Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1991 35 Valgerður Baldvins- dóttir — Minning Fædd 17. október 1920 Dáin 28. janúar 1991 í dag er lögð til hinstu hvílu Val- gerður Baldvinsdóttir sem lést þann 28. janúar. Mig langar til að kveðja kæra frænku frtlna með örfáum línum, en finn að mér verður orða vant. Þau orð sem hét' verða þó fest á blað finnast mér vera hjóm þegar ég hugsa um Öllu frænku. Á hinn bóginn væri henni áreiðanlega ekki að skapi að ég færi að skjalla hana og mæra. Eins og veðráttan er í okkai' harð- býla landi þar sem skiptast á skin og skúriiv byljir og blíðviðri, voru misjöfn veður í lífi þessarar öndveg- is konu sem nú er kvödd. Annars vegar var ástríkur og traustur eigin- maður, barnalán og samheldin fjöl- skylda og hins vegar ástvinamissir og veikindi sem hún átti lengi við að stríða. Þessar byrðar bar hún af því æðruleysi og andlegum styrk sem einkenndu hana og hún hlaut í arf frá forfeðrum sínum í Grindavík, þar sem lífsbaráttan var lengst af erfið og miskunnarlaus. Alla fæddist að Hópi í Grindavík þann 1-7. október 1920. Foreldrar hennar, Baldvin Jónsson og Loftsína Guðrún Pálsdóttir, hófu búskap að Hópsnesi en fluttu síðan að Hópi þar sem þau byggðu upp staðinn og Baldvin hóf útgerð. Síðar fluttu þau til Keflavíkur og bjuggu þar æ síðan. Árið 1945 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Gunnari Jóhannssyni, skipasmið frá Iðu í Biskupstungum og reyndist hann henni góður og traustur lífsföru'nautur, enda mann- kostamaður. Þau eignuðust 7 börn og komust 6 þeirra til fullorðinsára. Börnum sínum reyndist hún góð móðir og einstaklega hjálpsöm á meðan heilsan leyfði. Hún uppskar líka eins og hún sáði því börnin urðu öll mannkostafólk og hafa reynst foreldrum sínum sérlega vel, ekki síst á undanförnum vikum þegar fjölskyldan þurfti á öllum sínum styrk að halda. Eins og áður sagði skiptust á skin og skúrir í lífi Ollu. Árið 1960 urðu þau hjón að sjá á eftir þriggja ára syni sínum, Baldvini Rúnari, sem dó af slysförum. Slíkt hlýtur að vera mesti harmur sem hægt er að leggja á nokkra manneskju og er vísast að fólk jafni sig aldrei á slíku áfalli. Alla var vel gefin og fróðleiksfús kona og hafði yndi af að ferðast. Hún var einnig traustur vinur sem alltaf var hægt að leita til ef á þurfti að halda. Mikil vinátta var milli þeirra hjóna og foreldra minna. Á hana reyndi þegar faðir minn dó fyrir rúmum þremur árum. Þá brást Álla ekki og birtist hún oft ótilkvödd í dyrunum hjá móður minni á henn- ar erfiðustu stundum. Þegar leiðir skiljast og frænka leggur upp í sína síðustu ferð langar mig til að þakka henni samfylgdina, einkum í minni æsku þegar eldri börn hennar voru leikfélagar mínir og hún tók mér sem einu sinna eig- in barna. Gunnari, börnunum og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk og blessa á sorgarstundu Blessuð sé minning hennar. Páll V. Bjarnason — Alla Baldvins — Alla var fædd að Hópi í Grindavík 17. október 1920. Foreldrar hennar voru hjónin Loftsína G. Pálsdóttir frá Akurhúsum og Baldvin Jónsson útvegsbóndi að Hópi, þar sem Alla átti sín bernskuspor, því að þar ólst hún upp. Hún fluttist til Keflavíkur með foreldrum sínum á nítjánda ald- ursári og hafði þá lokið námi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Hún vann við verslunarstörf í Keflavík uns