Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 9
MÓRGÚNBLÁÍÐIÐ FÖSTUDÁGUR 8. FÉBRÚAR 11)91
9
Ífiéfft, SKÓLAFÉLAG IÐNSKÓLANS í REYKJAVÍK
\£nL/ V/SKÓLAVÖRÐUHOLT -101 REYKJAVÍK • SÍMI 28044
FYRRVERANDI FORMENN SKQLAFÉLAGS
IDNSKÓLANS í REYKJAVÍK
Stjórn skólafélagsins óskar eftir að fá nöfn fyrrum
formanna SIR allt frá stofnun félagsins vegna
útgáfu skólablaðs.
Vinsamlega hafið samband fyrir 14. febrúar í
síma 24959 (Stefán), 73702 (Bjarki) eða 28044.
K-
Dags. 8.2. 1991
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4507 4200 0000 8391
4507 4500 0005 3774
4543 3700 0000 2678
4929 541 675 316
4548 9000 0021 2540
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ÍSLAND
K
14.00
18.00 OO LAUQARDAOA 10.00
OPIO VIRKA DAQA KL. 9.00
MMC L-300 Minibus 4x4, árg. 1988, vél-
arst. 2000,5 gíra, 5 dyra, blár, ekinn 60.000.
Verð kr. 1.290.000,-
MMC Colt GLXi, árg. 1990, vélarst. 1500
5 gíra, 3|a dyra, silfugrór, ekinn 9.000.
Verð kr. 895.000,-
MMC Galant hlaðb. GLSi, árg. 1990, vélarst.
2000, 5 gíra, 5 dyra, dökkgrænn,
ekinn 7.000.
Verð kr. 1.350.000,-
MMC Pajero turbo diesel Intercooler, órg.
1990, vélarst. 2500, 5 gíra, 5 dyra, blár,
ekinn 25.000.
Verð kr. 2.450.000,-
MMC Pajero turbo diesel Intercooler, árg. MMC L-300 Minibus 4x4, árg. 1988, turbo
1990, vélarst. 2500, 5 gíra, 3jo dyra, blár, diesel, 5 gíra, 5 dyra, hvítur, ekinn 50.000.
ekinn 17.000. Verð kr. 1.500.000,-
Verð kr. 1.830.000,-
AATH! Þriggja ára ábyrgðar- skirleini tyrir Mitsubishi bilreiðir gildir Irá fyrsta skráningardegi
Húsnædismálastjóm leitar til ríkisstjómarinnar um aðstoð:
Óvíst um greiðslu 1.000 millj.
til 800 lántakenda eftir helgi
Fjárþröng
í húsnæðismálum
í síðustu viku birtust tvær fréttir í Morg-
unblaðinu um fjárþröngina í hinu opin-
bera húsnæðiskerfi. Annars vegar var
skýrt frá því, að óvíst væri um greiðslu
1.000 milljóna króna til 800 lántakenda
nú í þessari viku. Hins vegar sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra, að fóik með lánsloforð fengi greitt.
Þá var birt athugasemd frá Ólafi Ragnari
Grímssyni fjármálaráðherra sem sagði
að fjárþröng Byggingarsjóðs ríkisins
væri ekki sitt vandamál. Er staldrað við
þetta í Staksteinum í dag.
Deyfilyfið
vantar
Ymsir minnast líklega
átakanna sem urðu á
flokksþingi Alþýðu-
flokksins, sem haldið var
í Hafnarfirði fyrir fáein-
um mánuðum. Þar kom
til harðra átaka milli
Jóns Baldvins Hannibals-
sonar flokksformanns og
Jóhönnu Sigurðardóttur
varaformamis vegna
Jjess að Jóhanna krafðist
opinberra framlaga til
húsnæðiskerfisins. Lauk
deilunni með samning-
um, sem Ólafur Ragnar
Grímsson sagði að
myndu kosta skattgreið-
endur einn til tvo millj-
arða. I forsíðufrétt sem
birtist í Þjóðviljanum 17.
nóvember 1990 segir
meðal annars:
„Ólafur Ragnar sagð-
ist styðja félagsmálaráð-
herra í þvi að breyta
húsnæðiskerfinu, en að
dæla peningum úr ríkis-
sjóði í gamla kerfið
myndi einungis virka
sem deyfilyf þannig að
ráðamenn myndu leggj-
ast aftur á koddaim og
sofna án þess að breyta
nokkru ef þessi mála-
miðlunarleið Alþýðu-
flokksformannsins yrði
að veruleika."
Þeir sem fara með
stjórn Byggingarsjóðs
ríkisins telja, að vanda
hans megi ekki síst rekja
til þess hve mikið hefur
verið dregið úr framlög-
um ríkissjóðs til sjóðsins.
A árinu 1987 nam það
1.000 milljónum króna,
1988 1.125 milljónum
króna, 1989 550 miHjón-
um króna en árið 1990
var það aðeins 44 milljón-
ir króna. A fjárlögum
1991 er ekki gert ráð
fyrir neinu framlagi úr
ríkissjóði til Byggingar-
sjóðs rikisins, þrátt fyrir
samkomulagið á flokks-
þingi Alþýðuflokksins.
