Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 33
ÍH:« HUOAU^&i) )/..! GIGAJÍJZ'JnHOI/. ------------------gBBRPAR 19gl M(Ír(',UN' HI .AfilÐ LAl!GARI )AGU R 3§* Frá umhverfis- og friðarnefnd fóstra Við erum gestir jarðar — við viljum skila jörðinni eins vel af okkur til nýrra kynslóða og við getum. Við verðum að vera meðvituð um lífríki umhverfis okkur á láði og legi og læra að fara varlega um okkar viðkvæmu náttúru svo að hún raskist ekki. Við erum svo lánsöm að búa á þessari litlu eyju langt i norðri, óspillt og hrein í margra augum og er það ekki síst einangrun lands okkar að þakka. Á þessari öld hefur orðið mikil breyting þar á, heimurinn hefur „minnkað“ með breyttum ferða- máta. Auðvelt er að ferðast heims- horna á milli nú á dögum. Hingað í kyrrðina og hreina loftið sækja ferðamenn frá ólíkum löndum og við venjumst því að sjá þá koma á vorin eins og far- fuglana og fara að haustinu. Við vitum að þetta fólk er líka gestir á hnettinum samtímis okk- ur. Við lærum að taka tillit til samferðafólks okkar þannig að vinátta ríki manna á milli. Þetta er innihald þeirrar fræðslu sem við fóstrur kennum börnum sem við erum ábyrgar fyrir hverju sinni. í stuttu máli: Berðu virðingu fyrir sjálfum þér, umhverfi þínu og því lífi sem í kringum þig er. Við hinir fullorðnu vitum að þessi sjónarmið eru ekki í háveg- um höfð í öllum löndum heims. Stríðsfréttir hafa borist okkur svo lengi sem við munum. Nú virðist stríðið nær okkur, við fáum nánast allt beint inn í stofu í sömu andrá og það gerist. Daglega berast á öldum ljós- vakans myndir og fréttir af þeim ógnaratburðum sem eiga sér stað í hinum stríðshijáðu löndum. Við erum óhjákvæmilega óbeinir þátt- takendur og óttinn læðist inn í sálarfylgsnið og maður spyr hvernig og hvenær endar þetta: Við uppalendur spytjum, hvernig við getum kinnroðalaust kennt börnum okkar það sem stendur hér að framan. Sjá þau ekki það sem birtist á skjánum, skynja þau ekki spennuna þegar hinir full- orðnu sitja límdir yfir fréttamynd- um frá átakasvæðum á öllum tímum sólarhrings? Það eru ekki einungis kvikmyndir þar sem of- beldi sést sem við þurfum að hafa aðgát á, nú er það veruleikinn í sinni köldu mynd. Hlutverk fjölmiðla er að upp- lýsa. almenning um gang mála í heiminum, við biðjum aðeins um að vandað sé til verka og síendur- teknum fréttamyndum af hörm- ungum stríðsins sé ekki troðið upp á börn og fullorðna. Sérstaklega viljum við biðja rétta aðila að fara varlega þegar fréttir eru fluttar á óvenjulegum tímum í sjónvarpinu, eins og t.d. rétt fyrir barnatíma. Að sjálfsögðu eigum við að fræða börn um styrjaldir og af- leiðingar þeirra og fer það eftir þroska barnsins hvernig að því er staðið. Við viljum öllum börnum það besta, þeirra er framtíðin. Heiður Þorsteinsdóttir, Bergljót Jóhannsdóttir, María Steindórsdóttir, Anna Harðardóttir, Anna Helga Hilmarsdóttir. ■ DÓMNEFND í hugmyndasam- keppni Sjónvarpsins fyrir stutt- myndir 1990-91 kom saman mið- vikudaginn 31. janúar 1991 ógfjalÞ aði um innkomnar hugmyndir. I dómnefnd sátu Ari Kristinsson form. Félags kvikmyndagerðar- manna, Ólafur Haukur Símonar- son, form. Leikskáldafélags íslánds og Sveinn Einarsson dagskrár- stjóri innlendrar dagskrár í Sjón- varpinu. Niðurstaða dómnefndar var að mælt skyldi með því að Sjón- varpið tæki til vinnslu hugmyndir tveggja þeirra sem tóku þátt í keppninni. Þessi voru Oddný Sv. Björgvinsdóttir rithöfundur; efnis- drög hennar bára heitið Hún vildi fá að vera í friði og Sigurbjörn Aðalsteinsson kvikmyndagerðar- maður, en hugmynd hans bar heitið Myndavél man. Jafnframt verður haft samband við nokkra aðra þátt- takendur og þeir hvattir til að vinna nánar úr hugmyndum sínum. (Frcttatilkynning) <AUGL YSINGAR SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Spilakvöld Hersis Spilakvöld verður haldið þriðjudaginn 5. febrúar í Sjálfstæðishúsinu, Austurvergi 38, Selfossi, kl. 20.30. Allirvelkomnir. Ekkert þátttökugjald. Hersir FUS, Árnessýslu. Til sigurs með Sjálfstæðis- flokknum Opinn stjórnarfundur félaga ungra sjálf- stæðismanna á Selfossi og ( Hveragerði verður haldinn laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00 í Sjálfstæöishúsinu á Selfossi, Aust- urvegi 38. Gestur fundarins verður Belinda Theriault, framkvæmdastjóri SUS. Umræð- ur verða um SUS- starfið og komandi kosn- ingabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS. Huginn - Árnessýslu Félagsfundur að Flúðum þriðjudaginn 5. febrúar kl. 21.00. Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsfund. 