Morgunblaðið - 26.01.1991, Síða 34
34
MÓRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991
DRATTHAGUR LOGREGLUÞJONN
Geri mikið af því að krassa
það sem fyrir augu ber
EG hef gert talsvert mikið af því
að krassa það sem fyrir augu
ber hveiju sinni. Þetta er nú aðal-
lega til gamans gert,“ segir Eiríkur
Roland Jósefsson sem starfar sem
lögrelguþjónn á Keflavíkurflugvelli
og teiknaði mynd þá sem hér fylgir.
Myndina hér að ofan kallar hann
„Dagur í lífí vallarlöggu". Hann
segir myndina ekki lýsa raunveru-
legum degi hjá lögreglunni á
Keflavíkurvelli. „Þetta er svona
frekar í líkingu við það sem maður
getur ímyndað sér að þetta sé er-
lendis á tímum Persaflóastríðsins,“
segir listamaðurinn.
Hann segist vera búinn að
„krassa" svona í mörg ár. „Ég hef
líka málað talsvert, en það er aðal-
lega fyrir vini og kunningja. Ég hef
aldrei haldið sýningu eða neitt svo-
leiðis,“ segir Eiríkur.
[orgunblaðið/Björn Blöndal
Drátthagi lögregluþjónninn, Eiríkur Roland Jósefsson.
HINN EINI SANNI
BÓKAMARKAÐUR
HEFST í KRINGLUNNI
FIMMTUDAGINN
21. FEBRÚAR
GAMLA KRÓNAN í
FULLU VERÐGILDI
BOKAMARKAflllRINN KRINGLUNNI
Ftlai Isl.bDkaHtgelenda
GRINDAVIK
Signrður Bergmann
íþróttamaður ársins
Grindavík.
SIGURÐUR Bergmann Hauks-
son júdókappi var kjörinn
íþróttamaður ársins 1990, annað
árið í röð, í hófi sem bæjarstjórn
Grindavíkur hélt á nýbyijuðu ári.
Hófið var haldið á sjómannastof-
unni Vör og hafði íþrótta- og
æskulýðsráð Grindavíkur for-
göngu um kjörið. Gunnlaugur
Hreinsson formaður UMFG tók
fyrstur til máls og sagði m.a. að
síðastliðið ár væri eitt hið blómleg-
asta í sögu UMFG. Körfuknatt-
leikslið félagsins komst í úrslita-
keppni úrvalsdeildar, knattspyrnu-
lið tók þátt í íslandsmóti 2. deildar
í fyrsta sinn, sendur var kvenna-
flokkur til keppni í 2. deild í fyrsta
sinn í nokkur ár. Þá hefði júdó-
deildin unnið sveitakeppnina í elsta
flokki á íslandsmóti. Glæsileg
framkoma Grindvíkinga á Lands-
móti ungmennafélaganna í Mos-
fellsbæ vakti athygli. Gunnlaugur
þakkaði síðan bæjaryfirvöldum og
fyrirtækjum fyrir jákvæðan hug
gagnvart íþróttahreyfingunni.
Halldór Ingvason lýsti síðan
kjöri íþróttamanns Grindavíkur en
Bogi Hallgrímsson kennari og
íþróttafrömuður afhenti viður-
kenningar frá Grindavíkurbæ.
Eins og áður segir var Sigurður
Bergmann Hauksson kjörinn
íþróttmaður Grindavíkur. Guð-
mundur Bragason, körfuknattleik
varð í 2. sæti, Húnbogi Jóhanns-
son, golf og Guðjón Hauksson,
pílukast urðu í 3-4 sæti og Ragnar
Eðvarðsson, knattspyrnu í 5. sæti
og hlutu þeir allir viðurkenningar.
Sigurður er vel kominn af kjör-
inu og er meðal fremstu júdó-
manna landsins. Meðal afreka
hans á síðasta ári má telja gull á
opna skoska meistaramótinu, silf-
ur í Matsumae-open í Kaupmanna-
höfn, 8 manna úrslit á Evrópu-
meistaramótinu, Norðurlanda-
meistari lögreglumanna og 2. sæt-
ið í opnum flokki á sama ipóti. Það
má til gamans geta að þar vann
Morgunblaðið/Frímann ölafsson
Sigurður Bergmann Hauksson
íþróttamaður Grindavíkur 1990
með bikarinn
Carsten Höj sem hefur oft att
kappi við íslenska júdómenn. Síðan
en ekki síst var Sigurður í sigur-
sveit UMFG sem varð íslands-
meistari í sveitakeppni í júdó.
„Júdó stendur traustum fótum
hér í Grindavík og vel staðið að
málum þar,“ sagði Sigurður í sam-
tali við Morgunblaðið eftir kjörið,
„hér eru sterkir einstaklingar í
meistaraflokki og ungir strákar á
leiðinni upp í meistaraflokk."
„Hvað mig sjálfan snertir stefni
ég að því að vera eins lengi og
áhuginn er fyrir hendi, nú og reyna
að standa eitthvað í Bjarna [Frið-
rikssyni] í framtíðinni." Sigurður
vildi koma þökkum á framfæri við
bæjaryfirvöld í Grindavík og fyrir-
tækja sem ættu þakkir skyldar
fyrir stuðning við íþróttamenn.
Þeir væru oft einu styrktaraðilarn-
ir við hreyfinguna.
COSPER
----Vaddu nú ekki of langt útí, Alfreð.
BÓKAMARKAÐUR V Ö K U H E L G A F E L L S
3(0c aþláttur.
vmbióðumyfir „
r
Meistarar íslenskrar myndtistar:
Við bjóðum þér að eignast listprentanir í hæsta gæðaflokki af verkum eftir nokkra virtustu
myndlistarmenn þjóðarinnar: Jóhannes S. Kjarval, Gunnlaug Blöndal, Gunnlaug Scheving,
Ásgrím Jónsson, Jón Engilberts, Þorvald Skúlason o.fl. o.fl.
Verðfrá 1.050 — 2.450
Opið laugardag
frá kl. 10 -16
og sunnudag
frá kl. 12 -16.
HELGAFELL
Siíuraúlo 6 • sími 688300
r
-
VIS / GISHH VljAH