Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 1

Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 1
64 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 32. tbl. 79. árg. FOSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins IRA gengst við misheppnuðu tilræði gegn stríðsráðuneyti forsætisráðherra Bretlands: Sprengja sprakk aðeins tólf metrum frá Major Bifreið írskra hryðjuverka- manna brennur fyrir utan Ban- queting- House í miðborg Lund- úna í gær eftir misheppnaða sprengjuárás á bústað breska forsætisráðherrans. Sprengja sprakk skammt frá fundarsal helstu ráðherra bresku stjórn- arinnar en þá sakaði ekki. Lundúnum. Reuter, Daily Telegraph. LITLU munaði að liðsmönnum írska lýðveldishersins (IRA) tækist að ráða John Major, forsætisráðherra Bretlands, og stríðsráðuneyti hans af dögum í sprengjuárás á bústað hans í Downingstræti 10 í miðborg Lundúna í gær. Þremur sprengjum var varpað að bústaðnum og ein þeirra sprakk á lóð hans, aðeins 12 metrum frá fundarsal þar sem 'helstu ráðherrar bresku stjórnarinnar, þar á meðal Douglas Hurd utanríkisráðherra og Tom King varnarmálaráðherra, ræddu kostnað- inn af stríðinu fyrir botni Persaflóa. Ráðherrana sakaði ekki. IRA lýsti tilræðinu á hendur sér og í yfirlýsingu samtakanna sagði að það hefði verið í undirbúningi frá því John Major tók við forsætisráðherra- émbættinu af Margaret Thatcher í nóvember. Major sagði síðar í breska þinginu að stjórn sín myndi hvergi hvika frá þeirri staðföstu stefnu sinni að veija lýðræðið og knéselja hryðjuverkaöflin. Sprengjutilræðið átti sér stað klukkan 10.09 að breskum og íslenskum tíma. Sprengjununum var skotið með sprengjuvörpum úr hvítri sendibifreið sem skilin var eftir við Whitehall, götu sem ýmsar opinberar byggingar standa við, eða aðeins 200 metrum frá bústað breska for- sætisráðherrans. Embættismaður stjórnarinnar og tveir lögreglumenn særðust lítillega í árásinni. Hinar sprengjurnar tvær komu niður á Embætti Rússlands- forseta borið und- ir þjóðaratkvæði Moskvu. Reuter. ÞING Rússlands, stærsta lýðveld- is Sovétríkjanna, samþykkti í gær að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu 17. mars um hvort stofna ætti embætti forseta lýðveldisins, sem kjörinn yrði í almennum kosning- um. Þetta er mikill sigur fyrir Borís Jeltsín, sem er talinn örugg- ur um sigur í slíkum kosningum. Verði hann kjörinn forseti Rúss- lands í kosningunum treystir hann mjög stöðu sína í baráttunni við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor- seta. Jeltsín er nú í raun forseti rússn- eska þingsins, þótt visað hafi verið til hans sem forseta lýðveldisins. Hann var eitt sinn náinn samstarfs- maður Gorbatsjovs en er nú talinn hættulegasti andstæðingur hans. Gorbatsjov var kjörinn forseti Sov- étríkjanna á fulltrúaþingi landsins, æðstu löggjafarstofnuninni, í maí ' og völd hans hafa einnig verið stór- aukin. Andstæðingar hans úr röðum umbótasinna segja að almenningi í Sovétríkjunum hafi aldrei verið gef- inn kostur á að ákveða hvort Gor- batsjov eigi að gegna forsetaemb- ættinu samhliða stöðu flokksleið- toga. Gorbatsjov hefur snúist á sveif með harðlínumönnum að undan- förnu til að reyna að binda enda á stjómmála- og þjóðaólguna í landinu. Margir Sovétmenn líta hins vegar á Jeltsín - langvinsælasta stjórnmálamanninn í Sovétríkjunum - sem eina manninn er geti afstýrt því að einræði komist á í landinu. Óháða fréttastofan Interfax skýrði frá því að rússnesku þing- mennirnir hefðu einnig samþykkt með miklum meirihluta atkvæða að hefja rannsókn á hugsanlegum njósnum öryggislögreglunnar KGB á þinginu. Hlerunartæki höfðu fund- ist í herbergi fyrir ofan skrifstofu Jeltsíns í þinghúsinu. Þá hefur Jeltsín haldið því fram nokkrum sinnum að tilraunir hafi verið gerðar til að ráða hann af dögum. baklóð bústaðarins en sprungu ekki. Hreingerningarkona