2. Önnur mál. Gestur fundarins verður Pálmi Jónsson, alþingismaður. Til sigurs með Sjálfstæðis- flokknum Opinn stjórnarfundur Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu, verð- ur haldinn laugardaginn 2. febrúar kl. 17.00 í Verkalýðshúsinu á Hellu, 2. hæð. Gestur fundarins verður Belinda Theriault, fram- kvæmdastjóri SUS. Umræður verða um SUS-starfiö og komandi kosningabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS. Opið hús - bein útsending Opið í Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 38, Selfossi, í dag kl. 15-17. Bein útsending úr ensku knattspyrnunni. Allir áhugamenn velkomnir. Veitingar á staðnum. Hersir FUS, Árriessýslu. Akranes Fjárhagsáætlun 1991 Fundur í Sjálfstæðishúsinu, Heiðargerði 20, mánudaginn 4. febrúar kl. 20.30. Gísli Gísla- son, bæjarstjóri, gerir grein fyrir fjárhags- áætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 1991. Allir velkomnir. Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi. Kosningar framundan Kosningastjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur opinn rabbfund með Friðriki Sophussyni, alþingis- manni, mánudaginn 4. febrúar kl. 21.15. Rætt verður um alþingiskosningarnar, sem framundan eru, stefnumál Sjálfstæðis- flokksins og áherslur í kosningabaráttunni. Allir félagsmenn eru velkomnir. IIFIMIJAI.I Ul< FUS Heimdallur. Fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna á Seltjarnarnesi Aðalfundur Fulltrúa- ráðs sjálfstæðis- félaganna á Sel- tjamarnesi verður haldinn kl. 20.30 mánudaginn 4. febrúar nk. í félags- heimili sjálfstæðis- manna, Austur- strönd 3. Á dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning landsfundarfulltrúa. Sigríður Þórðardóttir, frambjóðandi, flytur ræðu. Önnur mál. Fundarstjóri verður Guðmar Magnússon, fyrrv. forseti bæjarstjórnar. Fulltrúaráðsfólk er hvatt til að mæta vel. Stjórnin. Akranes Kjör landsfundarfulltrúa Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna, Sjálfstæðisfélag Akraness og Þór FUS, halda fund i Sjálfstæðishúsinu, mánudaginn 4. febrúar kl. 20.00. Dagskrá: Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Stjórnirnar. FÉIAGSLÍF O GIMLI 599104027 - 1 Frl. □ MÍMIR 599104027 - 1 FRL Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænastund í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Biblíudagurinn. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður: Guðmundur Örn Ragnarson. Fórn tekin til Biblíu- félagsins. Sunnudagaskóli á sama tima. Miðvikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Æskulýðssamkoma kl. 20.30. Laugardagur: * Bænastund kl. 20.30. FERÐAFÉLAG © ÍSIANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19531 Sunnudagsferð 3. febrúar kl. 13. A. Verferð 1: Við brimótta strönd suður með sjó. Farin verður fyrsta verferð af fjórum á árinu, en tilgangur ver- ferðanna er að kynna gamlar verstöðvar og verleiöir. I sunnu- dagsferðinni verður gengið um Vatnsleysuströndina frá Brunna- stöðum um Voga að Hólmabúð- um. Látið óveður ekki aftra ykkur för þvi rúta fylgir hópnum og lengd göngu ræðst af aðstæð- um. Staöfróður heimamaður slæst í hópinn. Verð kr. 1.000,-, frítt f. börn m. fullorðnum. Brott- för frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin (Hægt að taka rút- una á leiðinni t.d. á Kópavogs- hálsi og v. kirkjug. Hafnarfirði). Gönguskíðaferð verður auglýst um leið og snjóalög gefa tilefni til. Skipuleggið ferðaárið með ferðaáætlun Ferðafélagsins 1991. Missið ekki af vætta- og þorrablótsferðinni 9.-10. fe- brúar. Verið velkomin. Ferðafélag íslands. lilÚTIVIST '■ÓRNm l • KEYKJAVÍK - SÍMIAÍMSVAKI I4«k Sunnudagur 3. febrúar Reykjavíkurgangan Kl. 10.30 6. áfangi, Ferjunes - Ragnheiðarstaðir. Reykjavíkur- gangan fer nú aftur af stað eftir tveggja mánaða hlé. Eins og venja er hjá Útivist um Kyndil- messu verður gengin gömul ver- leið. Fyrir valinu varð leiðin frá Ferjunesi niður með Þjórsá og út með suöurströndinni að Ragnheiðarstöðum. Þetta var ein aðal verleiðin þegar Skaftfell- ingar og Rangæingar fóru í verið „suður syðra“ til Suöurnesja. Kl. 13.00 Hraun - Ölfusárósar. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna niður með Ölfusá að ósum fljóts- ins. Ath. Á sunnudag er stór- straumsfjara og því fróðlegt að fylgjast með því sem gerist við árósa stórfljótanna á miklu út- fyri. Brottför í báðar ferðirnar er að venju frá BSI bensínsölu. Stansað við Árbæjarsafn og í árdegisferðinni við Fossnesti á Selfossi. Sunnudagur 10/2: Póstgangan 3. áfangi. Kl. 10.30: Stóra-Vatns- leysa - Brekka. Myndakvöldinu verður frestað um eina viku og verður það fimmtud. 14/2. Sýndar verða myndir úr Nep- alsferð Útivistar í október 1990. Sjáumst! ’ Útivist. UTSALA A BARNASKOM 25-70% afsláttur Leðurskór áður kr. 2.485, - nú frá kr. 590, - °Pið írá kL 10~16 'auganiag. Stígvél frá kr. 350,- smáskór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.