Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 28
<, 28 .V10R<8 b'MBliAÐI Ð iAUGARUAGtlR t. riáliRUAíR. ASWl' FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 1. febrúar FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 110,00 93,00 102,86 108,709 11.181.393 Þorskur (ósl.) 86,00 86,00 86,00 0,092 7.912 Þorskursmár 89,00 89,00 89,00 1,351 120.239 Ýsa 125,00 90,00 113,41 8,188 928.567 Ýsa (ósl.) 90,00 86,00 87,36 1,114 97.324 Karfi 54,00 53,00 53,53 6,316 338.092 Ufsi 53,00 50,00 52,65 2,272 119.630 Steinbítur 67,00 64,00 66,53 2,792 185.873 Steinbítur 57,00 57,00 57,00 0,187 10.659 Hlýri 68,00 68,00 68,00 1,026 69.768 Langa 79,00 71,00 76,64 1,501 115.039 Langa (ósl.) 71,00 71,00 71,00 0,019 1.349 Lúða 340,00 170,00 246,71 0,714 176.265 Grálúða 80,00 80,00 80,00 2,832 226.610 Koli 59,00 59,00 59,00 0,027 1.593 Keila 40,00 40,00 40,00 0,134 5.360 Keila (ósl.) 40,00 37,00 37,71 0,463 17.461 Skata 39,00 39,00 39,00 0,094 3.666 Gellur 260,00 260,00 260,00 0,013 3.380 Hrogn 200,00 190,00 194,88 0,084 16.370 Samtals 98,79 137,930 13.626.550 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 119,00 96,00 113,55 20,932 2.376.958 Þorskur (ósl.) 108,00 105,00 106,32 2,752 292.590 Ýsa 124,00 50,00 101,94 9,731 992.016 Ýsa (ósl.) 83,00 48,00 67,71 0,087 5.891 Karfi 50,00 46,00 48,67 1,508 73.390 Ufsi 48,00 48,00 48,00 0,117 5.616 Steinbítur 69,00 62,00 64,30 2,323 149.395 Langa 79,00 79,00 79,00 1,577 124.583 Lúða 520,00 260,00 370,84 0,463 171.700 Skarkoli 70,00 " 67,00 67,82 0,663 44.965 Keila 45,00 45,00 45,00 0,183 8.235 Skata 130,00 130,00 130,00 0,022 2.860 Skötuselur 220,00 220,00 220,00 0,188 41.360 Gellur 300,00 290,00 295,00 0,045 13.422 Hrogn 275,00 150,00 216,92 1,194 259.005 Blandað 43,00 43,00 43,00 0,071 3.053 Undirmál 90,00 88,00 89,28 0,865 77.230 Samtals 520,00 43,00 108,66 42,722 4.642.271 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 123,00 72,00 102,89 27,940 2.874.720 Þorskur (ósl.) 107,00 84,00 104,63 7,400 1.820.600 Þorskurósl. dauður 86,00 72,00 82,27 3,312 437.024 Þorskur (sl.) 123,00 112,00 118,04 5,228 617.096 Ýsa 139,00 80,00 132,88 0,405 53.817 Karfi 55,00 48,00 51,91 0,127 6.593 Ufsi 38,00 35,00 37,58 0,382 14.357 Steinbitur 86,00 86,00 86,00 0,032 2.752 Hlýri 64,00 64,00 64,00 0,019 1.216 Langa 70,00 59,00 64,21 0,038 2.440 Lúða 445,00 445,00 445,00 0,023 10.235 Skarkoli 89,00 89,00 89,00 0,038 3.382 Keila 48,00 45,00 46,67 4,500 210.000 Hrogn 211,00 211,00 211,00 0,121 25.531 Samtals 95,32 33,625 3.205.043 Selt var úr Eldeyjar-Hjalta, Happasæl o.fl. ALMANIMATRYGGIIMGAR, helstu bótaflokkar 1.febrúar1991 Mánaðargreiðslur Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ................... 11.497 ’/z hjónalífeyrir .......................................10.347 Full tekjutrygging ...................................... 21.154 Heimilisuppbót .......................................... 7.191 Sérstök heimilisuppbót ................................... 4.946 Barnalífeyrirv/1 barns ................................... 7.042 Meðlag v/ 1 barns ........................................ 