you learn ) VjN 5CHOOL TODAYjy THE DOOR INTOTHE 5CMOOL BU5 HAS THREE 5TEP5, ANP THE HANPLE 0NTHE PRINKlNé F0UNTAIN I5 0NTHE RI6HT... AND EVERYBOPY TOLP ME THAT 5EC0NP 6RAPE UUA5 60IN6 TO BE 50 MARP! ^
7/ c
6 ro
5. tn <u 3 « il
I 'c 1 ©
Hvað lærðirðu í skólanum í dag? Það eru þrjú þrep upp í skólabílinn Og allir sögðu mér að annar bekkur
Og að handfangið á drykkjargos brunninum er til hægri. yrði svo erfiður!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er oft erfitt að komast í
3 grönd þegar fyrirstaðan í lit
móthetjanna er Gxx á móti Dx.
Hvorugur þorir að segja grönd-
in. Hér er dæmi um það úr
Reykjavíkurmótinu í sveita-
keppni.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ D10973
¥G42
♦ KD3
*$3
Vestur Austur
♦ 852
♦ ÁK87
♦ 4
♦ DG1095
♦ KG64
¥ 10965
♦ 8
♦ Á762
Suður
♦ Á
y D3
♦ ÁG1097652
+ K4
Vestur Noröur Austur Suður
— — — 1 tígull
1 hjarta 1 spaði 3 hjörtu 4 tíglar
Pass 5 tíglar Dobl Pass
Pass Pass
Þannig gengu sagnir víða þar
sem vestur valdi að strögla á
fjórlit í hjarta. Vörnin á augljós-
lega þijá slagi, en þarf helst að
taka þá strax. Ef vörnin spilast:
hjartaás, laufdrottning upp á ás
og meira lauf (?), getur sagn-
hafi nýtt sér þijá innkomur
blinds á tromp til að fría slag á
spaða.
Hjördís Eyþórsdóttir fékk
heldur þyngri vöm: hjartaás,
laufdrottning á ás og tígul í
þriðja slag. Trompið tekur mikil-
væga innkomu af biindum, svo
ekki er með góðu móti hægt að
nýta spaðann. En Hjördís fann
lausn á samgangsvandanum.
Hún geymdi tígultvistinn heima,
og tók slaginn í blindum og spil-
aði snarlega spaðadrottningu!
Austur gat varla annað en lagt
kónginn á og Hjördís fékk því
feitan slag. Hún notaði svo inn-
komurnar tvær á tígul til að
verka spaðann.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í þýzku
Bundesligunni fyrir áramótin í
viðureign þeirra R. Griinberg
(2.350), Munchen 1836, sem hafði
hvítt og átti leik, og P. Mack
(2.300), Heidelberg.
27. Rxe6! — Bxc6 (Svartur hlýtur
einnig að verða fyrir miklu liðs-
tapi eftir 27. — Dxe6, 28. Hf6
og ef drottningin víkur sér undan
leikur hvítur e5 — e6 og opnar
skálínu biskupsins á b2)
28. Hxf5 - gxf5, 29. Dh5 -
Rc5, 30. Dh6 - He8, 31. Ba3
og svaitur gafst upp.
Nú þegar Bundesiingan er
hálfnuð er SG Solingen efst með
13 stig, en Bayern Múnchen, félag
Jóhanns Hjartarsonar er í öðru
sæti með 12 stig. Risamir tveir
mætast nú um helgina í Múnchen.