Morgunblaðið - 26.01.1991, Page 40

Morgunblaðið - 26.01.1991, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANUAR 1991 tfecAAim lo|/7 ©1990 Universal Press Syndicate // Hct-Ltu cLfr&ryi && -pLcxutcL, =9 gleymdt. g/erau <puy>um minum." TM Reg. U.S. Pat Off.—all riflhta reaarvad © 1990 Los Angelea Timea Syndicate U Alla tíð sem við unnum allir saman hefur hann haft besta herbergið til umráða. Mamma, trommusettið mitt er horfið? Hínn undarlegi lieiin- ur myndlistarinnar Til Velvakanda! Mig langar að biðja þig að koma á framfæri til lesenda þinna vingjarn- legri ábendingu til kaupenda lista- verka. Það er einkennilegt háttalag og vægt til orða tekið léttúð, þegar fólk eða fyrirtæki kaupa listaverk eftir Svavar Guðnason, af uppboðsaðilum og víða á hinum fjölskrúðuga mark- aðsakri myndlistarinnar hér. Það er fátítt að leitað sé eftir sögu lista- verks, eða reynt að fá upplýsingar um stíl listamannsins á þeim tíma sem verkið var unnið eða reynt að fá tímasetningu á því. Saga lista- mannsins gæti svaráð mörgu ef til væri, nákvæm, það mun koma að Lægri strætis- vagnagjöld! 8. bekkur 2. í Snælandsskóla skorar á yfirvöld strætisvagnanna í Reykjavík og Kópavogi að lækka gjöld fyrir nemendur 12 til 16 ára- í grunnskóla, vegna mikils kostnað- ar sem er samfara námi þeirra í skólanum. 8. bekkur 2. Köttur Þessi bröndótti högni hvarf frá Klapparstíg sunnudaginn 20. jan- úar. Þeir sem gætu veitt einhveijar upplýsingar eru vinsamlegast beðn- ir að hringja í síma 53685 eða 21953. því en um sinn er hún ekki handbær. Eitt af hinum sérstöku málum sem komið hafa fyrir hinn ágæta borgar- fógeta Ragnar Hall var að undirrita og stimpla með embættisstimpli sér- prentaða pappíra sem fylgdu hverju verki úr dánarbúi Svavars Guðnason- ar. Þetta hefur mér vitanlega aldrei skeð áður á íslandi. Vottað er á papp- írunum af tveim listfræðingum að viðkomandi listaverk sé úr dánarbúi Svavars Guðnasonar og eru mörg bindi með lýsingum á verkunum, þar sem er hægt að fletta upp númeri og gerð myndarinnar. Lögfræðingur einn sagði: -„Þetta er öruggara en undirskrift.“ Vildi ég koma þessu á framfæri þar sem mjög fáir hafa vitað þetta. Svavar Guðni Svavarsson Heilræði Verkstjórar - verkamenn Notkun hjálma við hvers konar störf hefur komiðj- veg fyrir hina alvarlegustu höfuðáverka. Því er notkun þeirra sjálfsögð. Víkverji skrifar HOGNI HREKKVISI ,, þAÐ ERFAeiÐ AÐ RlGNAf - • • þVOTTURJMN AIJNN VEEÐUR BJ-AUTUR/'' Bókagerð á íslandi hefur farið stórlega aftur síðastliðin ár. Meira er lagt upp úr magni en gæðum, bæði hvað varðar innihald og útlit. Bókagerð á sér djúpar rætur í verkmenningu liðinna kyn- slóða og það eru margir samverk- andi þættir sem leiða til fallegrar bókar. Pappírinn þarf að vera fall- egur, letrið auðiæsilegt og vel sett, prentunin vérður að vera fyrsta flokks og bókbandið vandað og við- eigandi. Þó er mikilvægast að hlut- föll bókarinnar.séu í jafnvægi, að leturflöturinn sitji t.d. rétt á síðun- um. Greinilega eru margir fúskarar að fást við bókagerð núna, senni- lega hrakar þekkingu bókagerðar- manna á grundvallarreglum við hönnun bóka, en ekki síst má rekja þetta til þess, að margir eru farnir að setja upp bækur sem hafa ekki til þess nokkra þekkingu, en hafa þó í höndunum forrit sem gerir þeim kleift að búa til bókarsíður á 'auðveldan hátt. Margir virðast greinilega ekki gera sér ljóst að jekki er nóg að hafa forrit til bóka- Igerðar, þegar ekki er til staðar þekking á grundvallarreglum við 1 útlitshönnun þeirra. Þessar reglur eru eldri en forritin ogjafnvel prent- tæknin sjálf. Gutenberg og aðrir bókagerðarmenn á árdögum prent- listarinnar sóttu fyrirmyndir sínar til handrita. Margir bókahönnuðir nútímans telja þessar gömlu reglur hefta sköpunarfrelsið og bijóta þær, viljandi eða óviljandi. Utkoman er þó yfirleitt léleg. Gamlar reglur sem staðist hafa tímans tönn hefta ekki frelsi þeirra sem hanna bækur eða hús, þær ættu að liggja til grundvallar öguðum vinnubrögð- um. Hönnuður sem ekki hefur slík- an grundvöll lendir nær örugglega í ógöngum og býr til ljótan grip. xxx Að undanförnu hefur Víkveiji fýlgst með þeirri skelfilegu þróun að bifreiðastjórar aka yfir á rauðu ljósi miklu oftar og grófar en Víkveiji hefur verið vitni að áð- ur. Lögreglan verður greinilega að grípa til viðeigandi ráðstafana, ef ekki eiga að hljótast af fleiri slys af þessum völdum en þegar er orðið. Olíustríðið við Persaflóa ætlar greinilega að verða lengra en bjartsýnir menn spáðu á fyrsta degi þess. Sjónvarpsgerð stríðsins er til- breytingarlaus þessa dagana og litl- ar upplýsingar að fá um raunveru- legan gang mála hjá alþjóðlegu sjónvarpsstöðvunum. Sömu lögmál virðast gilda um stríðið eins og annað sjónvarpsefni; um leið og þreyta er komin í söguþráðinn missa áhorfendur áhugann og snúa sér að öðru. Þetta leiðir til þess að fréttamenn stöðvanna eru undir meiri pressu að finna eitthvað bita-’ stætt handa áhorfendum sínum, sem aftur veldur því að þrýstingur vex á yfirmenn bandamannaheij- anna að grípa til róttækari að- gerða. Þannig er sjónvarpið orðið óbeinn þátttakandi í stríðsrekstrin- um og hefur áhrif á gang mála. írakar hafa spilað á þetta. í saman- burði við umfangsmiklar og kröft- ugar árásir bandamanna eru svör íraka í raun máttlaus, en á sjón- varpsskjánum valda eldflaugaárásir þeirra mestum usla. Pólitísk áhrif þeirra eru þess vegna meiri en hern- aðarleg, sjónvarpið sér fyrir því. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.