Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 44
d n n i i n a liWIKiailiHli lllíirrtíiií M Bögglapóstur
M Landsbanki um uilt land
Mk íslands Ju&t 1 Banki allra landsmanna PÓSTUR OG SÍMI
MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, POSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Síldarfryst-
ing hefur auk-
ist um 37% frá
<i jýfyrravetur
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna og Islenskar sjávarafurðir
hf. selja samtals um 13.700 tonn
af frystri síld í vetur, sem er 3.700
tonnum, eða 37%, meira en í
fyrra. Japanir greiða nú 25%
hærra verð en í fyrra fyrir
stærstu síldina, 300 grömm og
stærri, eða 135 jen (55,35 krónur)
fyrir kílóið, og tæplega 14%
hærra verð fyrir 270-300 gramma
síld, eða 108 jen (um 44,30 krón-
ur) fyrir kílóið. í Evrópu er hins
vegar greitt sama verð fyrir
< frysta síld og í fyrra.
flytur út 8.700 tonn af frystri
síld í vetur fyrir um 440 millj. króna
þar af um 5.100 tonn til Evrópu
fyrir um 245 millj. og um 3.600
tonn til Japans fyrir 195 milljónir.
Fyrirtækið seldi samtals 6.700 tonn
af frystri síld í fyrravetur, þar af
5.400 tonn til Evrópu og 1.300 tonn
til Japans. SH flytur út 500 tonn
af síldarflökum til Japans en 4.100
tonn til Evrópu en fyrirtækið seldi
4 þús. tonn af síldarflökum til Evr-
ópu í fyrra. SH selur tæp 800 tonn
- af roðlausum síldarflökum til Evr-
ópu í vetur, aðallega Frakklands.
íslenskar sjávarafurðir (áður
sjávarafurðadeild Sambandsins)
selja 5.030 tonn af frystri síld í
vetur, þar af um 3.100 tonn til
Evrópu fyrir um 180 milljónir króna
en 1.930 tonn til Japans fyrir 102,6
millj. kr. Fyrirtækið flytur út 390
tonn af síldarflökum til Japans en
750 tonn til Evrópu. SÍS seldi 77
tonn af síldarflökum til Japans í
fyrra en 1.600 tonn til Evrópu. ís-
lenskar sjávarafurðir hf. selja 120
tonn af roðlausum síldarflökum til
Evrópu í vetur, einkum Frakklands.
Sjávarafurðadeild Sambandsins
seldi Samtals 3.300 tonn af frystri
T'.'jTpíld á síðasta vetri; 2.100 tonn til
Evrópu fyrir 126 millj. og 1.200
tonn til Japans fyrir 54,9 milljónir.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Slökkviliðið að störfum á brunastað við Faxamarkaðinn. Lengst til vinstri er olíudæla en olíu hafði
verið dælt á fiskikassana þar sem eldurinn kom upp.
Maður fannst látinn
skammt frá brunastað
Ekki talið að honum hafi verið ráðinn bani
MAÐUR fannst látinn við Faxamarkaðinn við Reykjavíkurhöfn
seint á föstudagskvöld, 15-20 metra frá stað þar sem kveikt hafði
verið í fiskikössum við norðurgafl Faxamarkaðarins. Lík manns-
ins var mikið brunnið en ekki var talið að honum hefði verið
ráðinn bani, að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar hjá Rann-
sóknárlögreglu ríkisins. I gær var ekki vitað hver hann var en
líkur þóttu benda til að um útlending væri að ræða.
Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg-
ertssonar beindist rannsóknin að
því í gær að bera kennsl á mann-
inn. Líkið fannst í 15-20 metra
fjarlægð frá þeim stað þar sem
slökkvilið Reykjavíkur hafði
skömmu áður ráðið niðurlögum
elds sem borinn hafði verið að
nokkrum fiskikössum sem stóðu
við norðurgafl Faxamarkaðar.
Slökkviliðinu var tilkynnt um
eldinn laust eftir klukkan 21.30 á
föstudagskvöld. Að sögn slökkvi-
liðs er talið ljóst að um íkveikju
hafi verið að ræða og að olíu hafi
verið dælt á kassana úr olíudælu,
sem stóð þar skammt frá. Eldur-
inn var slökktur á skammri
stundu.
Um 3 milljarða jarðgangagerð á Vestfjörðum:
Útboð í febrúar án þess
-að fjámiögiiun sé tryggð
VEGAGERÐ ríkisins mun um
miðjan febrúar senda fimmtán
fyrirtækjum útboðsgögn vegna
jarðgangagerðar á Vestfjörðum.
Klippt af tæp-
lega700bílum
FRÁ áramótum hefur lögreglan
í Rcykjavík klippt númeraplötur
694 bílum, sem ekki höfðu
verið færðir til skoðunar á
síðasta ári.