7.042 Mæðralaun/feðralaun v/1 barns .............................4.412 Mæðralaun/feðralaunv/2jabarna ........................... 11.562 Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja barna eða fleiri ............. 20.507 Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða .......................... 14.406 Ekkjubætur / ekkilsbætur 12 mánaða ..................... 10.802 Fullur ekkjulífeyrir .................................... 11.497 Dánarbæturí8ár(v/slysa) ................................. 14.406 Fæðingarstyrkur ........................................ 23.398 'é Vasapeningar vistmanna .................................... 7.089 Vasapeningar v/sjúkratrygginga ........................... 5.957 Daggreiðslur Fullirfæðingardagpeningar ............................... 981,00 Sjúkradagpeningareinstaklings ........................... 490,70 Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................ 133,15 Slysadagpeningareinstaklings ............................ 620,80 Slysadagpeningarfyrir hvert barn á framfæri ............. 133,15 Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síðustu tíu vikur, 22. nóv. - 31. jan., dollarar hvert tonn____ ÞOTUELDSNEYTI 500------------------ 475------------------ 450------------------ 425------------------ 225 H--1--1-1—I—I—I—I—I—h-4 23.N 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11. 18. 25. Verðmumir á 95 oktana bens íni 10 aurar á milli félaga Pétur í Botni ekki lengur einn með annað verð VERÐ á 95 oktana bensíni var mismunandi milli olíufélaganna þegar bensínstöðvar voru opnaðar í gærmorgun. hjá Olíufélaginu hf. kost- aði það 58,10 krónur, hjá Olís 57,90 og hjá Skeljungi 58 krónur. Skömmu síðar lækkaði verðið hjá Olíufélaginu í 57,80. Ennfremur kom til framkvæmda verðlækkun á bæði 92 oktana bensíni og 98 oktana. „í framhaldi af öllu þessu tali um þjóðarsátt, þá hlýtur almenningur í landinu að vera nokkuð dús við olíufélögin núna. Við erum að lækka 92 oktana bensínið, 98 oktana líka og 95 kemur inn á mjög góðu verði,“ sagði Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs í samtali við Morg- unblaðið í gær. Rætt var við forsvarsmenn olíufélaganna þriggja í gær í tilefni af frjálsri verðmyndun á 95 oktana bensíni. Talsmenn olíufélaganna kváðust í gær ekki geta fullyrt að þetta væri fyrsta sinni sem félögin selja sambærilegt eldsneyti á mismunandi verði, en töldu það þó að líkindum vera í fyrsta sinn síðan farið var að kaupa af Sovétmönnum samkvæmt milliríkjasamningi snemma á sjötta áratugnum. Einn aðili hefur þó und- anfarin ár selt bensín á öðru verði og lægra en olíufélögin þijú, það er Pétur Geirsson veitingamaður í Botnsskála og Hreðavatnsskála. Svo virðist sem mikill spenningur hafi ríkt milli félaganna í fyrrinótt og í gærmorgun og lítur út fyrir að félögin hafi gert út menn til að hafa njósn af verði hinna um leið og þau hafa sett tölur á eigin dælur í þeim tilgangi að gefa hinum undir fótinn með óraunverulegt verð. Talsmenn félaganna telja sig hafa séð verð á bensíndælum hinna, sem þeir síðan ekki kannast við. Kristinn Björnsson sagði ekki rétt sem fram kom í Morgunblaðinu í gær, að hjá Skeljungi hefði verið búið að færa inn verð á 95 oktana bensíni á fimmtudagskvöld, 58,60 krónur. „Við byrjuðum að færa inn okkar verð klukkan 7.10 í morgun," sagði hann. Hann minnti á að bensíndælurnar væru auðsjáanlegar um allan bæinn. „Og við gerum okkur grein fyrir því, að um leið og við erum búnir að setja eitthvað verð inn, þá eru auðvitað útsendarar hinna félaganna mættir og síðan er bara símað niður í aðalstöðvar og sagt hvaða verð við erum með.