Morgunblaðið - 26.01.1991, Page 43
MÓRGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR UAUGARDAGUR
'26, JANÚAR 1991
43
1 KIMATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
KR úr leik?
KR-ingar töpuðu dýrmætum
stigum í gærkvöldi. Þeir hafa
verið í efri hluta deildarinnar í vet-
ur, en eftir 19:18 tap gegn botnliði
^■■■■H Framara, blasir úr-
Frosti slitakeppni í neðri
Eiðsson hlutanum við.
skrifer Gunnar Andrés-
son gerði sigurmark
Fram hálfri mínútu fyrir leikslok.
Heppnin var með Fram það sem
eftir var, því boltinn var á leiðinni
í net liðsins eftir skot Páls Ólafsson-
ar, þegar flautað var til leiksloka.
Leikurinn var hnífjafn allan
tímann og jafnt á nær öllum tölum.
Fram náði tveggja marka forystu
undir lokin, 18:16, en KR-ingar
jöfnuðu mínútu fyrir leikslok, sem
var samt skammgóður vermir.
Gunnar Andrésson var yfírburð-
armaður hjá Fram og potturinn og
pannan í sóknarleiknum. Guðmund-
ur A. Jónsson varði vel í síðari hálf-
leik.
Páll Olafsson var mjög góður hjá
KR og Árni Harðarson varði vel.
Annars voru leikmenn greinilega
spenntir í þessum þýðingarmikla
leik og sóknarleikur beggja liða
daufur. „Við þurftum á þessum
stigum að halda, en leikurinn'gat
farið hvernig sem var,“ sagði Ólaf-
ur Lárusson, þjálfari Fram, sem
fékk að sjá rauða spjaldið á bekkn-
um rétt eins og Leifur Dagfinnsson
hjá KR.
ÍBV komið í
efri hlutann
IBV náði þriðja sigri sínum eftir
áramót og hefur liðið því hlotið
sjö stig úr fjórum leikjum á þeim
tíma. Liðið nálgast því það takmark
sitt að verða í hópi
Sigfús Gunnar sex efstu liða. Það
Guðmundsson var Grótta sem lá
skrifar að þessu sinni,
23:22. Leikurinn var
mjög jafn svo til allan leikinn. IBV
hafði þó frumkvæðið í fyrri hálf-
leik, náði þriggja marka forskoti
rétt fyrir hlé en þá kom ágætur
kafli Gróttumanna, sem náðu að
jafna 11:11. Það sama var upp á
teningnum í síðari hálfleik.^hann
var nokkuð jafn en Eyjamenn þó
oftast fyrri til að skora og þegar
skammt var til leiksloka höfðu þeir
svo til tryggt sér sigur, höfðu náð
fjögurra marka forskoti, 23:19. En
eins og í fyrri hálfleik gerðu Gróttu-
menn þrjú síðustu mörkin.
Bestur í liði ÍBV var Gylfi Birgis-
1. DEILD KARLA
Baráttan er orðin geysihörð um sæti
í úrslitakeppni sex efstu liða 1. deildar-
innar, sem berjast munu um íslands-
meistaratitilinn. Hér má sjá úrslit leikja
gærkvöldsins, stöðuna í deildinni og
hvaða leikir eru eftir. Svo geta menn
velt vöngum...
18. umferð.
Leikir gærkvöldsins:
KR-Fram......................18:19
ÍBV - Grótta.................23:22
Staðan:
Víkingur....17 17 0 0 430:354 34
Valur.......17 13 1 3 418:374 27
Stjarnan....17 11 1 5 420:401 23
FH..........17 10 2 5 405:395 22
Haukar......17 10 0 7 403:406 20
fBV.........18 7 4 7 433:426 18
KR...........18 6 6 6 413:407 18
KA...........17 6 2 9 398:380 14
Selfoss........17 3 3 11 343:391 9
Grótta.......18 3 2 13 394:427 8
Fram..........18 2 4 12 368:417 8
ÍR...........17 2 3 12 365:412. 7
Leikir í dag og á morgun:
Stjaman - Valur, Víkingur - KA, ÍR -
FH, Haukar - Selfoss.
19. umferð, miðvikudag 30. janúar
KA - KR, Stjaman - ÍBV, Fram - Hauk-
ar, FH - Grótta, Selfoss - lR, Valur -
Víkingur.
20. umferð
KR - Valur, ÍBV - FH, Víkingur -
Stjaman, ÍR - Fram, Grótta - Selfoss,
Haukar - KA.
21. umferð
Fram - Grótta, Víkingur - ÍBV, Stjarn-
an - KR, Selfoss - FH, ÍR - KA, Valur
- Haukar.
22. umferð
KR - Víkingur, FH - Fram, ÍR - Valur,
Grótta - KA, Haukar - Stjarnan, ÍBV
- Selfoss.
