Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.02.1991, Blaðsíða 25
MQRfiUNBlAÐW LAUGMDAQUR 2. flqpfiíjAJR ipgl. r Irakar reyna á styrk bandamanna B 52 sprcngjuflugvólai l('|i|)iilc’(|i|j(i" sloBvm Imkd ii IíÍikIíiih.i'iiiiiuiii Itll'lS S|ll (’IKljuill. . — Di.iKjni: I V.ODO Iiiii S|ii('ii(||iiliiiuuii. 77 Iiiiiii IRAK Irakskir vj, il, skriðdrekar w # hraktir á flótta af stórskotaliði Umm Hujui r 16 km löng fylking K8JVEIT fjöaurra írakskra véfaherdeilda Fótgöngulið í fremstu víglinu A.m.k. 37 herdeildir eru í Kúveit Kauldí___________________________________ SAUD)- Khafj ARABIA Apache-árásarbyrlur ásamt Harrier-þotum bandariska landgönguliðsins og A-10 Thunderbolts-skriðdrekaárásaþotum valda usla meðal vélaherdeilda Iraka. Þjóðverjar senda Israelum mótefni gegn efnavopnum Jcrúsalem. Reuter. ÞÝSK herflutningaflugvél kon gegn efna- og sýklavopnum og Þetta er fyrsta lyfjasending Þjóð- veija til ísraels en þeir hafa lofað ísraelum 670 milljóna dala (37 milljarða ÍSK) aðstoð vegna eld- flaugaárása íraka. í næstu viku hyggjast Þjóðveijar senda átta skotpalla fyrir Patriot-flugskeyti og bryndreka með búnað til að bera kennsl á efnavopn. Sendiherra Þýskalands í ísrael, Otto von der Gablentz, sagði að þýska stjórnin hefði ákveðið að veita ísraelum þessa aðstoð þrátt fyrir að hún hefði hingað til fylgt þeirri stefnu að senda ekki vopn til átakasvæða. „Þetta er mjög mikil- vægt verkefni og sýnir að Þjóðveij- ar styðja ísraela heilshugar," sagði von der Gablentz í ísraelska útvarp- inu. Þýska stjórnin ákvað í síðustu i í gær til Israels með mótefm fleiri lyf. viku að koma ísraelum til hjálpar eftir að þýsk fýrirtæki höfðu verið sökuð um að hafa veitt írökum aðstoð við að framleiða efnavopn og bæta Scud-eldflaugarnar, sem skotið hefur verið á Tel Aviv og Haifa. Fólk, sem lifði af ofsóknir þýskra nasista í heimsstyijöldinni síðari, kom í gær saman við þýska sendi- ráðið í Tel Aviv til að mótmæla aðstoð þýskra fyrirtækja við íraka. Verið er að flytja sendiráðið út fyr- ir miðborg Tel Aviv þar sem hætta þótti á aðjþað yrði fyrir eldflaugaá- rásum Iraka. Mótmælendurnir sögðu að Þjóðveijar ættu að flytja sendiráðið aftur í miðborgina til að starfsmenn þess gætu kynnst því hvaða afleiðingar aðstoð þýsku fyr- irtækjanna hefðu. Reuter Rúmlega fimmtugur ísraeli mót- mælir aðstoð þýskra fyrirtækja við Iraka fyrir framan þýska sendiráðið í Tel Aviv. Hann var í þijú ár í útrýmingarbúðum nasista, Bergen Bergen, í síðari heimsstyrjöldinni, þá barn að aldri. _____________ Gorbatsjov skipar nefndir til að ræða við Eystrasaltsríkin Moskvu. Reuter. MIKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, skipaði í gær sendi- nefndir til að ræða við Eystrasaltsríkin þrjú. Samkvæmt tilkynningu Tass- fréttastofunnar eru átta manns í hverri sendinefnd. í forystu þeirra eru aðstoðarforsætisráðherrar og háttsettir herforingjar. Viðræðurn- ar eru sagðar eiga að snúast um stjórnmálaleg, félagsleg og hagræn efni. í tilskipun forsetans er vísað til Eystrasaltsríkjanna, Eistlands, Lettlands og Litháens sem „sov- éskra sósíalískra lýðvelda“. Leið- togar ríkjanna hafna þessari nafn- gift eins og kunnugt er. Ekki segir í tilskipuninni hvenær viðræðurnar geti hafist.' Sumir fréttaskýrendur sögðu að orðalag hennar benti til að þess yrði krafist að fulltrúar hópa innan lýðveldanna sem ekki vilja sjálfstæði yrðu með í viðræðunum. Talið er að skipun nefndanna sé ætlað að sannfæra umheiminn og aðila í Eystrasalts- ríkjunum um að Gorbatsjov vilji í raun leggja sig í framkróka um að minnka spennuna í samskiptum Sovétvaldsins við ríkin þijú. Tékkóslóvakía: Sprengiefnaverk smiðjur til sölu Prag. Daíly Telegraph. SYNTHESIA-efnaverksmiðjurn- ar, eini framleiðandi lyktarlausa sprengiefnisins, sem hryðju- verkamenn um allan heim hafa notað mikið, eru til sölu. Karel Ruzicka, háttsettur embættis- maður í tékkneska iðnaðarráðu- neytinu, segir að verðið á meiri- hluta hlutabréfa í verksmiðjun- um, sem eru mjög úr sér gengn- ar, sé um 140 milljónir sterlings- punda (tæplega 15 milljarðar ISK). Starfsmenn eru um 8.500 talsins. Verksmiðjanna er stranglega gætt um þessar mundir vegna stríðsins fyrir botni Persaflóa, en að minnsta kosti tíu evrópsk, jap- önsk og bandarísk fyrirtæki í efna- iðnaði hafa sent fulltrúa sína til að skoða það sem í boði er. Velta Synthesia á síðasta ári nam 80 milljónum punda, en 12 milljóna punda arður var af rekstrinum. Semtex-sprengiefnið er aðeins lítill hluti af heildarframleiðslunni, en Vlaclav Havel forseti hefur sagt að fyrrverandi kommúnistastjórn landsins hafi selt svo mikið af sprengiefninu að það dugi hryðju- verkamönnum í 150 ár. Japan: Sósíalistar verðajafn- aðarmenn Tókíó. Reuter. NAFNI Sósíalistaflokks Jap- ans, stærsta stjórnarand- stöðuflokks landsins, hefur verið breytt og heitir hann nú Jafnaðarmannaflokkur Japans. Flokkurinn hefur að undanf- örnu horfið frá vinstri sósíal- isma og tekið upp stefnu jafn- aðarmanna. „Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þeirra at- burða sem hafa átt sér stað út um allan heim á undanförnum árum,“ sagði talsmaður flokks- ins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.