Við áramótin hafði ekki verið
mætt til skoðunar með á sjötta
þúsund bíla. Síðan hafa verið miki-
ar annir við Bifreiðaskoðun íslands
en ekki fékkst upplýst í gær hve
^►.argir bílar hafa enn ekki fengið
fullnaðarskoðun fyrir árið 1990.
Fyrirtækin fá um tvo mánuði til
að skila tilboðum í verkið en
stefnt er að því að framkvæmdir
hefjist í sumar upp á um 3 millj-
arða króna. í frumvarpi til láns-
fjárlaga er gert ráð fyrir að 350
miHjónir verði teknar að láni á
árinu vegna þessara fram-
kvæmda samkvæmt upplýsing-
um hjá Vegagerðinni, en það
hefur hins vegar ekki verið af-
greitt á Alþingi.
Forval vegna útboðs á jarð-
gangagerðinni hefur farið fram.
Að sögn Helga Hallgrímssonar,
aðstoðarvegamálastjóra, verða 15
fyrirtækjum, sem tóku þátt í forval-
inu, send gögn vegna útboðsins um
miðjan þennan mánuð. Fyrirtækj-
unum verða síðan gefnir um tveir
mánuðir til ganga frá tilboðum
sínum. Að sögn Helga er gerð
kostnaðaráætlunar fyrir útboðið
ekki lokið. Allur framkvæmdahluti
verksins er boðinn út í einu. Göng-
in eiga að kosta rúma þijá millj-
arða, en kóstnaðaráætlun útboðsins
verður þó ekki svo há, þar sem
hönnun og eftirlit er ekki þar með
talið.
Alþingi samþykkti í fyrra þings-
ályktun, sem gerði ráð fyrir að
framkvæmdum við gerð jarðganga
á Vestfjörðum yrði flýtt, þannig að
þær hæfust á þessu ári en ekki
1992 eins og áður hafði verið gert
ráð fyrir. Jafnframt var samþykkt
að göngin yrðu gerð á skemmri tíma
en áformað hafði verið, þannig að
verkinu yrði lokið árið 1995. Sam-
kvæmt þingsályktuninni áttu fjár-
veitingar til framkvæmdanna að
koma á vegaáætlun, auk þess sem
ríkisstjórninni yrði heimilað að taka
allt að 1.300 milljónum króna að
láni til að flýta framkvæmdunum.
Gert var ráð fyrir að lánið yrði síðar
greitt af fjármagni, sem gert yrði
ráð fyrir í vegaáætlun.
Helgi Hallgrímsson segir að í
kjölfar þessarar þingsályktunar
hafi Vegagerðinni verið falið að
hefja undirbúning framkvæmdanna
og muni stofnunin nú á næstunni
leita staðfestingar á fjárveitingu til
framkvæmdanna.
Til að heimilt sé að bjóða verk
af þessu tagi út þarf að liggja fyrir
fjárveiting til framkvæmdanna ann-
að hvort í vegaáætlun eða heimild
í lögum til lántöku. Að sögn Hreins
Haraldssonar hjá Vegagerðinni
voru um 45 milljónir króna veittar
til undirbúnings framkvæmdanna,
rannsókna, hönnunar og vegagerð-
ar í vegaáætlun á síðasta ári.
Þorskveiðar:
Ný Græn-
landsganga?
Runólfur fékk 40
tonn á Mjölsekknum
Grundarfirði.
TOGARINN Runólfur frá
Grundarfirði kom að landi í
gærmorgun, laugardag, vegna
bilunar. Aflinn var 40 tonn af
þorski eftir tveggja daga veiði-
ferð. Skipstjórinn, Runólfur
Guðmundsson, segist hafa feng-
ið þorskinn 70 mílur suðvestur
af Reykjanesi á svæði, sem sjó-
menn kalla gjarnan Mjölsekk-
inn.
Þorskurinn var á bilinu 2,5 til 3
kíló. Venjulega er karfi veiddur á
þessum slóðum en síðustu þijú ár
hefur þorskur fengizt þarna í
nokkrum mæli seinnipart vetrar.
Nú kemur hann óvenjusnemma og
í umtalsverðu magni.
Ef þessi þorskur kemur úr djúp-
inu suðvestur af landgrunninu, er
hugsanlegt að hér sé á ferðinni
Grænlandsganga á borð við þær,
sem komu hér ár eftir ár á góðu
tímunum meðan nægur fiskur var
í sjónum. Við það myndi brúnin
hýrna á mörgum skipstjóranum á
þessum erfiða vetri.
Hallgrímur.
Morgunblaðið/RAX
Hraðbátur
fauk
í storminum í Grindavík í fyrra-
kvöld fauk hraðbátur og brotn-
aði í spón. Litlar skemmdir urðu
í hvellinum sem gekk yfir, en
víða í höfnum vöktuðu menn
báta og í Þorlákshöfn varð það
óhapp að maður fótbrotnaði á
báðum fótum þegar hann fest-
ist í böndum á bát sem var
verið að færa til.