Iinian Húsnæðisstofn-
unar telja memi að ríkið
hafi með þessum sam-
drætti í fjárframlögum
brotið gegn lögum um
stofnunina frá 1986 en í
greinargerð með frum-
varpinu kom fram að
framlag ríkissjóðs, miðað
við gefnar forsendur,
skyldi ekki vera lægra
en 1.000 milljónir króna.
Miðað við verðlag fjiir-
laga árið 1991 væri þessi
fjárhæð orðin 2,3 til 2,4
milljarðar. Þá er sú skoð-
un einnig sett fram, að
þeir aðilar sem stóðu að
samkomulagi við ríkis-
valdið um húsnæðiskerf-
ið 1986, Vinnuveitenda-
samband íslands og Al-
þýðusamband Islands
telji, að ríkissjóður eigi
að standa undir vaxta-
halla Byggingarsjóðs
ríkisins, sem verði 800 til
1.000 milljónir á árinu
1991.
Meðal annars á þessum
forsendum hafa forráða-
mcim Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins talið, að ríkis-
sjóður, sem lýtur stjóm
Olafs Ragnars Grímsson-
ar fjármálaráðherra, eigi
að tryggja að viðunandi
lausn fáist á fjiirhags-
vanda Byggingarsjóðs
ríkisins.
Ekki mitt mál
Um þetta stóra fjár-
hagsdæmi allt, þar sem
hundruð manna eiga
mikið í húfi, hefur verið
rætt á fundum fulltrúa
félagsmálaráðuneytis og
fjármálaráðuneytis. Þeg-
ar Morgunblaðið birtir
siðan frétt um það í
síðustu viku, að Qármála-
ráðherra sé ekki tilbúinn
til að viðurkenna að það
vanti fjármuni í Bygging-
arsjóð ríkisins stekkur
Olafur Ragnar Grímsson
upp á nef sér og sendir
Morgunblaðinu athuga-
semd þar sem segir með-
al annars að það sé „orð-
ið ansi þreytandi að þeir
sem bera ábyrgð á hús-
næðismálum eru sifellt
að kenna öðrum um þeg-
ar þeim tekst ekki að
framkvæma þau verk
sem þeim hafa verið fal-
in“.
Þessi umrnæli um
getuleysi forráðamanna
húsnæðismála rökstyður
Ólafur Ragnar ineð því
að Húsnæðisstofnun
rikisins og fulltrúai' fé-
lagsmálaráðuneytisins
hafi ekki tekist að gera
það sem hann kallar
„skynsamlega" samninga
við lífeyrissjóðina um
reglubundin kaup á
skuldabréfum Bygging-
arsjóðs rikisins. Telur
Ólafur Ragnar allan
vanda Byggingarsjóðs
stafa af þessu.
Ráðherrann lætur þess
ekki getið, að Byggingar-
sjóðurinn er nú svo illa
staddur að hami getur
ekki innt af hendi endur-
greiðslur til lifeyrissjóða
og rikisábyrgðarsjóðs.
Er líklegt að við þær
aðstæður séu lífeyrissjóð-
ir ákafir i að kaupa frek-
ari skuldabréf af sjóðn-
um? Fjármálaráðherra
lætur þess ekki heldur
getið, að húsbréfakerfið
hefur orðið til þess að
þrengja möguleika
Byggingarsjóðs á sölu
skuldabréfa til lífeyris-
sjóðanna. Sjóðirnir geta
nú fullnægt samnings-
bundnum skuldabréfa-
kaupum við Húsnæðis-
stofnun ríkisins með því
að kaupa húsbréf fyrir
18% af ráðstöfunarfé
sinu i ár, en þetta hlut;
fall var 10% í fyrra. í
lögunum frá 1986 er gert
ráð fyrir að lífeyrissjóð-
imir kaupi skuldabréf af
Húsnæðisstofnun fyrir
55% af ráðstöfunarfé
sínu. Stofnunin fékk 45%
af ráðstöfunarfé sjóð-
anna 1990 og fær 37°/o
1991.
Ólafur Ragnar Grims-
son minnist ekki á þessar
staðreyndir, þegar hami
segir, að það sé ekki sitt
mál lieldur allra annarra
að Byggingarsjóður
rikisms berst í bökkum.
Er sá málflutningur ráð-
herrans í samræmi við
annað sem frá honum
kemur, því að honum er
ljúfast að visa öllum
vandamálum til annai'ra.
Það er alvarlegt mál þeg-
ar fjármálaráðherra
lands virðist sérhæfa sig
í málflutningi sem miðar
að því að telja mönnum
trú um að samningar sem
gerðir hafa verið við
ríkissjóð séu einskis virði.
Þegar þamiig er komið
er vegið að undirstöðum
eðlilegra viðskiptahátta.
Vandræði Húsnæðis-
stofnunar rikisins stafa
af sundurlyndi innan
ríkisstjómarinnar og
ráðaleysi Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmála-
ráðherra. Augljóst er að
hinar sögulegu sættir
sem áttu að hafa tekist á
milli heimar og Jóns
Baldvins á flokksþinginu
i Hafnarfirði i nóvember
sl. eru lítils virði. Stjóm
húsnæðismálanna á veg-
um rikisins er í algjömm
ólestri.
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FOSTUDAGUR TIL FJAR
KAFFISTELL
í DA6
Á KOSTNAÐARVERÐI
BYGGT&BtJIÐ
I KRINGLUNNI