hún giftist skipasmíða- nema frá Iðu í Biskupstungum, Gunnari Jóhannssyni, 2. ágúst 1945. Þau settu saman bú á Baldurs- götu 6, í húsi foreldra hennar, en fluttu sig sVo til eftir því sem ijöl- skyldan stækkaði og námu staðar á Blikabraut 10, þar sem Gunnar býr nú. Já, fjölskyldan stækkaði nokkuð ört og börnin urðu sjö. Það fjórða í röðinni, sem var drengut', lést af slysförum þriggja ára gamalt. Hin börnin hafa öll komist vel til manns og afkomendahópur þessara mætu hjóna er orðinn stór og gæfulegur ættbogi. Ég vildi geta komið því til skila að nú er til grafar borin mikilhæf kona, sem vel gæti verið fyrirmynd margra nútíma kvenna sem húsmóð- ir og uppalandi. Svo vildi til, að vegna mægða við þessa konu, bar mig að heimili henn- ar fyrir nær 50 árum því þar fékk ég skjól og fyrirgreiðslu hjá foreld- rum hennar. Þá stóð Alla í sínum æskublóma. Þá stirndi af henni tígul- leiki í hljóðlátu fasi. Ungir menn gátu ekki látið það vera að líta um öxl þar sem hún fór framhjá. En hún hló ekki við hveijum sem var og þá heldur ekki mér. — Ekki þann- ig. — Hún var staðföst samviskusöm ung stúlka, sem bar með sér list- fengna drauma. Hún var músíkelsk. Spilaði á gítar og söng. Hún og stöll- ur hennar lögðu sitt af mörkum til að færa fegurð inn í magurt menn- ingariíf Keflavíkur á þeirri tíð, með því að syngja og spila, sem hýrgaði og yljaði sjávarlúnu fólki, þar sem allt snerist um útræði. — Síðar, sem eiginkona með 6 börn á palli, skap- aði hún með einhveijum hætti tóm- stundir fyrir útrás listfengi sínu með smekkvísi snillingsins í hannyrðum sem öðru fremur prýðir heimili henn- ar ásamt hagleik Gunnars, sem er mikill fagurkeri. „Ég hef misst mikið,“ sagði Gunn- ar við mig klökkum rómi. en styrkri röddu sagði hann ennfremur, af sinni meðfæddu hæversku og yfirvegun: „Þannig hlýtur það líka að vera. Þeir sem mikið hafa átt, þeir hljóta að missa mikið og ekkert er eilíft í mannlegu samfélagi." — Skynsam- lega mælt. — Gömul sannindi og ný. Dagsverk Öllu var býsna mikið og ijölþætt. Hún var hin sanna hag- sýna húsmóðir. Áhugi hennar snerist ekki um það að standa í sviðsljós- inu. Þess í stað beindist umhyggja hennar að heimilinu og börnunum þeirra. Þar uppskáru þau líka sín laun, því að öll eru þau prúð og mannvænleg og hið dyggðugasta fólk, eins og áður er sagt, og heimil- ið sjálft til fyrirmyndar um smekk- vísi og hagleik. Gunnar og Alla voru mjög sam- hent og farsæl í sínuin hjúskap. Þau byggðu sér hús, sem ekki er í frásög- ur færandi, nema af þvi að það var ekki bara einu sinni heldur tvisvar og keyptu sér síðan hús á Blika- braut 10, þar sem Gunnar býr nú. Alla lauk ævi sinni með þeim hætti, sem hétjur einar geta gert. í 15 ár stóð hún í skugga dauða síns. Vissi það vel. Æðraðist aldrei né barði sér á bijóst. Af víkings eðli háði hún orrustu, sem var töpuð fyrirfram. En með æðruleysi sínu vann hún samt sinn stærsta sigur. Hún var hin sterka sál, sem ekki haggaðist í storminum sem á móti blés, uns rótin slitnaði og hin hug- rakka kona féll að moldu. Öll biðjum við henni velfarnaðar á nýjum leiðum. Við biðjum almætt- ið að líta til ineð eiginmanni hennar og afkomendum, að það haldi áfram að blessa heimili hennar, sem hún lagði alla sína ástúð í og allt það besta sem hún kunni. Guð veri með henni. Skarphéðinn Össurarson _________Brids___________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 28. janúar var spilað annað kvöldið í „Listabridskeppni" félagsins en 18 pör taka þátt í mót- inu. Kvöldskorið varð best hjá eftirfar- andi spilurum: Hrólfur Hjaltason — SverrirÁrmannsson 1024 Júlíana Gísladóttir - Jón Gíslason 929 Karl Bjarnason - Sigurberg Elentínusson 897 Björn Olafsson - Ólafur Torfason 871 Heildarstaðan: Hrólfur Hjaltason - Sverrir Ármannsson 2079 DröfnGuðmundsdóttir-ÁsgeirÁsbjömsson 1876 Óláfur Ingimundarson - Sverrir Jónsson 1793 Hulda Hjálmarsd. - Sigurður Siguijónsson 1766 Karl Bjarnason - Sigurberg Elentínusson 1740 Björn Olafsson - Ólafur Torfason 1716 Miðlungur er 1588. Frá Skagfirðingum í Reykjavík Metþátttaka var hjá Skagfirðingum sl. þriðjudag. Yfir 60 spilarar mættú til leiks í eins kvölds tvímennings- keppni. Úrslit urðu (efstu pör): Norður/Suður: LeifurJóhannsson-JoanJensen 393 HannesR.Jónsson-JónlngiBjörnsson 352 Ármann J. Lárusson - Sveinn Sigurgeirsson 343 Austur/Vestur: Helgi Hermannsson - Kjartan Jóhannsson 382 Hermann Sigurðsson - Jóhann Oddur Bjamas. 371 Ásthildur Sigurgíslad. - Lárus Arnórsson 353 Á þriðjudaginn kemur hefst aðal- sveitakeppni deildarinnar. Skráning stendur yfir hjá Ólafi Lárussyni. Er útlit fyrir ágæta þátttöku. Allt spilaá- hugafólk velkomið. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35. Bridsfélag Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Hafin er aðalsveitakeppni félagsins, tvær umferðir hafa verið spilaðar og eru úrslit eftirfarandi: 1. umf. Aðalsteinn Jónsson - Eskfirðingur 17:13 Jóhann Þórarinsson - Haukur Bjömsson 17:13 Trésíld — Bjöm Jónsson 25:0 2. umf. Aðalsteinn Jónsson - Jóhann Þórarinsson 18:12 Eskfirðingur — Trésíld 15:15 Haukur Björnsson - Magnea Magnúsdóttir 25:5 BjömJónsson-EinarÞorvarðarson 17:13 Staða efstu sveita eftir 2 umf. Trésíld 40 HaukurBjörnsson 38 Aðalsteinn Jónsson 35 Bridsfélag Hornafjárðar Nú er lokið fjórum umferðum í sveitakeppninni og er staða efstu sveita þessi: Birgir Björnsson 80 Björn Gíslason 69 GuðbrandurJóhannsson 68 Ragnar Björnsson 66 Hótel Höfn 65 Þorsteinn Sigjónsson 65 ' Freyr SF 20 63 Einhver brenglun varð í síðustu frétt og BH beðið velvirðingar á mis- tökunum. HEILSUBUÐIN OPNAR I DAG ab Álfabakka 14b í Mjódd Belis heilsuvörur hf. opnar í dag kl. 10 fyrir hádegi, verslun ab Álfabakka 14b í Mjódd undir nafninu Svensson heilsubúbin. Svensson sérhæfir sig í náttúrurlegum snyrtivörum, megrunarvörum og fæbubótarefnum ásamt íþróttavörum. Svensson heilsubúbin verbur opin virka daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14. Rekstur póstverslunar verbur óbreyttur. g_.t Pöntunarsími (91) 66 75 80. 'föiSoESlCN i 'HtOluUV IWŒ ’ Belis HEILSUVÖRUR Svensson* I HEWLETT I PACKARD PRENTARAR SEM AÐRIR LIKJ A E F T I R I HEWLETT I PACKARD Hewlett Packard hágæðaprentarar EINSTAKT TILBOD Hewlett Packard DeskJet 500 - kr. 63.000, með VSK Hágæða ritvinnsluprentari Hljóðlaus Gáeðaletur Mikið rekstraröryggi Q55 greiðslukjör 58.590 stgr. m/VSK eða t.d. Mjög nettur MUNALÁN Tilbúinn fyrir Windows 3 ’ ^fwfis 1 Í Gerðu verðsamanburð. 25% útborgun og 4.427,- á mánufti í 12 mánuði. = ORTOLVUTÆKNI = TÖLVUKAUP HF ■ SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI: 68 72 20 , mm HÉR&NÚ AUGLÝSINGASTOFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.