varð vitni að tilræðinu og sá mann hiaupa frá bifreiðinni rétt áður en sprengingar kváðu við sem þykir benda til að sprengjuvörpurnar hafi verið tíma- stilltar. Hún sagði að sprengjunum hefði verið skotið upp um þak bif- reiðarinnar. Sérstaklega styrkt gler var í gluggum fundarsalar stríðsráðu- neytisins og komu sprungur í rúð- urnar við sprenginguna. Háttsettur embættismaður, sem viðstaddur var fundinn, sagði að skyndilega hefði gífurlega mikill hvellur kveðið við og ískaldur loftstraumur leikið um salinn. Major hefði verið snar í snún- ingum,_ staðið upp og sagt: „Herrar mínir. Egtel ráðlegt að halda fundin- um áfram í öðru herbergi." Á meðal fundarmanna var John Wakeham orkumálaráðherra, en hann særðist er hryðjuverkamenn IRA sýndu Margaret Thatcher, þá- verandi forsætisráðherra, banatil- ræði á flokksþingi íhaldsflokksins í Brighton 1984. í tilkynningu sem IRA sendi frá sér sagði að svo lengi sem Norður- írar þyrftu að lifa undir stjórn Breta yrði þreska stríðsráðuneytið að koma saman í byrgjum. Samtökin neituðu því að tilræðið hefði verið unnið fyr- ir Saddam Hussein íraksforseta fyr- ir milligöngu Líbýumanna, sem veitt hafa IRA vopn og íjárhagsaðstoð. Reuter Irakar segjast bíða 1 ofvæni eftir landbardögum við bandamenn um Kúveit: Frakklandsforseti segir innrás óhjákvæmilega í mánuðinum Bandaríkjastjórn endurskoðar aðstoð sína við Jórdani Nikosíu, París, Washingfton, Riyadh. Reuter. BANDARÍKJAMENN og bandamenn þeirra í stríðinu fyrir botni Persaflóa hertu enn loftárásir á íraska hermenn i gær er auknar líkur virtust á því að landher fjölþjóðahersins réðist inn í Kúveit. Francois Mitterrand, forseti Frakklands, sagði að innrás væri óhjákvæmileg og hún yrði gerð í síðasta lagi fyrir lok mánaðar- ins, jafnvel á næstu dögum. írakar sögðust bíða í ofvæni eftir Iandorrustunum. Bandarískir embættismenn sögðu í gærkvöldi að Bandaríkjastjórn væri að endurskoða hernaðar- og efnahagsaðstoð sína við Jórdani vegna ræðu, sem Hussein Jórdaníukonungur flutti, þar sem hann virtist Iýsa yfir stuðningi við íraka í stríðinu. Talsmaður Bandaríkjahers sagði flugvélar fjölþjóðahersins hafa farið í 52.000 ferðir í stríðinu, þai' af 600 gegn framvarðarlínu Iraka í Kúveit á síðasta sólar- hring. Harðar loftárásir voru einn- ig gerðar á miðborg Bagdad en enginn bilbugur virtist þó á írösk- um stjórnvöldum. „írakar bíða í ofvæni eftir úrslitaorrustunni gegn öllum hersveitum heiðingj- anna,“ sagði í yfirlýsingu sem les- in var í útvarpinu í Bagdad. Mitterrand sagði í sjónvarpsvið- tali að innrás í Kúveit væri óhjá- kvæmileg. „Landorrusturnar hefj- ast á næstu dögum, ef til vill litlu síðar. Þær verða að minnsta kosti í mánuðinum," sagði hann. írakar hvöttu enn stuðnings- menn sína úr röðum araba og múslima til að hefna stríðsaðgerða bandamanna með árásuni á Vest- urlöndum og sögðu að engir arab- Francois Mitterrand ar gætu verið hlutlausir í stríðinu. Á sama tíma bárust fregnir af því að Bandaríkjamaður hefði verið myrtur í Tyrklandi, en hann starf- aði á bandarískum herflugvelli í suðurhluta landsins sem notaður hefur verið til loftárása á írak. Talið er að vinstrimenn og heittrú- aðir múslimar hafi gert 72 árásir víða um heim til að hefna aðgerða fjölþjóðahersins. Fjórir hafa beðið bana í árásunum. Jatnes Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna; lagði til í gær að stofnaður yrði banki sem fengi það hlutverk að fjármagna endurupp- byggingu í Miðausturlöndum eftir stríðið. Hann tók skýrt fram að fjármagnið ætti einkum að koma frá arabaríkjum. Hann bætti við að Bandaríkjamenn stefndu ekki að því að koma Saddam Hussein Iraksforseta frá völdurn en sagði afar ólíklegt að Bandaríkjamenn kæmu írökum til hjálpar að stríðinu loknu ef hann yrði áfram við völd. Sjá fréttir á bls. 18 og 20.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.