■ Úrslitakeppni 1. deildar karla hefst
miðvikudaginn 6. mars.
2. DEILD
Einn af úrslitaleikjum 2. dcildar er
á dagskrá á sunnudaginn í Digranesi.
Þá mætast Kópavogsliðin HK og
Breiðablik. HK er á toppi deildarinnar
ásamt Þór með 25 stig eftir 14 leiki
en Breiðablik hefur 21 stig að 13 leikj-
um loknum.
son, sem leikið hefur mjög vel á
nýju ári, bæði í vörn og sókn. Einn-
ig voru Jóhann Pétursson og Sig-
mar Þröstur góðir. Hjá Gróttu var
Þorlákur góður í markinu og af
útileikmönnunum þeir Halldór og
Stefán.
KR-Fram 18:19
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknatt-
leikfl. deild karla — VÍS-keppnin — föstu-
daginn 25. janúar 1991. '
Gangur leiksins: 7:8, 10:8, 10:10, 16:18,
18:18, 18:19.
Mörk KR: Páll Ólafsson 8/2, Kónráð Olav-
son 4/2, Sigurður Sveinsson 2, Willum Þ.
Þórsson 2, Guðmundur Pálmason.l, Bjami
Ólafsson 1.
Varin skot: Árni Harðarson 10, Leifur
Dagfinnsson 6.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Fram: Gunnar Andrésson 6, Karl
Karlsson 6/4, Andrés Sigurðsson 2, Egill
Jóhannesson 2, Brynjar Stefánsson 2,
Gunnar Kvaran 1.
Varin skot: Guðmundur A. Jónsson 7, Þór
Bjömsson 5.
Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: 35.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Árni
Sverrisson.
ÍBV-Grótta 23:22
Iþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, ís-
landsmótið í handknattleik, 1. deild karla —
VÍS-keppnin — föstudaginn 25. janúar
1991.
Gangur leiksins: 1:1, 5:5, 9:7, 11:8, 11:11,
14:14, 20:17, 23:19, 23:22.
Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 10/5, Jóhann
Pétursson 5, Sigurður Friðriksson 3/1,
Helgi Bragason 2, Davíð Hallgrímsson 1,
Sigbjöm Óskarss. 1, Haraldur Hannesson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 10
(þar af 6, er boltinn fór aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Gróttu: Haraldur Ingólfsson 9/6,
Stefán Amarson 5, Páll Björgvinsson 3,
Svafar Magnússon 2, Friðleifur Friðleifss.
1, Jón Öm Kristjánss. 1, Gunnar Gíslason 1.
Varin skot: Þorlákur Árnason 12/1 (þar
af 3, er boltinn fór aftur til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Áhorfendur: Um 400.
Dómarar: Steinþór Baldursson og Hafliði
Maggason.
1. DEILD KVENNA
ÍBV-Grótta......................18:18
Körfuknattleikur
Síðásti leikur 16-liða úrslita bikarkeppni
KKÍ fór fram á Akurcyri í gærkvöldi:
Þór-UÍA.........................89:48
Stigahæstir:
Þór: Konráð Óskarsson 20, Jón Örn Guð-
mundsson 17.
UÍA: Kristján Rafnsson 27, ívar Webster
6, Viggó Skúlason 6.
Skíði
Saalbach, Austuniki:
Heimsmeistaramótið. Tvikeppnisbrun
kvenna í gær. Brautin var 2.069 m löng,
fallhæð 638 m.
1. Sabine Ginther (Austurríki).1:18.23
2. Petra Kronberger (Austurríki)....1:18.59
3. Chantal Bournissen (Sviss)...1:18.69
4. SvetlanaGladishiva (Sovétríkj.) .1:18.70
5. MichaelaGerg(Þýskalandi)..1:18.75
6. Katrin Gutensohn (Þýskalandi) ..1:18.90
7. Katja Seizinger (Þýskalandi).1:18.91
8. Kerrin Lee-Gartner (Kanada)..1:18.92
9. Miriam Vogt (Þýskalandi).. 1:18.99
10. V arvara Zelenskaya (Sovétríkj.) 1:19.14
■Síðari hluti tvíkeppninnar er svig, sem
fram fer næstkomandi fimmtudag.
Gylfi Birgisson hefur leikið vel það sem af er nýja árinu, bæði í sókn og
vörn. Bann gerði 10 mörk fyrir ÍBV gegn Gróttu í gærkvöldi.
Júgó-
slavi
til ÍBV?
Eyjamenn gera sér vonir um
að fá júgóslavneskan leik-
mann til liðs við hópinn. Þeir
liafa verið í sambandi við Joze
Koprivs, 31 árs miðjumann, sem
leikur í Austurríki, og bendir
allt til að hann komi til Eyja í
byrjun mars.