“ Hann sagði að þegar byijað hafi verið að setja verðið á dæíurnar klukkan 7.10 í gærmorgun hafi verið búið að færa inn 58,50 hjá Olís. „Þegar okkur bárust fréttir af þessu, þá er verðið hjá Olíufélag- inu 58,10, þannig að Skeljungur var lægstur þá.“ Kristinn sagði Skeljung ekki taka þátt í kapphlaupi um verð, eins og virtist vera í gærmorgun. „Við vor- um búnir að reikna okkur niður á það, að þetta væri það sem við gætum unað við miðað við að við vorum að lækka verðið á 98 oktana bensíninu líka, til þess að hafa eitt- hvað samræmi á milli þessara teg- unda. Ég veit ekki hvemig þessu lyktar, en það er alveg ljóst að við ætlum ekki að breyta þessu verði.“ Bjami Bjarnason markaðsstjóri hjá Olíufélaginu hf. sagði hafa verið ákveðið á fimmtudag að selja 95 oktana bensín á 58,10 krónur. „Síðan eins og gengur og gerist breyttum við verðinu í morgun áður en stöðvarnar opnuðu. Við að vísu könnuðum í gærkvöldi verðið hjá hinum og líka áður en þær opnuðu í morgun og þá var það 58,50 á Olísstöð," sagði hann. „Við breytum okkar verði klukkan hálf átta og er þá 58,10. Á mínútunni þegar opnað er og aðeins eftir það, þá breyta þeir sínu verði. Þá er það Skeljungur sem er með 58 og Olís er komið í 57,90. Mín skoðun er sú að verðið sem við ákváðum hafi verið leiðandi verð, menn hafi beðið eftir okkar verði og ákveðið sitt verð þá. Síðan lækk- um við í 57,80.“ Óli Kr. Sigurðsson forstjóri Olís sagði að sér sýndist að með fijálsri álagningu á 95 oktana bensíni sé alls ekki lagt meira á það af hálfu olíufélaganna heldur en á 92 oktana bensín. „Ég get ekki séð annað en að þetta verð sé þannig að menn halda þeirri álagningu sem þeir hafa verið með.“ Hann segir verð Olís hafa verið ákveðið á fimmtudag. „En, ég var ekkert að gefa það út fyrr en í morgun," sagði hann. „Ég sá að við vorum lægstir í upphafi, svo mega menn hlaupa með sína tíu aura, ég ætla ekki að fara í neinn sandkassa með þetta.“ Óli sagði fremur óraunhæft að tala um fijálsa verðlagningu á bensíni. Um 70% af Verðinu væru tekin í ríkissjóð. Af þeim 30% sem þá væru eftir þyrfti að greiða inn- kaupsverð, flutningskostnað, trygg- ingar, dreifingarkostnað, birgða- kostnað og rýrnun vegna uppgufun- ar, þannig að harla lítið svigrúm væri fyrir olíufélögin til að stunda eitthvert verðstríð á þessum vett- vangi. Alþýðuflokkurinn í Reykjavík; Opið prófkjör í dag og á morgim PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins í Reykjavík vegna komandi al- þingiskosninga fer fram í Ár- múlaskólanum og í Gerðubergi 1, í dag og á morgun, frá kl. 10 Nýlistasafnið: Pólskur gjörningur PÓLSKI listamaðurinn Pawel Kwasniewski verður með gjörning í Nýlistasafninu að Vatnsstíg 3b í dag, laugardag. Kwasniewski las viðtal við Forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, í þýska blaðinu Stern, og skrifaði Forsetanum í framhaldi af því. Hann fékk svar frá henni og áhugi hans á Is- landi var vakinn. Hann fékk styrk úr þýskum sjóði til að koma hingað og hér dvelst hann fram á þriðjudag. Gjörningurinn hefst klukkan 20.30 í kvöld og að honum lokn- um mun Kwasniewski sýna myndband með gjörningi sem hann hefur framið á öðrum vet- vangi. GENGISSKRÁIMING Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 54,30000 54.46000 54,69000 Sterlp. 106,97100 107.28600 107.35400 Kan. dollan 46.72800 46.86500 47,02/00 Dönsk kr. 9.54310 9.57120 9.55530 Norsk kr. 9.38630 9.41400 9.40340 Sænsk kr. 9.81920 9.84810 9.84160 Fi. mark 15.15700 15.20170 15.18960 Fr. franki 10.80540 10.83730 10.82600 Belg. franki 1.78530 1.79060 1.78580 Sv. franki 43,18090 43.30820 43,41340 Holl. gyllmi 32,59210 32.68810 32,63610 Þýskf mark 36,73880 36,84710 36.80230 ít. líra 0.04884 0.04898 0.04896 Austurr. sch. , 5.21340 5.22870 5.22870 Port. escudo 0.41560 0.41680 0.41530 Sp. peseti 0.58600 0.58780 0.58550 Jap. yen 0.41338 0.41460 0.41355 irski pund 97.72600 98.01400 98.07300 SDR (Sérst.) 78.17840 78.40880 78,48230 ECU. evr.m. 75,59920 75.82190 75.79210 Tollgengi fyrir febrúar er sölugengi 28. janúar. Sjálfvirk ur símsvari gengisskránmgar er 62 32 70. fyrir hádegi til kl. 19. Samkvæmt upplýsingum skrifstofu Alþýðu- flokksins er prófkjörið opið öll- um Reykvíkingum 18 ára og eldri, sem ekki eru flokksbundn- ir í öðrum stjórnmálaflokkum. Frambóðendur í prófkjörinu eru 13 talsins og bjóða sig ýmist fram í eitt eða fleiri sæti. Kjósa skal einn frambjóðanda í hvert sæti og greiða ber atkvæði um öll sex sætin á list- anum. Talning hefst strax eftir að kjör- staður lokar, þannig að búast má við niðurstöðum úr prófkjörinu ann- að kvöld. Stóðhesturinn Riddari 1104 í keppni á landsmóti sl. sumar. Knapi er Kristinn Guðnason. Folald undan Riddara er í verðlaun á Vetrar- móti Geysis. Vetrarmót Geysis: Tvö folöld í verðlaun FYRSTA vetrarmot hestamannafélagsins Geysis í Rangárþingi verð- ur haldið á Hellu á laugardaginn og hefst kl. 14.00. Keppt verður í tölti, bæði fullorðinna og barna, og í skeiði. Töltkeppnin er stiga- keppni, þar sem hrossin safna stigum milli móta, og eru það siðan eigiendur efstu hrossanna, sem hljóta folöldin í verðlaun i mótslok í vor. í fullorðinsflokki keppa 15 ára og eldri, og þar verða veittir verð- launapeningar fyrir 10 efstu, en tíu efstu hestar hljóta stig, frá 1 upp í tíu. Þrír efstu hestar á öllum vetr- armótum fá eignarbikar og eigandi efsta hests folald undan stóðhestin- um Riddara 1104 frá Syðra- Skörðugili, en það er Kristinn Guðnason í Skarði, sem gefur fol- aldið. í barnaflokki verða keppend- ur 14 ára og yngri, og þar eru einn- ig veittir 10 verðlaunapeningar og sigurvegari í vor fær að launum folald undan Hraunarssyninum Sval frá Kárastöðum, en það er Páll Guðbrandsson í Hávarðarkoti sem gefur folaldið. í skeiði verður keppt á 150 metra braut, og hljóta þrír efstu hestar verðlaunapeninga. Áformað er að vetrarmótið fari fram einu sinni í mánuði fram til vors.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.