Morgunblaðið - 08.02.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991
19
Nágrannaríki S-Afríku:
Viðskiptaþvingxmum
verði ekki strax aflétt
Harare. Reuter.
LEIÐTOGAR sjö nágrannaríkja Suður-Afríku vilja að viðskiptaþvingun-
um gagnvart minnihlutastjórn hvítra verði haldið áfram „um hríð“
þrátt fyrir þau skref sem stjórn F.W. de Klerks forseta hefur tekið í
þá átt að afnema aðskilnaðarstefnuna, apartheid. Þetta kom fram í
máli Kenneths Kaunda, forseta Zambíu, í gær eftir fund leiðtoganna
í Zimbabwe.
Ronald Reagan áttræður:
De Klerk sagði suður-afríska þing-
inu í síðustu viku að stjórnvöld hefðu
í hyggju að afnema þijá iagabálka,
sem taldir hafa verið grundvallarat-
riði apartheid, um mitt þetta ár.
Kaunda sagði leiðtogana sjö viður-
kenna gildi þess sem de Klerk hefði
gert og meta það mikils. „En de
Klerk er ekki einn á báti. Hægriöfl
beijast gegn breytingunum sem hann
boðar. Ef við hyglum honum um of
gerum við hann að auðveldara skot-
marki fyrir þau og þess vegna teljum
við rétt að halda refsiaðgerðunum
áfram.“
Ríkin sjö eru, auk Zambíu, An-
gola, Botswana, Namibía, Zimbab-
we, Tanzariía og Mózambík. Leiðtog-
ar þeirra samþykktu drög að ályktun
sem lögð verður fyrir fund fulltrúa
Einingarsamtaka Afríkuríkja (OAU)
sem hófst skömmu eftir fund sjö-
menninganna en ekki var skýrt frá
efni ályktunarinnar. Forseti Zimbab-
we, Robert Mugabe, fagnaði stefnu-
breytingu de Klerks en bætti við:
„Kjarni vanda apartheid-stefnunnar
er enn ósnertur og milljónum manna
er enn meinað að kjósa vegna hör-
undslitar þeirra."
Nelson Mandela, varaforseti
Afríska þjóðarráðsins (ANC) í S-
Afríku, og Clarence Makwetu, leið-
togi annarrar s-afriskrar blökku-
mannahreyfingar, Afríska einingarr-
áðsins (PAC), sátu ráðstefnuna. Hinn
síðarnefndi mælti fyrir munn beggja
er hann bað leiðtogana að mæla með
því að refsiaðgerðum yrði ekki aflétt
fyrr en aðskilnaðarstefnan væri úr
sögunni.
KRISTMANN OSKARSSON
„PAPPÍRS PÉSI"
Ævi hans hvatning til þeirra
sem hefja nýjan feril á efri árum
- sagði Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands
Los Angeles. Reuter.
RONALD Reagan, fyrrverandi forseti Bandarikjanna, hélt upp á
áttræðisafmæli sitt með pompi og prakt á miðvikudagskvöld. Af
myndbandi var spiluð ræða eftirmanns hans, George Bush. Viðstadd-
ar voru fjölmargar Hollywood-stjörnur auk sérlegs vinar hans Marg-
aret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.
Afmælisfögnuðurinn var með eftir að landgönguliðarnir höfðu
miklum glæsibrag. Liza Minnelli
söng uppáhaldslag Reagans „You
Made Me Love You“, hljómsveit
Iandgönguliða lék fyrir dansi og kór
söng negrasálma. Þegar veislan á
Beverly Hilton-hótelinu stóð sem
hæst var þriggja hæða afmælistertu
ekið inn á sviðið. Bjarmi leifturljós-
anna lék um forsetann fyrrverandi
þegar hann blés á kertin á tertunni.
Stjörnur eins og Elizabeth Tayl-
or, James Stewart og Charlton
Heston klöppuðu Reagan lof í lófa
leikið „God Bless America“.
Eins og tíðkast í veislum af þessu
tagi greiddu gestirnir aðgangseyri,
2.500 dali (132.000 ÍSK) hver.
Ágóðinn af veislunni, 2 milljónir
dala (106 milljónir ÍSK), rennur til
Bókasafns Ronalds Reagans í Kali-
forníu.
Thatcher sagði í ræðu sinni að
Reagan gæti orðið fólki á hennar
aldri fyrii-mynd. „Hann er okkur
hvatning sem erum í þann mund
að hefja nýjan starfsferil á efri
árum.“ Reagan varð forseti 69 ára
gamall og Thatcher er nú einungis
65 ára gömul.
Reagan sagðist ejga sér eina ósk
á afmælisdaginn. „Ég óska þess að
Guð líti eftir konum okkar og körl-
um sem þjóna af hugrekki í Persa-
flóastríðinu.“
Bush sendi Reagan afmælis-
kveðju á myndbandi: „Ég veit það
fullvel að ég væri ekki forseti í dag
ef þú hefðir ekki valið mig sem
varaforseta,“ sagði Reagan. Tals-
maður Reagans sagði að Míkhaíl
Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna,
og Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, hefðu einnig sent forsetanum
fyrrverandi hamingjuóskir.
••• Rauttnef
ergottmál
Sala rauða nefsins er fyrir lokaátalc húsbyggingar
Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra.
• SBM-hópurinn.
Sparileið sem ber rtkulegan ávöxt!
Vextir 6,5%
Á Sparileiö 4 áttu kost á bestu ávöxtuninni innan Sparileiöanna.
Reikningurinn ber nú 6,5% verötryggöa vexti.
Vaxtatrygging á bundiö fé
Vextir á Sparileiö 4 eru ákveönir til 6 mánaöa í senn, 1. janúar og I. júlí
ár hvert. Þannig er tryggt aö vextir lœkka ekki innan þessara tímabila.
Eignaskattslaus innstϚa
Innstœöa á Sparileiö 4 er eignaskattsfrjáls, aö uppfylltum ákveönum
skilyröum, eins og aörar innstæöur í bönkum og sparisjóöum.
Úttektir og úttektartímabil
Þegar aö minnsta kosti 24 mánuöir eru liönir frá stofnun reikningsins
opnast hann til úttektar í 7 mánuö og eftir þaö á 6 mánaöa fresti
á meöan innstœöa er fyrir hendi.
Á Sparileiö 4 vinnur tíminn meö þér. Sparileiö 4 er góöur kostur
fyrir þá sem eru vel á veg komnir í sparnaöi!
I S LAN D S B AN K I
-í takt viö nýja tíma!
ÍSLANDSBANKA