Tékkneski leikmaðurinn
Milan Hermer, sem Fram átti
von á í gær, kom ekki, og verð-
ur því ekki með í vígsluleiknum
í Kópavogi í dag eins og vænst
var. Hann er hins vegar væntan-
legur eftir eina til tvær vikur.
SKIÐI / HM
Sabine Ginther
komáóvart
Austurríska stúlkan Sabine
Ginther, sem hefur aldrei sigr-
að á heimsbikarmóti á skíðum, náði
bestum tíma í fyrri hluta tvíkeppnis-
brunsins, en keppt var í bruni í
Saalbach í gær. Seinni hlutinn, sem
er svig, fer fram á fimmtudag.
Árangurinn kom Ginther á óvart,
en hún sagðist vera ánægð með að
hafa náð betri tíma en Petra Kron-
berger.
„Það eykur sjálfstraustið að ná
að sýna að ég get. En ég slappaði—■
af fyrir keppnina með því að hlusta
á tónlist þar til komið var að mér.
Samt var ég hissa hvað ég var af-
slöppuð. Auðvitað er Petra sigur-
stranglegust í samanlögðu, en ég
t er ekki eins þekkt og hún og sætti
mig alveg við að komast á verð-
launapall.“
Kronberger hefur haft yfirburði
í sviginu og komi ekkert óvænt
uppá verður sigurinn hennar á
fimmtudag.
KORFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Austurríkismenn
og Skotar til íslands
Austurríkismenn og Skotar
hafa þekkst heimboð íslend-
inga og senda landslið sín hingað
í lok apríl. Skotar leika þrjá leiki
og Austurríkismenn fjóra á jafn
mörgum dögum.
„Við höfum fengið staðfestingu
frá báðum þjóðum og þetta verður
hluti af undirbúningí landsliðsins
fyrir' undankeppni Evrópumóts-
ins,“ sagði Pétur Hrafn Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri KKI.
Skotar leika 17., 18. og 19.
apríl og verður líklega einn leikur-
inn á Norðurlandi en hinir tveir í
Reykjavík og Suðurnesjum. Aust-
urríkismenn koma svo tveimur
dögum seinna og leika fjóra leiki
22.-26. apríl. Gert er ráð fyrir að
leikið verði á Akureyri, Sauðár-
króki, Suðurnesjum og Reykjavík.
Undankeppni Evrópumótsins
hefst 1. maí og þar leikur ísland
í riðli með Danmörku, Noregi,
Portúgal, Finnlandi og írlandi.
Skotar og Austurríkismenn eru
einnig að undirbúa lið sín fyrir
þá keppni, en þau mæta Ungverj-
alandi, Tyrklandi, Luxemburg og
Kýpur í hinum riðlinum.
HANDBOLTI / SPANN
„Gefum ekkert eftir“
sagði Alfreð Gíslason sem mætir Kristjáni Arasyni í dag
Alfreð Gíslason og samheijar í
Bidasoa leika gegn Kristjáni
Arasyni og félögum í Teka í undan-
úrslitum spænsku bikarkeppninnar
í dag. Barcelona vann Granollers
31:20 í gærkvöldi og mætir Sigurði
Sveinssyni og samherjum í Atlético
Madríd í hinum undanúrslitaleikn-
um.
Alfreð sagði að Geir Sveinsson
hefði leikið mjög vel með Granollers
og gert góð mörk. „En liðið vantaði
útispilara og ekki bætti úr skák að
miðjumaðurinn fótbrotnaði senni-
lega,“ sagði Alfreð.
„Það reikna flestir með því að
Barcelona verði bikarmeistari,"
sagði Alfreð við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „En við í Bidasoa ótt-
umst ekki Barcelona heldur Teka.
Við höfum yfirleitt spilað vel gegn
Kristjáni og félögum og vorum ná-
lægt því að sigra þá um jólin. Við
gefum ekkert eftir og ef horna-
mennirnir verða virkir og línumenn-
irnir ná að skora getum við náð
langt:“
Alfreð sagði að Kristján væri
greinilega ekki orðinn góður í öxl-
inni og veikindi hefðu ekki gert
honum lífið léttara, en engu að síður
hefði hann verið klettur í vörn Teka.
„Hann hélt Stinga alveg niðri í
fyrrakvöld, en svo er breiddin mikil
hjá Teka og Mats Olsson á það til
að loka markinu eins og margir
vita.“
Alfreð sagði að Sigurður Sveins-
son hefði leikið mjög vel hjá At-
lético Madríd. „Hann var sérstak-
lega góður gegn Caja Madríd. Hann
vinnur vel fyrir liðið, en fær litla
sem enga hjálp frá samheijunum,
sem er miður. en vonandi verða tvö
„íslendingalið" í úrslitum á sunnu-
dag.“